Morgunblaðið - 11.05.2000, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
FIMMTUDAGUR 11. MAÍ 2000 37
Atta Islendingar taka þátt í
stofnun Akademíu Dieter Roth
Basel. Morgunblaðið.
FIMMTÁN samstarfsmenn og
vinir svissneska listamannsins
Dieters Roth komu saman í Basel
um helgina til að stofna Akademíu
Dieter Roth. „Margir halda að
Dieter hafi verið einfari," sagði
Björn Roth, sonur hans, „en því
fer fjarri. Hann hafði gjarnan
samband við fólk, sérstaklega það
sem hann gat lært af. Hann talaði
oft um það síðustu árin að það ætti
að stofna akademíu í hans nafni
sem myndi gera fólki kleift að
komast í sambönd við og læra af
öðrum listamönnum." Átta íslend-
ingar eru í hópi fimmtánmenning-
anna, þau Rúna Þorkelsdóttir
(Amsterdam), Eggert Einarsson,
Gunnar Helgason, Gísli Jóhanns-
son, Kristján Guðmundsson (allir á
Reykjavíkursvæðinu), Sigurður
Guðmundsson (Kína), Pétur Krist-
jánsson (Seyðisfirði) og Björn
Roth (Basel og Reykjavík). Hug-
myndin er að listamenn eða áhuga-
fólk um list geti skráð sig í aka-
demíuna og prófessorarnir, eins og
fimmtánmenningarnir kalla sig,
taki á móti þeim, deili með þeim
visku sinni og reynslu og kynni
fyrir öðru áhugaverðu fólki.
Nemendur fá diplómu frá aka-
demíunni eftir að hafa heimsótt
alla prófessorana. Utlendingarnir í
hópnum eru: Henriette van Egten
(Amsterdam), Dorothy Iannone
(París), Bernd Koberling (Berlín),
Ljósmynd/Magnús Reynir Jónsson
Björn Roth í vinnustofunni. Verkin á veggnum eru
gamlar borðmöppur af vinnuborði Dieters Roth.
Ljósmynd/Magnús Reynir Jónsson
Sigurður Guðmundsson, Eggert Einarsson og Kristján
Guðmundsson eru prófessorar við akademíuna.
Nýjar bækur
• SVONA er ísland í dag er eftir
M. E. Kentta, Gabriele Stautner
og Sigurð A. Magnússon.
Bókin er safn frétta úr Morgun-
blaðinu ásamt miklum fjölda ljós-
mynda sem byggjast á daglegu lífi
fólks á Íslandi. Bókin er ætluð sem
kennslubók í íslensku fyrir erlenda
námsmenn og aðra sem áhuga
hafa á að kynna sér íslensku og ís-
lenska menningu.
Sigurður A. Magnússon hefur
þýtt íslenska textann yfir á ensku
og er hann í sér kafla í bókinni.
Utgefandi er Háskólaútgáfan.
Bókin er 148 bls., kilja.
Verð 3.490 kr.
Rainer Pretzell (Ungverjalandi),
Andrea Tippel (Hamborg), Jan
Voss (Amsterdam) og Tom Wasm-
uth (Nýju-Mexíkó).
Listamennirnir opnuðu sýningu
í Café Imprimerie og í prent-
smiðju í Ackermannshof í Basel í
tilefni af stofnun akademíunnar.
Listbókaverslunin Boekie Woekie,
sem Rúna Þorkelsdóttir rekur í
Amsterdam, er auk þess með bók-
sölu á staðnum. Sýningin stendur
til 1. júlí.
Dieter Roth var með vinnustofu
í Ackermannshof síðustu árin sem
hann lifði. Björn, sonur hans,
starfaði þar með honum. Vinnu-
stofan er opin gestum á meðan
listasýningin stendur. Þaðan er
hægt að sjá niður í prentsmiðjuna
Yfir 10 gerðir
af baðhengjum
545 - 3.345 kr.
1.090-6:600
HÚSASMIÐJAN
Sími 525 3000 • www.husa.is
þar sem sýningin er. Björn sagði
að hávaðinn úr prentsmiðjunni
hefði átt vel við Dieter. Café Imp-
erium er í sama húsi í St. Johanns-
Vorstadt 19/21 í Basel. Dieter
Roth lést 1998.
Handboltinn á Netinu mbl.is
ALLTAf= eiTTHV'AÐ NÝTl
Sönaur»j|eiklist
bland
Gæti það verið betra?
SÖNGLIST býður nú ífyrsta s'tnn upp á sumarnámskeið
fyrir börn á aldrinum 6-12 ára (fædd 1988-1994).
Fagmenntaðir kennarar sjá um kennslu og er hámark 10 börn íhóp.
Hverju námskeiði lýkur með grillveislu.
i I
Kennslutími kl. 9.00-12.00 eða frá kl. I3.oo-I6.oo.
os.juni - I6.jum
3i.júlí- n.ágúst
I9.júní-30.júní j I7.JÚIÍ - 28.jÚlí
Innritun er þegar hafin í síma 861-6722.
lön^ leiklistarskóli
Laugavegi 163,
Pósthólf 7299, 107 Reykjavík.