Morgunblaðið - 01.06.2000, Blaðsíða 16
16 FIMMTUDAGUR 1. JÚNÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Morgunblaðið/Haraldur Gunnlaugsson
Tekið við viðurkenningum á skíðaþingi, í aftari röð frá vinstri er Jóhannes Sveinbjörnsson, Breiðabliki, Birgir
Vigfússon, Reykjavík, Baldur Dýrfjörð, Akureyri, og Fjalar Úlfarsson, Akureyri, en í fremri röð eru frá vinstri
Gunnlaugur Ingi Haraldsson, Olafsfirði, Guðmundur Sigutjónsson, Akureyri, og Axel Alfreðsson, Reykjavík.
Skíðaþing haldið á
afmæli Skíðaborgar
SKÍÐAÞING árið 2000 var haldið á
Siglufirði fyrir nokkru en þingið var
haldið þar í iilefni þess að Skíðafé-
lag Siglufjarðar, Skíðaborg, er 80
ára á árinu.
A hátíðarsamkomu þingsins voru
veitt verðlaun fyrir bikarkeppni fé-
laga innan Skíðasambands Islands,
en árlega er haldin bikarkeppni þar
sem þátttakendur vinna sér inn stig
á hverju móti, þau eru svo lögð sam-
an og sá sem hæstur er í hverjum
flokki verður bikarmeistari sam-
bandsins. Einnigvoru nú reiknuð út
úr mótunum bikarstig hvers félags,
stigum hvers þátttakanda er haldið
Ármann hlaut
flest bikarstig
félaga
saman yfir veturinn og það félag
sem verður hæst vinnur viðkom-
andi flokk. Loks er reiknað út
hvaða félag hefur flest stig í öllum
flokkum og er það félag heildarsig-
urvegari.
í flokki 13-14 ára stúlkna hlutu
Reykvíkingar flest stig, þá Akur-
eyringar og loks Armann, en í
flokki 13-14 ára stráka hlaut
Breiðablik flest stig, Dalvík næst-
flest og Reykjavík varð í þriðja
sæti. í flokki 15—16 ára stúlkna varð
Akureyri með flest stig, þá Reykja-
vík og loks Armann, en í flokki pilta
hlutu Olafsfirðingar flest stig, þá
Reykvíkingar og Breiðablik varð í
þriðja sæti. í kvennaflokki fengu
Akureyringar flest stig, þá Reyk-
víkingar og Breiðablik í þriðja sæti,
en í flokki karla fengu Ármenningar
flest stig, Reykvíkingar næstflest
og í þriðja sæti varð Ólafsfjörður.
Hvað heildina varðar fékk Ár-
mann flest stigin samtals 6.294, þá
Akureyri með 6.058 stig og loks
Reykjavík með 5.048 stig.
Samkomulag milli framhaldsskól-
anna á Akureyri um heimavist
Nýtt heimavistar-
hús sem rúmar um
200 nemendur tekið
í notkun 2002
SAMKOMULAG náðist á fundi
skólameistara og formanna skólan-
efnda Menntaskólans á Akureyri
og Verkmenntaskólans á Akureyri
um að skólarnir tveir gangi til
samninga við stjórn rekstrarfélags-
ins Lundar um leigu á heimavistar-
herbergjum í nýju heimavistarhúsi
sem reist verður á lóð Menntaskól-
ans á Akureyri.
Rekstrarfélagið Lundur var
stofnað í fyrra til að fjármagna,
reisa og reka heimavistir við
Menntaskólann á Akureyri sem
nemendur allra framhaldsskóla á
Akureyri geta átt aðgang að.
Kostnaður ekki
undir 500 milljónum
Tryggvi Gíslason, skólameistari
Menntaskólans á Akureyri, sagði
að ákveðið yrði á fundi í næstu viku
hvernig staðið yrði að hönnun og
undirbúningi framkvæmda við
byggingu heimavistarhússins, en
það verður austan við núverandi
heimavist MA. Þannig verður hægt
að tengja vistirnar, þá gömlu og
nýju, saman og útbúið verður nýtt
sameiginlegt anddyri. Skólameist-
ari sagði að með þessu fyrirkomu-
lagi næðist fram umtalsverður
sparnaður en mötuneyti, þvottahús,
setustofa og salur sem fyrir er á
núverandi heimavist mun einnig
nýtast þeirri nýju. „Við áætlum að
spara með þessum hætti milljóna
tugi,“ sagði Tryggvi en hann sagði
að kostnaður við byggingu nýju
heimavistarinnar yrði aldrei minni
en 500 milljónir króna.
