Morgunblaðið - 01.06.2000, Qupperneq 55
MORGUNBLAÐIÐ
_______________________________FIMMTUDAGUR 1. JÚNÍ 2000 55
MINNINGAR
+ Margrét Emils-
dóttir fæddist á
Siglufirði 9. júlí
1941. Hún lést á
heimili sínu á Akur-
eyri 25. maí síðast-
liðinn. Foreldrar
hennar voru Magna
Sæmundsdóttir, f.
19.9. 1911, og Emil
Andersen, f. 5.3.
1919, d. 18.10. 1971.
Þau slitu samvistum.
Systkini Margrétar
eru Sæmundur, f.
8.12. 1936, hálfsyst-
kini samfeðra, Anna
Halla, f. 5.4. 1960, Björk, f. 6.7.
1962, og Þröstur, f. 5.9. 1963.
Hinn 20. febrúar 1960 giftist
Margrét Júlfusi Thorarensen, f.
23.12. 1940. Þau slitu samvistum.
Börn þeirra eru: 1) Kolbrún, f.
12.12. 1958, maki Egill Stefáns-
son, f. 18.3. 1957 d. 28.8. 1998.
Börn þeirra eru: a) Linda, f. 1978,
maki Birgir Örn, f. 1977, barn
þeirra Egill, f. 1999. b) Anna, f.
1981, unnusti Páll Valur, f. 1981.
c) Einar Ingi, f. 1983. 2) Hall-
grímur, f. 4.3. 1961, maki Þrúður
Gísladóttir, f. 14.11. 1963. Börn
þeirra eru: a) Tinna, f. 1994. b)
Lára, f. 1996. 3)
Valdimar Lárus, f.
2.12. 1962, unnusta
Sara Helgadóttir, f.
18.5. 1976. Börn
Valdimars eru: a)
Bryngeir, f. 1984, b)
Ingólfur Sigurður, f.
1989. 4) Magna Ósk,
f. 23.8. 1973, unnusti
Elmar Þorbergsson,
f. 10-júlí 1975.
Hinn 10. október
1987 giftist Margrét
eftirlifandi inanni
sínum Herði Guð-
mundssyni, f. 13.3.
1946. Börn hans eru: 1) Sigrún
Hrönn, f. 5.8. 1966, maki Þór
Friðriksson, f. 24.6. 1964. Börn
þeirra eru: a) Hrannar Þór, f.
1994, og b) Rósa Björg, f. 1996. 2)
Hildur, f. 26.9. 1967, maki Ómar
Viðarsson, f. 1.8. 1966. Börn
þeirra eru: a) Ingi Þór, f. 1984, b)
Kolbrún Björg, f. 1985. c) Hrann-
ar Már, f. 1990. d) Hörður Örn, f.
1992. 3) Baldur, f. 1964. Börn
hans eru: a) Sigrún og b) Viktor.
Utför Margrétar fer fram frá
Glerárkirkju á morgun, fóstu-
daginn 2. júní, og hefst athöfnin
klukkan 14.
Margrét var mjög dugleg kona og
ákveðin. Það var gott að vinna með
henni. Við undirbjuggum saman,
ásamt einni frænkunni til, tvö ættar-
mót og þá nutu sín vel skipulags-
hæfileikar Margrétar.
Við fórum síðar, ásamt öðrum í
fjölskyldunni, í ógleymanlega ferð á
„ættaróðalið" að Krakavöllum í
FJjótum þar sem við gengum saman
um þær slóðir sem við höfðum svo oft
heyrt talað um frá foreldrum okkar
og ömmu og afa. Hún naut þeirrar
ferðar.
Margrét var alla tíð mjög náin
móður sinni sem býr á Akureyri í
hárri elli. Ég trúi því að þær haíi haft
samband flesta daga. Magna, móðir
hennar, sér nú á eftir einkadóttur
sinni.
Margrét háði harða baráttu gegn
krabbameini og um tíma leit út fyrir
að hún ætlaði að hafa betur í þeirri
baráttu. Hún fékk nokkur góð ár en
síðan tók meinið sig upp aftur.
En Margrét naut hvers einasta
dags eins og unnt var og lét aldrei
deigan síga, dyggilega studd af eig-
inmanni sínum og börnum.
Með tímanum hemai’ yfir sárin í
brjóstum þeirra sem unnu Margréti
en það mun vætla úr þeim á stund-
um. En lífið heldur áfram í marg-
breytileika sínum og á morgun er
nýr dagur sem hvetur til þátttöku í
daglegu amstri.
Ég sendi fjölskyldu Margrétar
innilegar samúðarkveðjur frá fjöl-
skyldunni á Suðurnesjum.
MARGRET
EMILSDÓTTIR
Elsku mamma. Nú hefur þú lagt í
þína hinstu för. Langri og strangri
baráttu þinni er lokið. Það hefur
myndast stórt skarð í tilveruna þar
sem þín nýtur ekki lengur við. Ég
veit að þér líður vel núna, laus við all-
ar þjáningar. Þú varst sannkölluð
hetja, það vita allir sem þekktu þig.
