Morgunblaðið - 11.05.2000, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 11.05.2000, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR FIMMTUDAGUR 11. MAÍ 2000 45 pabbi tekur á móti þér og leiðir þig inn í nýtt hlutverk sem bíður þín. Ég kveð þig nú með trega, kæri bróðir, og þakka fyrir allar stundimar sem við áttum saman. Elsku Guðný, Denna Lóa, Eiríkur Pétur, Pórður, Hrefna, Ævar Ingi, og litlu afastrákamir Reynir Kristinn og ísak Árni, ég bið guð að styrkja ykk- ur á þessari stundu. Halldóra Kristín Magnúsdóttir. Okkur langar í fáum orðum að kveðja kæran mág og vin Óla Jóhann Kristinn Magnússon, Kidda eins og við kölluðum hann. Kiddi var hár og myndarlegur maður sem eftir var tekið þar sem hann fór. Ungur að ár- um kynntist hann Guðnýju systur og mágkonu okkar og hafa þau síðan gengið lífsbrautina saman, þau eign- uðust þrjú mannvænleg böm. Kiddi var mikill heimilismaður sem bar hag fjölskyldunnar mjög fyrir bijósti. Ékki fór framhjá okkur hversu góður faðir hann var bömum sínum. Að leiðarlokum er okkur efst í huga hve mörgum mannkostum Kiddi var gæddur, trygglyndi og sú fágæta gæfa sem einkenndi hugarþel hans, að leggja aldrei illt orð til um nokk- um mann. Með léttri lund og um- burðarlyndi laðaði hann að sér fleiri samferðamenn en almennt er títt. Hjá Strætisvögnum Reykjavíkur var hans starfsvettvangur í um ald- arfjórðung og er okkur kunnugt um að hann var afar farsæll og vel met- inn í starfi. Utan starfa sinna hjá Strætisvögnunum vann hann oft í fríum við akstur hópferðabíla, bæði í lengri og skemmri ferðum, í samræð- um við hann kom oft fram hversu mikla ánægju hann hafði af þessum ferðalögum og þeim fróðleik sem hann safnaði um landið svo og um menn og málefni. Sem fyrr segir var Kidda afar umhugað um fjölskyldu sína, í okkar huga voru þau sem eitt hann og Guðný. Síðastliðið ár í erfið- um veikindum hans var Guðný sem klettur við hans hlið, er hann treysti á, auk þess naut hann umhyggju barna, móður, systkina og fjölmargra vina og vandamanna. Þá er vert að minnast ummæla Guðnýjar um hversu góðrar aðhlynningar hann naut síðustu vikumar í veikindum sínum á gjörgæsludeild Landspíta- lans í Fossvogi. Okkmr er ofarlega í huga jákvæði og dugnaður Kidda meðan á veikindum hans stóð, gekk hann mikið og lagði á sig ófáar ferðir til að hitta starfsfélaga sína hjá strætó. Þó Kidda hafi verið létt um að kynnast fólki og laða að sér stóra sem smáa var hann afar dulur um eigin hagi. Við minnumst hans með sökn- uði og hlýhug, hann var sönn hetja hversdagsins sem skilaði sínu hlut- verki með sóma. Margs er að minnast og þó að síð- ast liðið ár hafi reynst erfitt voru upp- styttur sem þau hjónin nutu vel. Þau fóru austur í Egilsstaði á æsku- stöðvar Guðnýjar og dvöldu þar og ferðust í nokkra sólskinsdaga um Austurland. Á síðast liðnu hausti fóru þau til írlands í fylgd góðra vina sinna og höfðu þau mikla ánægju af. Að lokum kemur okkur í hug ljóð- lína úr Ijóði Einars Benediktssonar skálds, Eitt bros getur dimmu í dags- ljós breytt. Segja þessi fáu orð