Morgunblaðið - 11.05.2000, Blaðsíða 62

Morgunblaðið - 11.05.2000, Blaðsíða 62
62 FIMMTUDAGUR 11. MAÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ 'freemúNis <) 1 I. <) N I) <) N PÖNTUNARSÍMI 565 3900 OPIÐ KL. 9.00 TIL 22.00 Förðunarfræðingur NO NAME veitir ráðleggingary Föstudaginn 12. maí Sara Bankastræti 8. Reykjavík kl. 12-18 Sandra Smáratorgi. Kópavogi kl. 14-18 : Prímadonna Grensásvegi 20, Reykjavík, kl. 14 18 www.mbl.is FRÉTTIR Morgunblaðið/Jón Svavarsson Leifur Þorsteinsson skoðar hjá Baldvini Einarssyni, til hægri, eldri gerð af ferðamyndavél en þær voru gjaman af þessari stærð fyrir 100 árum. Beco flytur á Langholtsveginn Yfírlýsing Eflingar um úthlutun orlofshúsa FYRIRTÆKIÐ Beco, sérhæfðar myndavélaviðgerðir, er flutt í nýtt húsnæði að Langholtsvegi 84, þar sem Holtsapétek var áður. Beco ehf., sem verður 20 ára um þessar mtmdir, hafði lengi verið til húsa á Barónsstíg en fyrirtækið festi kaup á húsnæðinu við Lang- holtsveg fyrir nokkrum mánuðum, flutti þangað 22. febrúar og hélt formlega upp á flutninginn í nýja húsnæðið fyrir skömmu. Beco ehf. var stofnað árið 1980 af þeim hjónum Baldvin Einarssyni og Ingibjörgu Siguijónsdóttur. Sem viðurkenndur viðgerðaraðili fyrir Canon var fyrst um sinn boðið upp á sérhæfða viðgerðarþjónustu á myndavélum en fljótlega varð spum eftir vömm til ljósmyndunar orðin það mikil að ákveðið var að opna verslun. Árið 1985 var síðan opnuð verslun að Barónsstíg 18.1984 varð Beco viðurkenndur viðgerðaraðili fyrir Hasselblad og 1993 tók Beco einnig við söluumboðinu. Beco fékk svo söluumboð fyrir Leica Ijósmyndavömr árið 1997. Þess má geta að fyrirtækið hefur opnað heimasíðu á Netinu, og er slóðin þangað www.beco.is - þar sem allir hafa t.d. aðgang að verð- listum fyrirtækisins, og ýmsum upp- lýsingum um ljósmyndun. EFLING-stéttarfélag hefur sent frá sér eftirfarandi yfirlýsingu um út- hlutun orlofshúsa sumarið 2000: „Vegna blaðaskrifa og frétta i dag- blöðunum þar sem því er haldið fram að Efling-stéttarfélag mismuni fé- lagsmönnum sínum eftir aldri þ.e.a.s. að eldri félagsmenn hafi minni rétt en yngri félagsmenn skal eftirfarandi tekið fram. Þessa ásakanir eru byggðar á miklum misskilningi og vanþekkingu þeirra sem skrifa um málið af hálfu fjölmiðla. Þau félög sem standa að Eflingu- stéttarfélagi hafa alla tíð litið á eldri félagsmenn sem jafninga annarra fé- lagsmanna enda njóra þeir réttinda í félaginu þótt þeir hafi látið af störf- um. Til marks um það eru einsog und- anfarin ár um 170 félagsmenn okkar á aldrinum 65 ára og eldri í orlofsdvöl á Benidorm á Spáni á niðurgreiddu fargjaldi frá félaginu. Fyrir nokkrum vikum var haldið kaffisamsæti fyrir eldri félagsmenn á Hótel Sögu og þar mættu um 700 manns. Þessum aldurshópi er boðið upp á dvöl í orlofshúsum á þriggja vikna tímabili í maímánuði á þriðjungi af verði sem aðrir félagsmenn verða að borga og á þessu tímabili hafa aðrir félagsmenn ekki aðgang að húsunum. Þegar til úthlutunar yfir sumar- tímann frá júm' til september eru um 580 vikur í boði en rúmir 1.300 félags- menn sækja um, þá segir sig sjálft að ekki geta allir fengið úthlutað sumar- húsum. í Eflingu-stéttarfélagi eru nú milli 3.000 og 4.000 manns sem komnir eru af starfsaldri og geta því ekki áfram safnað punktum í kerfinu. Þessir fé- lagsmenn eiga því minni möguleika á að fá úthlutanir á vinsælasta tíma sumarsins þar sem punktauppsöfnun byggist á greiðslum til félagsins. Engu að síður er alltaf hópur eldri fé- lagsinanna sem fær úthlutað á þess- um tíma. Af sumarúthlutun 2000 er 21% úthlutana til65 ára og eldri eða 116 úthlutanir af 548 úthlutunum alls. Við höfur ekki geta fundið réttlát- ara kerfi til úthlutunar sumarhúsa en það sem byggist á punktasöfnun enda er það notað af fjölmörgum stéttarfélögum við úthlutun. Þá má benda á að þessi hópur eins og aðrir félagsmenn á möguleika til aðsækja um orlofshús utan orlofs- tímabilsins og á þessu tímabili bygg- ist úthlutun ekki á punktakerfi. Það er ósk stjómar Eflingar að þessar skýringar nægi til að skýra þetta mál sem verið hefur til umfjöll- unar í fjölmiðlum því það er ekki og hefur aldrei verið stefna félagsins að mismuna félagsmönnum sínum.