Morgunblaðið - 19.07.2000, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
MIÐVIKUDAGUR 19. JÚLÍ 2000 13
Kynntu þét nánar ISDN í gjaildfrjalsu numcrí 1800 7000 j eöa a nctinu
SIMINN
simmn.is
Frárennslismál
komist í lag
BORGARRÁÐ hefur samþykkt að
veita 15 milljónum króna nú í ár til
þess að koma frárennslismálum í lag
á 30-40 býlum á Kjalarnesi og fáein-
um stöðum í Reykjavík. Aætlaður
heildarkostnaður borgarsjóðs vegna
verkefnisins er 20 til 25 milljónir og
er stefnt að því að vinna verkið á
tveimur árum.
Húsin sem um ræðir geta ekki
tengst holræsum og fer frárennsli
íbúanna því í gegnum rotþrær og
sandbeð eða siturlagnir út í jarðveg-
inn. I erindi gatnamálastjóra segir
að ljóst sé að margar af rotþrónum
uppfylli ekki þær kröfur sem settar
eru í reglugerð um mengunarvarnir.
Segir að ástand flestra þrónna hafi
verið skoðað og sé hreinsivirkni
þeirra mjög misjöfn.
Gatnamálastjóri segir í erindi
sínu að erfitt hafi reynst að fá íbúa
til að lagfæra ástand. Því óskar hann
eftir heimild borgarráðs að ganga til
samninga við þá íbúa sem veita frá-
rennsli í rotþró um að borgin aðstoði
þá við að koma frárennslismálum í
viðunandi horf.
I því felst að Reykjavíkurborg
annist úttekt og lagfæringu á frá-
rennsliskerfinu þannig að það upp-
fylli kröfur reglugerðar um meng-
unarvarnir. Húseigendur greiði sem
nemur venjulegu heimæðagjaldi í
nýbyggingahverfum, 150 þúsund, en
Reykjavíkurborg greiði eftirstöðv-
arnar. Ef kostnaður er undir
150.000 greiði húseigendur einungis
raunkostnað. Að lokinni úttekt ann-
ist Reykjavíkurborg rekstur þess en
eigandi greiði holræsagjald.
Morgunblaðið/Kristj án
Sandatún Vogabænda grábrúnt af sólbruna,
Hrossaborg fyrir miðri mynd
Brunaþurrkur
brennir túnin
Mývatnssveit. Morgunblaðið.
Mikið bjartviðri og þurrkar hafa
verið í Mývatnssveit síðan fyrir
sólstöður og njóta þess bæði
heimamenn og ferðalangar. Tún
sem eru á söndum eða hraunum
þola þetta hins vegar ekki til
lengdar. Stórsér á þeim víða í
sveitinni vegna þurrkanna og
verða þau ekki til gagns á þessu
sumri. Einna verst eru farin
Sandatún Vogabænda og tún Jóns
Ármanns uppi við Námafjall, en
þessi tún eru allra túna fegurst ef
tíð er þeim hagfelld og mynduð
óspart af ferðamönnum. Vorið
1999 kól mikið af túnum í sveitinni
en þessi þurru tún stóðust þá raun.
Doktor í
dýralækn-
ingum
• EINAR Jörundsson varði doktors-
ritgerð sína 22. júní síðastliðinn við
Dýralæknaháskólann í Ósló. Ritgerð-
in ber titilinn: ExperimentaUy in-
duced contact hypersensitivity in
lambs og fjallar um hlutverk og sam-
vinnu ákveðinna bólgufrumna við
snertiofnæmi i húð.
Rannsóknir á snertiofnæmi hjá
fólki og tilraunir á músum hafa gefið
mikilvægar upplýsingar um snertiof-
næmi sem hafa, og geta í ennþá meira
mæli orðið til gagns við meðhöndlun
ofnæmissjúkdóma. í ritgerðinni er
fjallað um tilraunir á lömbum þar
sem leitast var við að kanna hlutverk
og samvinnu ákveðinna bólgufrumna
í húð og eitlum við snertiofnæmi.
Notaðar voru ónæmisfræðilegar að-
ferðir til að auðkenna undirflokka
T-eitilfrumna og griplufrumna
(dendritic cells) í vefjasýnum. Tölvu-
tengdri myndgreiningaraðferð
(computerized image analysis) var
beitt til að ákvarða breytingar í húð í
kíníska fasa (elicitation phase) snerti-
ofnæmis. Rannsóknirnar gáfu vís-
bendingu um mikilvægt hlutverk gd
(gamma-delta) T-eitilfrumna sem eru
áberandi frumur hjá sauðkindmni og
áveðinnar tegundar griplufrumna
(dermal dendritic cells). Niður-
stöðumar af þessum grunnrannsókn-
um veita fyrst og fremst aukinn skiln-
ing á því ferli sem á sér stað og þeirri
samvinnu sem á sér stað milli T-
eitlafrumna og hinna mjög svo mikil-
vægu griplufrumna í húð og eitlum í
klíníska fasa snertioftiæmis.
Einar Jörundsson fæddist 10. febr-
úar 1963 í Mosfellssveit og er sonur
hjónanna Jörundar Sveinssonar og
Margrétar Einarsdóttur. Sambýlis-
kona Einars er Guðríður Haralds-
dóttir sálfræðingur. Einar lauk stúd-
entsprófi frá Menntaskólanum við
Sund 1983 og embættisprófi frá
Dýralæknaháskólanum í Ósló 1993.
Hann hóf doktorsnám í líffærameina-
fræði við Dýralæknaháskólann í Ósló
1994 og á árunum 1996-1997 stundaði
Einar sérfræðinám við Háskólann í
Guelph í Kanada og lauk þaðan
diplómaprófi í frumumeinafræði.
Doktorsvömin fór fram í Ósló þann
22. júní og andmælendur vom þeir
Henrik Huitfeldt, prófessor við
læknadeild Óslóarháskóla og Flemm-
ing Kristensen, dósent við Konung-
lega dýralækna- og landbúnaðar-
háskólann í Kaupmannahöfn. Frá og
með í sumar starfar Einar sem sér-
fræðingur í líffærameinafræði við til-
raunastöð háskólans í meinafræði að
Keldum í Reykjavík.
ÍSDN
myndsími
ISDN
býður uppi notkun myndsíma.
Komdu og skoðaðu ISDN myndsimann hjá
Simanum Kringlunni, Ármúla 27 og Akureyri.
Fullkominn myndsími sem einnig er hægt að tengja við
sjónvarps- eða myndbandstæki. Síminn er jafnframt
fullkominn ISDN sími með allri sérþjónustu og er með
innbyggðan símsvara.
Fólk