Morgunblaðið - 11.05.2000, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
FIMMTUDAGUR 11. MAÍ 2000 39
Eirún Jóní Dóra Sigrún
Framgarður/Ongarden í i8
GJÖRNINGAKLÚBBURINN opn-
ar sýninguna Framgarður/-
Ongarden íi8 í dag, fimmtudag,
kl. 17.
Gjörningaklúbburinn er skipað-
ur fjórum myndlistarmönnum;
Dóru ísleifsdóttur f. 1970, Eirúnu
Sigurðardóttur f. 1971, Jóní Jóns-
dóttur f. 1972 og Sigrúnu Hrólfs-
dóttur f. 1973. Þær útskrifuðust
allar frá Myndlista- og hand-
iðaskóla fslands árið 1996 og hafa
stundað framhaldsnám í New
York, Kaupmannahöfn og Berlín.
Gjörningaklúbburinn hefur verið
starfræktur frá 1996 og haldið
fjölmargar sýningar heima og er-
lendis.
í sýningarskrá segir m.a.: „Goð-
sögur segja að ef staðið er á
tunglinu og horft til jarðar, þá eru
aðeins tvö fyrirbæri sem tengjast
manninum sjáanleg: Kínamúrinn
og fjórar íslenskar stelpur sem
kalla sig Gjörningaklúbbinn. Þessi
klúbbur ræðst til atlögu við fyrir-
bæri sem hefur verið órætt og ill-
skiljanlegt svo lengi sem skrifaðar
heimildir greina frá, nefnilega ást-
ina. Laxness skrifar í einhverri
ritgerð sinni að upphaflega hafi
orðið „ást“ verið heiti á hesti, en í
dag eru menn af einhverjum
ástæðum farnir að tortryggja þá
orðsifjafræði.
Öll grunar okkur eða vitum
hverskyns fýrirbæri ást er og þó
að málið sé eilíflega flókið, þá vit-
um við allavega að ást er ekki
hestur. Það er næstum miður, því
það myndi einfalda hlutina á tím-
um þar sem allt er tekið og sund-
urgreint þar til að ekkert stendur
eftir sem kalla má með réttu
nafni. Þetta ástand eða tímabil
hefur verið kallað ýmsum nöfnum,
þ. á m. póstmódernismi. Það er
gott orð, því að það þýðir næstum
ekki neitt og skiptir afar litlu
máli. En svo er ekki farið með
ástina."
Sýningin stendur til 28. maí og
er opin fimmtudaga til sunnudaga
frá 14-18.
Lindin og lífsorkan
BÆKUR
IV æ r i n g a r f r æ ð i
NORRÆNAR
RÁÐLEGGINGAR UM
NÆRINGAREFNI
Háskólaútgáfan 1999. Þýdd af
starfsfólki Rannsóknastofu háskól-
ans í næringarfræði.
NÝLEGA fékk ég í hendur bók
sem starfsfólk Rannsóknastofu í nær-
ingarfræði við Háskóla Islands hefur
þýtt. í henni er sagt frá starfi og nið-
urstöðum vinnuhóps sem tilnefndur
var af nefnd (ÁK-LIVS) sem fjallar
um matvæli og næringarmál fyrir
hönd norrænu ráðherranefndarinnar.
Norræna ráðherranefndin var sett á
stofn árið 1971. I norrænu samstarfi
um þennan málaflokk er tekið á ýms-
um almennum atriðum,svo sem mat-
vælaeiturefnafræði og áhættumati
auk hreinlætis í matvælaiðnaði og
gæðaeftirliti. Markmið samvinnunn-
ar er að vemda heilsu neytandans og
nýta sameiginlega aðgang að fag-
þekkingu og stjómun auk þess að efia
norræna og alþjóðlega þróun á þessu
sviði eins og segir í bókinni. Hún er
ætluð háskólanemum og öðrum þeim
sem áhuga hafa á næringarfræði.