mikið um kynni okkar af Kidda. Þessarar birtu nutum við öll sem þekktum hann. Hafðu þökk fyrir góða en allt of stutta viðkynningu, megi góður Guð leiða þig til ljóss og friðar. Elsku Guðný, Denna Lóa, Þórður, Ævar Ingi, tengdaböm, afastrákar, Lóa, Gunnar, Dóra og Denna og allir sem eiga um sárt að binda, við biðjum góðan Guð að blessa ykkur og styrkja til að takast á við sorg og söknuð. Megi minningin um góðan dreng gefa ykkur birtu og hlýju á ókominni tíð. Benedikt og Jóna. Kæri mágur. Æ, þú tapaðir. Þú sem varst svo bjartsýnn. Kvöldið fyr- ir stóru aðgerðina heyrði ég í þér og þú varst svo viss um að þetta yrði bara smáskeina, og að þú yrðir kom- inn heim innan örfárra daga, og ekki bara heim til þín, heldur hingað aust- ur í Egilsstaði til okkar. Nei, nei, bar- daginn í vöku og svefni tók heilan mánuð áður en yfir lauk. Þú varst ekki nema 52 ára og áttir svo margt eftir. Ég man þegar Guðný systir kom með þig hingað heim og kiynnti þig fyrir okkur, þér, þessum stóra og myndarlega manni, hvað hún var ánægð með þig. Æ já, svona er lífið. Maður veit ekki ævina fyrr en öll er. Ég þakka þér fyrir allar stundim- ar sem við áttum saman, allar mót- tökumar þegar við komum suður. Alltaf voram við velkomin inn á ykk- ar hlýja heimili, hvort sem ég kom ein eða við öll, þá var okkur alltaf tekið opnum örmum og nóg var plássið, þótt fullt væri út úr dyram. Já, það var gott að koma til ykkar. Þú varst góður maður Kiddi. Ég þakka þér samfylgdina og vona að þér líði vel núna, þar sem þú ert. Við biðjum góðan Guð að styrkja þig Guðný mín og bömin ykkar, þau Dennu Lóu, Þórð og Ævar Inga, tengdaböm og bamaböm og þig Lóa mín og alla ykkar ástvini í þessari miklu sorg. Blessuð sé minning þín og hafðu þökk fyrir allt. Kalliðerkomið kominernústundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund Vmimirkveðja vininnsiimlátna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margseraðminnast, margterhéraðþakka. Guði sé lof íyrir liðna tíð. Margseraðminnast, margseraðsakna. Guð þerri tregatárin stríð. Farþúífríði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt GekkstþúmeðGuði, Guðþérnúfylgi, hann dýrðarhnoss þú hljóta skalt (V. Briem.) Kveðjur, Guðrún María Þórðardóttir og fjölskylda. í vinnunni. Hann keyrði nefnilega strætó og stundum var ég svo heppin að hann leyfði mér að fara með sér einn hring, þ.e. frá Breiðholti og nið- ur í bæ og svo aftur upp í Breiðholt. Ég man hvað mér fannst þetta spennandi, það var eins og ég hefði himin höndum tekið. Þetta var sko toppurinn á tilveranni. Það að þekkja strætóbílstjóra var nú ekki amalegt. Þótt það séu nú sjálfsagt að nágast 25 ár síðan þetta var man ég enn hvað ég var glöð og ánægð þegar hann leyfði mér að fara með sér. Undanfarin ár hefur sambandið því miður ekki verið nógu mikið þar sem ég ég hef búið erlendis. En þegar ég hef komið í heimsóknir til íslands hefur eftirvæntingin alltaf verið mikil yfir því að hitta Kidda og Guðnýju aftur. Það var svo gott að koma til þeirra og alltaf var tekið mjög vel á móti mér og fjölskyldu