Morgunblaðið - 11.05.2000, Side 10
10 FIMMTUDAGUR 11. MAÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Andstaða við skóla-
gjöld vegna MBA-náms
INNHEIMTA skólagjalda fyrir
MBA-nám á vegum viðskipta- og
hagfræðideildar Háskóla íslands
kom til umræðu á Alþingi í gær.
Þingmenn úr röðum stjómarand-
stöðu og Framsóknarflokks lýstu
harðri andstöðu við gjaldtöku, sem
útlit er fyrir að verði að veruleika ef
mið er tekið af drögum háskólaráðs
að reglugerð fyrir Háskóla íslands.
Sturla Böðvarsson, staðgengill
menntamálaráð-
herra, benti á að
tillögur háskóla-
ráðs um töku
skólagjaldanna
lægju ekki fyrir
og því væri ekki
tímabært fyrir
ráðuneytið að
taka afstöðu til
þeirra. Stúdenta-
ráð Háskóla Is-
lands hefur af
þessu tilefni ítrekað andstöðu sína
við innheimtu skólagjalda vegna
hins fyrirhugaða MBA-náms.
I lögum um Háskóla Islands, sem
tóku gildi 1. maí á síðasta ári, er há-
skóladeildum veitt heimild til að
standa fyrir endurmenntun. I 18.
grein laganna er háskólanum jafn-
framt veitt heimild til gjaldtöku fyr-
ir endurmenntun og er háskólaráði
falið að setja nánari reglur um
gjaldtökuna.
Fellt undir endurmenntun
Ekki kemur fram hvað fellur und-
ir endurmenntun í skilningi lag-
anna. Agreiningur stendur um
hvort skilgreina eigi MBA-nám sem
endurmenntun og hvort heimilt sé
að veita prófgráðu að loknu endur-
menntunamámi, en háskólaráði er í
lögum um Háskóla Islands falið að
setja reglur um prófgráður.
I drögum um reglugerð fyrir Há-
skóla Islands, sem lögð verða fyrir
háskólafund 18. og 19. maí nk., er
MBA-nám við viðskipta- og hag-
fræðideild skólans fellt undir skil-
greininguna um endurmenntun og
deildinni jafnframt fengin heimild
til að veita prófgráðu að því loknu.
Þannig er gert kleift að innheimta
sérstök gjöld fyrir námið.
Svanfríður Jónasdóttir, þingmað-
ur Samfylkingarinnar, hóf máls á
umræðunni um skólagjöld á Al-
þingi. Hún sagði að nú bærust af því
fréttir að Háskóli íslands væri
búinn að finna leið til að taka 1,2
milljóna króna skólagjöld fyrir nám
í viðskiptafræðum og lýsti djúpum
áhyggjum sínum
af þessari þróun.
Svanfríður sagði
ekki fara á milli
mála að Alþingi
hafi haft Endur-
menntunarstofn-
un háskólans í
huga þegar fjall-
að var um að
veita Háskóla ís-
lands með lögum
heimild til að
taka gjald fyrir endurmenntun, ekki
hafi átt að bjóða upp á gjaldtöku
fyrir nám á vegum háskólans sjálfs.
Hún segir að með því að heimila
gjaldtöku fyrir MBA-nám í Háskóla
Islands sé verið að fara framhjá lög-
unum og vilja Alþingis. Svanfríður
óskaði eftir upplýsingum um hver
yrðu viðbrögð fulltrúa menntamála-
ráðherra í háskólaráði, en ráðherra
skipar tvo af tíu meðlimum ráðsins.
Ráðuneytinu ekki verið
kynntar hugmyndir háskólans
Sturla Böðvarsson, staðgengill
menntamálaráðherra, sagði að það
væri til umræðu innan Háskóla ís-
lands hvort og með hvaða hætti
MBA-nám verði veitt á vegum við-
skipta- og hagfræðideildar. Háskól-
inn eigi eftir að útfæra nákvæmlega
hvernig beri að standa að fram-
kvæmd þessara hugmynda og hafi
þar af leiðandi ekki kynnt ráðuneyt-
inu hvernig staðið verði að málinu.
Því sé ekki ástæða til að gefa sér-
stakar yfirlýsingar um málið núna
og ekki sé hægt að segja fyrir um
það hver afstaða fulltrúa
menntamálaráðuneytisins í háskól-
aráði verði þar sem ekki liggi fyrir
hvað háskólinn muni leggja til.
Gjá milli stjórnarflokkanna?