í íslenzkum formála er bent á að
bókin komi nú út á íslandi í fyrsta
skipti. Hana ætti ekki að kenna nema
höfð séu til hliðsjónar Manneldis-
markmið fyrir íslendinga og þá ráð-
lögðu dagskammta sem Manneldis-
ráð hérlendis hefur mælt með þótt
bakgrunnur ráðlegginganna sé hinn
sami og á hinum Norðurlöndunum.
I almennum formála er sagt nánar
frá hópnum sem vann að þessari
þriðju útgáfu Norrænna leiðbeininga
um næringarefni (NRN). Þar kemur
fram að ráðleggingamar séu að
mestu leyti óbreyttar frá síðustu út-
gáfu, 1989, en þær voru hins vegar
byggðar á bandarískum ráðlegging-
um frá 1980. Höfundar eru Britt-
marie Sandström, Danmörku, Niels
Lyhne, Danmörku, Jan I. Pedersen,
Noregi, Antti Aro, Finnlandi, Inga
Þórsdóttir, íslandi, og Wulf Becker,
Svíþjóð. Vinna þeirra hófst 1992 og
þegar komið var fram á árið 1995
voru tillögur þeirra sendar til um-
sagnar hjá sérfræðingum í hverju
landi fyrir sig. Þannig má segja að
grunnurinn að þessari bók sé um 20
ára gamall og tel ég það vera helzta
ókost hennar.
Efnisyfirlit er aðgengilegt strax í
upphafi bókarinnar og auðvelt að leita
sldpulega að efni í köflunum sem eru
42. Hver fæðuflokkur á sinn kafla,
einnig snefilefni og sérhvert vítamín.
í norrænum leiðbeiningum um
næringarefni er reynt að leiðbeina
um það magn þeirra í fæðunni sem
stuðlar að almennu heilbrigði, sam-
kvæmt nýjustu og beztu heimildum.
Leiðbeiningamar eiga fyrst og
fremst við um heilbrigt fólk sem
hreyfir sig fremur lítið, og er um með-
altalstölur að ræða, t.d. meðaltal einn-
ar viku. NRN má nota við gerð mat-
seðla fyrir hópa fólks, sem ítarefni
fyrir kennslu, grunn að manneldis-
stefnu og við mat á neyzlukönnunum.
Lögð er áherzla á að draga úr
neyzlu á harðri fitu en mælt með að
heildarfita í fæði eigi að vera undir
30%, 55-60% af heildarorku komi úr
kolvetnum og 10-15% úr próteinum.
Erfitt er að koma inn með ferskar
upplýsingar í bók sem staðið er að á
þennan hátt og því eru glænýjar
bandarískar næringarráðleggingar
ekki vegnar og metnar sem skyldi. Til
dæmis má nefna að farið er nýverið
að mæla með hærri skömmtum af C-
vítamíni (75 mg daglega fyrir konur,
90 mg daglega fyrir karla) og E-víta-
míni (15 mg úr fæðu) en gert er í bók-
inni og ráðlagðir dagskammtar af sel-
eni, sem í 31. kafla eru sagðir vera 50
míkrógrömm fyrir karla og 40 fyrir
konur ættu etv. að vera komnir í 55
míkrógrömm á dag fyrir bæði kynin
(www4.nationalacademies.org/news.-
ns). Selenmagn í matvælum er mis-
munandi milli landa, en það má alls
staðar fá úr fiski, skeldýrum, eggjum
og innyflum. Alvarlegur selenskortur
getur valdið sjúkdómi í hjartavöðva.
f kafla 9 er fjallað um alkóhól, en á
Norðurlöndum gefur það að meðaltali
um 5% af orku í fæðu þeirra sem eru
eldri en 15 ára, talan er nokkuð hærri
í Danmörku er í hinum löndunum.
Sumir telja að allt að þriðji hver mað-
ur og tíunda hver kona fái svo mikið
sem 10% af orkunni úr alkóhóli.
Afengi kemur oft sem viðbót við aðra
neyzlu og getur því valdið offitu.
