Morgunblaðið - 01.06.2000, Síða 50
50 FIMMTUDAGUR 1. JÚNÍ 2000
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
HRAÐMÁLVERK
óljósu bergmáli.
Þótt hraðinn sé
til staðar í skilir-
íunum á veggjun-
um bera vinnu-
brögðin þess vott
að hér sé ekki um
mikla þjálfun né
þekkingu á innra
gangverki mynd-
flatarins að ræða,
er líkast sem
byrjað hafi verið
á þakinu eða
turninum á bygg-
ingu, að maður
segi ekki kúplin-
um á Péturs-
kirkju. Þó var sá
óleysanlegt
vandamál sem
menn stóðu ráð-
þrota frammi fyr-
ir þar til leitað
var til myndhögg-
varans Michael-
angelo, sem leysti
hnútinn. Hafði til
að bera hið þjálf-
aða innra hugsæi,
sem er stigi ofar
öllum útreikning-
um og reglu-
strikufræðum.
Þetta segir
okkur að grunns
og undirstöðu er þörf í öllum athöfn-
um mannsins, en sem margur á
tölvuöld virðist sem óðast vera að
gleyma eða ýta út af borðinu til hags
fyrir hugmyndir og fræðikenningar.
Fólk sem kemur frá hraðanum,
hávaða, ysi og þysi götunnar, inn í
litla sígilda kaffihúsið á Skólavörðu-
Ljósmynd/Bragi Ásgeirsson
Eitt af hraðamálverkum Kristins Pálmasonar.
stígnum, er síður að fiska eftir hlið-
stæðri tímaófreskju þar inni. Inn-
setningin virkar þannig sem
tímaskekkja, jafnvel helgispjöll, að
ekki sé talað um þessa formleysu
sem á að heita málverk ...
Bragi Ásgeirsson
IJLiIST
i-.okka
MÁLVERK-
KRISTINN PÁLMASON
Opið á tíma kaffistofunnar. Til 10.
júní. Aðgangur ókeypis.
KRISTINN Pálmason nefnir
málverk sín Tímaófreskjumálverka-
seríuna, sem undanfarið hafa hang-
ið uppi á Mokka kaffi. Útskýrir
framlag sitt á þann veg; Mokka er
ekki ákjósanlegur staður fyrir mál-
verk en vissulega ögrandi. Mokka
ér tími, langur tími og Mokka er
stöðugleikinn uppmálaður. Enn-
fremur; þessir þættir ráða töluvert
Um þá ákvörðun mína að vinna verk-
ín hratt (þau voru öll unnin á fjórum
sólarhringum) sem mótvægi við
stöðugleikann og allan þennan tíma.
Til þess að verkin skili sér sjónrænt
ákveðið á þessum líka brúna og lif-
áða bakgrunni, nota ég óspart hvít-
án grunn strigans, en einnig og ekki
síður sem tákn hins hreina augna-
bliks...
Framning gerandans verður í
ljósi ofanskráðs að telja innsetningu
í rými frekar en að málverkin verði
skoðuð og greind hvert fyrir sig, hér
er hraðanum og hinu umbúðalausu
augnabliki, kannski heldur andrá,
stefnt á móti kyrrð, fyllingu og tíma.
Fullgilt sem slíkt, en framgangs-
mátann við gerð málverkanna má
heimfæra á athafnamálverkið,
slettumálverkið og óformlega mál-
ýerkið, þ.e. actionpainting, tachism-
ann og art informel, öllu frekar
Utangátta
í Evrópu?
Hitt er víst að þessar hræringar innan
ESB eiga sinn þátt í því að Island er að
koma út úrskelinni í utanríkismálum
og vart verður við tilraunir til að vera
þátttakandi íþeim alþjóðlegu stofnun-
um ogsamtökum, sem við erum aðilar
að, í stað þess að vera áhorfendur.
Asama tíma og íslend-
ingar eiga í deilu við
Bandaríkjamenn,
sem sprottin er af
ágreiningi um það
hvernig úthluta eigi flutningum
fyrir bandaríska herinn á Islandi,
þrýsta íslensk stjómvöld nú mjög
á um að tillit verði tekið til þeirra
sjónarmiða við mótun öryggis- og
varnarstefnu Evrópu.
Islendingar eru ekki einir á báti
í þessum efnum. Þær þjóðir, sem
eru í NATO, en ekki eiga aðild að
Evrópusambandinu, hafa áhyggj-
ur af því að þær verði utangátta í
varnarsamtstarfinu þegar nýjar
stofnanir sambandsins í öryggis-
og vamarmálum verða settar á
laggimar og um leið að þjóðir inn-
an ESB og utan NATO fái óverð-
UIMIADE skulduð völd.
VlvnOffr Ymsirhafa
látið að því
liggja að ótt-
ast megi
klofning í NATO vegna fyrirætl-
ana ESB um aukinn hlut þess í ör-
yggis- og varnarmálum Evrópu,
sem meðal annars felast í því að
innan þriggja ára verði til taks 50
til 60 þúsund hermenn fyrir að-
gerðir undir fomstu sambandsins
í ýmis verkefni, til dæmis að stilla
til friðar og friðargæslu.
Alexander Vershbow, sendi-
herra Bandaríkjanna hjá Atlants-
hafsbandalaginu, lýsti yfir því í
ræðu fyrr á þessu ári að yfir vofði
neyðarástand innan NATO ef
Evrópusambandsríkin hygðust
ekki efla hemaðarstyrk sinn sam-
fara því að þeir kæmu á fót eigin
herliði til hliðar við NATO. í
Eftir Karl
Blóndal
Washington Post var haft eftir
sendiherranum að það væri ekki
hollt fyrir tengslin yfir Atlantshaf-
ið ef Evrópusambandið ætlaði að
taka að sér léttu verkefnin, en láta
NATO um þungavigtina.
