Morgunblaðið - 01.06.2000, Qupperneq 71
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 1. JÚNÍ 2000 71
Fjársjóðir á
Norður-
landi vestra
AÐ undanfömu hafa ferðamálafull-
trúar í Skagafirði og Húnavatnssýsl-
unum unnið hörðum höndum að gerð
korta þar sem kynntar eru nýjar
gönguleiðir.
„Þetta eru að
sjálfsögðu
ævafornar leið-
ir, ef út í það er
farið,“ viður-
kennir Bjarn-
dís Hannes-
dóttir,
ferðamálafull-
trúi Austur-
Húnavatns-
sýslu,“ en fýr-
ir göngugarpa
samtímans er hér um nýjan valkost
að ræða; þessar leiðir hafa ekki verið
kortlagðar fyrr. Kortagerðin er
samstarfsverkefni á kjördæmisvísu
og er ætlunin að gefa út þrjú kort til
að byrja með.
Læri daglega eitthvað nýtt
Bjarndís er með aðsetur á
Blönduósi og undanfarna mánuði
hefur hún farið víða um sýsluna og
fengið heimamenn tfi að merkja inn
fallega staði sem ekki eru í alfara-
leið. „Þetta er búið að vera mjög
skemmtileg vinna,“ segir hún, „því
nánast daglega lærir maður eitthvað
nýtt; heyrir um staði sem maður
hafði ekki hugmynd um að væru til.
Það eru ótal faldir fjársjóðir hér fyr-
ir norðan,“ bætir hún við.
Eru ferðamálafulltrúarnir ekkert
orðnir fótsárir? Þurfa þeir ekki sjálf-
ir að þramma upp um fjöll og fimindi
til að komast að þessum náttúru-
perlum? „Við göngum meira en með-
aljóninn," svaraði Bjarndís og hló.
„Eg er t.d. búin að ganga talsvert á
Grímstunguheiði og Auðkúluheiði og
þar eru margir fallegir staðir sem ég
vissi ekkert um. Svo hef ég nokkrum
sinnum gengið meðfram Vatnsdals-
ánni og komið í hefimikið og gullfal-
legt gil; Vatnsdalsárgil, sem fáir vita
af nema heimafólk. Sú ferð tekur
hefian dag. Einnig má nefna Laxár-
dalinn og Langadalsfjöllin; það er
heill heimur út af fyrir sig og í Lax-
árdalnum er mjög gott gönguskíða-
svæði,“ upplýsti hún
Verið er að leggja lokahönd á gerð
tveggja af þessum þremur kortum.
Að sögn Bjarndísar nær eitt kortið
til innsveita Húnavatnssýslu og
fram á Auðkúluheiði; annað tekur
Skagafjörðinn fyrir og hið þriðja
mun að öllum líkindum ná yfir
Vatnsnesið
Kortin verða til sölu í upplýsinga-
miðstöðvunum í sveitinni og ef að
líkum lætur verður einnig hægt að
nálgast þau hjá férðafélögum á höf-
uðborgarsvæðinu. Gert er ráð fyrir
að hvert kort kosti u.þ.b. 500 krónur.
Verður framhald á þessu framtaki
ferðamálafulltrúanna? „Við vonum
það svo sannarlega," sagði Bjarndís.
„Eftirspurnin eftir skipulögðum
gönguferðum er svo sannarlega fyr-
ir hendi. Farskóli Norðurlands
vestra sótti nýverið um styrk fyrir
okkar hönd til að mennta gönguleið-
sögumenn. Ef við fáum hann opnast
ótal möguleikar."
Bjarndís
Hannesdóttir
Blómaval þakkar
góðar undirtektir við
gróðrarótakið og
býður 10 stjúpur í
kaupbæti með
30 stk. stjúpu-
bakkanum.
10+30=
40 Stjúpur
Aðeins í dog!
Blandaðir litir
iBirkikvistur
Upplýsingasími: 5800 500
j
STQfifijlNING
Palomino
Vinsælasta fellihýsiö á Islandi
i dag
og um helgina
FIMMTUDRGINN 1. JÚNI kl. 13-16
SEGLAGERÐIN ÆGIR
EYJARSLÓÐ 7 I07REYKJAVIK SimiSI 12203