Alkóhól er eitrað efni sem hefur áhrif
á öll líffæri mannsins. Líklegt er talið
að sá sem neytir meira en 70 g alkó-
hóls á dag bíði einhvem skaða af völd-
um þess þótt margar rannsóknir sýni
að hófleg neyzla, einkum á rauðvíni,
dragi úr heildardánartíðni vegna
hjarta- og æðasjúkdóma. Mælt er því
með að dagleg neyzla á alkóhóli sé
ekki meiri en 15 g hjá konum og 20 g
hjá körlum. Þunguðum konum, böm-
um og unglingum er ráðið frá því að
neyta þess.
Margt fróðlegt má finna við lestur
þessarar norrænu bókar. Hún ber á
kápusíðu Lindina og lífsorkuna,
mynd Helga Þorgils Friðjónssonar
frá 1992 af nöktu fólki og freistandi
ávöxtum.
Katrín Fjeldsted
Sagnanámskeið
og sagnakvöld
í Reykholti
SAGNANÁMSKEIÐ verður hald-
ið í Hótel Reykholti 12. og 13. maí.
Leiðbeinendur em Skotinn David
Campbell, fyrram þáttagerðamað-
ur hjá BBC, og írinn Claire Mul-
holland, formaður Scottish Story-
telling Forum. Þau era þekktir
sagnaþulir í Skotlandi og hafa
kennt á fjölda námskeiða víða um
heim, segir í fréttatilkynningu.
í framhaldi af námskeiðinu
verður haldið sagnakvöld Skota,
íra og Vestlendinga í Reykholti
laugardaginn 13. maí kl. 20 í nýj-
um samkomusal í norðurálmu
gamla Héraðsskólans. Valinkunnir
sagnamenn af Vesturlandi taka
þátt ásamt David og Claire. Af
Vesturlandi koma Magnús Sig-
urðsson, Gilsbakka, Bjartmar
Hannesson, Norður-Reykjum, Sig-
ríður Þorsteinsdóttir frá Giljahlíð,
sr. Geir Waage, Reykholti, sr.
Árni Pálsson, fyrrv. prestur á
Borg á Mýram og Bjarni Guð-
mundsson, Hvanneyri. Þórann
Gestsdóttir sveitarstjóri setur
skemmtunina og kynnir verður
Jósep H. Þorgeirsson, Akranesi.
Báðir þessir viðburðir era liðir í
Leonardo Evrópu-verkefninu
„Storytelling Renaissance“, sam-
vinnuverkefni undir forystu ís-
lendinga (Rannsóknir og ráðgjöf
ferðaþjónustunnar), ásamt Grikkj-
um, Þjóðverjum og Skotum.
Markmið er meðal annars að vekja
athygli á svæðisbundnum sögum
og sagnahefð til nota í ferðaþjón-
ustu, skólum og víðar. Samtök
sveitarfélaga í Vesturlandskjör-
dæmi styðja verkefnið sem nýtist
sérstaklega til uppbyggingar á
menningartengdri ferðaþjónustu á
Vesturlandi.
Skráning í námskeiðið er hjá Sí-
menntunarmiðstöð Vesturlands í
Borgarnesi.
Qíruaí
áísÁrifiargjafa
öæiureitur
Kyrming í dag
Stanislas Bohic garðhönnuður
veitir ráðgjöf í timbursölu Súðarvogi
ll.maífrákl. 14-18
HÚSASMIDJAN
Sími 525 3000 • www.husa.is
IVECO
Daily
Sendibíll ársins 2000 í Evrópu
Vann þennan eftirsótta titil með yfirburðum.
Iveco Daily, sendibíll ársins 2000 er sterkur sigurvegari á góðu verði.
Við bjóðum 3000 gerðir af Daily, einnig ótrúlegt verð á kössum og vörulyftum.
.**%
ístraktor ?rp
BlLAR FYRIR ALLA
SMIÐSBÚÐ 2 - GARÐABÆ - S I MI 5 400 800