Morgunblaðið - 11.05.2000, Síða 72
72 FIMMTUDAGUR 11. MAÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
Kvikmyndahátíðin í Cannes hófst í gær
Saga er saga
er saga
Sýningarvélin er komin í gang og eina ljósið
sem dómnefndin á effcir að sjá í strandbæn-
um Cannes í tíu daga verður á hvíta tjald-
inu. Pétur Blöndal sat blaðamannafund
með skemmtilegri blöndu af listamönnum
frá öllum heimshornum.
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
Luc Besson (fyrir miðju) mætir ásamt Arundhat Roy, Nicole Garcia og Mario Martone úr
dómnefndinni til frumsýningar opnunarmyndarinnar „Vatel“ í gær.
Dómnefndina í ár skipa (f.v.): Þýska leikkonan Barbara Sukowa, ameríski
leiksfjórinn Jonathan Demme, franska leikkonan Nicole Garcia, franski
rithöfundurinn Patrick Modiano, indverski rithöfundurinn Arundhati
Roy, franski leikstjórinn Luc Besson sem er forseti dómnefndar, spænska
leikkonan Aitana Sanchez-Gijon, breski leikarinn Jeremy Irons, breska
leikkonan Kristin Scott Thomas og ítalski leiksljórinn Mario Martone.
ÞAÐ ER búið að breyta náttúrulög-
málunum á lítilli plánetu sem nefnist
Cannes. Nú eru það ekki gagnrýn-
endur sem dæma kvikmyndir heldur
listamennirnir sjálfir. Þeir koma úr
öllum listgreinum og hvaðanæva úr
heiminum og sitja fyrir svörum á
blaðamannafundi í hátíðarhöllinni.
Fyrstu spurningunni er beint til
breska leikarans Jeremys Irons,
sem lítur eins og iðulega út fyrir að
^tæra ósofínn.
Það hefur sætt nokkurri gagnrýni
að óvenju mikið er af kvikmyndum
frá Asíu í aðalkeppninni, á meðan
Englendingar eiga aðeins eina. Er
þetta til marks um að þungamiðjan
sé að færast austur á bóginn?
„Eg efast um það,“ svarar Irons.
„Það eitt að takmarka valið við 23
kvikmyndir er ógjörningur og slíkt
val getur aldrei varpað Ijósi á þróun
kvikmyndagerðar í heiminum. Það
væri tímasóun að ætla að lesa eitt-
hvað í þessa tölu. Ég er ánægður
með að það var þó valin ein mynd frá
Englandi. Að mínum dómi segir sú
staðreynd, að engin mynd er í
keppninni frá Spáni eða Ítalíu, ekk-
ert um kvikmyndagerð í þessum
löndum."
Allt byggist á frásagnarlist
Hefðum samkvæmt situr forseti
dómnefndarinnar, sem í ár er
franski leikstjórinn Luc Besson, fyr-
ir miðju. Hann er spurður hvort
hann sé taugaóstyrkur vegna verk-
efnisins sem hann sé búinn að taka
að sér, ekki síst eftir að val dóm-
nefndarinnar var svo harðlega gagn-
rýnt í fyrra. Þá vann Rosetta á með-
an Almodovar var „aðeins“ valinn
besti leikstjóri fyrir myndina Allt
um móður mína, sem síðan hefur
farið sigurför um heiminn. „í fyllstu
einlægni: Nei,“ svarar Besson ein-
arðlega. „Maður venst gagnrýni og
verður að búa við hana.“
En er hann búinn að setja dóm-
nefndinni einhverja vinnureglur?
„Hún er aðeins ein,“ svarar hann
dularfullur. ,AHt er leyndarmál.“
Því næst er dómnefndin spurð að
því hvort hún geti dæmt um asískar
kvikmyndir án þess að þekkja þjóð-
félagsaðstæður eða sögu þessara
ríkja í þaula. „Kvikmyndagerð er
frásagnarlist,“ svarar Irons. „Sögur,
hvaðan sem þær eru sprottnar, eru
sögur. Ég hlakka mjög til að horfa á
myndir frá Asíu; það verður lær-
dómsríkt." Hann klykkir út með
gertrúdískri setningu: „Saga er
saga er saga“.
