Morgunblaðið - 01.06.2000, Síða 14
14 FIMMTUDAGUR 1. JÚNÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
-
FRETTIR
Nóbelsverð-
launahafi
á ráðstefnu
um trú
og vísindi
JOSE Ramos Horta, þjóðar-
leiðtogi Austur-Tímor og
handhafi f'riðarverðlauna
Nóbels, er væntanlegur til
Islands. Hann er í hópi
margra þekktra frummæl-
enda á alþjóðlegri ráðstefnu
um trú og vísindi sem haldin
verður dagana 5.-8. júlí nk. í
Reykjavík og á Þingvöllum
undir yfirskriftinni „Faith in
the Future“.
Þjóðkirkjan og Framtíðar-
stofnun standa saman að
undirbúningi ráðstefnunnar
þar sem rætt verður um
sameiginleg viðfangsefni á
nýrri öld. Kristnitakan á Is-
landi fyrir þúsund árum er
hvati þessa alþjóðlega móts.
Höfuðstöðvar ráðstefnunn-
ar „Faith in the Future"
verða í Háskólabíói, en sér-
stakir dagskrárliðir verða við
Gvendarbrunna, í Svartsengi,
á Þingvöllum, á Nesjavöllum
og í Viðey þar sem fram fer
setningarathöfn með þátt-
töku forsætisráðherra og
biskups Islands.
Auk Horta eru meðal
framsögumanna Thomas R.
Odhiambo frá Kenya, forseti
Vísindaakademíu Afríku,
bandaríski trúarheimspek-
ingurinn Nancey Murphy,
Thierry Gaudin, formaður
ráðgjafanefndar frönsku rík-
isstjórnarinnar sem fjallar
um horfur á 21. öldinni og
Niels Henrik Gregersen
varaformaður Evrópusam-
bands vísinda- og trúfræði-
rannsókna (ESSAT). Meðal
innlendra framsögumanna
verða Sigrún Aðalbjarnar-
dóttir prófessor, Ástríður
Stefánsdóttir læknir og Páll
Skúlason háskólarektor.
Gert er ráð fyrir því að um
helmingur þátttakenda á ráð-
stefnunni verði Islendingar.
Seyðfírðingar búa sig undir móttöku á nýrri ferju
.
' '
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Mikið landrými fæst ef áform um að fylla upp leirurnar fyrir botni SeyðisQarðar verða að veruleika. Myndin er
tekin frá smábátahöfninni yfír svæðið sem fyllt verður upp.
Áform um landfyll-
ingu á leirunum
ÁFORMAÐ er að ráðast í miklar
landfyllingar á leirunum fyrir botni
Seyðisfjarðar. Með því fæst at-
hafnasvæði fyrir hafnsækna at-
vinnustarfsemi og lengri viðlegu-
kantur, meðal annars til að unnt
verði að þjónusta nýja ferju Smyril
line.
Áformað er að ný og mun stærri
Færeyjaferja komi í stað Norrænu
eftir tvö ár. Nýja skipið mun ná
langt út fyrir núverandi hafnargarð.
Þess skal þó getið að bæjaryfirvöld
hafa ekki fengið staðfestingu á því
að nýja ferjan muni sigla til Islands.
Kostar 250-300 milljónir
Gunnþór Ingvarsson, forseti
bæjarstjórnar, segir að fljótlega
þegar farið var að athuga málin hafi
komið í ljós að ekki væri skynsam-
legt að nota gamla viðlegukantinn
til að taka á móti ferjunni, til þess
þyrfti að hækka hann mikið og það
myndi eyðileggja hann til annarrar
starfsemi.
„Við sáum að við gætum slegið
tvær flugur í einu höggi með upp-
fyllingum, fengið mikið legupláss og
gríðarlegt landrými fyrir atvinnu-
starfsemi sem við höfum verið í
vandræðum með,“ segir Gunnþór.
