Morgunblaðið - 01.06.2000, Blaðsíða 92
>
V
KOmiN ÚT Á DVD!
Siðan 1972 J"
Leitið tilboða! n steinp
Traus
MORGUNBLAÐffl, KRlNGLUNNll, 103 REYKJAVÍK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF6691181, PÓSTHÓLF3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 5691122, NETFANG: RITSTJtSMBLlS, AKUREYRl: KAUPVANGSSTRÆTI1
FIMMTUDAGUR 1. JÚNÍ 2000
VERÐ í LAUSASÖLU150 KR. MEÐ VSK.
Verslunarmenn sam-
þykkja samninga
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
Myndura af 80 þúsund íslendingum er varpað upp á stóra skjái í íslenska sýningarskálanum á heimssýningunni Expo 2000 sem hefst í Hannover
í Þýskalandi í dag. Islenski skálinn var opnaður í gær að viðstöddum boðsgestum.
Kerfí um rafræna
sendingu lyfseðla
FYRIRTÆKIÐ Doc.is, sem er í
eigu starfsmanna og Landssíma
Islands, hefur þróað hugbúnað um
rafræna sendingu lyfseðla frá
læknum til lyfjaverslana. Fyrir-
tækið er í samstarfi við Landlækn-
isembættið, Tryggingastofnun rík-
isins og Lyfjaeftirlit ríkisins um að
setja hugbúnaðinn út á markaðinn
og er stefnt að því að það gerist á
næsta ári.
Tryggingastofnun telur að með
hugbúnaðinum, sem veitir læknum
m.a. upplýsingar um lyf sem koma
til greina við meðferð og verð á
þeim, verði hægt að draga úr
aukningu á lyfjakostnaði í landinu.
Jafnframt felur hugbúnaðurinn í
sér að til verður gagnagrunnur um
lyfjanotkun í landinu sem nýtist
jafnt Tryggingastofnun og stjórn-
völdum sem upplýsingatæki við
ýmsar ákvarðanir, t.d. kostnað-
arþátttöku í lyfjakostnaði, og
Landlæknisembættinu til lyfja-
faraldsfræðilegra rannsókna.
Matthías Halldórsson, aðstoðar-
landlæknir, segir að óhætt sé að
tala um viss tímamót þegar for-
ritið kemur á markað. Hann telur
þó brýnt að hugað verði vel að
persónuvernd við notkun hugbún-
aðarins. Matthías segir að mikil-
vægt sé að gæta að því að þessir
aðilar fái, hver um sig, aðeins þær
upplýsingar sem þeim ber að fá og
farið verði í einu og öllu eftir
reglum Tölvunefndar.
Landlæknisembættið er í sam-
starfi við Tölvunefnd um þetta mál
og er að svara fyrirspurnum henn-
ar um að hve miklu lfeyti sé ástæða
til þess að fara inn í þessi gögn.
■ Þróa hugbúnað/12
Schröder
heimsækir
✓
skála Islands
HEIMSSÝNINGIN Expo 2000
hefst í Hannover í dag og er
búist við að um 40 milljónir gesta
muni sækja sýninguna. Þar af er
gert ráð fyrir að um 4 milljónir
heimsæki íslenska skálann. Ger-
hard Sehröder, kanslari Þýska-
lands, heimsækir skálann um há-
degisbilið í dag. Halldór Ásgrims-
son utanríkisráðherra tekur á
móti honum og er íslenski skálinn
einn örfárra sem Schröder heim-
sækir.
■ Heimssýningin/46
Islendingur hyggst klífa
norðurvegg Matterhorn
ISLENSKUR fjallgöngumaður,
Jökull Bergmann, hyggst í dag,
fimmtudag, reyna að klífa norð-
urvegg svissneska alpatindsins
Matterhorn (4.478 m) fyrstur fs-
lendinga. Norðurveggur Matter-
horn er fáfarin klifurleið og er
veggurinn jafnan flokkaður með
hinum svokölluðu sex klassísku
stóru norðurveggjum Alpanna.
Þegar Morgunblaðið hringdi í
farsíma Jökuls í gær var hann
göngumóður á leið sinni upp í
skála við fjallið nálægt upp-
hafsreit uppgöngunnar. Með hon-
um er félagi hans Gregory Facon,
sem dvaldi hórlendis árið 1993
sem skiptinemi og stundaði klif-
ur.