Besson er því næst spurður út í
framtíð kvikmynda, hvort hann álíti
að hún verði á stafrænu formi. „Það
eru alltaf að verða framfarir, en sag-
an er eftir sem áður þungamiðjan,"
svarar hann. „Það getur reynst hag-
kvæmara í vissum aðstæðum að not-
ast við stafræna tækni, en helsta
breytingin sem það hefur í för með
sér, fyrir utan peningahliðina, er sú
að það á eftir að gera ungum kvik-
myndagerðarmönnum kleift að
hasla sér völl.“
Jeremy Irons er spurður að því
hvað honum finnist að myndir á borð
við Dancer in the Dark séu af einum
uppruna, þegar aðstandendur
þeirra séu af mörgu þjóðerni, -
hvort hún geti talist meira dönsk en
frönsk eða íslensk. „Ef leikstjórinn
og handritshöfundurinn setja mark
sitt á myndina á ekki að fara á milli
mála hvaðan myndin er, - þá ber
efnið keim af andanum," svarar
hann.
Besson er spurður að því af
hverju keppnismyndir í Cannes
njóti sjaldnast almennrar hylli að
hátíðinni lokinni. „Ég er ósammála,"
segir hann. „Ef við tökum fyrir þær
myndir sem hafa unnið gullpálmann,
þá hafa þær yfirleitt samtvinnað það
að vera frumlegt sköpunarverk og
að njóta góðrar aðsóknar. Persónu-
legt sköpunarverk getur notið vin-
sælda og eitt af hlutverkum Cannes
er að færa sönnur á það.“
Hikaði hann er honum var boðið
að vera í forsæti dómnefndarinnar.
„Ef tvær sekúndur eru langur tími,“
svarar hann glettnislega. „Það var
nánast ómögulegt fyrir mig að kom-
ast á myndirnar þegar ég var um
tvftugt, en nú fæ ég að horfa á þær
allar.“
Hvað finnst dómnefndinni um
ákvörðun borgarstjórans í Cannes,
sem hefur bannað allt partíhald við
ströndina eftir hálfeitt á miðnætti.
„Er búið að því?“ svarar Besson,
augsýnilega ögn brugðið, en hann er
fljótur að jafna sig og bætir við:
„Éftir að hafa horft á þrjár til fjórar
myndir á dag, held ég að það verði
ekki vandamál."
tír veröld hryllilegra atburða
Þá er komið að því að indverski
rithöfundurinn Arundhati Roy, sem
kynnt var af Henri Behar sem er öt-
ull baráttumaður fyrir mannréttind-
um og hefur raunar setið inni fyrir
skoðanir sínar, taki til máls. „Ég er
alltaf kölluð baráttumaður,“ segir
hún, „en það er bara tímans tákn. Að
mínum dómi gegna rithöfundar því
hlutverki að lýsa þeim heimi sem
þeir búa við. Og ef þeir gera það eru
þeir kallaðir bai'áttumenn. í raun er
þetta bara minn starfsvettvangur.
Ég hlakka til að horfa á myndirnar.
Ég er nýkomin frá veröld þar sem
hryllilegir atburðir eiga sér stað og
veit að ég verð að tengja þetta
tvennt; þetta er ferðalag á milli
máttleysis og máttar. Ég vildi óska
að allir þessir blaðamenn og allar
þessar myndavélar,“ segii' hún og
horfir yfir salinn, „væru á þeim slóð-
um sem ég hef verið að ferðast um,
en maður verður að sýna heiminum
skilning; kvikmyndir eru yndislegt
fyrirbæri."
Ætli ekki fari vel á því að gefa
Jeremy Irons síðasta orðið. „Það
þarf mikið til að mér leiðist ekki,
bæði sem leikara og áhorfanda,“
segir hann. „Ég vona bara að þessar
23 myndir verði mér innblástur og
haldi mér vakandi. I stað þess að
horfa bara á myndir og hlæja eða
gráta, verð ég að einbeita mér að
þeim, með eina spurningu að leiðar-
ljósi: Af hverju?"
Frá A til O
■ ÁLFOSS FÖT BEZT: Hljóm-
sveitin Sextíu og sex leikur föstu-
dags- og laugardagskvöld. Júróvis-
ion tilboð á meðan á keppni stendur
laugardagskvöld.
■ ASGARÐUR, Glæsibæ: Harmon-
ikuball laugardagskvöld kl. 22. Fé-
lagar úr Harmonikufélagi Reykja-
víkur leika fyrir dansi. Ragnheiður
Hauksdóttir syngur. Allir velkomnir.
■ ASLÁKUR, Mosfellsbæ: Jón Ól-
afsson og Tryggvi Húbner leika
fóstudags- og laugardagskvöld.
Eurovision-partý. Keppnin sýnd á
breiðtjaldi, tilboð á bamum.
■ BROADWAY: Norsk helgi föstu-
dagskvöld. Hin frábæra norska
hljómsveit Fryd og Gammen leikur
á skemmtun og fyrir dansi. Fryd
og Gammen og Bee Gees-sýning
laugardagskvöld. Hljómsveit
Gunnars Þórðarsonar leikur undir.