Bent hefur verið á að Evrópur-
íkin í NATO verji aðeins tveimur
þriðju hlutum þess fjár til vamar-
mála, sem Bandaríkjamenn gera,
og þau fái í þokkabót mun minna
fyrir peninginn. Það að Evrópa er
pappírstígrisdýr sést á því að þar
eiga að vera tvær milljónir manna
undir vopnum, en með herkjum
tókst að knýja fram að 40 þúsund
manna herlið færi til Kosovo.
Á fundi utanríkisráðherra Atl-
antshafsbandalagsins í Flórens í
liðinni viku var lýst yfir stuðningi
við fyrirætlanir ESB um aukinn
hlut þess í öryggis- og varnarmál-
um Evrópu, en þar ítrekaði Hall-
dór Ásgrímsson utanríkis-
ráðherra mikilvægi þess að
frumkvæði ESB í þessum málum
mætti ekki verða til þess að veikja
NATO og vamarskuldbindingar
bandalagsins. Varaði hann við
sundrungu milli ESB og NATO.
Önnur vísbending um þann
þunga, sem íslenska utanríkis-
þjónustan leggur í þetta mál er
ræða, sem Gunnar Pálsson, fasta-
fulltrúi íslands hjá Vestur-
Evrópusambandinu, á fundi utan-
ríkis- og vamarmálaráðherra
VES í Oporto í Portúgal um miðj-
an maí. Þar sagði hann að íslensk
stjómvöld legðu áherslu á að kom-
ið verði til móts við kröfu
evrópsku NATO-ríkjanna utan
ESB um rétt þeirra til þátttöku í
nýjum stofnunum sambandsins á
sviði öryggis- og varnarmála eftir
fyrirmynd núverandi fyrirkomu-
lags innan VES, sem nú verður
innlimað í ESB. Á móti hafi ís-
lensk stjómvöld í hyggju að kanna
hvað þau geti lagt af mörkum til
sameiginlegra friðarstarfa á veg-
um ESB í framtíðinni.
Auk Islands em Norðmenn,
Tyrkir, Tékkar, Ungverjar og Pól-
verjar í þeirri stöðu að vera í NA-
TO en utan ESB. Af þeim hafa
Tyrlrir gengið harðast fram og
krafist þess að NATO eigi úrslita-
orðið þegar ákveða eigi framtíð
Evrópu í öryggismálum. Hafa
Tyrkir hótað að leggjast gegn að-
gerðum ESB með stuðningi
NATO. Þeir hafa einnig krafist
fullrar aðildar að öryggis- og vam-
arsamstarfi ESB og af ummælum
íslenskra ráðamanna, þar á meðal
Gunnars Pálssonar, má ráða að
þeir komi þar ekki langt á eftir
Tyrkjum í þeim efnum. Norðmenn
hafa einnig lýst yfir áhyggjum sín-
um. Eftir síðustu stjórnarskipti í
Noregi hafa þeir þó fjarlægst
málstað íslands og mildast gagn-
vart Evrópusambandinu. Tékkar,
Ungveijar og Pólverjar knýja
hins vegar á dyrnar hjá Evrópu-
sambandinu og vilja því ekki
styggja með heimtufrekju.
Madeleine Albright, utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna, orðar
kröfugerð sína svo að fyrirætlanir
Evrópusambandsins megi ekki
klippa á tengsl Bandaríkjanna og
forðast verði að mismuna NATO-
ríkjum utan ESB.
Javier Solana, fyrrverandi
framkvæmdastjóri NATO og nú-
verandi yfirmaður öryggis- og
varnarmála hjá ESB, vildi að haft
yrði náið samráð við NATO-ríkin
sex utan ESB. Það mætti and-
stöðu frá Frökkum sem nú hafa
fallist á þetta sjónarmið í grund-
vallaratriðum þótt samkomulag
um útfærslu liggi ekki fyrir. Þótt
gert sé ráð fyrir því innan ESB að
NATO leggi til gögn og efni þegar
nauðsyn krefur á ekki að afgreiða
sambandið við ríkin utan ESB
fyrr en hinar nýju öryggis- og
vamarstofnanir ESB hafa verið
mótaðar.
Halldór Ásgrímsson hefur sér-
staklega lýst yfir áhyggjum af því
að áhrif Frakka, sem ekki eru
þátttakendur í hemaðarstarfi
NATO, á mótun stefnu ESB í ör-
yggis- og varnarmálum muni leiða
til þess að veikja tengslin yfir Atl-
antshafið. Vershbow gagnrýndi
reyndar ESB harðlega í ræðu í
París 18. maí þar sem hann sagði
að Bandaríkjamenn hefðu raun-
verulegan áhuga á að ESB tækist
ætlunarverk sitt, en ávallt þegar
þeir vildu ræða málin væri beiðni
þeirra tekið eins og tölvupósti með
ástarorminum illræmda.
Enn er ekki Ijóst hvað tilburðir
ESB til mótunar sjálfstæðrar ut-
anríkisstefnu munu hafa í för með
sér fyrir íslendinga. Hitt er víst að
þessar hræringar innan ESB eiga
sinn þátt í því að Island er að
koma út úr skelinni í utanríkis-
málum og vart verður við tilraunir
til að vera þátttakandi í þeim al-
þjóðlegu stofnunum og samtök-
um, sem við erum aðilar að, í stað
þess að vera áhorfendur.