Morgunblaðið - 01.06.2000, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 1. JÚNÍ 2000 35
ERLENT
Setti Jesse
James morð
sitt á svið?
Einn þekktasti byssubófí „villta vesturs-
ins“, Jesse James, er á bókum sagður hafa
verið myrtur árið 1882. DNA-rannsókn
gæti leitt til þeirrar niðurstöðu að hann hafí
látist í hárri elli árið 1951.
Granbury. AP.
STARFSMENN
kirkjugarðs í
bænum Granbury
í Texas grófu á
þriðjudag upp
jarðneskar leifar
manns sem ýmsir
telja að sé ein af
best þekktu goð-
sögnum „villta
vestursins", Jesse
James. Hingað til
hefur verið talið
að Jesse James
hafi verið skotinn
til bana af sam-
starfsmanni sín-
um árið 1882 en
lengi hafa verið á
kreiki sögusagnir
um að hann hafí í raun og veru dá-
ið í hárri elli löngu síðar. íbúar í
bænum Granbury í Texas segja að
Jesse James hafi sest að í bænum
undir nafninu J. Frank Dalton og
dáið þar árið 1951, 104 ára gamall.
Tveir afkomendur mannsins, Jesse
Quanah James og Charles A. Jam-
es, hafa höfðað mál fyrir dómstól-
um til að fá úr því skorið
hvort afi þeirra hafi verið
hinn umtalaði bófaforingi.
Ætlunin er að láta fara
fram DNA-rannsókn á
líkamsleifum Daltons og
bera saman við erfðaefni
úr einstaklingi sem vitað
er með vissu að er afkom-
andi Jesse James.
Prestssonurinn
af sléttunum miklu
Fáir útlagar villta vest-
ursins hafa heillað fólk um
víða veröld jafn mikið og
Jesse James. Fjöldi bóka
og kvikmynda hefur verið
gerður um ævi hans og
ýmsar sögur af honum
sagðar. Hann hóf feril sinn í her-
sveitum suðurríkjanna í banda-
rísku borgarastyrjöldinni en gerð-
ist síðar afar stórtækur banka- og
lestarræningi og reið um héruð
með flokki ribbalda. Jesse hefur
verið kallaður Hrói höttur Banda-
ríkjanna í höfuðið á annarri
þekktri „þjóðsagnapersónu". En
Bófaforinginn
Jesse W. James.
MatartilaObaiO
KarrihiaOborfl
öll föstudags-,
laugardags- og
sunnudagskvöld
alla sunnudaga
kl. 14-17
James, m.a. annars með því að at-
huga ör á líkama hans eftir sárin
sem hann fékk í borgarastyrjöld-
inni.
32 sár eftir
byssukúlur
Árið 1876 fór tilraun bófaflokks-
ins til að ræna banka í Minnesota
AP
samþykktar voru fjárveitingar til
uppbyggingar í hinum stríðshrjáðu
byggðum.
Þingmenn skoða hér líbanskt kort
á fundinum í gær.
Þingfund-
ur í Suður-
Líbanon
ÞÚSUNDIR íbúa í Suður-Líbanon
fögnuðu þingmönnum sem streymdu
til bæjarins Bint Jbeii í gær þar sem
líbanska þingið kom saman til að
fagna „frelsun" S-Líbanons. Líb-
anska þingið situr venjulega í höfuð-
borginni Beirút en brottflutningur
ísraelska hersins • frá suðurhluta
landsins eftir 18 ára hersetu var til-
efni hátíðarfundar þingsins þar í gær.
Fundur þingsins er álitinn til
marks um að yfirvöld í Líbanon séu
nú að taka stjórn mála í S-Líbanon í
sínar hendur, en þá viku sem liðin er
síðan brottflutningurinn átti sér stað
hafa Hizbollah-skæruliðar ráðið lög-
um og lofum á svæðinu. Þingið
minntist þeirra sem látist höfðu í
átökunum síðustu tvo áratugina og
Silfurpottar í Háspennu frá
19. -30. maí 2000
Dags. Spilastaður Upphæð
30.5 Háspenna Laugavegi..........101.149 kr.
26.5 Háspenna Hafnarstræti.......166.063 kr.
26.5 Háspenna Hafnarstræti........51.757 kr.
25.5 Háspenna Skólavörðustíg.....239.240 kr.
22.5 Háspenna Hafnarstræti.......103.593 kr.
22.5 Háspenna Skólavörðustíg.....112.491 kr.
22.5 Háspenna Laugavegi...........77.798 kr.
21.5 Háspenna Laugavegi...........67.476 kr.
19.5 Háspenna Laugavegi............68.552 kr.
19.5 Háspenna Laugavegi...........62.766 kr.
19.5 Háspenna Hafnarstræti........67.476 kr.
19.5 Háspenna Hafnarstræti........73.367 kr.
Háspenna, Laugavegi 118, Hafnarstræti 3, Skólavörðustíg 6
Líkkista með jarðneskum leifum manns, sem sumir trúa að hafi
verið Jesse James, er grafin úr jörðu.