Fryd og Gammen leika fyrir dansi
í aðalsíil
■ CAFÉ AMSTERDAM: Hljóm-
sveitin Papar leika fóstudags- og
laugardagskvöld. Þess má geta að
þetta eru kveðjudansleikir Ingvars
söngvara hljómsveitarinnar.
■ CAFÉ ROMANCE: Lifandi tón-
list öll kvöld. Sænski píanóleikarinn
Raul Petterson leikur. Hann leikur
i > einnig fyrir matargesti Café óperu.
■ CATALINA, Hamraborg: Hljóm-
sveitin Gammel dansk leikur íyrir
gesti fóstudags- og laugardags-
kvöld til 3.
■ DUGGAN, Þorlákshöfn. KK og
Magnús Eiríksson leika frá kl. 22.
■ DÚSSABAR: Gleðigjafinn Ingi-
mar leikur á harmoniku föstudags-
. kvöld.
■ EGILSBÚÐ, Neskaupstað:
Snúru-Valdi hitar upp með lögum
Einars Ágústar laugardagskvöld.
Þeir sem mæta með íslenska fán-
ann áður en okkar maður birtist á
skjánum fá frían drykk í boði Vík-
ing. Mexíkóskt hlaðborð fyrir júró-
fólk frá kl. 18-21. Júróvision-sýning
á breiðtjaldi frá kl. 19. Dj. Early
Groovi sér um danstónlistina.
■ FJARAN, Vestmannaeyjum: KK
og Magnús Eiríksson leika frá kl.
22.
■ FÖRUKRÁIN FJARAN: Dans-
leikur og Víkingaveisla föstudags-
og laugardagskvöld. Jón Möller
leikur rómantíska píanótónlist fyrir
matargesti í Fjörunni. í Fjöruga-
rðinum leikur Víkingasveitin fyrir
víkingaveislugesti. Dansleikur á
eftir þar sem Nýja víkingasveitin
leikur fyrir dansi.
■ GAMLI BAUKUR, HÚSAVÍK:
Hljómsveitin Undryð leikur fyrir
dansi laugardagskvöld til kl. 3.
■ GAUKUR A STÖNG: Hljóm-
sveitin 8-villt hefur diskó-helgina
fimmtudagskvöld til kl. 1. Diskó-
helgi með hljómsveitinni Hunangi
föstudags- og laugardagskvöld.
Stefnumót 29 í boði Undirtóna
þriðjudagskvöld til kl. 1. Hljóm-
sveitirnar Mínus og Klink leika.
Tónleikar með Botnleðju og gestum
miðvikudagskvöld.
■ GRANDHÓTEL REYKJAVÍK:
Gunnar Páll leikur allar helgar kl.
19:15 til 23. Tónlistarmaðurinn
Gunnar Páll leikur og syngur öll
fimmtudags-, föstudags- og laugar-
dagskvöld.
■ GULLÖLDIN: Jazz-kvöld með
Kvarett Steina Krúbu fimmtudag-
skvöld til kl. 1. Svensen og Hall-
funkel leika fostudags- og laugar-
dagskvöld. Á laugardag er
Júróvision-stemmning en hægt er
að fylgjast með keppninni á breið-
tjaldi. Á meðan á keppni stendur
verður aukatilboð á öli.
■ HARD ROCK CAFÉ Tónleika-
röðin Sítróna hefur gengið sinn
gang. I kvöld er það fónksveitin
Jagúar sem kemur fram.
■ HLÖÐUFELL, Húsavfk: Hljóm-
sveitin Blístró leikur laugardags-
kvöld.
■ INGHÓLL, Selfossi: Hljómsveitin
Sixties með Júróvision-partý laug-
ardagskvöld.
■ KAFFI AKUREYRI: Hljómsveit-
in Undryð leikur fyrir dansi föstu-
dagskvöld til kl. 3.
■ KAFFI REYKJAVÍK: Jazz
fimmtudagskvöld kl. 21 til 1. Furst-
arnir og Geir Ólafsson.
■ KANTRÝBÆR, Skagafirði:
Hljómsveitin Blístró leikur föstu-
dagskvöld.
■ KLAUSTRIÐ: Það er komin ný
SMIRNOFF-lína á markaðinn. Að
því tilefni verður sérstök kynning á
drykkjunum í Bond-Hollywood-
style á Klaustrinu 12. maí. Ymislegt
skemmtilegt í boði. Klaustrið verð-
ur opið öllum sem náð hafa 22 ára
aldri og eru með boðsmiða frá kl.
22-00:07. 500 kr. inn eftir það. Sjóð-
heitar helgar laugardagskvöld kl.