“ Yfirlýsing frá Aksturs- íþróttafélagi Suðurnesja Ibúðalánasjóður flytur í Borg’artún 21 MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi yfirlýsing frá stjóm Akstursíþróttafélags Suðumesja: ,AIFS mun halda torfærakeppni við Stapafell á Reykjanesi sunnudag- inn 14. maí næstkomandi. Eins og fram kom í yfirlýsingu frá Ragnari Kristinssyni viðurkennir nýstofnað torfærasamband ekki tilverurétt AIFS og rétt til keppnishalds í tor- færu. Stjóm AIFS lætur sér það í léttu rúmi liggja enda er AIFS aðili að LÍA sem er aðili að FIA. AIFS mun virða lög og reglur LÍ A og FIA og er því í fullum rétti til þess að halda þessa torfærakeppni. Það sem skipt- SKEIFUDAGUR verður í Hóla- skóla laugardaginn 13. maí. Dagskráin hefst kl. 14 með úr- slitakeppni í fjórgangi. Að keppni lokinni verður verðlaunaafhending í reiðhöllinni. í ár era það 23 nemendur hrossa- brautar sem berjast um hituna. Mikil spenna ríkir ávallt um það hvaða nemendur hljóta hnossið. ir öllu máli fyrir stjóm AIFS er að allir helstu torfæruökumenn landsins munu mæta í keppnina okkar sunnu- daginn 14. maí næstkomandi. Eins og fram hefur komið hefur AIFS haldið torfærakeppni áður og var það mat stjómar AIFS að sú keppni hafi heppnast með eindæmum vel. Allir stjórnarmenn AIFS era núverandi keppendur í torfæra, rally, eða rally- crossi. Á meðan nánast enginn stjómarmaður í þesssu nýstofnaða torfærasambandi er virkur keppandi og flestir torfæraökumenn sem verið hafa í BA (Bílaklúbbi Akureyrar) og JR (Jeppaklúbbi Reykjavíkur) hafa yfirgefið félögin vegna ágreinings.11 Skeifuna hlýtur sá nemandi sem hefur staðið sig best í reiðmennsku- hluta námsins yfir veturinn. Félag tamningamanna veitir verðlaun fyr- ir besta ásetu og tímaritið Eiðfaxi veitir þeim nemanda verðlaun sem hefur hirt sitt hross best yfir vetur- inn. Kaffiveitingar verða í boði Hóla- skóla. ÍBÚÐALÁNASJÓÐUR hóf starf- semi í nýju húsnæði að Borgartúni 21 þriðjudaginn 9. maí. „Flutningarnir í nýtt húsnæði era ekki hvað síst til þess ætlaðir að bæta þjónustu við almenning, fast- eignasala og áðra er eiga í samskipt- um við íbúðalánasjóð, enda hefur stjórn sjóðsins lagt áherslu á að íbúðalánasjóður skuli vera skilvirk, lipur þjónustustofnun, mönnuð hæfu starfsfólki sem vinni að verkefnum sjóðsins á hagkvæman hátt með tilstuðlan öflugrar upplýsingatækni. Aðgengi að afgreiðslu íbúðalána- sjóðs í Reykjavík mun batna vera- lega við flutningana, en afgreiðsla sjóðsins mun verða á fyrstu hæð í Borgartúni 21. Bílastæðahús er enn í byggingu svo fyrst um sinn mun verða þröngt um bflastæði og biður Ibúðalánasjóður viðskiptavini sína velvirðingar á því,“ segir í frétt frá sjóðnum. Unnið í opnu rými Innra skipulag Ibúðalánasjóðs mun nokkuð breytast þar sem starf- semi sjóðsins í Borgartúninu verður í opnu rými. Framkvæmdastjóri sem og aðrir starfsmenn sjóðsins munu þvi ekki starfa í lokuðum skrifstofum. Sérstök viðtalsherbergi og fundarherbergi verða til staðar þar sem starfsmenn og viðskiptavin- ir íbúðalánasjóðs geta rætt við- kvæm málefni þegar það á við. „Stjóm íbúðalánasjóðs hefur lagt áherslu á að starfsemi íbúðalána- sjóðs skuli vera í sífelldri endur- skoðun svo að stofnunin bregðist skjótt við breytingum í samfélaginu. I anda þess er nú í gangi stefnumót- un og heildarendurskoðun á starf- semi Ibúðalánasjóðs í ljósi reynsl- unnar til að tryggja skilvirkni og góða þjónustu," segir í fréttatil- kynningu. ------------------ Fyrirlestur um lífsferil holdýra PETER Schuchert frá Natural History Museum of Geneva í Sviss, heldur fyrirlestur föstudaginn 12. maí á vegum Líffræðistofnunar Há- skólans í stofu G-6 að Grensásvegi 12, og hefst hann kl 12:20. Fyrirlesturinn: „What are hydro- zoans?“ verður fluttur á ensku og fjallar um vistfræði og lífsferil holdýra. Skeifudagur í Hólaskóla
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.