minni. I þess- um heimsóknum þurfti svo margt að ræða, bæði að segja fréttir og fá fréttir og ræða um daginn og veginn og bara allt sem hafði á daga okkar drifið frá því við hittumst síðast. Það var svo gaman að heyra hann tala um afastrákana sína, tvo. Hann var svo montinn af þeim. Ég er svo þakklát fyrir að hafa hitt hann í desember sl. Þá var hann svo hress, eins og alltaf, og bjartsýnn á framtíðina. Þannig mun ég alltaf minnast hans. Elsku Guðný mín, Denna Lóa, Þórður, Ævar Ingi, Lóa, systkini og aðrir ástvinir, missir ykkar er mikill Að heilsa og kveðja er lífsins gang- ur. En það er sárt að þurfa að kveðja vini sína löngu fyrir tímann. Fjöl- skyldur okkar hafa fylgst að í nær- fellt þrjátíu ár og helming þess tíma hafa þau samskipti oft orðið mikil. Við glöddumst saman á góðum stundum og hluttekning ykkar í sorg- um okkar á síðastliðnu hausti og í vet- ur verður aldrei fullþökkuð. Börnin okkar uxu upp í nágrenni og dætur okkar, Denna Lóa og strákamir urðu góðir vinir. Sú vinátta á vísast eftir að endast ævilangt. Um hver jól og áramót vora fjöl- skyldurnar saman. En nú hafa stór skörð verið höggvin þar í. Við eigum ógleymanlegar minningar um þessar gleðistundir og geymum þær með okkur. Kallið er komið, kominernústundin vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinimirkveðja vininnsinnlátna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margseraðminnast, margterhér aðþakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margseraðminnast, margseraðsakna. Guð þerri tregatárin stríð. (V. Briem.) Guðný, Denna Lóa, Þórðm-, Ævar Ingi og Lovísa. Algóður Guð verndi og styrki ykkur og fjölskyldur ykkar. Fjöiskyldan Búagrund 1. Þegar ég heyrði þá váfregn að Kiddi væri látinn setti mig hljóða. Ég vissi að hann hafði átt við veikindi að stríða, en ég vildi trúa því að hann mundi ná yfirhöndinni. En því miður varð hann að lúta í lægra haldi. Frá því að ég var lítil stelpa hef ég þekkt Kidda og Guðnýju, konuna hans. Þau mætu hjón vora góðvinir móður minnar og var ég svo heppin að njóta góðs af þeirra mikla vinskap. Þegar ég læt hugann reika til lið- inna ára koma fram margar góðar minningar tengdar Kidda. Sérstak- lega er mér minnisstætt þegar ég fékk að fara „einn hring“ með honum Varanleg minning er meitlub ístein. IIS. HELGASOIM HF STEINSMIDJA Skemmuvegi 48, 200 Kóp. Sími: 557-6677 Fax: 557-8410 Netfang: sh.stone@vortex.is og votta ég ykkur mína dýpstu sam- úðog bið góðan guð að styrkja ykkur öU í ykkar miklu sorg. Að lokum vil ég þakka Kidda fyrir einlægan og góðan vinskap í gegnum árin. Guðlaug Erlendsdöttir. Örfáar línur til minningar um fé- laga okkar úr kómum sem er burt kallaður til æðri heima. í okkar hóp var hann aUtaf kallaður Kiddi. Fyrst var hann í klappUðinu og alltaf var hann reiðubúinn að hjálpa til við flutning á hijóðfæram og pöllum þeg- ar tónleikar vora í farvatninu. Konan hans hún Guðný var í kómum og einnig dóttir hans hún Denna Lóa. Síðan lét hann tU leiðast að koma í kórinn, það bráðvantaði bassa og hann sló tU. Þó hann væri