Morgunblaðið - 01.06.2000, Side 44
44 FIMMTUDAGUR 1. JÚNÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Karólína
Lárusdóttir
gefur ný verk
EFTIR messu á uppstigningardag
verður opnuð sýning á nýjum mál-
verkum eftir Karólínu Lárusdóttur
í forkirkju Hallgrímskirkju. Mynd-
irnar eru allar málaðar sérstaklega
fyrir þessa sýningu Hallgríms-
kirkju í tilefni 1000 ára kristnitöku
á íslandi og er efni þeirra flestra
sótt í Biblíuna.
A sýningunni eru 12 myndir.
Meðal þeirra eru fjórar olíumyndir
er sýna freistingu Jesú og sjáum
við þar m.a. Jesú og freistarann á
þakinu á Hótel Borg þegar freist-
arinn segir: „Ef þú ert sonur Guðs,
þá kasta þér hér ofan,“ eins og seg-
ir í Lúkasar guðspjalli.
Þegar Listvinafélag Hallgríms-
kirkju var stofnað fyrir 18 árum
málaði hún tíu vatnslitamyndir úr
lífl og starfl Jesú og gaf félaginu til
styrktar listastarfsemi í kirkjunni.
Að þessu sinni gefur hún myndirn-
ar til styrktar öllu starfi í
kirkjunni.
Sýningin verður í kirkjunni til
loka ágúst.
Lögfræðingur um ágreining Bergljótar Arnalds og Gerðar Kristnýjar
Höfundarrétt-
urinn ótvíræður
BergljcSt Hróbjartur Gerður
Arnalds Jónatansson Kristný
TVÆR ungar listakonur, Berg-
Ijót Arnalds og Gerður Kristný,
tókust á í Morgunblaðinu í gær í
aðsendum greinum um höfundar-
rétt sinn á nýju leikriti er frum-
flutt var í gærkvöld í Kaffileik-
húsinu. Agreiningur þeirra
virðist snúast um hvort réttur
Bergljótar sem upphafsmanns
hugmyndarinnar veiti henni höf-
undarrétt að leikritinu Bannað að
blóta í brúðarkjól, en Gerður
Kristný skrifaði verkið að beiðni
Bergljótar.
Morgunblaðið leitaði álits Hró-
bjarts Jónatanssonar hæstarrétt-
arlögmanns sem hefur sérhæft
sig í meðferð höfundar- og hug-
verkaréttar. „Meginreglan er sú
að höfundarréttur er ekki bund-
inn við hugmynd,“ segir Hró-
bjartur. „Hugmyndir sem slíkar
eru frjáls eign og öllum til ráð-
stöfunar. Dæmi um það er að
hver sem er getur skrifað bók um
sama efni og Sjálfstætt fólk en
fari hann of nálægt í efnistökum
er það orðið brot á höfundarrétti.
Um þetta eru mörg fræg dæmi
t.d. í Bandaríkjunum þar sem
menn hafa samið skáldsögur
byggðar á öðrum skáldsögum eða
unnið svokölluð afleidd verk án
heimildar, þ.e. gert leikrit eða
kvikmyndahandrit eftir skáld-
sögu. Þá verður auðvitað að fá
leyfi höfundarins til að setja
verkið í nýjan búning en nýi höf-
undurinn á óskoraðan höfundar-
rétt á hinu afleidda verki.
í því tilfelli sem hér um ræðir
sýnist mér spurningin ekki
snúast um hver eigi höfundar-
réttinn. Gerður Kristný hefur
skrifað verkið ein og er þess
vegna ótvíræður höfundur verks-
ins og á allan rétt sem slíkur.
Hins vegar virðist mér af grein-
um þeirra Bergljótar og Gerðar
Kristnýjar að þær hafí gert með
sér munnlegan verksamning um
að Gerður skrifaði leikrit sem
Bergljót hafi síðan haft einhvern
óskilgreindan einkarétt til þess
að setja á svið. Um það atriði
gæti skapast spurning um réttar-
stöðu út frá samningarétti. En til
þess að Bergljót ætti höfundar-
rétt að verkinu þyrfti hún að hafa
sett hugmyndina niður á blað, ná-
kvæmlega eins og Gerður
Kristný hefur unnið úr henni.
Þannig stofnast höfundarréttur
við framsetningu hugmyndar. Sé
slíkri ritsmíð ekki til að dreifa er
höfundarréttur Gerðar Kristnýj-
ar að einþáttungnum Bannað að
blóta í brúðarkjól ótvíræður,"
segir Hróbjartur Jónatansson
hæstarréttarlögmaður.
