Morgunblaðið - 19.07.2000, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 19.07.2000, Blaðsíða 20
20 MIÐVIKUDAGUR 19. JÚLÍ 2000 ERLENT MORGUNBLAÐIÐ Gore saxar á forskot Bush Washington, Milwaukee, Detroit. AP, AFP. Krúnurakaðir knattspyrnumenn AL Gore, varaforseti Bandaríkjanna og væntanlegur forsetaframbjóðandi Demókrataflokksins í haust, hefur undanfarinn mánuð lagt áherslu á efnahagsuppganginn í Bandaríkjun- um í kosningabaráttu sinni og millj- ónum dollara hefur verið varið í sjónvarpsauglýsingar. Nú virðist sem þetta hafi borið árangur, því sam- kvæmt tveim nýjum skoðanakönnun- um stendur Gore nú jafnfætis George W. Bush, ríkisstjóra í Texas og vænt- anlegum frambjóðanda Repúblíkana. Gore hefur einkum unnið á meðal kvenkyns kjósenda og óflokksbund- inna. Samkvæmt könnun CNN- sjónvarpsins og blaðsins USA-Today nýtur Gore stuðnings 46% kjósenda en Bush 48%. Fyrir mánuði sýndi könnun þessara miðla að Bush naut 50% fylgis en Gore 41%. Vill betri feður Fulltrúi Bush, Ari Fleischer, hafði ekki miklar áhyggjur af þessum nið- urstöðum. Sagði hann meðaltal ný- legra kannana enn sýna Bush með sex prósenta forskot, það sama og hann hafi haft síðan í vor. Bush legg- ur nú áherslu á það í kosningabarátt- unni að útskýra afstöðu sína sem „brjóstgóði íhaldsmaðurinn" og segir að alríkisstjómin ætti að fjárfesta íyrir 200 milljónir dollara, um 16 milljarða króna, í áætlunum er miði að því að framleiða betri feður. Vill hann að peningamir verði sett- ir í staðbundna sjóði er veiti láglaun- uðum eða atvinnulausum feðmm starfsþjálfun, kenni körlum að vera betra foreldri eða styrki hjónabönd með ráðgjöf og aukinni menntun. Þá yrði peningunum enn fremur varið til þess að reka áróður fyrir íoðurhlut- verkinu um allt land. Bush hefur sætt harðri gagnrýni af hálfu borgarstjórans í Detroit fyrir frammistöðu sína sem ríkisstjóri í Texas. Bush lagði fram tillögur um hvemig finna mætti munaðarlausum bömum heimili, en borgarstjórinn, Dennis Archer, svaraði með harðri FORSETAR Rússlands og Kína fordæmdu í gær áform Bandaríkj- astjórnar um að koma upp háþró- uðu eldflaugavarnarkerfi, sem þeir sögðu geta valdið nýju vígbúnaðar- kapphlaupi, og boðuðu nánara samstarf milli ríkjanna tveggja í heimsmálunum. Jiang Zemin, forseti Kína, og Vladímír Pútín, forseti Rússlands, ræddust við fyrir luktum dyrum í þrjár klukkustundir í Peking. Þeir undirrituðu síðan fjóra samstarfs- samninga og yfirlýsingu um þau áform Bandaríkjamanna að koma upp eldflaugavarnarkerfi í Banda- ríkjunum og nokkmm Asíuríkjum til að verjast hugsanlegum árásum óvinaríkja. Bandaríkin sögð sækjast eftir yfirburðum í yfirlýsingu forsetanna sagði að markmiðið með áformunum væri að tryggja Bandaríkjunum yfir- burði í varnar- og öryggismálum. Þau myndu ekki aðeins stofna ör- yggi Kínverja og Rússa í hættu, heldur einnig Bandaríkjamanna sjálfra. Eldflaugavarnirnar myndu raska hernaðarjafnvæginu í heim- inum og koma af stað nýju vígbún- aðarkapphlaupi. I yfirlýsingunni segir enn frem- ur að Kínverjar og Rússar geti gagnrýni á frammistöðu hans við að bæta hlutskipti fátækra bama í Tex- as. Sagði Archer að samkvæmt fregnum í fyrra væri fjöldi fátækra bama í Texas sá næstmesti í