„Það hefur enginn klifið norð-
urvegginn á þessu ári þannig að
aðstæður eru mjög óljósar," sagði
Jökull í gær. „Við þurfum að
komast að því hversu mikil snjó-
flóðahætta er á neðsta hluta leið-
arinnar og huga að vindi.
Það hefur verið mjög hvasst á
fjallinu undanfarið og ef vindur
reynist jafnmikill á morgun [í
dag] og hann er nú, þá eru að-
stæður mjög tvísýnar," sagði Jök-
ull og bætti við að ekki kæmi til
greina að leggja á fjallið ef að-
stæður væru þeim félögum ekki
að skapi.
Jökull Bergmann er tæpra 24
ára gamall, frá Klængshóli í
Skíðadal á Tröllaskaga. Hann
hefur stundað klifur í Olpunum
síðastliðin sex ár og verið búsett-
ur í Frakklandi síðastliðin þrjú ár
og stundað þar fjallamennsku.
„Ég er að reyna að Iifa af því
að leika mér og tekst það að
mestu,“ sagði Jökull. „Ég vjnn
sem fjallaleiðsögumaður á Islandi
yfir sumartímann en annars er ég
í fjallamennskunni, ís- og kletta-
klifri, skiðamennsku og fleiru."
89% VR-
^ félaga
sögðu já
FÉLAGSMENN í Verslunar-
mannafélagi Reykjavíkur og félög-
um sem sömdu undir merkjum
Landssambands íslenskra verslun-
armanna hafa samþykkt kjara-
samninga við vinnuveitendur. 89%
VR-félaga samþykktu samninginn
og hann var samþykktur með yfir-
burðum í flestum öðrum félögum.
Niðurstöður í atkvæðagreiðslu
Verslunarmannafélags Reykjavíkur
og Landssambands íslenskra versl-
SZTt^unarmanna um nýja kjarasamninga
við Samtök atvinnulífsins lagu fyrir
í gærkvöldi. Samningarnir voru alls
staðar samþykktir, með 63-100%
atkvæða þeirra sem þátt tóku. Þó
höfðu í gærkvöldi ekki borist fréttir
af niðurstöðunni í sjö félögum sem
flest eru meðal þeirra fámennari.
Tvöfait betri þátttaka hjá VR
Hjá VR greiddu 3.103 félagsmenn
atkvæði, eða 23,3% atkvæðisbærra
félagsmanna, og er það tvöfalt meiri
þátttaka en í atkvæðagreiðslu fé-
' ''^lagsins um síðasta kjarasamning. Já
sögðu 2.742 eða 89% en nei sögðu
336 eða 11%.
Tiltölulega fáir tóku þátt í at-
kvæðagreiðslunni í mörgum félög-
um sem voru í samfloti innan
Landssambands íslenskra verslun-
armanna. Þannig greiddu aðeins 67
félagar af 1.250 í Félagi verslunar-
og skrifstofufólks á Akureyri at-
kvæði en 90% samþykktu. 85%
sögðu já hjá Verslunarmannafélagi
Suðurnesja og 69% hjá Verslunar-
mannafélagi Hafnarfjarðar.
Magnús L. Sveinsson, formaður
VR, kveðst ánægður með þátttök-
una í atkvæðagreiðslunni og niður-
stöðu hennar. Segist draga þá
m^ályktun að fólk sé sammála þeim
áherslum sem lagðar voru í kjara-
samningunum, það er að segja á
markaðslaun og styttingu vinnu-
tíma.
FBM samþykkti
Talningu í atkvæðagreiðslu Fé-
lags bókagerðarmanna um nýjan
kjarasamning lauk síðdegis í gær.
Samningurinn var samþykktur með
atkvæðum liðlega 59% þeirra sem
þátt tóku en nei sögðu 37,4% og
3,4% seðla voru auð eða ógild.
MORGUNBLAÐIÐ kemur
næst út laugardaginn 3. júní.
Fréttaþjónusta verður á
Fréttavef Morgunblaðsins,
www.mbl.is.