Byggingin verður reist fyrir
lánsfé og stendur rekstrarfélagið
Lundur að fjármögun hennar. Sótt
hefur verið um lán vegna fram-
kvæmdanna til íbúðalánasjóðs.
Gangi allt eftir verður unnið við
hönnun hússins í sumar og haust
og verkið boðið út næsta vetur.
Framkvæmdir við bygginguna hæf-
ust vorið 2001 og stefnt að því að
lokið verði við verkið á árinu 2002.
Áætlað að rúm verði fyrir
200 manns á nýju vistinni
Tryggvi sagði að í nýju heima-
vistinni yrðu einstaklingsíbúðir
sem og einnig tveggja manna íbúð-
ir og er stefnt að því að hún rúmi
um 200 manns eða jafnvel meira.
Þá er áhugi fyrir því að reka í hús-
inu fjölskylduvænt, reyklaust hótel
yfir sumarmánuðina.
„Þetta er afskaplega stór dagur,
við höfum náð mikilsverðum áfanga
bæði fyrir skólana og bæjarfélag-
ið,“ sagði Tryggvi, en á sjöunda
hundrað aðkomunemendur stunda
nám við framhaldsskólana á Akur-
eyri, .en aðeins er rúm fyrir um 150
nemendur í núverandi heimavist
MA.
Fuglaskoð-
unarferð
Ferðafélags
Akureyrar
SKRIFSTOFA Ferðafélags
Akureyrar verður opnuð
föstudaginn 2. júní og verður
hún í sumar opin frá kl. 16 til
19 alla virka daga.
I tilefni af opnun skrifstof-
unnar á þessu sumri verður
boðið upp á kaffi og meðlæti.
Hin sívinsæla fuglaskoðun-
arferð félagsins verður á
laugardag, 3. júní, og er um
að ræða tilvalda ferð fyrir
unga sem aldna. Fararstjóri
verður Jón Magnússon. Brott-
för verður frá skrifstofu fé-
lagsins, Strandgötu 23 kl. 16.
Laugardaginn þar á eftir,
10. júní, verður boðið upp á
spennandi hjólreiðaferð, en
hjólað verður í Botna, skála
ferðafélagsins í Suðurárbotn-
um.
^mb l.is
/U-LTAf= e!TTH\SA£> rjÝTT
Verkmenntaskólinn á Akureyri
Dagskóli
Innritun stendur yfir og lýkur miðvikudaginn 7. júní.
Námsráðgjafar skólans verða til viðtals alla virka daga fram
til 7. júní. Umsækjendur eru hvattir til að nýta sér þjónustu
þeirra.
í VMA er hægt að stunda nám á:
■ Iðnnámsbrautum
• Ýmsum starfsnámsbrautum
• Bóknámsbrautum til stúdentsprófs
■ Listnámsbraut
■ Almennri námsbraut
Leitaðu nánari upplýsinga á netinu. Vefslóð skólans er;
http://vma.is. Síminn á skrifstofu skólans er 461 1710.
Jafnframt stendur yfir innritun á Útvegssvið VMA á Dalvík
þar sem boðið er upp á almennt nám, fiskvinnslunám og
skipstjórnarnám. Umsóknir þurfa að berast fyrir 13. júní.
Síminn á Útvegssviði á Dalvík er 466 1083.
1 '™ 1
Kynningarfundur um
kræklingarækt
verður haldinn á Strandgötu 29 föstudaginn
2. júníkl. 11.00 til 16.00
• Setning: AFE
• Kræklingaverkefnið: kynning Valdimar
Gunnarsson
• Líffræði kræklings: Guðrún G. Þórarinsdóttir
• Leyfisveitingar: Heilbrigðiseftirl iti Eyjafjarðar
• Staðarval og ræktunartækni: Guðrún G.
Þórarinsdóttir
• Búnaður fyrir kræklingarækt og uppsetning:
Valdimar Gunnarsson
• Kaffi
• Uppskera og vinnsla: Valdimar Gunnarsson
• Myndband um kræklingarækt
• Markaðsmál: Valdimar Gunnarsson
• Stofn- og rekstrarkostnaður, fjármögnun:
Valdimar Gunnarsson
Fundurinn er öllum opinn
VEIÐIMÁLASTOFNUN
Ftekrækt og flskeldl • Rannsóknlr og ráðgjöl
Atvinnuþróunarfélag
Eyjafjarðar
Atta sirnium a
.730 kr . meðfluyvallarsköttum
FLUGFÉLAG ÍSLANDS
Bákaðu í síma 570 3030 og 460 7000
Fax 570 3001 • websales§airiceland.is •www.flugfelag.is