Ólafur Öm Haraldsson, þingmað-
ur Framsóknarflokks, sagði vilja
stjórnarflokkanna um að hafna töku
skólagjalda fyrir háskólanám liggja
ljósan fyrir og kvað þau tíðindi sem
borist hafi af undirbúningi reglu-
gerðar hjá háskólanum gefa fullt til-
efni til þess að málið sé rætt. Hann
kveðst tilbúinn að efia háskólann og
telur rétt að koma til móts við þarfir
hans með auknum fjárframlögum
þannig að hægt verði að bjóða upp á
meistaranám við deildir háskólans.
Össur Skarphéðinsson, þingmað-
ur Samfylkingarinnar, sagði ljóst að
gjá væri að myndast milli stjórnar-
flokkanna í málinu. Össur sagðist
lesa það sem nú væri að gerast með
hliðsjón af því að menntamálaráð-
herra hefði 20 prósent fulltrúa há-
skólaráðs. „Þama er Sjálfstæðis-
flokkurinn að gera tilraun til þess
að smygla inn skólagjöldum bak-
dyramegin og innleiða einkavæð-
ingu í skólakerfið," sagði hann.
Þessu mótmæltu Sigríður Anna
Þórðardóttir og Sturla Böðvarsson,
þingmenn Sjálfstæðisflokks, harka-
lega og minntu á að Háskóli íslands
væri sjálfstæð stofnun og með nýj-
ustu lögunum sem um hann gilda
hafi sjálfstæði hans einmitt verið
aukið.
Vilji löggjafans skýr
Tveir þingmenn Vinstri grænna,
Steingrímur J. Sigfússon og Kol-
brún Halldórsdóttir, mótmæltu
hugmyndum um gjaldtöku fyrir
MBA-nám. Steingrímur sagði að
þar sem málið snerist að hluta til
um lögskýringar; þ.e. hvað fyrir
löggjafanum hafi vakað við setningu
laga um Háskóla íslands, væri rétt
að menntamálanefnd kallaði stjórn-
endur háskólans til sín.
„Ég held að það sé alveg skýrt að
í hugum manna var að það ætti ekki
að taka skólagjöld við nám af þessu
tagi,“ sagði Steingrímur.
“■
ji. % Í: 2 '
Iðt; 1 í:j . - §ÉÍ
: f?.. 5
ALÞINGI
Geysir látinn
gjósaí júní
GEYSIR verður
látinn gjósa í byij-
un júní í tengslum
við sérstakar rann-
sóknir Orkustofn-
unar á goshvern-
um og aðliggjandi
svæði. Þetta kom
fram í svari Sivjar
Friðleifsdóttur
umhverfis-
ráðherra við fyrir-
spurn ísólfs Gylfa
Pálmasonar, þing-
manns Framsókn-
arflokksins, á Al-
þingi í gær. Hún
lagði áherslu á að
kanna þyrfti
tengsl hitakerfa hvera á Geysis-
svæðinu áður en til greina kæmi að
framkalla gos með reglubundnum
hætti í Geysi. Ekki mætti fóma
Strokki fyrir örfá Geysisgos á ári.
Ríkið hefur hug á að kaupa
Geysissvæðið í Haukadal af land-
eigendum en stefnt er að því að
friða svæðið. I gangi em sérstakar
rannsóknir á vegum Orkustofn-
unar og eiga þær að Ieiða til þess
að betur verði hægt að meta áhrif
nýtingar á heitu vatni á svæðinu.
Ennfremur er rannsóknum þessum
ætlað að hjálpa til við að meta
hversu stórt svæði þarf að vemda
fyrir vinnslu til að tryggja vemd
svæðisins og þann-
ig ákvarða hversu
mikið land ís-
Ienska ríkið þarf
að kaupa.
„Rannsóknunum
er einnig ætlað að
sýna hvernig hita-
kerfi hveranna
tengist og í þeim
tilgangi þarf bæði
að dæla úr Geysi
og framkalla í
honum gos,“ sagði
Siv. Sagði hún að
stefnt væri að því
að framkalla þetta
gos 8. júní næst-
komandi. Niðurs-
taða fengist úr þessum rannsókn-
um í lok árs 2001 og menn myndu
því vita í kjölfarið hvort hægt verði
að fara út í það að framkalla Geys-
isgos - ferðamönnum og al-
menningi til yndisauka - með
reglubundnum hætti án þess að
eiga á hættu að fóma Strokki.