Þú varst svo ákveðin í að berjast og
það gerðir þú svo sannalega alveg til
síðasta dags. Ég er svo þakklát fyrir
að hafa getað verið hjá þér síðustu
dagana, mamma mín, fengið að halda
í höndina þína og strjúka þér. Ég á
svo margar minningar um þig sem
ég mun varðveita vel. Fjarlægðin á
milli okkar gerði það að verkum að
við hittumst sjaldnar seinni árin, en
nánast daglega töluðum við saman í
síma. Þú kenndir mér svo margt og
alltaf var gott að geta leitað til þín
með hvað sem var, þín ráð voru best.
Á stundum sem þessum eru orð
lítils virði en minningarnar mun dýr-
mætarí. Þegar ég hugsa til baka er
margs að minnast, en einmitt núna
er mér efst í huga trefillinn sem þú
prjónaðir og gafst mér fyrir nokkr-
um dögum, en hann er táknrænn fyr-
ir þrautseigju þína og dugnað og
hann mun veita mér yl um ókomna
tíma.
Ég kveð. þig núna elsku, mamma
mín, seinna munum við hittast en
þangað til verður þú hjá mér í hjarta
mínu.
Þín dóttir,
Magna Ósk.
Elsku amma. Núna ertu farin,
búin að kveðja okkur að sinni. Okkur
finnst vera svo stutt síðan pabbi
kvaddi okkur og sorgin dvaldi hjá
okkur. En við vitum að þér líður bet-
ur núna og pabbi hefur áreiðanlega
tekið þér opnum örmum.
Núna erum við stödd í sömu spor-
um og fyrir tveimur árum. Að skrifa
kveðjuorð, það var svo auðvelt að
segja frá pabba og það verður einnig
um þig því þið áttuð það sameigin-
legt að vera okkur dýrmætar og ynd-
islegar persónur.
Við hefðum ekki geta hugsað okk-
ur betri ömmu. Þú varst okkur meira
en amma, þú varst vinur sem hægt
var að segja hvað sem er, hlæja og
gráta með. „Ef það er eitthvað þá
vitið þið hvar ég er,“ varstu vön að
segja.
Það er sárt til þess að hugsa að
eiga ekki eftir að koma oftar í salt-
kjöt og baunir til þín, besta mat í
heimi. Einnig eigum við eftir að
sakna alls þess sem við gerðum sam-
an, svo sem laufabrauðsgerðar, slát-
urgerðar, jólaboðanna og allra
veislnanna. Alltaf var hlegið og glatt
á hjalla, þú varst frábær félagsskap-
ur, svo lífsglöð og kát. Við gátum
gert hvað sem er saman, sagt brand-
ara, farið í látbragðsleiki, fíflast og
hlegið, aldurinn skipti engu máli.
Fjrrir ári síðan varðstu langamma
í fyrsta sinn, aðeins 57 ára. Stolt þitt
leyndi sér ekki og fyrr en varði
varstu búin að segja öllum frá því.
Litla langömmukútnum þínum hon-
um Agli verður sagt allt um þig í
framtíðinni. Flottustu langömmu
norðan heiða.
Eitt er okkur sérstaklega minnis-
stætt. Það var um síðustu jól, að
venju vorum við að fíflast saman eft-
ir að hafa borðað góðan mat. Við vor-
um í látbragðsleik, þú brást þér á
gólfið, varla með heilsu til þess, og
lékst háhyrning.
Elsku amma, við gætum skrifað
heila bók um hve frábær þú varst.
En við teljum þetta segja í stuttu
máli hvaða mann þú hafðir að
geyma. Þú lifir áfram í hjörtum okk-
ar því þar geymum við allar góðu
minningarnar.
Elsku Hörður, langamma,
mamma, Halli, Lalli, Magna og fjöl-
skyldur, missir okkar er mikill. Því
verðum við að standa saman og
styrkja hvert annað.
Þín ömmubörn,
Linda, Anna og Einar Ingi.
Fyrstu minningarnar um Mar-
gréti eru frá Grímsey. Þá var lífið
leikur alla daga og við Margrét fimm
og sex ára. Hún kom út í eyju í sum-
arheimsókn. Síðan höfum við átt
samleið.
Margrét var hress kona og alltaf
stutt í brosið. Hún sleit barnsskón-
um á Siglufirði og á Akureyri en þar
bjó hún alla tíð.
Margrét hafði yndi af söng og spil-
aði undir á gítar og engin gat dansað
eins og Magga.
Hún kunni að gleðjast og njóta
lífsins. Hún hafði ánægju af útiveru
og dveljast í tjaldi, ganga með vatni
og fylgja manni sínum í sjóstanga-
veiði.
Gæti ég safnað saman ólíkum röddum
syngjandi linda, og fært ykkur áður en
dimmir
hljómvönd eins fagran og hlust ykkar þráir
aðvetri
þegar harður fjötur læsist um vötnin blá.
(Ólafur Jóhann Sig.)
Guðrún Jónsdóttir.
