Morgunblaðið - 01.06.2000, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 1. JÚNÍ 2000 37
ERLENT
Pútín Rússlandsforseti skilgreinir hagsmuni ríkisins
Aukin áhersla
lögð á Kaspíahaf
Moskvu. Reuters.
Þriðjungur kvenfanga
í Nicaragua náðaður
VLADÍMÍR Pútín Rússlandsforseti
hefur aðeins verið einn mánuð við
völd en hann hefur þegar sýnt að
málefni Kaspíahafs verða ofarlega á
lista hans yflr forgangsverkefni. Á
miðvikudag skipaði forsetinn Víktor
Kaljúsníj aðstoðarutanríkisráðherra
og er honum ætlað að fara sérstak-
lega með málefni Kaspíahafs. Kalj-
úsníj var áður ráðherra eldsneytis-
og orkumála.
Þetta ráðherraembætti Kaljúsnijs
er nýtt af nálinni og segja fréttaskýr-
endur að skipun hans sé til marks um
að forseti Rússlands telji mjög mikil-
vægt að treysta ítök Rússa við
Kaspíahaf. Á þessu svæði er að finna
gífurlegar oliu- og gaslindir og því
telst Kaspíahaf sérstaklega mikil-
vægt í pólitísku og herfræðilegu til-
liti.
Olíukaup í Túrkmenistan
Þetta er hins vegar ekki í fyrsta
skiptið sem Vladímír Pútín geftu- til
kynna að hann telji forgangsverkefni
að tryggja stöðu Rússa á þessu mikil-
væga svæði.
Pútín beið ekki einu sinni eftir því
að Míkhaíl Kasjanov forsætisráð-
herra hefði lokið við myndun ríkis-
stjómar sinnar heldur hélt til Túrk-
menistan þar sem hann undirritaði
samning um kaup á miklum gas-
birgðum á næstu árum. Þessi gjöm-
ingur var ekki einungis fallinn til að
treysta samskipti Rússlands og
Túrkmenistan. Með þessu tókst Pút-
ín einnig að gera að engu áform um
að leggja gasleiðslu frá Túrkmenist-
an til Tyrklands. Þær áætlanir verða
ekki að veruleika um fyrirsjáanlega
framtíð þar sem Rússar hafa tryggt
sér gasið sem flytja átti um pípumar.
Skömmu eftir ferð forsetans til
Túrkmenistan skýrðu þrjú stærstu
orkufyrirtæki Rússlands frá því að
þau hefðu afráðið að ganga til sam-
starfs um könnun á auðlindum þess
hluta Kaspíahafs sem tilheyrir Rúss-
um. Þær ræðir um gasfyrirtækið
Gazprom og olíufélögin LUKOIL og
YUKOS. Eftirmaður Kaljúsníjs í
orkumálaráðuneytinu, Álexander
Garvín, bætti síðan við að hann vildi
að olíu- og gasframleiðendur við
Kaspíahaf tækju upp nána samvinnu.
„Þetta er sérlega athyglisverð hug-
mynd. Þegar horft er til sögunnar
hafa ríkin við Kaspíahaf ávallt verið
tengd í efnahagslegu tilliti. Því þarf
að huga vandlega að þessu máli,“
sagði ráðherrann.
Við Kaspíahaf er nú að finna fjög-
ur sjálfstæð ríki sem áður heyrðu
Landa-
mæri
samþykkt
Tlanmukiiu A
SÝRLENDINGAR era að öllu
leyti samþykkir afstöðu Sam-
einuðu þjóðanna til legu landa-
mæra Israels og Líbanons, að
sögn Terje Röd Larsen, sendi-
manns SÞ, í gær eftir fund með
utanríkisráðherra Sýrlands,
Farouk al-Sharaa. Þykir niður-
staðan benda til þess, að Sýr-
lendingar hafi sæst á að Israel-
ar þurfi ekki að draga til baka
lið sitt frá landræmu við rætur
Hermonfjalls, en Sýrlendingar
og Líbanar hafa sagt ræmuna
vera líbanskt land. ísraelar
hertóku landræmuna 1967, en
hún hafði þá tilheyrt Sýrlandi
og ísraelar segja því að deilan
verði aðeins leyst í viðræðum
við Sýrlendinga.
Sovétríkjunum til, þ.e.a.s. Rússland,
Túrkmenistan, Kazakhstan og Az-
erbajdzhan. Stjórnvöld í ríkjunum
hafa öll uppi áform um nýtingu auð-
linda Kaspíahafsins og vilja öll koma
að ákvörðunum sem því tengjast.
