Morgunblaðið - 01.06.2000, Side 24
24 FIMMTUDAGUR 1. JÚNÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
NEYTENDUR
Kennitölubruðl augljós ógn við friðhelgi einkalífsins
Lög um persónuvernd
draga úr ofnotkun kennitölu
KENNITÖLUBRUÐL, eða ofnotkun kenni-
tölu, hefur verið til umfjöllunar í fjölmiðlum
að undanförnu og því jafnvel verið líkt við
hirðuleysi. Þykir mörgum nóg um að þurfa að
gefa upp kennitöluna sína þegar þeir panta
sér klippingu á hárgreiðslustofu, staðgreiða
flík í verslun eða kaupa leikhúsmiða símleiðis.
Um næstu áramót á þessari ofnoktun kenni-
tölu að ljúka en þá öðlast gildi lög um pers-
ónuvernd og meðferð persónuupplýsinga.
Samkvæmt lögunum verður sá sem óskar eft-
ir að fá uppgefna kennitölu viðskiptavinar
síns að hafa til þess mjög skýrar og hald-
bærnar ástæður.
í nýju lögunum eru í fyrsta sinn lögfestar
hömlur á notkun kennitölu. Þar eru einnig í
fyrsta sinn lögfest ákvæði um svokölluð pers-
ónusnið, en kennitölur auðvelda mjög gerð
þeirra.
Persónusnið lýsa neyslumynstri fólks. Slíkt
mynstur verður til þegar fyrir liggja upp-
lýsingar um aldur neytandans, kyn og búsetu,
tekjur, áhugamál, smekk og jafnvel heilsufar
og því öllu er steypt saman. Þannig má ráða
hverjar séu líklegar þarfir neytandans og
hvað sé líklegt að hann fáist til að kaupa sé
vörunni ýtt að honum.
Seljandi þarf yfirleitt ekki
á kennitölunni að halda
Persónusnið eru öflug tæki til að skerpa
markaðssóknina. Markaðssetningarfyrirtæki
erlendis leggja æ meira upp úr því að búa til
slík snið og leita að fólki sem á sér sameigin-
leg þarfa- og neyslumynstur. Slíkt starf er
enn skammt að veg komið hér á landi, segir
Sigrún Jóhannesdóttir framkvæmdastjóri
Tölvunefndar.
„Hér nota aðilar í markaðssókn ennþá mik-
Flestir vilja af og til hverfa í íjöldann og hafa
kennitöluna sína út af fyrir sig. Kennitala ætti
t.d. að vera óþörf þegar maður pantar sér tíma
á hárgreiðslustofu.
ið til opinberar upplýsingar en líklegt er
að þeir eigi eftir að færa út kvíarnar. Ætla
má að nú þegar megi finna upplýsingar
um hvern og einn Islending á fleiri hund-
ruðum skráa, allar auðkenndar með kenni-
tölum,“ segir Sigrún.
„Að mínu mati er kennitalan ofnotuð hér
á landi. Það er varasamt vegna þess hve
kennitalan er þægilegur samtengingarlyk-
01 og hve hún auðveldar að búa til pers-
ónuupplýsingaskrár og persónusnið. Ná
má í skrár héðan og þaðan, steypa þeim
öllum saman í eina og þannig fá heildar-
mynd af neytandanum - hreinlega fletja
hann út. í nýjum lögum um persónuvernd
og meðferð persónuupplýsinga eru ný
ákvæði, bæði um það að þeir sem gera slík
persónusnið eigi að vara fólk við og um
notkun kennitölu. Þar er t.d. það nýmæli
að kennitölunotkun eigi að meginstofni til
ekki að eiga sér stað nema hún sé nauð-
synleg til að tryggja örugga persónugrein-
ingu. Staðreyndin er hins vegar sú að
margar skrár eru það litlar að það er nóg
fyrir seljanda vöru að vita t.d. hvað neyt-
andinn heitir og hvar hann býr. Hann þarf
í raun ekki að fá að auki þann samtenging-
arlykil sem kennitalan er. Slíkt felur í sér
augljósa ógn við friðhelgi einkalífs okkar
allra,“ segir Sigrún.
