Morgunblaðið - 01.06.2000, Side 32
32 FIMMTUDAGUR 1. JÚNÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
Boðar tímamót
í heilsuefnum
1 Náttúruleg mótefni
gegn bakteríusýkingum,
vírusum og bólgum í
meltingarvegi.
1 Bætir meltingu
1 Örvar vöxt
meltingarflóru líkamans
og ver hana gegn
sýklum.
1 Örvar endurnýjun á
skemmdum vefjumo.fi.
Kynning
fimmtudag, föstudag
og laugardag
1
500 mg
Min. 0.6% Lactoferrin
with Acidophilus
120 Capsules
-....
OPIÐTXUBJIJ
*KL 24.00
ÖUKVÖLD*
OrQdTAPCTEK
Álftamýri 1 Reykjavík, sími:5857700
ÚRVERINU
Mettúr í grálúðu á Hampiðjutorgi hjá Margréti EA
, # ^ # Morgunblaðið/Kristján
Ahöfnin á Margréti, frystitogara Samherja, fagnaði mettúrnum með forstjóranum Þorsteini Má Vilhelmssyni,
sem er lengst til hægri í fremstu röð, og útgerðarstjóranum Kristjáni Vilhelmssyni, sem er lengst til vinstri í
fremstu röð, en bræðurnir komu um borð á móts við Hjalteyri í Eyjafirði og sigldu með skipinu til Akureyrar.
Mikil verðmæti en upp-
sveiflan gleðilegust
FRYSTITOGARINN Margrét EA
kom til Akureyrar síðdegis í gær
með 494 tonn af grálúðu upp úr sjó.
Skipið var 24 daga í túrnum, en afl-
inn fékkst á Hampiðjutorginu út af
Vestfjörðum. Aflaverðmætið er um
112 milljónir eða um 4,7 milljónir á
dag.
„Þetta var fínn túr,“ sagði Sig-
tryggur Gíslason, skipstjóri á Mar-
gréti, við Morgunblaðið. „Við vor-
um 20 daga á miðunum og þar af
voru sjö sólarhringar á reki í
vinnslu en við frystum aðeins 25 til
28 tonn á sólarhring.“
Sigtryggur segir að aflaverð-
mætið rokki eftir genginu. Það hafi
verið um 113 milljónir á þriðjudag
en 112 milljónir í gær. „Það er
svona einu sinni á 10 ára fresti sem
við fáum að taka þátt í svona
veislu," segir hann.
Vill auka kvótann
Skipstjórinn vill ekki ræða launin
en gera má því skóna að háseta-
hluturinn sé um 1,2 til 1,3 milljónir
króna. Hann segir aðalatriðið að
töluvert mikil uppsveifla sé í stofn-
inum. „Kvótinn er ekki nema 10.000
tonn en það voru 9,5 tonn í holi hjá
okkur. Við skipstjórnarmenn erum
allir sammála um það að friðunar-
aðgerðirnar hafi skilað þessu og nú
er lag að bæta við kvótann."
Aflinn fékkst um 100 mílur vest-
ur af Bjargtöngum og segir Sig-
tryggur að tvö skip hafi verið á
svipuðum slóðum í byrjun túrsins
en þau hafi orðið frá að hverfa
vegna lítils kvóta. „Ég veit ekki
hvort við fáum að fara strax aftur
en við viljum fyrst og fremst benda
á uppsveifluna og það er hún sem
er gleðilegust í þessu.“
OHusqvarna
VIKING
2000
Mörkin 1/108 Reykjavík / Símí 588 9505
www.volusteinn.is
Sauroadagar
OR mcítil-in ii'tní
Tilboö á
Husqvarna
Sarah
26. maí til 10. júnf'
Tilvalin útskrifar- eöa brúðargjöf
Föstudaginn 2. júní
og laugardaginn 3. júní
verður sérstök kynning
á brúðarskrauti í Völusteini.
Ef þú ert með brúðkaup
á næstunni, máttu ekki
missa af þessu!
•
Eitt mesta úrval
af brúðarskrauti
á landinu.
® VÓLUSTEINN
fyrir fima fingur
Áhyggjur
af Atlants-
hafs-
laxinum
Atlantshafslaxssambandið hef-
ur borið áhyggjur sínar um
stofnstærð laxins á borð fyrir
kanadísku ríkisstjórnina og
krafist 50 milljóna dala til að
rannsaka Norður-Ameríku-
stofninn.
Stofninn hefur minnkað um
75% á síðustu 25 árum en sam-
bandið segir að ekki sé of seint
að grípa til aðgerða og vill að
notast verði við laxamerkingar
næstu fimm árin til að finna út
af hvaða sökum stofninn er að
minnka. Stjórnvöld í Kanada
ætla sér að taka málið upp á
fundi Verndunarsamtaka
Norður-Atlantshafslaxins sem
haldinn verður eftir tvær vikur.
Mikill
aflasam-
dráttur í
Rússlandi
RÚSSNESKI fiskiskipaflotinn
veiddi alls um 1,26 milljón tonn á
fyrsta fjórðungi þessa árs. Það er 8%
samdráttur frá sama tíma síðasta árs
sem sagður er stafa af erfiðleikum í
sjávarútvegi í Austur-Rússlandi. Þar
hefur aflinn dregist saman um 118
þúsund tonn á tímabilinu og var um
841 þúsund tonn á fyrstu þremur
mánuðum ársins. Hafís í Okhotsk-
hafi og Beringshafi hefur komið í veg
fyrir eðlilega sókn á þessi mið. Afli í
öðrum landshlutum hefur hinsvegar
verið svipaður og síðustu ár.