Morgunblaðið - 11.05.2000, Síða 59
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR11. MAÍ 2000 59
UMRÆÐAN
Hálendisbaráttan
rétt að hefjast
RÉTT fyrir mán-
aðamótin aprfl-maí
fluttu fjölmiðlar frétt-
ir af því að Lands-
virkjun ætlaði sér að
verja milljarði króna
til rannsókna vegna
virkjunar í Jökulsá á
Brú við Kárahnjúka.
Forsenda þessa
áhuga virkjunaryfír-
valda er álver í Reyð-
arfirði, helmingi
stærra en það sem
Fljótsdalsvirkjun átti
að útvega orku fyrir,
en helmingi minna en
álver sem fyrirætlanir
eru um að reisa á
endanum. Miðað við þetta yrði hin
gríðarstóra Kárahnjúkavirkjun að-
eins upphafíð að fleiri virkjunum á
hálendinu og yrði lítið eftir af
óspilltu landsvæði austan Jökulsár
á Fjöllum að þeim framkvæmdum
loknum.
Við þessu mátti búast. Eftir að
opinbert varð að ekki yrði neitt af
Fljótsdalsvirkjun án umhverfis-
mats var ekki neitt því til fyrir-
stöðu að hefjast handa við „skyn-
samlegri" virkjanir, miðað við
gróða í huga. Því að ein af ástæð-
um þess að hætt var við Fljóts-
dalsvirkjun er að sú virkjun var
óhagkvæm miðað við það sem fá
mætti út úr virkjun á sömu slóðum;
slík áform hefðu bara þurft að
gangast undir mat á umhverfis-
áhrifum.
Barátta almennings
Með þessu er ég síst að gera lítið
úr baráttu almennings fyrir því að
hætt var við virkjun í Fljótsdal án
mats á umhverfisáhrifum. Því þótt
við séum mörg sem viljum ekki
virkja á hálendinu norðan Vatna-
jökuls undir neinum kringumstæð-
um er það engu að síður staðreynd
að margir eru tilbúnir til að fallast
á að þar sé virkjað ef mat á um-
hverfisáhrifum leiðir í ljós að það
sé óhætt og börðust því e.t.v. meira
fyrir því að slíkt mat færi fram en
fyrir öðru.
Getum við þá ekki treyst því að
ef mat á umhverfisáhrifum fer
fram, að þá verði ekki ráðist í
framkvæmdir sem spilla náttúr-
unni? Svarið við þeirri spurningu
er bæði já og nei. Framkvæmda-
aðilar geta ekki gert það sem þeim
Mikið úrval af
Silki-damaski
í metratali
Skólavörðustíg 21, Rvík, sími 551 4050.
SLIM-LINE
dömubuxur frá
gardeur
Uáuntu
tískuverslun
v/Nesveg, Seltj., s. 561 1680
sýnist, eingöngu með
því að stjórnmálamenn
samþykki hvað sem er,
heldur fer fram form-
legt mat, byggt á
margvíslegum rann-
sóknum og, síðast en
ekki síst, talsverðum
möguleikum almenn-
ings til að gera at-
hugasemdir við fram-
kvæmdirnar.
Enda þótt hinn
skýlausi réttur al-
mennings og hags-
munaaðila komi e.t.v.
fyrst og fremst til eftir
að framkvæmdaaðili
hefur birt skýrslu um
framkvæmdina, í þessu tilviki
skýrslu sem á að kosta milljarð að
undirbúa (auk þeirra fjármuna sem
þegar hefur verið eytt til þess
arna), þá er barátta almennings
fyrir verndun hálendisins á meðan
Virkjanir
Af þessu má ljóst vera,
segir Ingólfur Ásgeir
Jóhannesson, að mikið
er í húfi og þótt sigur
hafí unnist í Eyjabakka-
málinu má síst sofna á
verðinum núna.
á skýrslugerð stendm- þýðingar-
mikil. Það sannar baráttan fyrir
verndun Eyjabakka.
Það er smekksatriði en jafnframt
pólitísk spuming hvort mikilvæg-
ara er að vernda Eyjabakka eða
gljúfur Jökulsár á Brú en gljúfrið á
að fylla og breyta í lón sem á að
vera tugir ferkflómetra að stærð og
fram að jökli. Persónulega geri ég
ekki mikinn mun þar á; hvort
tveggja er óbætanlegur skaði. Einn
munur er þó sem ekki má vanmeta
og hann er sá að Eyjabakkar eru
tiltölulega afmarkaður blettur í út-
jaðri hálendisins en virkjun við
Kárahnjúka og tilheyrandi lón
kljúfa u.þ.b. einn þriðja af hálend-
inu ósnortna norðan Vatnajökuls
frá hinum hlutanum. Fyrir utan
hættuna á því að haldið verði
áfram að virkja, m.a. í Fljótsdal, og
jafnvel að veita hluta Jökulsár á
Fjöllum austur til að virkja það
vatn. Þótt sigur hafi unnist í Eyja-
bakkamálinu má síst sofna á verð-
inum núna því hugsanlega eru
margföld náttúruverðmæti í húfi.