Jesse James giftist frænku
sinni, Zereldu, og átti með henni
tvö börn, Mary og Jesse. Afkom-
andi þeirra, Robert Jackson, mun
láta rannsóknarmönnum í té
lífsýni sem skera mun úr um hvort
grunur bæjarbúa í Granbury sé á
rökum reistur.
Eins og títt er um alþýðuhetjur
er því gjarnan haldið fram að
fréttir af andláti þeirra séu stór-
lega ýktar. Fjöldi fólks trúir því að
Jesse James hafi sett morð sitt á
svið til að komast undan réttvis-
inni. íbúar Granbury staðhæfa að
J. Frank Dalton hafi leyst frá
skjóðunni á dánarbeði sínum og
gengist við því, sem hafði verið
grunur margra, að hann væri
byssubófinn frægi. Þeir telja að
framburður lögregluforingja sem
rannsakaði lík Daltons styðji þenn-
an framburð. Lögregluforinginn
sagðist hafa talið 32 gróin sár eftir
byssukúlur á líkinu, allt frá enni
niður á hné.
Yfu-maður Jesse James-safnsins
í Missouri, Gilliam Beckett, er á
allt öðru máli en bæjarbúar í
Granbury. Hún bendir á að lík
hins „sanna“ Jesse James hafi ver-
ið grafið upp árið 1995 og þá hafi
verið leitt í ljós með vísindalegum
rannsóknum að það væri „ekta“.
Samanburður á rithandarsýnis-
hornum, sem gerður var árið 1980,
hafi einnig sýnt fram á að Dalton
var ekki James.
Beckett segir ennfremur að
mennú-nir frá Granbury sem seg-
ist vera afkomendur Jesse James
hafi rangt fyrir sér.
alls óvíst er hvort hann deildi
nokkurn tíma út ránsfeng meðal
fátækra.
Prestssonurinn Jesse James
fæddist í Missouri árið 1847. Hann
og bróðir hans Frank gengu í eina
af skæruliðasveitum hers suður-
ríkjanna árið 1863. Talið er að
Jesse hafi einnig verið njósnari
fyrir suðurríkin í stríðinu en hann
særðist undir lok þess, fékk byssu-
kúlu í gegnum annað lungað.
Að borgarastríðinu loknu stofn-
uðu þeir bræður bófaflokk og
gengu margir ógæfumenn þeim á
hönd. Fyrsta vopnaða ránið
frömdu þeir í Missouri árið 1867
og næstu ár á eftir rak hvert ránið
annað, ósjaldan með blóðsúthell-
ingum og barsmíðum af ýmsu tagi.
Jesse er sagður hafa verið afar
hændur að móður sinni og hafa
einatt falið sig á heimili hennar
fyrst eftir að glæpirnir voru
framdir.
Svikinn af samstarfsmönnum
út um þúfur vegna harðar mót-
spyrnu íbúanna. Allir meðlimir
flokksins nema Frank og Jesse
voru annaðhvort drepnir í átökun-
um eða handsamaðir.
Eftir þetta lét Jesse sig hverfa í
nokkur ár en tók til við fyrri iðju
kringum 1880. Þá hafði hann sér
til aðstoðar tvo bræður, Charles
og Bob Ford, sem áttu eftir að
svíkja hann. Bandarísk yfirvöld
höfðu lagt fé til höfuðs Jesse Jam-
es og Ford-bræður féllu fyrir
freistingunni. í apríl 1882, þegar
Jesse stóð uppi á stól á heimili
fjölskyldunnar og var að dusta ryk
af mynd sem þar hékk á vegg,
skutu þeir bræður hann í hnakk-
ann. Sagan hermir að eftir að
bræðurnir skutu hann hafi þeir
gengið úr skugga um að fórnar-
lambið væri í raun og veru Jesse