Leirurnar frá lóninu og núver-
andi höfn verða fylltar upp alveg út
að smábátabryggju. Við það stækk-
ar lónið verulega og Fjarðará verð-
ur brúuð fyrir framan það til þess að
tengja hafnarsvæðin saman. Með-
fram Hafnargötu og norð-austan við
nýja lónið eru fyrirhuguð ný svæði
fyrir blandaða byggð, íbúðir og
þjónustu. Annað nýtt svæði er skil-
BÓKIN
RETT MATARÆÐI FYRIR
ÞINN BLÓÐFLOKK ER
UPPSELD
HJÁ ÚTGEFANDA.
HÚN ER ENN FÁANLEG HJÁ FLESTUM BÓKA-
VERSLUNUM OG HEILSUBÚÐUM.
Að baki bókarinnar liggja gífurlega miklar
rannsóknir enda eru flestir sem lesa bókina á einu
máli um að hún sé faglega unnin og með góða
heimildaskrá. Dr. Peter D'Adamo og samstarfsfólks
hans hefur fengið milda viðurkenningu fyrir fram-
lag sitt til næringarlæknisfræðinnar og er uppgötvun
þeirra talin tímamótauppgötvun.
BÍS
Weð aðitoð Catherii
D Ádm
-Whicney
Peter J. D’Adamo
NÁMSKEIÐ FYRIR ÞÁ SEM VILJA FYLGJA RÉTTU
MATARÆÐI FYRIR SINN BLÓÐFLOKK
haldið á Brekkubæ, Hellnum Snæfellsbæ dagana 9-12 júní (um hvítasunnu).
Skránlng og allar nánari upplýsingar eru í dma 435 6810 eða á netfangi
gudrun@hellnar.is.
Margir eiga erfitt með að breyta um lífsstíl og því fylgja margar spurningar. Á nám-
skeiðinu er fjallað um nýjar leiðir, veittar mataruppskriftir, fjallað um líkamsæfingar
sem henta hverjum og einum o.fl. auk þess sem fléttað verður inn í helgina náttúru-
skoðun, slökun og hvíld. Leiðbeinendur eru: Guðrún og Guðlaugur Bergmann og
Guðjón Bergmann yogakennari. Gestur námskeiðsins verður
Haraldur Kr. Ólason lögreglumaður, en hann mun miðla sinni einstöku
reynslu af því að fara efitir bókinni. LEIÐARLJÓS
greint sem hafnarsvæði. Að sögn
Gunnþórs er áætlað að framkvæmd-
in kosti 250 til 300 milljónir króna.
Hann leggur áherslu á að í raun
þyrfti að ráðast í þessar fram-
kvæmdir þótt ekki kæmu til áform
um nýja ferju, en ferjan hafi vissu-
lega verið kveikjan.
„Við erum mjög spenntir fyrir
þessari framkvæmd, hún myndi
hafa mikla þýðingu fyrir bæinn,“
segir Gunnþór.
Tillaga að breytingu á aðalskipu-
lagi þar sem gert er ráð fyrir um-
ræddri landfyllingu hefur verið
auglýst og frestur til að gera at-
hugasemdir rennur út um miðjan
júnímánuð. Skipulagsstofnun veitti
leyfi til að auglýsa aðalskipulagið
með fyrirvara um niðurstöðu um-
hverfismats. Ólafur Sigurðsson
bæjarstjóri segir að Siglingastofnun
og Náttúrustofa Austurlands vinni
að undirbúningi umhverfismatsins
og að stefnt sé að því að matsskýrsl-
an verði kynnt um miðjan júní.
Hæstaréttardómur
í máli umsækjanda
um lektorsstöðu
Dómstól-
ar endur-
skoða ekki
hæfnismat
HÆSTIRETTUR telur ekki
á færi dómstóla að endur-
skoða sérfræðilegt mat dóm-
nefndar um hæfni umsækj-
enda um stöðu við Háskóla
Islands. Rétturinn sýknaði
því dómnefnd, Háskólann og
íslenska ríkið af kröfu um-
sækjanda um lektorsstöðu um
ógildingu á niðurstöðu dóm-
nefndarinnar.
