Morgunblaðið - 19.07.2000, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 19.07.2000, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. JÚLÍ 2000 17 LANDIÐ Meistaramót GB í golfi á Hamarsvelli Afinn vann öldunga- flokkinn - dótturson- urinn meistaraflokk Borgarnesi - Meistaramót Golf- klúbbs Borgarness fór fram á Hamarsvelli 12.-15. júlí sl. Rúm- lega Ijörutíu keppendur léku þrjá fyrstu dagana í blíðskaparveðri en síðasta dag mótsins var rigning og rok. Þá var tæplega fært til keppni en ákveðið var að ljúka mótinu þrátt fyrir erfið skilyrði. Veðrið hafði mikil áhrif á árangur keppenda. Algengt var að keppendur hækkuðu skor sitt um allt að tuttugu högg milli annars og þriðja dags mótsins og lokatölur því hærri en oftast áður. Nú var í fyrsta sinn keppt í öld- ungaflokki karla. Sigurvegari varð einn af stofnendum klúbbsins og heiðursfélagi, hinn síungi Al- bert Þorkelsson sem er 78 ára. En dóttursonur hans, Viðar Héðins- son, varð sigurvegari í meist- araflokki. A mótinu fór ungur kylfingur, Þorvaldur Ægir Þorvaldsson, holu í höggi. Úrslit urðu þessi: Meistaraflokk- ur 1. Viðar Héðinsson 321 2. Guð- jón Karl Þórisson 325 3. Guð- mundur Danfelsson 331 1. flokkur karla 1. Snæbjörn Óttarsson 345 2. Bergsveinn Símonarson 357 3. Jön Georg Ragnarsson 364 2. flokkur karla 1. Eiríkur Ólafsson 383 2. Jóhann Kjartansson 384 2. Þorvaldur Ægir Þorvaldsson 387 3. flokkur karla 1. Trausti Jó- hannsson 430 2. Hjörtur Árnason 440 1. flokkur kvenna 1. Þuríður Jóhannsdóttir 388 2. Júlíana Jóns- dóttir 398 3. Ásdís Helgadóttir 426 2. flokkur kvenna 1. Fjóla Péturs- dóttir 422 2. Guðrún Kristjáns- dóttir 469 3. Eva Eðvarsdóttir 493 Öldungaflokkur 1. Albert Þorkels- son 399 2. Þórður Sigurðsson 410 3. Einar B. Jónsson 411 Drengja- flokkur 1. Bjarni Freyr Björgvins- son 384 2.-3. Arnar Helgi Jónsson 427 2.-3. Trausti Eiríksson 427. Morgunblaðið/Ingimundur Viðar Héðinsson, sem vann meistaraflokk hjá Golfklúbbi Borgarness, og afi hans Albert Þorkelsson, sem vann öldungaflokkinn, voru kampakátir í mótslok. Á milli þeirra er Andrés Snær, íjögurra ára sonur Viðars. Félags- og skolaþjónusta Snæfellinga á Hellisandi Hellissandi - Sú breyting hefur orðið á samstarfi sveitarfélaga á Vesturlandi að sveitarfélögin á Snæfellsnesi hafa stofnsett sér- staka skrifstofu um skóla- og fé- lagsþjónustu og þar með hætt að standa að Skólaskrifstofu Vestur- lands í Borgarnesi. Aðsetur þess- arar nýju skrifstofu er á Hellis- sandi og hefur hún rúmgott og vistlegt húsnæði í Landsbankahús- inu þar á svæðinu. Skrifstofan tók til starfa fhnmtudaginn 13. júlí sl. og var hún opnuð með allmikilli viðhöfn. Þar var mætt fjölmenni og í þeim hópi skólafólk af Snæfellsnesi, ráð- herrar og þingmenn. Sigþrúður Guðmundsdóttir verður forstöðumaður Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga en það er heiti skrifstofunnar. Auk henn- ar munu starfs þar Una Jóhannes- dóttir, skólaráðgjafi, Klara Braga- dóttir sálfræðingur og Stefán Jóh. Sigurðsson, skrifstofustjóri. Ásbjörn Óttarsson, formaður Héraðsnefndar Snæfellsness og forseti bæjarstjórnar Snæfellsbæj- ar, bauð gesti og starfsfólk vel- komið og fór nokkrum orðum um Morgunblaðið/Hrefna Magnúsdóttir Starfsfólk hinnar nýju Félags- og skólaskrifstofu Snæfellinga, sem hef- ur aðsetur á Hellissandi. Frá vinstri: Sigþrúður Guðmundsdóttir, Klara Bragadóttir, Una Jóhannesdóttir og Stefán Jóh. Sigurðsson. aðdraganda að stofnun og væntan- lega