Framundan eru formlegar við-
ræður við jarðeigendur um kaup á
Geysissvæðinu, að sögn ráðherr-
ans. Ef samningar tækjust um verð
og aðra skilmála myndi hún leggja
til við fjármálaráðherra að hann
nýtti heimild sem er í fjárlögum
þessa árs til kaupa á Geysissvæð-
inu.
Forsætisráðherra
gagnrýndur
FORSÆTISRÁÐHERRA sætti
gagnrýni á þingfundi í gær fyrir að
svara ekki fyrirspurnum þing-
manna í fyrirspurnartíma eins og
boðað hafði verið. Umræða um fyr-
irspurnir til forsætisráðherra var
tekin af dagskrá þingsins þar sem
ráðherrann þurfti að víkja af fundi.
Rannveig Guðmundsdóttir, þing-
maður Samfylkingarinnar, sagði
alvarlegt mál ef forsætisráðherra
svaraði ekki fyrirspurnum hennar
um meðferð ályktana Alþingis sem
bornar voru fram fyrir hartnær
tveimur mánuðum. Fyrirspurnun-
um, sem voru einfaldar að mati
Rannveigar og hefði mátt svara
undirbúningslaust, hefði með réttu
átt að svara næsta miðvikudag eft-
ir að þær voru bornar fram. Nú
væri hins vegar útlit fyrir að þeim
yrði ekki svarað á yfírstandandi
þingi, því síðasti fyrirspurnartími
þess var á dagskrá í gær.
Hugmyndir á Alþingi um afnám skattfrfðinda forseta Islands
Meginreglan er
skattfrelsi forseta
Rætt hefur verið um það meðal þingmanna
á Alþingi á undanförnum dögum að
lem'a fram og afgreiða fyrir þinglok lög
sem afnemi skattfríðindi forseta íslands.
Ómar Friðriksson kynnti sér reglur
um skattfrelsi forsetans.
RÆTT hefur verið meðal þingmanna
á undanförnum dögum um að ná
samstöðu um lagafrumvarp um af-
nám skattfríðinda forseta íslands og
lögfesta það fyrir þinglok. Sam-
kvæmt upplýsingum blaðsins í gær
var ekki orðið Ijóst hvort meirihluti
væri fyrir breytingunni á Alþingi.
Skv. gildandi stjómskipunar- og
skattalögum eru forseti íslands og
maki hans undanþegin tekjuskatti,
eignarskatti og útsvari og tekur
skattfrelsi forseta einnig til óbeinna
skatta og gjalda á borð við virðis-
aukaskatt og tolla.
Ef slík lagabreyting verður sam-
þykkt á Alþingi er gert ráð fyrir að
breytingin taki gildi við upphaf næsta
kjörtímabils forseta þar sem kjörum
forseta verður ekki breytt nema fyrir
upphaf kjörtímabils hans. Breyting-
amar eiga ekki að leiða til skerðingar
á launakjörum forseta heldur er gert
ráð fyrir að forseta verði bætt upp af-
nám skattfríðinda með hækkun mán-
aðarlauna hans en Kjaradómur
ákvarðar laun forseta íslands eins og
annarra æðstu embættismanna.
Sambærileg frumvörp hafa
ekki náð fram að ganga
Frumvörp um afnám skattfriðinda
forseta íslands hafa nokkrum sinn-
um verið flutt á Alþingi en tillögur
um breytingar á þessu fyrirkomulagi
hafa ekki náð fram að ganga. Árið
1996 fluttu þingmennimir Ólafur
Hannibalsson, Svanfríður Jónasdótt-
ir, Kristinn H. Gunnarsson, Guðný
Guðbjömsdóttir, Ólafur Öm Har-
aldsson og Pétur H. Blöndal frum-
varp um afnám skattfrelsis forseta
íslands sem gert var ráð fyrir að öðl-
aðist gildi við upphaf kjörtímabils
nýs forseta 1. ágúst á sama ári, en
það náði ekki fram að ganga.
Allir frambjóðendur til forseta fyr-
ir kosningamar árið 1996 lýstu yfir í
fjölmiðlum að þeir teldu að forseti ís-
lands og maki hans ættu að greiða
skatta af sínum launum eins og aðrir
og fyrrverandi forseti íslands, frú
Vigdís Finnbogadóttir, sagði í sam-
tali við Morgunblaði í júlí 1996 að
hefði hún ráðið, hefði hún kosið að
forseti greiddi skatta en fengi hærri
laun.