Tæknihyggja í mati
á umhverfisáhrifum
Flestar skýrslur um mat á um-
hverfisáhrifum sem ég hef lesið
fjalla fyrst og fremst um tvennt: í
fyrra lagi hvort unnt er að fram-
kvæma og þá hvemig er unnt að
standa að þeirri framkvæmd sem
áhugi er á, og í síðara lagi lýsingar
á náttúrufari og rannsóknum á því.
Hið fyrrnefnda er yfirleitt ítarleg-
ast, enda auðvitað ekki skynsam-
legt að leggja til framkvæmd nema
vita hvernig hún er möguleg. Á
náttúrurannsóknunum er svo
næsta lítið mark tekið í tillögum
skýrslnanna, sérstaklega ef þær
fara í bága við að framkvæmdin sé
skynsamleg.
I fáum eða engum skýrslum um
mat á umhverfisáhrifum er mikið
byggt á félagsvísindarannsóknum.
Stundum eru fullyrðingar um mik-
ilvægi framkvæmdarinnar fyrir at-
vinnulíf, e.t.v. í bland við fáeinar
hagtölur á borð við íbúa- og at-
vinnuþróun. En hvað gerist í sam-
félaginu á Austurlandi ef farið
verður á stað með mörg hundruð
manna vinnustaði, tímabundna og
ótímabundna? Rannsaka þyrfti
hvað hefur gerst annars staðar þar
sem virkjanir hafa verið reistar og
þar sem stórir vinnustaðir urðu til í
fámennum samfélögum.
Þá má benda á að hver og ein
framkvæmd er yfirleitt metin ein
og út af fyrir sig. Þannig er mat á
umhverfisáhrifum álvers í Reyðar-
firði ekki líka mat á virkjunum til
að afla orku handa þvl (við Kára-
hnjúka, í Amardal, í Fljótsdal, í
Bjarnarflagi, í Öxarfirði og e.t.v.
Vor- og
sumarvörur
í úrvali
Stretch-
gallabuxur
Dömubuxur
Kvartbuxur
Stuttbuxur
Opið daglega
kl. 10—18
laugardaga
kl. 10—14
tískuverslun v/Nesveg, Seltjarnarnesi,
sími 561 1680.
Ingólfur Ásgeir Jó-
hannesson
víðar), línum, vegum o.fi. fram-
kvæmdum - eins og eðlilegt væri
að mínum dómi þar sem það eru
heildaráhrifin sem skipta máli.
Meta ætti umhverfisáhrif álvers,
virkjana, vega og lína saman.
Niðurstaðan er sú að enda þótt
óhemjufjármunum verði eytt í mat
á umhverfisáhrifum Kárahnjúka-
virkjunar er ekki líklegt Lands-
virkjun ætli sér aðra niðurstöðu en
þá sem þegar hefur verið ákveðin,
þ.e. að rétt og óhætt sé að virkja
þar. í skýrslunni verða tæpast
vegnir og metnir aðrir valkostir í
atvinnumálum Austurlands eða þau
félagslegu mál sem þarf að leysa
við svo stórkostlegar framkvæmd-
ir. Hugsanlegt er aftur á móti að í
skýrslunni verði fjallað á yfirborðs-
legan hátt um verndun hálendisins
og gildi þess að stærsta óbyggða
svæði í Evrópu sé varðveitt og nýtt
án þess að skerða það.
Lýsingar á náttúru svæðisins
verða þar einkum til skrauts en
ekki til að hafa úrslitaáhrif á niður'-
stöðuna. Engu máli skiptir þótt í
raun sé notað almannafé fyrirtækis
í eigu í-íkis og tveggja stórra sveit-
arfélaga.
Eitt er alveg víst og það er að
barátta almennings fyrir verndun
hálendisins mun skipta sköpum
eins og sannaðist í Eyjabakkamál-
inu. Því er mikilvægt að halda vöku
sinni og láta ekki tæknital villa um
fyrir sér. Umhverfismat án aðhalds
almennings verður umhverfisplat
og getur valdið óbætanlegum skaða
um alla framtíð.
Höfundur er ddsent við Háskólann á
Akureyri.
TAL12 er 12 mánaða áskrift hjá TAL, þar sem síminn
er niðurgreiddur og eru greiddar krónur 400 eða 800 á mánuði (eftir þvf
hvaða simi er valinn) ásamt föstu áskriftar gjaldi. Hægt er að velja á milli
irigqja þjónustuleiða sem eru EinTal, FriTal og TímaTal.Tal 12 er bundið við
:redit kort, Visa, Euro eða Veltukort. «
BT endurqreioir þér
sjónvarpio að fullu!
BT endurqreiðir þér
sjónvarpið að fullu!!
BT endurgreiðir þér
sjónvarpið að fullu!!!
Pizza67 gefur þér 16"
pizza veislu með Coke!
Hvaö þýða úrslitin?
Skeifunni - 550-4444 • Hafnarfirði - 550-4020
INIOKIA
Kringlunni - 550-4499 • Reykjanesbæ - 421-4040 • Akureyri - 461-5500 '