Morgunblaðið - 11.05.2000, Síða 80
SltargtitiMfifeife
Traust,
elgö^I íslenska,
I
s
ZJ
murvorui
Siðan 197B
Leitið tHboðai ■■ Steilipi
MORGUNBLAÐW, KRINGLUNNI1,103 REYKJAVÍK, S1MI569UOO, SÍMBRÉFS691181, PÓSTHÓLF3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 5691122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS,AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
FIMMTUDAGUR 11. MAÍ 2000
VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK.
Haraldur Örn Ólafsson náði norðurpólnum eftir 32 stunda göngu á lokasprettinum
„Ég er á toppi tilverunnar“
Morgunblaðið/Einar Falur
Glaðst í Resolute Bay í Kanada í gærkvöldi. Ingþór Bjarnason, Una
Björk Ómarsdóttir og Hallur Hallsson fagna eftir að hafa fengið frétt-
irnar af komu Haraldar Amar á pólinn.
Haraldur Örn Ólafsson komst á norðurpólinn í gærkvöldi eftir átta
vikna göngu við erfiðar aðstæður. Hann gekk nánast samfeilt í 32
stundir á lokasprettinum. Myndin er tekin skömmu fyrir páska er Har-
aldur fékk birgðir út á ísinn.
„ÞETTA er Haraldur Örn Ólafsson
sem talar. Ég er á toppi tilverunnar.
Ég er búinn að ná norðurpólnum,"
sagði Haraldur pólfari í símtali við
Davíð Oddsson í höfuðstöðvum bak-
varðasveitar pólfarans í gærkvöldi
laust fyrir klukkan hálftíu.
Haraldur hefur skipað sér í fá-
mennan hóp manna í heiminum sem
tekist hefur að ganga bæði á suður-
og norðurpólinn en sá fjöldi hleypur
á örfáum tugum manna. Á þessu
vori hefur einungis tveimur pólför-
um svo vitað sé tekist að sigra norð-
urpólinn einsömlum en auk Haralds
lfL*er það Svíinn Ola Skinnarmo. Hátt í
tugur pólfara hefur gefist upp á leið-
inni einkum vegna kals og þurft að
snúa við eða láta sækja sig.
Haraldur var þreyttur er hann
hringdi úr Iridium-gervihnattasím-
anum af norðurpólnum en lýsti því
yfir að þreytan viki fyrir sigurgleð-
inni. „Þetta er alveg stórkostleg
stund,“ sagði Haraldur um ferðalok-
in í samtali við forsætisráðherra.
„Þessi fagnaðarlæti sem hér eru
endurspegla þá ánægju og það stolt
^rsem býr nú í hugum landsmanna
allra,“ sagði Davíð Oddsson við Har-
ald, en talsverður fjöldi fólks fylgd-
ist með samtali Haralds og Davíðs.
„Það kemur í minn hlut að óska þér
til hamingju fyrir hönd samlanda
HALLDÓR Ásgrímsson utanríkis-
ráðherra lagði fram breytingartil-
lögu í gærkvöldi við frumvarp um
framkvæmd tiltekinna þátta í vam-
arsamstarfi íslands og Bandaríkj-
anna. Tillagan gerir ráð fyrir að
ákvæðum frumvarpsins er varðar
verktöku verði frestað um eitt ár.
„Þessi frestun í eitt ár er gerð til
að skapa svigrúm til frekara sam-
ráðs við Bandaríkjamenn um það
mál. Það snertir þá að verulegu leyti
vegna þess að hér er um að ræða
verk sem eru unnin á þeirra kostnað
og við höfum því talið rétt að skapa
þetta svigrúm," sagði Halldór.
Hann sagði að haldið yrði áfram að
vinna að málinu á þeim grundvelli
sem hefði verið lagður. „Það liggur
fyrir að því er varðar það mál sem
þinna, ríkisstjórnarinnar og þings-
ins.“
Haraldur sagðist hafa verið á
skíðunum í 32 tíma án þess að hvíl-
ast mikið og lokaspretturinn hefði
verið stífur. „Ég var rétt í þessu að
hefur verið viðkvæmast í þessu öllu,
þ.e. sjóflutningamir, að það skapast
lengri aðlögunartími og svigrúm fyr-
ir þjóðimar til að ræða það mál betur
og vonandi fæst í það niðurstaða."
Halldór sagði að viðræður við
Bandaríkjamenn hefðu haldið áfram
í þessari viku og þeim væri ekki end-
anlega lokið. Viðræðurnar hefðu ver-
ið gagnlegar og hann sagðist gera
sér vonir um jákvæða niðurstöðu.
Breytingartillagan gerir einnig
ráð fyrir að orðalagi frumvarpsins
um aðgang að vamarsvæðinu verði
breytt. Halldór sagði að tillagan
gerði ráð fyrir nákvæmara orðalagi
sem ætti vonandi að eyða öllum mis-
skilningi um efni þessarar greinar
frumvarpsins, sem er fyrsta mál á
dagskrá Alþingis í dag.
koma á pólinn og það er stórkostleg
stund að upplifa þetta eftir tveggja
mánaða þrotlausa vinnu. Það eru
ekki nema tvö ár síðan ég stóð á suð-
urpólnum og það er sérstök tilfinn-
ing að vera á norðurendanum með
suðurpólinn beint undir fótum sér.“
Sannur afreksmaður
Davíð Oddsson lauk lofsorði á
frammistöðu pólfarans að loknu af-
rekinu og lýsti því yfir að hann væri
sannur afreksmaður. „í okkar huga
ertu sannur afreksmaður sem við
emm stolt af. Þetta er titill sem þú
hefur unnið þér inn með fótunum en
þó aðallega með ótrúlega einbeittum
vilja. Þessi síðasti spotti þinn hefur
verið magnaður, þú hefur hvorki
unnt þér svefns né matar til þess að
ná þessu marki. Við emm afskap-
lega ánægð með þig og stolt af þér
og þakklát," sagði Davíð við Harald.
