Morgunblaðið - 08.07.2000, Side 55
I
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 8. JÚLÍ 2000 55
FRETTIR
Glæsileg dagskrá á
miðsumarhátíð
Sauðárkrókur. Morgnnblaðið.
I ANNAÐ sinn boðar staðarhaldari í
Lónkoti í Skagafírði, Ólafur Jónsson,
til glæsilegrar Listahátíðar, þar sem
margir af bestu listamönnum þjóðar-
innar koma fram.
Hátíðin hefst kl. 13.30 í dag, laugar-
dag, með ávarpi Ólafs, en síðan rekur
samfelld dagskrá sig áfram allt til
miðnættis. Sýning er á höggmyndum
Páls Guðmundssonar á Húsafelli í
stóra tjaldinu, en einnig eru verk hans
við Lónkotshöfn og við Landhelgun-
arhringinn, og er Páll heiðursgestur
hátíðarinnar. Þá er myndlistarmaður-
inn Tolli með málverkasýningu í Gall-
eríi Sölva Helgasonar og á Sölvabarn-
um hanga alltaf uppi eftirprentanir af
bestu verkum skagfirska lista-
mannsins Sölva Helgasonar, sem
myndi hafa fengið umsögnina „lífs-
kúnstner“ ef verið hefði uppi nú.
Leikverk Jóns Ormars Órmssonar,
Tvær konur við árþúsund, verður
sýnt á hátíðinni, en verk þetta hefur
hlotið verðskuldaða athygli og var
sýnt m.a. á Þingvöllum um síðustu
helgi í meðförum leikkvennanna Pál-
ínu Jónsdóttur og Báru Jónsdóttur.
Orðlistin á einnig sína fulltrúa á
Listahátíð í Lónkoti, en rithöfundam-
ir Guðmundur Andri Thorsson, Einai'
Már Guðmundsson og Bragi Ólafsson
lesa úr verkum sínum og einnig les
Ólafur Jónsson úr ljóðum Halldórs K.
Laxness. Þorsteinn Gauti Sigurðsson
leikur klassísk verk á píanó og söngv-
ararnir Jóhann Már Jóhannsson og
Öm Viðar Birgisson taka lagið við
undirleik Guðjóns Pálssonar píanó-
leikara.
Opið alla daga í
Sjóminjasafni Islands
SJÓMINJASAFN fslands, Vestur-
götu 8, Hafnarfirði er nú opið alla
daga frá kl. 13-17 fram til 30. sept-
ember. I safninu, sem er á þremur
hæðum, eru til sýnis munir og
myndir er tengjast fiskveiðum, sjó-
mennsku og siglingum fyrri tíma,
þ.á m. landhelgisbáturinn Ingjald-
ur, gömul sjóklæði úr skinni, köf-
unarbúnaður, klippurnar frægu úr
þorskastríðunum, skipslíkön, ýmis
veiðarfæri áhöld og tæki. Boðið er
upp á myndbandasýningu á efstu
hæðinni í sumar auk þess sem aldr-
aðir sjómenn kynna verklega sjó-
vinnu við sérstök tækifæri.
Á sjómannadaginn, 4. júní, var
opnuð sýning á verkum Jóns Gunn-
arssonar listmálara þar sem við-
fangsefnið er sjómennska og lífið
við sjávarsíðuna. Fljótandi farand-
sýning um borð í sænska flutninga-
skipinu Nordwest kom hingað til
lands á vegum Sjóminjasafnsins 16.
júní og stóð til 27. júní. Á sýning-
unni, sem ber heitið Fólk og bátar í
LEIÐRETT
Sýning Steinþórs
verður opnuð í dag
Það skal áréttað að sýning
Steinþórs Marinós Gunnars-
sonar í Stöðlakoti verður opnuð
í dag, laugardag, kl. 15.
KAMBASEL 46
OPIÐ HÚS!