hættur í kórnum fylgdist hann með og sendi ávallt hlýjar kveðjur, síðast dauð- veikur af spítalanum. Við sendum fjölskyldunni einiægar samúðarkveður og trúum því að hann sé kominn í bassann hjá englakóm- um á himnum, laus við kvöl og þraut. Mosfellskórinn. í dag kveðjum við vin okkar Kidda, sem látinn er langt um aldur fram. Okkur langar tU að minnast hans með örfáum orðum. Það var fyrir 28 áram að leiðir okk- ar karlanna lágu fyrst saman er við spiluðum fótbolta á móti hvor öðram austur á fjörðum, Kiddi með Hetti en ég með Hugin. En því miður kynnt- umst við ekki mikið þá. Það var svo fyrir fjóram áram að við hittumst aftur og upp frá því varð; mikU og góð vinátta. Það var gaman að ferðast með Kidda, þar sem hann var mjög fróður um fjöll og staðhætti, og miðlaði okkur. Kiddi minn, margar era þær ánægjustundimar sem þú, Guðný og við PaUa höfum átt saman við spila- borðið og verður þeirra ætíð minnst. Minnisstæðust er samt sú góða ferð er við fórum öU saman tU Dublin sl. haust. Það var gaman að sjá hversu vel þú naust þín, þrátt fyrir að ganga ekki heiU tíl skógar. Strax upp frá því var ákveðið að stefna að annarri slíkri - ferð, en því miður verður það ekki. Það varð öllum mikið áfall er þú greindist með þann Ulvíga sjúkdóm, sem lagði þig síðan að velU, þrátt fyr- ir hetjulega baráttu tU hins síðasta. Kiddi minn, það era eflaust marg- ir, sem líta yfir farinn veg á þessari stundu, þar á meðal við. Við viljum að leiðarlokum þakka þér fyrir samfylgdina og allar ánægjustundimar er við áttum sam- an. Elsku Guðný, Denna Lóa, Þórður og Ævar Ingi. Guð blessi ykkur og fjölskyldur ykkar á þessari sorgar- stundu. En minnumst þess að sorgin dofnar með tímanum og þeir deyja ungir sem guðimir elska. , j, Rúnar og Pálína. + Bróðir okkar, JÓNAS SIGURÐSSON kaupmaður, Hverfisgötu 71, lést mánudaginn 8. maí. Ragnhildur Sigurðardóttir, Hannes Sigurðsson, Þorgerður Sigurðardóttir. + Ástkær móðir okkar, JÓRUNN JÓHANNSDÓTTIR frá Neðra-Nesi, verður jarðsungin frá Stafholtskirkju laugardaginn 13. maí kl. 14.00. Rútuferð verðurfrá B.S.f. kl. 12.00. Þeim, sem vildu minnast hennar, er bent á að láta Dvalarheimili aldraðra í Borgarnesi njóta þess. Þorbjörn Sigurðsson, Þórir Sigurðsson. + Ástkær sonur minn og faðir okkar, ELVAR SAMÚEL HÖJGAARD, Vopnafirði, sem lést á hjúkrunarheimilinu Sund; Vopnafirði föstudaginn 5. maí, jarðsunginn frá Vopnafjarðarkirkju laug inn 13. maí kl. 14.00. Ellý S. Höjgaard, Friðrik Óli og Ellý Agnes. + Elskulegur sonur okkar, faðir, bróðir og barna- barn, MARÍUS AÐALBJÖRNSSON GRÖNDAL, Asparfeili 12, Reykjavík, sem lést föstudaginn 5. mai, verður jarðsung- inn frá Fossvogskirkju föstudaginn 12. maí kl. 13.30. Aðalbjörn Gröndal, Alma Sæbjörnsdóttir, Antonio Pascoal, Margrét Erla Finnbogadóttir og Arnar Orri Gröndal, Sigurður Almar, Valgerður, Jafet Egill, fsabella, Ágúst Eir, Sædís Hulda, Hrefna Björk, Bjarni Þór og Jón Hannes, Valgerður Valtýsdóttir, Sæbjörn Jónsson, Kolbrún Ingólfsdóttir, Samúel Bjarnason.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.