starfsemi skrifstofunnar. Þá voru flutt nokkrar kveðjur og ávörp. Almenn ánægja og bjartsýni komu fram og undirstrikað var mikilvægi þess að fá á heimaslóð stofnun sem þessa. Menn ályktuðu á þann veg að gott framfaraskref hafi verið tekið með stofnun og starfrækslu Félags- og skólaþjón- ustu Snæfellinga. Skemmtilegir tónleikar í Grundarfj arðarkirkj u Grundarfirði - Bomholms Musik- skoles Accordeon Börneorkester og ungdomskvintet ásamt einleik- urum hélt tónleika í Grundar- fjarðarkirkju mánudagskvöldið 17. júlí. Hljómsveitina skipa böm á aldrinum 9 till6 ára og em þau 25. Verkin á tónleikunum vom frá barrokktímanum til nútímans, mjög fjölbreytt dagskrá. Hljómsveitirnar báðar og ein- leikarar sýndu mikla hæfileika og færni. Tónleikarnir voru vel sóttir og mikil ánægja var með þá og var tónlistarfólkinu svo vel tekið að áheyrendur stóðu úr sætum og klöppuðu þeim lof í lófa. Stjórn- andi hljómsveitarinnar og kvint- ettsins er Gregor Siegler og hefur hann mjög skemmtilega og góða framkomu ásamt hljómsveitar- stjórn sinni. Næstu tónleikar þessara lista- manna verða í Húsavík í kvöld. Accordeon er hljóðfæri sem er þróað út frá harmonikku og á accordeon er hægt að spila lög með báðum höndum og hefur það þess vegna meiri möguleika en haramonikkan. Accordeon-leikaramir eru þekktir víða utan Borgundar- hólms. Þau hafa spilað við góðar undirtektir í löndum eins og Þýskalandi, Austurríki, Ung- verjalandi, Spáni, Ítalíu, Finn- landi og Eistlandi og unnið til margra verðlauna. Hljómsveitin vann 1. verðlaun á stórri tónlistarhátíð í Suður- Þýskalandi 1998 og dönsku lands- keppnina 1999 og 2000. Tveir drengir í kvintettinum eru einnig framúrskarandi ein- leikarar. Martin Noordegraaf hef- ur sigrað í mörgum alþjóðlegum tónlistarkeppnum og Bjarke Mogensen, 14 ára, hefur unnið 1. verðlaun í Danmörku, Þýskalandi og Ítalíu. Nú í maí keppti hann ásamt 104 öðrum í Berlingskes klassiske Musikkonkurrence og sigraði þar. Hann verður fulltrúi Dana í heimsmeistarakeppni í Júgóslavíu í október árið 2000. Eldhuginn Gregor Siegler hef- ur verið aðal driffjöðurin í harm- onikkuuppsveiflu á Borgundar- hólmi. Hann hefur kennt í 40 ár og stjórnar nú þessari ungu harmonikkuhljómsveit sem spilar bæði Scarlatti og Bach, þjóðlög og jazz. Morgunblaðið/Sigurður Fannar Kristín Arnadóttir og Ingunn Guðmundsdóttir ræða saman við opnun upplýsingamiðstöðvar Árborgar á Selfossi. Upplýsingamiðstöð Árborgar Þjónusta fyrir ferðamenn Selfossi - Ný upplýsingamiðstöð var formlega tekin í notkun á Selfossi fyrir skömmu. Upplýsingamiðstöðin er til húsa á Austurvegi 22 þar sem áður var Suðurgarður. Upplýsingamiðstöðin er er rekin af sveitarfélaginu Árborg en um til- raunastarfsemi er að ræða og von- ast menn þar á bæ til þess að mið- stöðin verði fastur punktur í tilveru sveitarfélagsins, í það minnsta á sumrin. Skúli Arason hefur verið ráðinn forstöðumaður upplýsingamiðstöðv- arinnar en Skúli er nemi í ferða- málafræði í Háskóla Islands. Að mati Skúla er opnunin mikið happa- skref fyrir sveitarfélagið. „Mikil aukning ferðamanna á svæðinu kallar á frekari þjónustu," segir Skúli. Hann segir að miðstöðin á Selfossi muni vera í góðu samstarfi við samskonar upplýsingamiðstöð í Hveragerði. FLASA, HÁRLOS... Wclcda hárvörurnar frábærar ÍNi>( « I’um.iítmt, bcihubtubim, Ápotckum, Ceröu bílinn kláran fyrir fríib ® TOYOTA VARAHLUTIR Nýbýlavegi 8 • S: S70 5070
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.