Morgunblaðið - 01.06.2000, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 1. JÚNÍ 2000 1 5
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
Morgunblaðið/Ásdís
Gosbrunnurinn
á sinn stað
Miðborgin
EITT af því sem boðar sum-
arkomuna í Reykjavík er
þegar gosbrunnurinn í Tjöm-
inni fer að láta á sér kræla.
Gosbrunnurinn er fjar-
lægður að vetrarlagi til að
komast hjá frostskemmdum
en nú era menn á vegum
garðyrkjustjóra borgarinnar
búnir að koma honum fyrir á
sínum stað.
Það var fyrrverandi sendi-
herra Bandaríkjanna á Is-
landi, Replogle að nafni, sem
gaf Reykvíkingum gosbrunn-
inn til minningar um dvöl
sína hér á landi fyrir nokkr-
um áratugum.
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins formlega stofnað
Ráðgert að reisa nýja
slökkvistöð við Mosfellsbæ
Höfuðborgarsvæðið
FULLTRÚAR sveitarfélag-
anna á höfuðborgarsvæðinu
undirrituðu samning um
stofnun byggðasamlags um
slökkvilið h öfu ðborgarsvæðis-
ins við brúna á Arnarneshæð í
Garðabæ í gær. Slökkviliðið
mun formlega hefja starfsemi
í dag, en stjómskipulagið mun
koma til framkvæmda í áföng-
um og mun það taka fullt gildi
l.janúar árið 2001.
Ingibjörg Sólrún Gísladótt-
ir, borgarstjóri og formaður
stjórnar Slökkviliðs höfuð-
borgarsvæðisins, sagði að
með þessari sameiningu yrði
til öflugt lið sem þjónaði öllu
svæðinu með meiri útkalls-
styrk en áður hefði þekkst. Þá
sagði hún að sameiningin auð-
veldaði alla uppbyggingu á
betri tækjakosti og öflugra
liði til framtíðar litið og að
m.a. væri gert ráð fyrir því í
framtíðinni að byggja eina
nýja slökkvistöð á norður-
hluta svæðisins, nálægt Mos-
fellsbæ og Kjalarnesi.
Á svæði Slökkviliðs höfuð-
borgarsvæðisins eru um 170
þúsund íbúar og segir í
stofnsamningnum að hlutverk
þess sé að vinna að forvörnum
og veita fyrstu viðbrögð til að
vemda líf og heilsu fólks, um-
hverfi og eignir.
Óbreytt þjónusta
gagnvart íbúum
Ingibjörg Sólrún sagði að
íbúarnir myndu ekki verða
mjög varir við þessa breyt-
ingu.
„Þetta er óbreytt þjónusta
gagnvart íbúunum, en við ger-
um ráð fyrir því að til lengri
tíma litið sé hægt að halda úti
öflugri og betri þjónustu með
einu liði, með minni tilkostn-
aði fyrir íbúana þannig að það
komi þeim til góða.“
Stofnfé byggðasamlagsins
verður 700 milljónir króna,
sem skiptast á aðildarsveitar-
félögin í hlutfalli við íbúafjölda
1. desember 1999. Ráðgert er
að verja um 606 milljónum í
kaup á eignum Slökkviliðs
Reykjavíkur, 16 milljónum í
kaup á eignum Slökkviliðs
Hafnarfjarðar og 78 milljón-
um í byggingu nýrrar slökkvi-
stöðvar í Hafnarfirði.
„Við gerðum ráð fyrir því að
byggja nýja stöð í Hafnarfirði
því gamla stöðin þar er úr sér
gengin. I framtíðinni gerðum
við ráð fyrir því að byggja
eina slökkvistöð til viðbótar
og þá væntanlega á norður-
hluta svæðisins, nálægt Mos-
fellsbæ og Kjalamesi. “
Öllum starfsmönnum
Slökkviliðs Reykjavíkur og
Slökkviliðs Hafnarfjarðar var
boðið starf hjá byggðasamlag-
inu og er heildarfjöldi starfs-
manna eftir sameininguna um
140 manns, en Hrólfur Jóns-
son verður slökkviliðsstjóri.
Ingibjörg Sólrún sagði að
sameiningin ætti ekki að hafa
í för með sér mikla breytingu
fyrir starfsmenn, þótt þeim
yrði eflaust gert kleift að færa
sig á milli stöðva í einhverju
mæli.
Slökkvilið höfuðborgar-
svæðisins mun reka fjórar
slökkvistöðvar, eina í Hafnar-
firði, tvær í Reykjavík og eina
á Reykjavíkurflugvelli, en
Ingibjörg Sólrún og Þorgeir
Pálsson flugmálastjóri undir-
rituðu í gær þjónustusamning
um rekstur slökkviliðsins á
Reykj avíkurflugvelli.
Morgunblaðið/Júlíus
Fulltrúar sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu undirrita samning um stofnun slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins á Amar-
neshæðinni. Frá vinstri: Gunnar Valur Gíslason, sveitarstjóri Bessastaðahrepps, Ingimundur Sigurpálsson, bæjarstjóri
Garðabæjar, Magnús Gunnarsson, bæjarstjóri Hafnarfjarðar, Sigurður Geirdal, bæjarstjóri Kópavogs, Jóhann Sigurjónsson,
bæjarstjóri Mosfellsbæjar, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, borgarstjóri Reykjavíkur
og Sigurgeir Sigurðsson, bæjarstjóri Seltjarnarness.