Undanþeginn öllum opin-
berum gjöldum og sköttum
í þeirri umræðu sem orðið hefur
um málið hefur komið fram sú skoð-
un að óeðlilegt sé að launakjör for-
seta felist að miklu leyti í skattfríð-
indum. í 2. grein laga nr. 10/1990 um
laun forseta íslands segir að forseti
íslands hafi ókeypis bústað, ljós og
hita og er hann undanþeginn öllum
opinberum gjöldum og sköttum. í
ýmsum sérlögum er einnig að finna
nánari ákvæði sem veita forseta und-
anþágu frá greiðslu opinberra gjalda.
Samkvæmt ákvæðum tollalaga eru
forseti fslands og maki hans undan-
þegin greiðslu tolla af vörum sem for-
seti flytur inn til eigin nota eða hon-
um eru sendar að gjöf. Skv. lögum
um fjármagnstekjuskatt eru forseti
og maki hans einnig undanþegin
greiðsluskyldu fjármagnstekju-
skatts. Þá er forseti íslands einnig
undanþeginn greiðslu trygginga-
gjalds skv. lögum um tryggingagjald.
Ekki gjaldskyldur af pers-
ónulegum innflut ningi sínum
í riti sínu Stjómskipunarréttur
segir dr. Gunnar G. Schram lagapró-
fessor að forseta beri ekki að greiða
neins konar bein opinber gjöld né
skatta, hvorki af tekjum sínum né
eignum. „Skiptir ekki máli hvort um
er að ræða embættistekjur eða ann-
ars konar tekjur, svo sem arð af eign-
um. Hann er því undanþeginn tekju-
skatti, eignarskatti og útsvari, sbr.
t.d. 4. gr. 1. 75/1981 um tekjuskatt og
eignarskatt ásamt síðari breytingum,
sbr. og 1. 4/1995, 19. gr. um tekju-
stofna sveitarfélaga. Eigi myndi
hann heldur vera gjaldskyldur af
persónulegum innflutningi sínum.
Forseti greiðir ekki opinbera fast-
eignaskatta af húseignum sínum en
þjónustugjöld af þeim og þinglýsing-
argjald. Virðisaukaskatt og gjald af
innlendum tollvörutegundum greiðir
forseti en á rétt á að fá þau gjöld síðar
endurgreidd úr ríkissjóði. Megin-
reglan er algert skattfrelsi forseta.
Skattfrelsi hans tekur auðvitað ekki
til fyrirtækja eða atvinnurekstrar -
þ.e. annarra lögaðila - sem forseti er
eigandi að eða á hlut í. Hreinar tekjui-
forseta er hann fengi þaðan væru
hins vegar skattfrjálsar," segir í riti
Gunnars G. Schram.
Sama regla um undanþágu frá
tekjuskatti á við um handhafa for-
setavalds, þ.e. forseta Alþingis, for-
sætisráðherra og forseta Hæstarétt-
ar, á þeim tíma sem þeir fara með
forsetavaldið. í bók Gunnars segir
um þetta; „Handhafar forsetavalds,
skv. 8. gr. stjskr., skulu samanlagt
meðan þeir gegna forsetastarfi njóta
jafnra launa og laun forseta eru þann
tíma sem þeir hveiju sinni fara með
forsetavald um stundarsakir. Skulu
laun skiptast að jöfnu á milli þeirra.
Auk þess fá þeir greiddan allan út-
lagðan kostnað vegna starfans, sbr.
7. gr. 1. 10/1990. Laun þeirra vegna
forsetastarfans myndu og vera und-
anþegin sköttum með sama hætti og
laun forseta," segir í ritinu Stjórn-
skipunarrétti.
Sambýliskona (-maður) nýtur
ekki skattfrelsis forseta
I grein sem birtist í tímariti lög-
fræðinga 1982 eftir Jónatan Þór-
mundsson lagaprófessor um skatt-
frelsi einstaklinga, kemur fram að
hvorki forsetinn né maki hans geti af-
salað sér skattfrelsi sínu almennt.
Ef svo væri gætu þessir aðilar í
raun breytt lögum. Eins og fyrr segir
felur ákvæðið um skattfrelsi í sér að
maki forseta er lagður að jöfnu við
forseta og er skattftjáls af hvers kon-
ar tekjum og eignum með sama hætti
og forseti. Sambýliskona (-maður)
forseta nýtur þó ekki góðs af þessu
ákvæði, sem er bundið við hjúskap,
að því er segir í grein Jónatans.