nokkru ríkja Bandaríkjanna, og var tala þeirra yfir 1,5 milljónir. Aætlað sé að um ein milljón Texasbúa líði skort á degi hveijum, og 2,5 milljónir heimila í ríkinu geti með naumindum brauð- fætt sitt fólk, samkvæmt tölum frá bandaríska landbúnaðarráðuneytinu. Þá nefndi Archer enn fremur að 1995 hefði Bush beitt neitunarvaldi gegn frumvarpi um að koma á fót matvæla- öryggisráði sem hefði haft það hlut- verk að afla upplýsinga um skort án þess að það kostaði ríkið mikið fé. ekki sætt sig við að fyrirhugað eld- flaugavarnarkerfi Bandaríkja- manna og bandamanna þeirra í Asíu nái til Taívans þar sem það grafi undan stöðugleika í álfunni. Forsetarnir undirrituðu einnig samninga um samstarf í mennta-, banka- og orkumálum. Samkvæmt einum samninganna ætla Rússar að reisa hraðvirkan nifteinda- kjarnakljúf í Kína í tilraunaskyni. Forsetarnir ræddust við í ein- rúmi í tvær klukkustundir áður en formlegar viðræður þeirra hófust að viðstöddum varnarmála- og ut- anríkisráðherrum ríkjanna og fleiri embættismönnum. Jiang sagði að fundurinn hefði verið mjög mikilvægur og árang- ursríkur og Kína og Rússland myndu hefja „fullt samstarf á sviði stjórnmála, efnahagsmála, vísinda og tækni, hermála og heimsmála". Jiang bætti við að þrátt fyrir yfir- lýsinguna um fyrirhugaðar eld- flaugavarnir Bandaríkjanna beind- ist samstarf Kína og Rússlands ekki að neinu þriðja ríki. Ekki væri um bandalag að ræða, heldur „nýja tegund samstarfs". Stjórnvöld í Kína og Rússlandi vilja vega upp á móti auknum áhrifum Bandaríkjanna í heimin- um eftir lok kalda stríðsins. Auk þess sem þau leggjast gegn eld- SHOKOUR Mutmaen, íþrótta- málaráðherra Afganistans, baðst í gær afsökunar á meðferðinni á pakistönskum knattspyrnumönn- um en þeir voru krúnurakaðir fyrir að vera í stuttbuxum er þeir léku landsleik við Afgana í borg- inni Kandahar á dögunum. Hefur atburðurinn vakið mikla hneykslun í Pakistan og trúar- leiðtogar þar segja að framferði talíbana í Afganistan sé óíslamskt og til skammar fyrir trúna. Var greint frá því í gær að embættis- manninum er fyrirskipaði krúnu- raksturinn hafi verið tfmabundið vikið úr starfi. Sögðu sumir að talibanar hefðu afskræmt fmynd fslams og sér- staklega á Vesturlöndum. Þótt af- ganski íþróttaráðherrann hafi flaugavarnaáformunum eru þau andvíg alþjóðlegum hernaðaríhlut- unum af mannúðarástæðum, eins og í Kosovo í fyrra. Ríkin tvö vilja þó ekki stofna tengslum sínum við Bandaríkin í hættu, enda ræðst efnahagsleg framtíð þeirra að miklu leyti af erlendum fjárfest- ingum og góðum samskiptum við Vesturlönd. beðist afsökunar þá sagði einn trúarleiðtogi talfbana, að það væri ástæðulaust. Pakistönsku leikmennirnir hefðu brotið regl- urnar en samkvæmt þeim mega karlmenn ekki skera skegg sitt, vera í stuttbuxum eða bretta upp ermarnar á almannafæri. Á landsleiknum í Kandahar var áhorfendum leyft að klappa en annars er það bannað á kapp- leikjum f Afganistan og ekki leyfilegt að lýsa tilfinningum sín- um með öðru en orðunum „Allah er mikill". Sumir pakistönsku leikmannanna komust hjá þvf að vera krúnurakaðir þar sem þeir gátu forðað sér inn í pakistönsku ræðismannsskrifstofuna í borg- inni en hér eru þeir sex, sem lentu f klónum á