Sigrún segir að þjóðir Evrópusambands-
ins og aðrar þjóðir sem eiga aðild að EES-
samningnum séu um þessar mundir að
samþykkja og taka í gildi samskonar lög
um persónuvernd og meðferð persónuupp-
lýsinga enda sé það gert í samræmi við til-
skipun Evrópuþingsins, sem gefin var út
haustið 1995.
bíða þín á tilboðsverði!
GROÐRARSTOÐIN
"Mörl^
STJÖRNVGRÓF18, SÍMl 5814288, FAX 5812228
www.mork.is mork@mork.is
—.— -—
Nýtt
Ananas
KOMINN er á markaðinn ananas í
227 gramma dósum frá Ora ehf. I
fréttatil-
kynningu
segir að
ananasinn
sé í eigin
safa og fá-
ist í sneið-
um, bitum
og kurlaður. Hægt er að kaupa an-
anasinn bæði í stökum öskjum og
einnig í þriggja pakka öskjum.
Ennfremur segir í fréttatUkynn-
ingu að hann henti vel í matargerð,
m.a. á pizzur og í hrásalöt. Anan-
asinn er fitulaus og engum sykri er
bætt við.
LIÐ-AKTIN
Góð fæðubót fyrir
fótk sem
er með mikið átag
á liðum
Skólavöröuallg, Kringlunni A Smámtorgi
TBT-efni
fínnst í
ungbarna-
bleium
EITUREFNI, svokallað
TBT (tributyl-tin), hefur
fundist í mjög litlum mæli í
streng á ungbarnableium.
Rannsókn stendur nú yfir
hjá dönsku umhverfisstofn-
uninni en TBT er baneitrað
efni sem til dæmis er notað í
botnmálningu á stór skip.
„Greenpeace-samtökin
fundu efnið í nokkrum ein-
notableium frá Pampers og
því fór rannsókn af stað,“
segir Níels Breiðfjörð Jóns-
son, sérfræðingur á eitur-
efnasviði , Hollustuverndar
ríkisins. „I tilkynningunni
frá dönsku umhverfisstofn-
uninni segir að efnið sé
langt innan hættumarka.
Samt sem áður er óviðun-
andi að það sé þar að finna.“
Efnið ekki sett
viljandi í bleiurnar
Efnið hefur eingöngu
fundist í streng bleianna og
telur Níels líklegt að um sé
að ræða mengun, jafnvel
þvottavatn sem mengað er
af TBT. „Trúlega hefur efnið
ekki verið sett viljandi í
bleiurnar.
Fyrir nokkru lék grunur á
að TBT hafi viljandi verið
sett í svampa sem voru seld-
ir í Svíþjóð og einnig barst
efnið á sínum tíma í Nike-
boli.“
Drög að
nýrri reglugerð
Unnið er að íslenskri
reglugerð sem þrengir enn
frekar notkunarmöguleika
TBT, að sögn Níelsar. „TBT
er notað í botnmálningu á
skip yfir 25 metra því það
drepur allan gróður á skips-
botni. Eingöngu er leyfilegt
að nota það á stærri skip
sem reiknað er með að liggi
lítið í höfnum. í Reykjavík-
urhöfn hefur efnið valdið
skemmdum, þar má finna
nákuðung, hreinsidýr sem
étur hræ, sem nú er orðinn
tvíkynja".
Ekki hefur reynst unnt að
banna efnið en Níels telur
líklegt að þess sé ekki langt
að bíða.„ Miklir hagsmunir
eru þó í húfi því TBT hentar
vel til að halda skipsbotnum
hreinum."
VANTAR ÞIG ,
i INNRETTINGUI
SUMARBUSTADINN?
Þú getur valib um margar
hurbargerbir t.d. beyki,
furu, eik, birki og ask.
Nettoj^
ELDHÚS - BAÐ - FATASKÁPAR
Til afgreióslu strax af lager eba
meb abeins 2-3 vikna fyrirvara.
riform
HÁTÚNI6A (I húsn. Fönix) SlMI: 552 4420