21 til 4. Salsa við garðinn, Chill í
kjallaranum og DJ-arnir Svali(FM)
& Big Foot með sjóðheita R&B,
dans- & salsatónlist við dansgólfið.
■ KRAMHÚSIÐ: Danskvöld Tangó-
félagsins fóstudagskvöld kl. 21 til
23:30. Danskvöld fyrir byrjendur
og lengra komna í argentínskum
tangó.
■ KRINGLUKRAiN: Rúnar Júlíus-
son og Sigurður Dagbjartsson leika
létta tónlist fimmtudagskvöld kl. 22
til 1. Hljómsveit Rúnars Júlíusson-
ar leikur fyrir dansi fóstudags- og
laugardagskvöld kl. 22 til 3. Grétar
Örvarsson og Bjarni Arason leika
blöndu af því besta sunnudagskvöld
kl. 22 til 1.
■ LIONSSALURJNN, Kópavogi,
Auðbrekku 25: Línudansæfmg.
Elsa sér um tónlistina. Allir vel-
komnir fimmtudagskvöld kl. 21 til
24.
■ NAUSTIÐ: Liz Gammon leikur
fyrir matargesti kl. 22 til 3. Naustið
er opið alla daga frá kl. 18. Stór og
góður sérréttaseðill. Söngkonan og
píanóleikarinn Liz Gammon frá
Englandi leikur fyrir matargesti
■ NAUSTKRAlN: Austfirsk sveifla.
Hin vinsæla hljómsveit Friðjóns Jó-
hannssonar frá Egilsstöðum leikur.
I hljómsveitini eru Friðjón, bassi,
söngur, Árni Jóhann, gítar, söngur
og Daníel, trommur, söngur.
■ NJÁLSSTOFA, Smiðjuvegi 6:
Trausti spilar gamla blústónlist
föstudagskvöld til kl. 3. Trausti
spilar gamla blústónlist laugardags-
kvöld til kl. 3.
■ NÆSTI BAR: Dægurlagapönk-
hljómsveitin Húfa leikur miðviku-
dagskvöld kl. 22 til 1. Ókeypis að-
gangur.
■ NÆTURGALINN: Ari Jónsson
og Úlfar Sigmarsson leika fyrir
dansi fóstudags- og laugardags-
kvöld til kl. 3.
■ ORMURINN, Egilsstöðum:
Diskótek. Gleðistund á stóru öli frá
kl. 21-24 fóstudagskvöld. Júróvis-
ion-partý frá kl. 18.30 laugardag-
skvöld. Keppnin er sýnd á breið-
tjaldi. Kvöldið hefst kl. 18.30 með
snittum, snakki og kokteil í boði
hússins. Getraunaleikur í gangi.
Júródiskó fram eftir nóttu. Frítt
inn. _
■ PÉTURSPÖBB: Tónlistarmaður-
inn Stebbi Óskars frá Raufarhöfn
leikur og syngur fóstudags- og
laugardagskvöld til kl. 3.
■ PIZZA 67, Eskifirði: Júróvision á
breiðtjaldi. Siggi diskó með stuð frá
kl. 23 laugardagskvöld. Miðaverð
500 kr. eftir miðnætti.
■ RÁIN, Keflavík: Hljómsveitin
Hafrót leikur fyrir dansi fóstudags-
og laugardagskvöld.
■ SJALLINN, Akureyri: Land og
synir leika laugardagskvöld.
■ SJALLINN, ísafirði: Hljómsveit-
in Buttercup leikur á lokaballi
framhaldsskólans fóstudagskvöld.
18 ára aldurtakmark laugardags-
kvöld.
■ SKOTHÚSIÐ, Keflavík: Hljóm-
sveitin Sixties leikur fyrir dansi
föstudagskvöld.
■ SPORTKAFFI: Júróvision á risa-
tjaldi kl. 19. Dj. Albert og Dj. Siggi
sjá um tónlistina fóstudagskvöld og
laugardagskvöld.
■ SPOTLIGHT: Júróvision-þema
um helgina fostudags- og laugar-
dagskvöld.
■ STAPINN: Sóldögg leikur fyrir
dansi laugardagskvöld.
■ VARÐSKIPIÐ THOR, Hafnar-
Ijarðarhöfn: Heiðursmenn og Kol-
brún leika fyrir dansi föstudags- og
laugardagskvöld til kl. 3.
■ VEGAMÓT: Mr. White leikur
föstudagskvöld. Sammi úr Jagúar
sér um funkið laugardagskvöld. 22
ára aldurstakmark, snyrtilegur
klæðnaður. Alltaf frítt inn.
■ VIÐ POLLINN, Akureyri:
Dúettinn Jón forseti skemmtir
fostudags- og laugardagskvöld.