En þótt menn hafi lengi vitað að
mikil auðæfi er að ftnna í Kaspíahafi
er það ekki fyrr en á allra síðustu ár-
um sem Rússar hafa bæst í þann hóp
ríkja sem nú keppast við að móta
áætlanir um nýtingu auðlinda
Kaspíahafs.
Ónotaðar auðlindir
Fyrir hundrað áram framleiddi
rússneska keisaradæmið um helm-
ing þeirrar olíu sem notuð var í heim-
inum. Þær olíulindir var að finna við
Bakú, sem nú tilheyrir Azerbajd-
zhan. Á fjórða áratugnum fundust
miklar lindir í Baskhortostan í sunn-
anverðum Úralfjöllum og í Tatarstan
á Volgusvæðinu. Meginþungi olíu-
framleiðslunnar færðist til þessara
staða.
Á sjöunda áratugnum fundust síð-
an gríðarmiklar plíulindir í vestan-
verðri Síberíu. I samanburði við
þessar olíulindir var bæði erfitt og
dýrt að byggja upp olíuvinnslu við
Kaspíahaf, sem þá heyrði Sovétríkj-
unum til. Þess vegna vora þær lindir
lítt sem ekkert nýttar.
Við hran Sovétríkjanna árið 1991
urðu löndin í þessum heimshluta
sjálfstæð ríki. ÖIl horfðu þau til olíu-
og gaslindanna í þeim tilgangi að laða
að erlenda fjárfesta. Með þessu móti
hugðust þessi ríki byggja upp hag-
sæld og treysta nýfengið sjálfstæði.
Stjórnvöld í Azerbajdzhan og
Kazakhstan tóku forustuna og gerðu
samninga við risaolíufyrirtæki á borð
við Chevron Corp og BP. Nú sér
Chevron um rekstur Tengiz-svæðis-
ins risastóra í Kazakhstan og BP er
leiðandi í olíuvinnslu í Azerbajdzhan.
Erlend fyrirtækjasamsteypa vinnur
nú að rannsóknum á olíulindum und-
an strönd Kazakhstan í Kaspíahafi.
Fyrstu rannsóknir gefa til kynna að
þar kunni að vera að finna eitt
stærsta ónýtta olíusvæði heims sem
gefið geti af sér 30 milljarða olíufata.
í samanburði við þessi tvö ríki hafa
Rússar dregið úr hömlu að blanda
sér í kapphlaupið um nýtingu auð-
linda Kaspíahafs. Það eina sem Rúss-
ar hafa haft upp úr krafsinu er
Sevemíj-svæðið svonefnda í norðan-
verðu Kaspíahafi. Talið er að það geti
gefið af sér 2,2 milljarða olíufata.
Þær hugmyndir sem nú era uppi
um samstarf þriggja stærstu orku-
fyrirtækja Rússlands gætu orðið til
þess að veralegur skriður komist á
nýtingu olíu- og gaslinda Kaspíahafs.
Pútín forseti er þó ekki einungis að
hugsa um olíuna. Sá sem ræður út-
flutningsleiðunum fyrir olíuna hefur
einnig mikil ítök í stjómmálum þessa
Eirtn lykill
...endalausir
möguleikar
Masterkerfi
K. Þorsteinsson & Co. ▼
Skútuvogi 10E • Sími 5880-600
www.simnet.is/kth
heimshluta. Þetta gera stjómvöld í
Bandaríkjunum sér ljóst og þess
vegna þrýsta þau nú mjög á um að
olía úr nýjum lindum Kaspíahafsins
fái að streyma óhindrað í gegnum
NATO-ríkið Tyrkland inn á heims-
markaðinn. í þessu skyni hefur sér-
stakur ráðgjafi Bandaríkjaforseta
um orkumálefni Kaspíahafs tekið til
starfa og vera kann að skipan
Kaljúsníjs sé hugsuð sem mótleikur
við þessu.