talibönum. Kínverjar eru mikilvægir við- skiptavinir rússneskra olíufyrir- tækja og vopnaframleiðenda en Rússar vilja fá meiri aðgang að kínverska markaðnum. Viðskiptin milli ríkjanna jukust um tæp 32% á fyrri helmingi ársins miðað við sama tíma í fyrra. Viðskiptin eru þó enn miklu minni en ríkin hafa gert sér vonir um. Reykinga- menn eld- ast fyrr ÞAD er ekki aðeins, að reyk- ingamenn lifi almennt skemur en þeir, sem ekki reykja, heldur sækir Elli kerling þá fyrr heim en aðra. Kemur það fram í rannsókn, sem gerð var á 5.500 manns í Hollandi á aldrinum 15 til 74 ára og á 7.500 Bandaríkja- mönnum, eingöngu öldruðu fólki. Sýndi það sig, að fólk á aldrinum 30 til 70 ára, sem reykir ekki, er miklu ólíklegra en reykingamennimir til að veikjast af sjúkdómum, sem oft fylgja auknum aldri. Þá nær það sér fyrr en reykingamenn eftir veikindi. Hættir Bondevik? KJELL Magne Bondevik, fyrr- verandi forsætisráðherra Nor- egs, er að velta því fyrir sér að hætta þingmennsku. Ætlar hann að gefa uppstillingar- nefnd Kristilega þjóðarflokks- ins á Mæri og Raumsdal endan- legt svar fyrir 15. september. Hefur hann setið á Stórþinginu í 28 ár en segist þó alls ekki vera orðinn leiður á stjórnmál- um. Hins vegar hljóti hugurínn stundum að hvarfla í aðrar átt- ir. Bondevik hefur þó samþykkt að vera forsætisráðherraefni borgaralegu flokkanna, sem voru í stjóm áður en núverandi stjórn Verkamannaflokksins tók við, en segir, að skilyrðið sé að Hægriflokkurinn verði með til að unnt verði að mynda meirihlutastjóm. Hörð átök í Chad UPPREISNARMENN í Af- ríkuríkinu Chad kváðust í gær hafa náð á sitt vald herstöð í bænum Bardai í norðurhluta landsins og fellt meira en 240 stjórnarhermenn. Sagði í yfir- lýsingu uppreisnarmanna, sem lúta forystu Youssouf Togoim- is, fyrrverandi varnarmálaráð- herra, að herstöðin í Bardai hefði verið helsta vígi stjórnar- hersins og Idriss Deby forseta og skoraðu þeir á hann að segja af sér svo unnt væri að binda enda á átökin í landinu. Ótti við nýja veiru í New York LJÓST er, að veira, sem getur verið banvæn og berst með moskítóflugum, hefur lifað af veturinn í New York en hennar varð þar vart í fyrsta sinn í fyrrasumar. Veldur veiran, sem kennd er við Vestur-Níl, alvar- legum heilabólgum og heila- himnubólgu og varð í fyrra sjö manns að bana og sýkti aðra 62. Veiran hefur nú fundist í mos- kítóflugum fyrir austan og norðan New York og í borginni hafa fundist tvær dauðar krák- ur, sem fallið höfðu fyrir henni. Yfirvöld hafa nú hafið eitur- efnaúðun innan borgar sem ut- an. Ekki er vitað hvernig veiran barst til Bandaríkjanna en hún var fyrst einangmð í Úganda 1937. Hugsanlegt er, að það hafi verið með innfluttum og sýktum fugli eða með sýktum manni, sem komið hefur frá Af- ríku, Asíu eða Miðausturlönd- um en þar er veiran algeng. Pútín Rússlandsforseti ræðir við forseta Kína í Peking Gagnrýna eldflaugavarnaáætl- unina og boða aukið samstarf Peking. Reuters, AP, AFP. Reuters Vladímír Pútín Rússlandsforseti og Jiang Zemin, forseti Kfna, takast í hendur á fúndi í Peking eftir að hafa undirritað yfirlýsingu þar sem þeir gagnrýna áform Bandaríkjastjórnar um eldflaugavamir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.