Elsku Magga, það er komið að
kveðjustund og margs að minnast
frá starfi þínu í Heimaþjónustu Ak-
ureyrarbæjar sl. 13 ár. Okkur langar
í örfáum orðum að þakka þér langt
og farsælt samstarf.
Við höfum fylgst með þér og dáðst
að styrk þínum og hugrekki. Það er
alltaf erfitt að sætta sig við það þeg-
ar fólk á besta aldri verður undir í
baráttunni við illvígan sjúkdóm.
Með þessu ljóði viljum við kveðja
þig og biðja algóðan Guð að styrkja
ástvini þína:
Eg bið þig Guð að gæta mín
oggefamérþittbrauð,
svo elska megi ég orðin þín
ogaldreih'ðanauð.
Ég bið þig Guð að gæta mín
oggefamérþinnfrið,
svo öðlast megi ég ást til þín
ogöðrumveitalið.
Ég bið þig Guð að gæta mín
oggefamérþittljós,
svo lýsa megi ég leið til þín
lífsins smæstu rós.
Ég veit þú, Guð, mín gætir hér
í gleði, sorg og þraut
og glaður mun ég gefast þér
þá gengin er mín braut.
(Ingibjörg R. Magn.)
Elsku vinkona, far þú í friði, þökk
fyrir allt og allt.
Kæri Hörður og fjölskylda, við
sendum ykkur innilegustu samúðar-
kveðjur.
Starfsfólk Heimaþjónust-
unnar á Akureyri.
+
Við þökkum af heilum hug öllum þeim sem
auðsýndu okkur samúð og vináttu við andlát
og jarðarför eiginmanns míns, föður okkar,
♦engdaföður, afa og langafa,
TRYGGVA GÍSLASONAR
pípulagningameistara,
Hraunbæ 103.
Fyrir hönd aðstandenda,
Alda Sigurjónsdóttir.
+
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir, amma og langamma,
SIGRÍÐUR ÞÓRA MAGNÚSDÓTTIR,
Kirkjulundi 8,
Garðabæ,
verður jarðsungin frá Vífilsstaðakirkju í Hafnar-
firði á morgun, föstudaginn 2. júní, kl. 13.30.
Þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á
Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra.
Ólafur Kristján Guðmundsson,
Guðmundur Þ.B. Ólafsson, Þuríður Kristín Kristleifsdóttir,
Magnea Guðlaug Ólafsdóttir,
Þórunn Ólafsdóttir, Daníel M. Jörundsson,
Magnús Óli Ólafsson, Erla Dís Ólafsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
JÓNÍNA GUÐRÚN EGILSDÓTTIR,
fyrrum húsfreyja,
Rauðafelli, Bárðardal,
Lyngheiði 9, Hveragerði.
Útförin fer fram frá Lundarbrekkukirkju laugar-
daginn 3. júní kl. 14.00.
Egill Gústafsson, Helga Haraldsdóttir,
Vigdís Gústafsdóttir,
Jón Gústafsson, Lotta Wally Jakobsdóttir,
Björn Gústafsson, Herborg ívarsdóttir,
Eysteinn Gústafsson,
Svanborg Gústafsdóttir, Vörður Ólafsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Ástkær sambýliskona, móðir, tengdamóðir og
amma,
DÓRA GUÐJÓNSDÓTTIR,
Logafold 77,
verður jarðsungin frá Seljakirkju þriðjudaginn
6. júní kl. 13.30.
Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir, en
þeim, sem vildu minnast hennar, er þent á
Minningarsjóð Tónlistarskóla Grafarvogs, reikningur nr. 324-13-200065.
Einar Bjarnason,
Lovísa Guðbjörg Sigurjóns, Sigurjón Harðarson,
Dóra Björk Aðalsteinsdóttir,
Guðjón Örn Aðalsteinsson.
+
Inniiegar þakkir færum við þeim, sem veittu
okkur stuðning og sýndu hlýhug við andlát og
útför frænku okkar,
ÞÓRUNNAR KOLFINNU ÓLAFSDÓTTUR,
áður til heimilis
(Lönguhlfð 3, Reykjavík.
Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki í
Lönguhlíð 3 og starfsfólki á 2. hæð á Drop-
laugarstöðum fyrir hlýhug þeirra og einstaka umhyggju
Ólafur Ögmundsson,
Þórunn K. Hetgadóttir,
Katla Ólafsdóttir
og aðrir ættingjar.
+
Þökkum innilega auösýnda samúð og hlýhug
við andlát og útför móður okkar, tengda-
móður, systur, ömmu og langömmu,
GUÐRÚNAR SIGURÐARDÓTTUR,
Stangarholti 12,
Reykjavík.
Sérstaklega viljum við þakka Þorgerði G.
Jónsdóttur, hjúkrunarfræðingi, kærleiksríka
umönnun síðustu æviár hennar.
Sigurður Ingólfsson, Sigríður Kristinsdóttir,
Erna Björg Baldursdóttir, Ólafur Ingi Óskarsson,
Ingibjörg Sigurðardóttir,
barnabörn, langömmubarn
og aðrir vandamenn.