Una Björk Omarsdóttir, unnusta
Haralds, sagði í samtali við Morgun-
blaðið frá Resolute í Kanada að
langþráðu takmarki væri náð „og
það var alveg frábært að heyra í
NÍU milljarða króna viðbótarfjár-
magni verður varið til samgöngu-
mála á næstu fimm áram, 2000-2004,
og verður fjárins fyrst og fremst afl-
að með sölu ríkiseigna, en nefndarálit
samgöngunefndar kom fram á Al-
þingi seint í gærkvöld. I bókun
nefndarinnar kemur fram að gert er
ráð fyrir að lokið verði við tvöföldun
Reykjanesbrautarinnar 2006.
Sturla Böðvarsson samgönguráð-
herra sagði að um 4,6 milljörðum
króna yrði varið til jarðgangagerðar
á tímabilinu. Þá væri einn milljarður
kr. ætlaður til vegagerðar sem
tengdist virkjunum og stóriðju á
Austurlandi. Gert væri ráð fyrir að
1.700 milljónum kr. yrði varið til við-
bótar vegna vegaframkvæmda á höf-
uðborgarsvæðinu. Þar væri um að
ræða framkvæmdir við Reykjanes-
braut í gegnum Hafnarfjörð, breikk-
honum,“ sagði hún, Foreldrar Har-
alds, Sigrún Richter og Ólafur Örn
Haraldsson og Haukur Steinn, bróð-
ir hans, sögðu engan efa hafa verið í
huga sínum að hann næði pólnum.
I samtali við Morgunblaðið í
gærkvöldi sagðist Haraldur aldrei
hafa verið almennilega viss um að ná
norðurpólnum á meðan á hinni átta
vikna göngu stóð. „Maður hefur
mætt miklu mótlæti, til dæmis lenti
ég á svæði með gríðarmiklum vök-
um sem em hér allt í kringum mig.
Þegar maður sér ekki fyrir endann á
þeim hugsar maður að ómögulegt sé
að komast fyrir þær. Maður hefur
því aldrei verið viss um að ná póln-
um yfirleitt. Þegar ég átti 40 km eft-
un Vesturlandsvegar í gegnum Mos-
fellsbæ og sérstakt viðbótarfjármagn
vegna gatnamóta á höfuðborgar-
svæðinu. Einnig væri verið að tala
um 400 milljóna króna framlag til
gerðar Suðurstrandarvegar.
Sturla bætti við að enn fremur
væri um að ræða 200 milljóna kr. við-
bótarfjármagn til stórverkefna á
Vestfjörðum og 300 millj. kr. til brúar
yfir Kolgrafarfjörð á Snæfellsnesi.
Þá væri það nýmæli að finna í þess-
um tillögum, að varið yrði 300 millj-
ónum króna á ári frá 2002 til 2004 til
framkvæmda við jaðarbyggðavegi og
ferðamannaleiðir.
Sturla sagði að fjár til þessa yrði
fyrst og fremst aflað með sölu ríkis-
eigna og ekki yrði um miklar fram-
kvæmdir að ræða fyrr en eftir næsta
ár vegna atvinnuástands og þenslu á
vinnumarkaði.
ir á pólinn kom þrjóska upp í mér og
ég ákvað að ég skyldi ljúka ferðinni í
tveimur áföngum. Ég hvíldi mig
raunar ekki á milli áfanganna."
Haraldur fylgdist með GPS-stað-
setningartæki sínu reglulega síðasta
daginn og með notkun þess sá hann í
gærkvöldi að pólpunktinum var náð.
Segulnálin í áttavita Haralds vísar á
norðursegulskautið sem er norð-
vestur af Kanada sem þýðir í raun
að norðurnál áttavitans snýr í suður
frá norðurpólnum. „Ég var hræddur
um að pólÚnn væri úti í miðri stórri
vök en ég fann hann á ísfleka og það
er mikið af sjó hér í kring.“
■ Var alltaf viss/4
„Þetta em mjög arðsamar fram-
kvæmdir og mikilvægt að geta nýtt
eignasöluna til slíkrar uppbygging-
ar,“ sagði Sturla.
Tvöföldun lokið 2006
Ami Johnsen, formaður sam-
göngunefndar, sagði að auk viðbótar-
fjárins væri í nefndaráliti samgöngu-
nefndar bókað að miðað væri við að
tvöfoldun Reykjanesbrautai- frá
Kúagerði í Hafnarfjörð yrði boðin út
árið 2002 og stefnt væri að því að
Ijúka tvöföldun að Fitjum í Njarðvík
2006 og verkefninu því í raun flýtt um
fimm ár. Einnig væri í bókuninni
ákvæði varðandi Sundabraut. Miðað
væri við að verja 50 milljónum næstu
tvö árin til undirbúnings verksins, en
eftir það væri við endurskoðun vega-
áætlunar ætlunin að afla viðbótarfjár
til þess.
Frumvarp um varnarsamstarfíð
Akvæðum um
verktöku frest-
að í eitt ár
Níu milljarðar til
samgöngumála