Morgunblaðið - 01.06.2000, Side 2
2 FIMMTUDAGUR 1. JÚNÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Bensínlítrinn hækk-
ar um 3,20 krónur
VERÐ á bensíni hækkar í dag um
3,20 krónur á hvem lítra á bensín-
stöðvum Skeljungs, Olís og Essó.
Forsvarsmenn olíufélaganna segja
þessa hækkun stafa af miklum hækk-
unum á heimsmarkaðsverði, en þær
orsakist meðal annars af meiri eftir-
spum en framboði á Bandaríkja-
markaði sem hafi nokkur áhrif á
Evrópumarkað. Eftirspum sé jafn-
framt víðast hvar í hámarki á þessum
árstíma. Framfærsluvísitala hækkar
um 0,17% vegna hækkunar á bensini.
Samúel Guðmundsson, forstöðu-
maður áhættustýringar hjá Olís, seg-
ir að hækkun þessari sé stillt mjög í
hóf miðað við þá hækkun sem orðið
hafi á heimsmarkaðsverði.
„Ef við skoðum verðið eins og það
er þessa dagana ætti hækkunin að
vera miklu meiri, eða ríflega 5 krón-
ur,“ segir Samúel.
Gunnar Karl Guðmundsson, fram-
kvæmdasfjóri fjármálasviðs hjá
Skeljungi, segist telja að verðið sé í
hámarki núna en það muni lækka
þegar líður á sumarið.
„Ég á frekar von á því að verðið
lækki innan mánaðar. Það er há-
markseftirspum á þessum tíma,
menn eru alls staðar að birgja sigupp
fyrir sumarið. Síðan minnkar eftir-
spumin og þá geram við ráð fyrir að
verðið lækki aftur,“ segir Gunnar.
Magnús Ásgeirsson, innkaupa-
stjóri eldsneytis hjá Olíufélaginu,
segir að ástæða aukinnar eftirspum-
ar á heimsmarkaði nú sé meðal ann-
ars aukin ferðalög á norðurhveli jarð-
ar. Einnig séu að ganga í gildi nýir
gæðastaðlar á bensíni í Bandaríkjun-
um sem valdi taugatitringi á mark-
aðnum. Hann segist ekki sjá nein
merki þess að verð lækki í bráð en
áhugavert verði að sjá hvort ein-
hverjar breytingar verða í kjölfar
fundar Opec-ríkjanna hinn 21. júní
næstkomandi.
„Ef stefnubreyting verður gerð á
Opec-fundinum, þannig að fram-
leiðsla verði aukin og í kjölfar þess
verði hægt að anna eftirspum á
Bandaríkjamarkaði, gæti komið til
lækkunar á heimsmarkaðsverði í
haust,“ segir Magnús.
Orkan ætlar ekki að hækka verð á
bensíni í dag en Gunnar Skaftason
forstjóri segist hins vegar búast við
að verð hækki eitthvað hjá þeim á
næstu dögum. „Við erum náttúrulega
bundnir innkaupsverði en vonandi
getur hækkunin hjá okkur orðið
minni en hjá hinum,“ segir Gunnar.
Verð-
hækkun á
áfengi og
tóbaki
VERÐ á bjór í áfengisverslun-
um hækkar í dag um 1,6% að
meðaltali og annað áfengi um
0,59%. Þá hækkar verð á tóbaki
að meðaltali um 1,94%, sígar-
ettur hækka um 2,51% en
vindlar lækka um 6,58%.
Breytingar á verði áfengis
stafa af nýju verði birgja og
hækkun á skilagjaldi umbúða,
að því er fram kemur í fréttatil-
kynningu frá ÁTVR. Hækkun á
tóbaki er rakin til verðhækkana
birgja og gengishækkunar
bandaríkjadals. Aftur á móti
lækka vindlarnir vegna gengis-
lækkunar evrannar.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Vín og bjór
að líkindum
á tónleik-
unum
SAMNINGAR tókust ekki milli
Þróttar og skipuleggjenda tónleika
Eltons Johns á Laugardalsvelli um
vínsöluleyfi, en KSÍ mun að öllum
líkindum framselja leyfið til tón-
leikahaldaranna engu að síður. Jó-
hann Kristinsson vallarstjóri segir
að leyfið verði þó bundið ákveðnum
skilyrðum.
Þróttur krafðist í gær lögbanns á
áfengissöluna, vegna þess að íþrótta-
félagið hefur einkaleyfi á veitinga-
sölu á Laugardalsvellinum. Embætti
sýslumannsins í Reykjavík hafnaði
kröfunni.