Krafðist viður-
kenningar á hæfni
Maðurinn sótti um lekt-
orsstarf í sálfræði við félags-
vísindadeild Háskóla Islands í
maí 1995. I auglýsingu um
starfið kom fram að um væri
að ræða sérstaka tímabundna
lektorsstöðu á sviði tilrauna-
sálfræði með megináherslu á
skynjun og hugfræði. Dóm-
nefnd, sem skipuð var til að
meta hæfni umsækjenda,
komst að þeirri niðurstöðu
um hæfni mannsins til að
gegna stöðunni að hann upp-
fyllti vel almennar kröfur sem
gerðar væru til lektora, en
hefði ekki sýnt fram á hæfni
sína á þeim sviðum sem til-
tekin voru sérstaklega í
auglýsingunni.
Maðurinn höfðaði mál til
ógildingar á niðurstöðum
nefndarinnar auk þess sem
hann krafðist miskabóta og
þess að viðurkennt yrði með
dómi að hann hefði verið hæf-
ur til að gegna stöðunni.
Dómnefnd bar að
fara eftir auglýsingu
Hæstiréttur staðfesti þá
niðurstöðu héraðsdóms að
maðurinn hefði lögvarða
hagsmuni af því að fá dóm
fyrir kröfum sínum varðandi
ummæli nefndar í lögboðinni
umsögn. Rétturinn taldi að
dómnefndinni hefði borið að
fara eftir auglýsingunni um
starfið og taldi ekki að nefnd-
in hefði farið út fyrir hana.
Þess vegna væri ekki á færi
dómstóla að endurskoða sér-
fræðilegt mat nefndarinnar.
Var staðfest niðurstaða
héraðsdóms um að vísa frá
dómi kröfu mannsins um, að
viðurkennt yrði með dómi að
hann hefði verið hæfur til að
gegna umræddri lektors-
stöðu.
Lögbanni á Tví-
höfða hafnað
HÆSTIRÉTTUR hefur staðfest
dóm Héraðsdóms Reykjavíkur og
synjað Fínum miðli ehf. um stað-
festingu lögbanns sem sýslumað-
urinn í Reykjavík lagði við því að
skemmtikraftarnir Jón Gnarr og
Sigurjón Kjartansson, betur
þekktir sem Tvíhöfði, störfuðu fyr-
ir íslenska útvarpsfélagið eða
Norðurljós.
Fínn miðill stefndi Sigurjóni og
Jóni fyrir að hafa fyrirvaralaust
hætt störfum í nóvember sl., þrátt
fyrir að hafa skrifað undir ráðn-
ingarsamning til 30. júní í ár. Fyr-
irtækið krafðist þess að þeim væri
bannað að starfa fyrir önnur fjöl-
miðlafyrirtæki eins og tiltekið væri
í ráðningarsamningnum.
Þeir Jón og Sigurjón viður-
kenndu að Fínn miðill kynni að
hafa öðlast skaðabótarétt vegna
brotthvarfs þeirra, enda hefðu
slíkar skaðabætur verið boðnar.
Þeir töldu þó ekki að ákvæðið í
ráðningarsamningnum ætti við eft-
ir að samningnum hefði verið slit-
ið.
Hæstiréttur segir óumdeilt að
þá félaga hafi brostið heimild til að
láta af störfum með þessum hætti,
en þó væri ekki hægt að telja að
ákvæðið um að þeim væri óheimilt
að starfa beint eða óbeint við út-
varp eða sjónvarp, fæli skýrlega í
sér að það gæti átt sjálfstæðan
gildistíma óháð afdrifum megin-
efnis samningsins. Fínn miðill yrði
að bera hallann af óskýrleika
samningsins að þessu leyti.