Vladímír Nosov, sérfræðingur sem
starfar í Moskvu fyrir Flemings
UCB-fjárfestingafyrirtækið, segir
engan vafa leika á að Pútín forseti
hyggist treysta ítök Rússa við Kasp-
íahaf. Hann telur hins vegar að
stjórnmál vegi þar þyngra en efna-
hagslegir hagsmunir. „Pútín óttast
að áhrif Rússa fari þverrandi á þessu
svæði.“
Annar fræðimaður, Steven O’Sulli-
van sem starfar fyrir United
Financial Group sagði að Pútín hefði
gjörbreytt stefnu Borís Jeltsíns for-
vera síns sem lítt hefði sinnt málefn-
um Kaspíahafs með þeim afleiðing-
um að áhrif Rússa þar hefðu farið
minnkandi. „Pútín hefur komist að
þeirri niðurstöðu að Kaspíahaf sé
Rússum mikilvægt. Hann hyggst
gera eitthvað í máli þessu, gagnstætt
Jeltsín, sem tók undir það sjónarmið
að Kaspíahaf væri mikilvægt en að-
hafðist síðan ekkert."
RÚMUR þriðjungur kvenna í fang-
elsum Nicaragua var leystur úr
haldi í fyrradag eftir að þing lands-
ins ákvað að veita þeim sakarupp-
gjöf í tilefni af mæðradeginum, sem
er haldinn hátíðlegur í landinu 30.
maí.
110 af um 300 konum í fangelsum
landsins voru leystar úr haldi,
þeirra á meðal margar sem höfðu
verið dæmdar fyrir manndráp, eit-
urlyfjasölu eðaþjófnað. Flestar
þeirra eru einstæðar mæður.
Sveit farandsöngvara og hljóð-
færaleikara flutti mansöngva í
kvennafangelsi nálægt Managua
síðasta kvöld kvennanna í prísund-
inni. Fangelsið breyttist síðan í
danshús í fyrradag þegar konurnar
fögnuðu frelsinu.
Eiginkona forsetans, Maria Fem-
anda de Aleman, kvaddi konumar
og færði þeim matvæli og fleiri
gjafir til að hjálpa þeim að hefja
nýttlíf utan fangelsismúranna.
„Ég ætla beint heim til baraanna
minna,“ sagði ein kvennanna, fjög-
urra barna móðir sem var dæmd í
fimm ára fangelsi fyrir ári fyrir að
leyfa eiturlyfjasölu á heimili sínu.
„Eitt þeirra er orðið óhlýðið og
uppreisnargjarnt síðan þetta gerð-
ist.“
Aðrar sögðust ætla að fara í
dómkirkjuna í Managua til að
þakka guði.
„Við emm viss um að þær frerpja
aldrei glæpi aftur,“ sagði þingmað-
urinn Nelson Artola, formaður
mannróttindanefndar þingsins.
„Þessar konur vom fómarlömb
þjóðfélags sem veitti þeim ekkert
val. Við veittum þeim frelsi vegna
þess að flestar þeirra neyddust út á
glæpabrautina vegna fátæktar og
atvinnuleysis."
r
1
Utboð föstudaginn 2. júní
Á morgun kl. 11:00 mun fara fram útboð á rfldsvíxlum hjá Lánasýslu ríkisins. Að
þessu sinni verður boðið upp á 21'1 mánaða ríkisvíxil, en að öðru leyti eru skilmálar
útboðsins í helstu atriðum þeir sömu og í síðustu útboðum.
í boði verður eftirfarandi flokknr ríkisvíxla í markflokkum:
Núverandi Áætlað Iiámark
Flokkur Gjalddagi Lánstími staða* tekinna tilboða
RV00-0719 17. ágúst 2000 V'1 mónuður 3.735 1.200,-
*Milljónir króna
Söluíyrirkomulag:
Ríkisvíxlamir verða sddir með tilboðs-
fyrirkomulagi. Öllum er heimilt að bjóða í
ríkisvíxla að því tilskyldu að lágmarksfjárhæð
tilboðsins sé ekki lægri en 20 milljónir.
Öðrum aðilum en bönkum, sparisjóðum,
fjárfestingalánasjóðum, verðbréfafyrirtækjum,
verðbréfasjóðum, lífeyrissjóðum og trygginga-
félögum er heimilt að gera tilboð í meðalverð
LÁNASÝSLA RÍKISINS
Hverfisgata 6, 2. hæð • Sími: 562 4070 • Fax: 562 6068
www.lanasysla.is • utbod@lanasysla.is
samþykktra tilboða, að lágmarki 500.000 krónur.
Öll tilboð í ríkisvíxla þurfa að hafa borist Lána-
sýslu ríldsms fyrir kl. 11:00, föstudaginn 2. júní
2000. Utboðsskilmálar, önnur tilboðsgögn og
allar nánari upplýsingar eru veittar hjá Lánasýslu
ríkisins, Hveríisgötu 6, í síma 562 4070.