Reynt var að sætta aðila og Iagði
KSÍ fram málamiðlunartillögu í
gærkvöldi en hún fól í sér greiðslu
ákveðinnar peningaupphæðar til
Þróttar fyrir leyfið. Jóhann Kristins-
son sagði í gærkvöldi að vonlaust
virtist að ná samkomulagi. Tónleik-
amir verða í kvöld.
Björn Grétar Sveinsson hættir hjá Verkamannasambandinu
Tel mig ekki
veröskulda þetta
Fljótandi
götuleik-
hús
FLEY fáránleikans, Ship of
Fools, lagðist að bryggju við Mið-
bakka um miðjan dag í gær.
Steig þar margur kynlegur kvist-
ur frá borði og skipstjórinn að
sjálfsögðu í fararbroddi. Um er
að ræða fljótandi götuleikhús
sem taka mun þátt í Hátíð hafsins
við höfnina í Reykjavík um helg-
ina. Skipið, sem er gamalt 30
metra strandferðaskip, sótti sfid
til Islands á árum áður. Koma
skipsins er í samvinnu við menn-
ingarborgina.
B JÖRN Grétar Sveinsson hefur hætt
sem formaður Verkamannasambands
Islands og í gær var gerður við hann
starfslokasamningur. Hann kveðst
óánægður með það hvemig beiðni um
afsögn hans bar að.
Unnið er að sameiningu Verka-
mannasambands íslands, Landssam-
bands iðnverkafólks og Þjónustusam-
bands íslands í eitt landssamband
„ófaglærðra". Bjöm Grétar segir að í
fyrradag hafi þeim skilaboðum verið
komið til sín að þess væri ekki óskað
að hann yrði formaður hins nýja sam-
bands og að það væri talinn liður í því
að koma sameiningunni á að hann
hætti hjá Verkamannasambandinu.
Skilaboðin komu í gegnum Hervar
Gunnarsson, starfandi varaformann
VMSÍ, og aðspurður játaði Bjöm
Grétar því að þau væra komin írá að-
ilum tengdum Flóabandalaginu svo-
kallaða, það er að segja verkalýðsfé-
lögum á höfuðborgarsvæðinu og
Suðumesjum sem stóðu saman að
samningum við vinnuveitendur í vor.
Bjöm Grétar segist hafa ákveðið að
víkja enda ætti ekki að láta persónur
standa í vegi sameiningar ófaglærðs
verkafólks. Hann sagði af sér sem for-
maður og í gærmorgun var gerður við
hann starfslokasamningur.
Ósáttur við það
hvemig málið bar að
Björn Grétar er 56 ára og hefur
verið starfandi formaður VMSI í níu
ár og áður var hann gjaldkeri sam-
bandsins. Hann var síðast endurkjör-
inn til tveggja ára haustið 1997 en á
þingi VMSI síðastliðið haust var
kosningum frestað fram á vor vegna
fyrirhugaðra skipulagsbreytinga.
Segir Bjöm Grétar að í sinni for-
mannstíð hafi vissulega oft verið erfitt
hjá sambandinu en það hafi þó sloppið
án stórslysa, eins og hann orðar það.
Kveðst Bjöm Grétar vera ósáttur
við að hætta, þótt það hafi orðið nið-
urstaða hans, sérstaklega nú í kjölfar
erfiðra kjarasamninga og hann
kveðst sérstaklega óánægður með
það hvemig málið bar að. „Eg tel mig
ekki verðskulda þetta,“ segir hann.
Beiðnin um afsögn kom að morgni
fyrsta dags hans í vinnu eftir erfið
veikindi. Hann segir að eðlilegt hefði
verið að láta reyna á sameiningu sam-
bandanna og ræða síðan um persónur
ef samkomulag næðist.
Sérblöð í dag fNttSttnflÍIaMfr www.mbl.is
Með Morgun-
blaðinu í dag
fylgir tíma-
ritið 24-7.
Útgefandi:
Alltafehf.
Ábyrgðar-
maður:
Snorri Jóns-
son.
Níu marka tap handknattleiks-
landsliðsins í Tékklandi / B3
Andy Cole var ekki valinn í
enska landsliðið / B4
Með Morgun-
blaðinu í dag
er dreift blaði
frá sjómanna-
dagsráði,
„Sjómanna-
dagsblaðið".