Morgunblaðið - 19.07.2000, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 19.07.2000, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR MIÐVIKUDAGUR 19. JÚLÍ 2000 9 Grænlendingar minnast þess að 1000 ár eru frá kristnitöku Hátíðarguðs- þjónusta í rústum dómkirkj unnar GRÆNLENDINGAR minntust þess við hátíðarmessu í rústum dóm- kirkjunnar í Görðum/Igaliku að 1000 ár eru liðin frá því að nor- rænir menn á Grænlandi tóku kristna trú. Karl Sigurbjörnsson, biskup fslands, tók þátt í athöfn- inni. Norrænir íbúar Grænlands tóku kristna trú árið 1000, sama ár og íslendingar, en það var Leifur Eir- íksson sem boðaði trúna. Talið er að fyrsta kristna kirkjan á Græn- landi hafi verið byggð í Brattahlíð, Þjóðhildarkirkja sem nú hefur ver- ið endurbyggð. Dómkirkja nor- rænu byggðarinnar var hins vegar í Görðum sem nú heita Igaliku. Þar var mikil steinkirkja og bisk- upssetur og rústir bygginganna sjást enn. Eftir helgigöngu prestanna frá kirkjunni í Görðum fór fram hátíð- arguðsþjónusta í rústum St. Nico- laus-dómkirkjunnar. Sofie Peter- sen, biskup Grænlands, prédikaði. Auk grænlenskra presta tók Karl Sigurbjörnsson, biskup íslands, þátt í athöfninni ásamt biskup- unum í Niðarósi, Bergen, Kaup- mannahöfn, Lundi og Færeyjum og Jóhannesi Gijsen, biskupi katólsku kirkjunnar á Islandi og katólska biskupnum í Kaupmannahöfn. Þá var Margrét Danadrottning við- stödd ásamt Hinriki prins, Ólafi Morgunblaðið/RAX Grænlenskir prestar og erlendir biskupar gengu inn í dómkirkjurústirnar í Görðum og héldu þar hátíðar- guðsþjónustu í tilefni af því að 1000 ár eru liðin frá því kristni var tekin upp á Grænlandi. Ragnari Grímssyni, forseta ís- Iands, og fleiri erlendum gestum. Ákaflega hrífandi „Mér fannst ákaflega hrífandi að standa innan um þetta fólk og hlusta á grænlenska sönginn og hugsa til þeirra sem hér gengu forðum um hlöð,“ sagði Karl Sigur- björnsson biskup í samtali við blaðamann eftir hátíðarguðsþjón- ustuna. „Það er ólýsanleg tilfinn- ing að ganga inn í rústir dómkirkj- unnar og biskupssetursins. Hér hafa menn reist mikla steinkirkju og íveruhús sem lýsa miklu afli, verkkunnáttu og fjárráðum," sagði biskup. Samvinna um útgáfu námsefnis um landafundina Söguleg skáldsaga um Leif Eiríksson Morgunblaðið/Rax Bókin um Leif Eiríksson var flutt með Islendingi til Grænlands og af- henti Gunnar Marel Eggertsson skipstjóri Birni Bjarnasyni mennta- málaráðherra þær við afhjúpun styttunnar í Brattahlíð. VIÐ hátíðahöldin í Brattahlíð á Grænlandi í tilefni landafunda- afmælisins afhentu Björn Bjarna- son, menntamálaráðherra íslands, og Lise Lennert, menntamálaráð- herra Grænlands, þjóðhöfðingjum landanna fyrstu eintökin af nýrri námsbók um Leif Eiríksson og landafundina. Björn gat þess í ávarpi sem hann flutti þegar styttan af Leifi Eiríkssyni var afhjúpuð að Davíð Oddsson, forsætisráðherra ís- lands, og Jonathan Motzfeldt, for- maður grænlensku heimastjórnar- innar, hefðu ákveðið fyrir tveimur árum að gefa út námsefni fyrir grunnskólanemendur um víkinga- tímann og landafundina. Var það einn liðurinn í því að minnast landafundanna. Af Islands hálfu vann Námsgagnastofnun að útgáf- unni. Bókin er nú komin út á græn- lensku, íslensku og dönsku og voru fyrstu eintökin flutt með víkinga- skipinu íslendingi til Grænlands. Menntamálaráðherrar landanna afhentu Margréti Danadrottningu, Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta íslands, og Jonathan Motzfeldt eintök af bókinni. Bókin heitir á íslensku Leifur Eiríksson - á ferð með Leifi heppna. Hún er söguleg skáldsaga byggð á frásögnum í Eiríks sögu rauða og Grænlendinga sögu og gefur innsýn í daglegt líf víking- anna jafnframt því að kynna fræg- ustu persónurnar í sögu landa- fundanna. „Með því að gefa út bókina um Leif Eiríksson, ferðir hans og annarra, erum við ekki að- eins að halda fornum afrekum og menningararfi á loft, við erum einnig að treysta böndin okkar í milli í samtímanum og styrkja þau og treysta til allrar framtíðar," sagði Björn í ávarpi sínu. Ekki nægilega vel stað- ið að lokun miðborgar EKKI var nægilega vel staðið að lokun hluta miðborgarinnar sl. laugardag að mati borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins. I bókun sem þeir lögðu fram á fundi borgarráðs í gær segir að ljóst sé að lokunin hafi ekki verið „nægilega vel undir- búin og greinilega ekki haft eðli- legt og æskilegt samstarf við hags- munaaðila á svæðinu". Þá segir að mikilvægt sé að borgaryfirvöld hafi betra samráð við íbúa og þjónustu- aðila á svæðinu um á hvern hátt verður staðið að framhaldinu. Borgarráðsfulltrúar Reykjavík- urlistans óskuðu í framhaldi af þessu að bókað yrði að undirbún- ingurinn hefði verið unninn af framkvæmdastjóra miðborgar og Þróunarfélagi miðborgar. Það hefði verið í fullu samkomulagi og sam- ráði við hagsmunaaðila í miðborg- inni. Þá segir að borgarráði hafi ekki borist kvartanir vegna lokun- arinnar en sjálfsagt sé að skoða framhaldið. 2 AUGUST SILK á Islandi HeiCdsöCnverð á 100% giC^i í dag, SíðaHiúCa 35. 3. Aceð. tyC. ‘t-7. Peygugett, peygur, náttsett, sCoppat. DUNDUR UTSALA 20%—70% afsláttur Kápur frá Jakkar lítil nr. 5.900 3.900 2.900 fffapusalan 100% Snorrabraut 38 s. 562 4362 VN Útsalan er hafin Opið mán.-fim. 10-18 fös. 10-19 Tískuverslunin Vefta Hólagarði Sími 557 2010 Útsala MaxMara marina rinaldi Hverfisgötu 6, 101 Reykjavík, sími 562 2862 * Utsalan í fii11 iiiii gangi! I.í °/o niviri aÍKlíUíni* af Kjólmii. ili*i>t£l iiiii »g (Irossuni hjáLQýGofiihiUi l/ngjalcigi .'>. míiií •')(! I 2141. Opið \irka daga liá kl. III.IMI-lil.OII. laugardaga l'rá kl. I(I.IKI— I.">.(1(1.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.