Viðurkenningar til hönn-
uða og húsbyggjenda
Teiknistofan Tröð/Sigríður Magnusdóttir, Hans-Olav Andersen arkitektar
Teikning af húsi Trésmiðafélags Reykjavíkur, sem rís senn við Efstaleiti 5.
Reykjavík
BYGGINGANEFND
Reykjavíkur veitti nokkrum
hönnuðum og húsbyggjend-
um viðurkenningar við athöfn
í Ráðhúsi Reykjavíkur ný-
lega. Hús Trésmiðafélags
Reykjavíkur við Efstaleiti og
fjölbýlishús við Sóltún 5-9
fengu sérstaka viðurkenn-
ingu.
Að sögn Óskars Bergsson-
ar, formanns bygginganefnd-
ar, voru alls fjórtán bygging-
ar tilnefndar; sex fengu
viðurkenningu en þessum
tveimur var veitt sérstök við-
urkenning.
Fjórtán hús tilnefnd, sex
hlutu viðurkenningu
„Þetta eru mjög ólík hús,“
sagði Óskar. „Hús Trésmiða-
félagsins eftir Teiknistofuna
Tröð er fyrst og fremst falleg-
ur arkitektúr, mjög vel leyst-
ur með breytilegum formum,
en Sóltún 5-9, íbúðarblokk
Ingimundar Sveinssonar, er
fyrst og fremst mjög vel
tæknilega útfært hús. Hann
tekur hefðbundna tumbygg-
ingu og flettir henni út þannig
að hver íbúð hefur mjög góð-
an aðgang að suðri að ein-
hverju leyti, auk þess sem
hver íbúð er einangruð frá
næstu íbúð að eins miklu leyti
og hægt er. Auk þess er lagt
mjög mikið upp úr hljóðein-
angrun milli íbúða og það var
kannski fyrst og fremst það
sem við vildum verðlauna til
þess að fá þessa tækninýjung
inn í umræðuna svo að fleiri
gætu fylgt henni eftir.“ Fjöl-
býlishúsið er hannað fyrir
Álftárós/íslenska aðalverk-
taka.
Eins og fyrr sagði voru
fjórtán hús tilnefnd og alls
sex hlutu viðurkenningu, allt
falleg og aberandi mannvirki,
að sögn Óskars. Auk framan-
greindra húsa hlutu viður-
kenningu einbýlishús í Vætta-
borgum 19, þar sem Aðal-
steinn Snorrason arkitekt var
höfundur og umsækjandi;
Sundagarðar 2, sem arkitekt-
arnir Ingimundur Sveinsson,
Ólafur Ó. Axelsson og Jóhann
Einarsson hönnuðu ásamt
Þórdísi Zoéga húsgagna- og
innanhússarkitekt fyrir Olíu-
verslun íslands; Víkurskóli,
sem Sigurður Gústafsson
arkitekt hannaði fyrir
Reykjavikurborg; og breyt-
ingar á Bergþórugötu 55, sem
Gláma/Kím arkitektar hönn-
uðu fyrir Jón Reykdal og
Jóhönnu Vigdísi Þórðardótt-
ur.
Önnur hús sem tilnefnd
voru eru: Einbýlishúsið
Bakkastaðir 31 sem Erling
Grosen Pedersen arkitekt
hannaði fyrir Garðar Eyland
Bárðarson; fjölbýlishúsið
Sóltún 11-13, sem Ingimund-
ur Sveinsson arkitekt hannaði
fyrir Álftárós; skrifstofuhúsið
Borgartún 21, hús Ríkissátta-
semjara, sem Ásgeir Ásgeirs-
son byggingafræðingur og
Ivon Cilia arkitekt hönnuðu
fyrir Eykt ehf.; skrifstofuhús-
ið Breiðhöfði 3, sem Úti og
Inni arkitektar hönnuðu fyrir
B.M. Vallá í samstarfi við
Ómar Sigurbergsson innan-
hússarkitekt; og einbýlis- og
parhúsabyggðin á Þrótt-
arsvæðinu við Sæviðarsund
sem Ásgeir Ásgeirsson bygg-
ingafræðingur og Ásmundur
Hrafn Sturluson arkitekt
hönnuðu fyrir Mótás hf.
Ákvörðun um að veita við-
urkenningarnar var tekin í
tilefni af 160 ára afmæli bygg-
inganefndar borgarinnar
þann 29. maí 1999.
Það voru ekki aðeins hönn-
uðirnir, heldur einnig um-
sækjendur um byggingar-
lejdi, sem fengu viðurkenn-
ingar og að sögn Óskars býr
þar að baki það sjónarmið að
það séu umsækjendurnir sem
ráða því hvort hönnuðirnir fá
að njóta sín í verkinu. „Það
eru þeir sem borga og því er
ekki síður mikilvægt að veita
þeim viðurkenningu en hönn-
uðunum. Það eru þeir sem
höfðu metnaðinn og kjarkinn
til að láta þetta verða að veru-
leika ekki síður en hönnuður-
inn sjálfur."