Himnastef
í Brydebúð
ÆJA opnar málverkasýninguna mannaeyjum 1831 en flutt til Víkur
Himnastef í sýningarsal Brydebúð-
ar í Vík í Mýrdal í dag, fimmtudag,
kl. 13. Sýningin er haldin í minn-
ingu góðrar frænku og vinkonu
Æju, Hafdísar Halldórsdóttur og
barna hennar; Halldórs Birkis og
Steinunnar Katrínar. Sýningin er
einnig þáttur í kristnihátíð Skafta-
fellsprófastdæmis og Víkurpresta-
kalls og stendur Víkursókn í Mýr-
dal fyrst og fremst að sýningunni
en hún er unnin í náinni samvinnu
við stjórn Menningarfélags um
Brydebúð. Prófastur Skaftafells-
prófastdæmis, sr. Haraldur M.
Kristjánsson, opnar sýninguna og
flytur ávarp.
Æja hefur haldið margar einka-
sýningar hérlendis og erlendis og
jafnframt tekið þátt í samsýning-
um. Verk hennar prýða mörg fyrir-
tæki í opinberri eigu.
Sýning Æju stendur til 20. júní
og er opin alla daga frá kl. 11- 23.
Brydebúð er gamalt verslunar-
hús, upphaflega byggt í Vest-
1895 af J.P.T. Bryde, dönskum
kaupmanni og gróssera. Húsið á
sér merka sögu enda næstelsta
timburhús á Suðurlandi.
Undanfarin tvö ár hafa staðið yf-
ir endurbætur á húsinu með því
markmiði að færa það í uppruna-
legan stíl og er þeim að mestu lokið,
fyrir utan efri hæð hússins. í fram-
tíðinni mun Brydebúð hýsa menn-
ingarsetur Mýrdælinga. I júlíbyrj-
un er á döfinni að setja upp sýningu
um náttúrufar, sögu og menningu í
Mýrdal með Kötlu í forgrunni.
Hönnuður sýningarinnar er
Björn G. Björnsson en hann hann-
aði m.a. sýninguna „Á Njáluslóð“ á
Hvolsvelli og vinnur nú að uppsetn-
ingu á sýningu í tengslum við
Kristnihátíð.
Einnig verður í dag opnað kaffi-
hús í Brydebúð, sem verður í anda
hússins. Það mun bera nafnið Hall-
dórskaffi í höfuðið á Halldóri Jóns-
syni, bónda og kaupmanni í Suður-
Vík (1854-1926).
Listatöfrar ítafíu 12.-27
‘Ennfáem „___
í pessa ífassíslqaferð, sem
íqjnnir afft pað Besta, sem ,
Ítafía fæfur að Bjóða uncfir
íeiðsöfjn Ingóffs CjuðBrancfssonar
PÖNTUNARSÍMI: 562 0400
Útnefnd í alþjóðasamtök ferðaskrifstofa
EXCELLENCE IN TRAVEL
fyrir ffábærar ferðir
UmruzCi umferðina:
"Ojý ferðareynsía oy Cífsreynstal j 4
‘Við znssum effq fyrr, að svona
yóðarferðir vceru tií!"
"‘Óið erum að fara ferðina í annað sinn, pví að
offurfinnst etfiertjafnast á við fiana.l"
HEIMSKLÚBBUR INGÓLFS
FERÐASKRIFSTOFAN
piyMA?
Þríhjól 1
——
Barnahjól fyrir 3-6 ára frá i
Fjallahjói fyrir dömur frá
Fjallahjól fyrir börn frá i
SCOTT • GIANT• BRONCO ■ BRONCO og DIAMOND
wm
Alvöru
Hjólin eru afhent ti
_________Fiallahjól frá
DIAMOND
búin til notkunar, samsett og stillt á fullkomnu reiöhjólaverkstæö
ótrúlegt úrval og frábært verö
Vandið valið verslið í sérverslun
Fjallahjól frá
scon
Fjallahjól frá
BRONCO
7-t— -------------
Ars ábyrgð
Reiöhjólahjálmar frá
Brancale og Hamax
og trí upphersla
9| nitONCo ^ |&«gst%y;tsg HAMAX. viví
■eaorruaai omnt eunosTAtt diamönd
Fjallahjól frá
GIANT
m á n u ð
e i n n
Barnasæti frá
Hamax
m-m
VARAHLUTIR - AUKAHLUTIR
Hjálmar, barnastólar, grifflur,
blikkljós, bjöllur, hraöamælar,
brúsar, töskur, körfur, dempara-
gafflar, hjólafestingar á bíla
og margt fleira.
5% staögreiöslu-
afsláttur
Upplýsingar um raðgreiðslur
veittar í versluninni
Armúla 40
Sími: 553 5320
kérslunin
At4RK
TSjPíf