Til sýnis og sölu gullfalleg 3ja herb. 97,5 fm íbúð á 2. hæð í 4ra
íbúða húsi. Ibúðin er stór stofa, 2 svefnherb., eldhús og innaf því
þvottaherb. og búr, baðherb., geymsla og hol. Tvennar svalir. Mjög
góðurstaður. Ekki sleppa þessari. Verð 10,9 millj.
Bæringur og Svanhildur sýna íbúðina kl. 14.00—16.00
í dag og sunnudag.
FASTEIGNASALAN GARÐUR, S. 562-1200, 862-3311
■»
rr ^aijia alj iilira
, /7^ -1 " 7 7
al sjalfsrrriWa
- h , 7 ,
ilSnlr, rrírrrrh’fi,1
rrnmTpiri §,
I irioin)rílrrpijT
lj.Vi' iitTCjij ðiInvMttm
Lok dagskrár verða síðan þau að
djasstríó Sigurðar Helgasonar,
Svartfugl, leikur í tjaldinu frá kl. 22 til
miðnættis.
Ólafur Jónsson sagði að þetta væri
annað árið sem efnt væri til listahátíð-
ar í Lónkoti, en sagði það einnig von
sína að hátíðin festi sig vel í sessi og
yrði áfram árlegur viðburður. Þá
sagði hann það fyrirhugað að nýta
Landhelgunarhringinn meðal annars
til sýninga á útilistaverkum, en einnig
yrði þar útivistar- og afþreyingar-
Morgunblaðið/Björn Bjömsson
Páll Guðmundsson myndhöggv-
ari frá Húsafelli með nýjan
steinskúlptúr af Jóni Helgasyni
skáldi og prófessor í Kaup-
mannahöfn.
svæði. Þegar væri kominn rammi að
sýningum þama á næsta sumri en
núna hefði verið unnið að gerð varan-
legra undirstaða í fyrirhuguðum lista-
garði við hlið Landhelgunarhringsins
einmitt fyiir slík stór listaverk.
Þannig sagðist Ólafur vonast til
þess að þeir gestir sem að Lónkoti
kæmu gætu alltaf notið góðra lista-
verka og listviðburða af ýmsum toga
allt sumarið, en þessi viðburður,
Listahátíðin, yrði alltaf hápunktui'
sumarsins. Þá sagði Ólafur að lokum
að þótt boðið væri upp á list fyrir augu
og eyru mætti ekki gleyma líkamleg-
um þörfum gesta, en í Lónkoti væri
matargerðarlistinni ekki síður gert
hátt undir höfði og vænti hann þess að
vel væri séð fyrir þörfum allra gesta
og vonaðist hann til að sjá sem flesta á
hinni árlegu Listahátíð í Lónkoti.
norðri, eru 20 uppnmalegir ára-
bátar frá öllum Norðurlöndunum,
Eistlandi og Hjaltlandi.
Um miðjan september n.k. verð-
ur opnuð í safninu sýning um
bernsku Margrétar Valdimarsdótt-
ur og börn á miðöldum. Sýningin,
sem einkum er ætluð börnum, kem-
ur frá danska þjóðminjasafninu.
Sjóminjasafn íslands og Byggða-
safn Hafnarfjarðar hafa frá því um
áramót tekið upp sameiginlegan
aðgöngumiða sem gildir að söfnun-
um báðum, Sívertsenshúsi, Smiðj-
unni og Siggubæ.
ÞJÓÐMENNINGARHUSIÐ
Fjölbreyttar menningarsögulegar syningar
Sérsýningar:
Kristni i þúsund ár
Landnám og Vínlandsferðir
Opið alía daga 11-1?\ Veitingastofa opin á sýningartima.
2
ÞJÓDMKNNlNGARHÍiSIÐ
HvtifiigSt* 15 • 101 RtykjaHk • >(mi 5451400 • simbréfSéS 1401
bébuM fnmbmtofa 5451410 • vtitmputafg 545 í4lS * vtrtlttn 5451430