Morgunblaðið - 19.07.2000, Page 23

Morgunblaðið - 19.07.2000, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ LISTIR MIÐVIKUDAGUR 19. JÚLÍ 2000 22 Á slóð fjölda- morðingja ERLENDAR BÆKUR Spennusaga „THE KILLING GAME“ Eftir Iris Johansen. Bantam Books 2000. 355 síður. IRIS Johansen heitir bandarískur spennusagnahöfundur sem oft situr í efstu sætum metsölulistanna vestra. Sögur hennar eru hæfilega spenn- andi lesning um leit að morðingjum, illskeyttum fjöldamorðingjum gjarn- an, með ástarsögulegu ívafi eins og nýjasta saga hennar, „The Killing Game“, ber með sér en hún kom fyrir skemmstu út í vasabroti hjá Bantham Books. Hún vii'kar stundum svolítið eins og Sidney Sheldon sé að skrifa Lömbin þagna en er hæfilega drungaleg og sorgleg í frásögn sinni af syrgjandi móður, sem leitar bama- morðingja. Andlitíleir Bækur Johansen hafa selst í meira en átta milljónum eintaka frá því hún skrifaði sína fyrstu bók, Ljóta and- arungann eða „The Ugly Duekling“, og má segja að hún sé einn af fremstu kvenkyns spennusagnahöfundum Bandaríkjanna ásamt Sue Grafton og Patricia Cornwell. Einkennandi fyrir bækm- þeirra er auðvitað að sögu- hetjurnar eru konur sem fást við hin skelfilegustu morð og eru þær fyrst og fremst góð tilbreyting frá ósigr- andi karlhetjum spennubókanna. Sögurnar virka persónulegri og til- finningaþrungnari. í tilfelli „The Killing Game“ er að- alsöguhetjan kona sem vinnur við að endmTnóta úr leir andlit hinna myrtu, m.a. eftir hauskúpum sem finnast Tónleikar á Sólon WILLIAM Ogmundsson, píanóleikari frá Bandaríkjunum, heldur tónleika á Sólon íslandus í kvöld, miðvikudagskvöld, kl. 21, ásamt Olafi Þorsteinssyni og Áma Bjömssyni. Leikin verður tónlist frá 5. 6. og 7. áratug ásamt frumsömdu efni. gi-afnar í jörðu. Með leirmyndum hennar er meiri möguleiki að gera sér grein fyiir hver fórnarlömbin era og það getur hjálpað lögreglunni við leitina að morðingjanum. Hún heitir Eve Duncan og það er ástæða fyrir því hvers vegna hún vinnur við leiiinn. Fyrir mörgum ár- um var dóttir hennar, Bonnie, myrt af fjöldamorðingja en líkið hefur aldrei fundist. Eve hefur síðan unnið með lögreglunni en aldrei jafnað sig á þvi sem gerðist, aldrei litið glaðan dag upp frá því; leirvinnan fyrir lög- regluna er ein leið hennar til þess að fást við sorgina og missinn. Tveir menn era áberandi í hennar lífi, hinn ofurríki Logan, sem er henni mjög innan handar í veraldlegum efnum, og lögreglumaðurinn knái, Joe, sem er sálusorgari hennar og líf- vörður. Sálfræðilegur spennutryllir Og hún þarf sannarlega á lífverði að halda. Nálægt bænum Talladega Falls í Georgíu verða aurskriður og það finnast níu hauskúpur á svæðinu, sem ljóst þykir að era af fómarlömb- um fjöldamorðingja. Ekki líður á löngu þar til morðinginn, sem kallar sig Dom, hefur samband við Eve Duncan og bytjar að kvelja hana með sögum um að hann viti hvar jarðnesk- ar leifar dóttur hennar er að finna; hann sjálfur sé morðingi hennar. Einnig segir hann henni að hann sé búinn að finna sér nýtt fórnarlamb, tíu ára gamla stelpu sem líkist dóttur Eve. Tekur Eve að sér að gæta stelp- unnar meðan hún leitar uppi slóð fjöldamorðingjans ásamt vinum sín- um. Einn af þeim er Sarah Patrick sem á leitarhundinn Monty en þau tvö munu vera aðalpersónurnar í næstu sögu Johansen, „The Search“ eða Leitinni. „The Killing Game“ er sálfræðileg- m- spennutryllir og þótt hann fjalli um ákaflega viðkvæmt mál eins og bamamorð misbýður Johansen aldrei lesandanum með efnistökum sínum. Helsti galli sögunnar er sá að lesandann hlýtur að grana of skjótt hver morðinginn er, einfaldlega vegna þess að það er ekki svo mörg- um grunsamlegum persónum til að dreifa. En „The Killing Game“ er ágæt sumarlesning fyrir þá sem hafa á annað borð áhuga á hinum vinsælu fjöldamorðingjasögum. Arnaldur Indriðason 0 J Hi M-2000 Miðvikudagur 19. júlí SIGLUFJÖRÐUR Þjóðlagahátíð Á Þjóölagahátíð, sem stendur til 23. júlí, hefst dagskráin í dag kl. 9 meö fyrir- lestrum í safnaöar- heimili Siglufjarðar- kirkju. Guömundur Andri Thorsson fjall- ar um rímnakveö- skap og rímnalög. Hallfreöur Örn Eiríks- son heldur fyrirlest- ursem nefnist Söfn- un rímnalaga vítt og breitt um ísland. Njáll Sigurðssonar fjallar um rímnalög og kvæðalög, þann flutning bundins máls sem kallast að kveöa. Um óslitna hefð kveöskapar til okkar daga, um kvæöamannafélög. Svend Nielsen frá Danmörku fjallar um nýjustu rannsóknir á rímnakveö- skap og rímnalögum. Kl. 20 veröur dagskrá í Nýja bíói: Rímur og þulur. Ása Ketilsdóttir, Bára Grímsdóttir, Njáll Sigurösson og SteindórAnd- eren kveöa. Þjóðlagahópurinn Embla kemur fram í Siglufjarðarkirkju kl. 21.30. Hann skipa Diddi fiðla, KK, Kristín Ólafs- dóttir, Bára Grímsdóttir. www.siglo.is/festival GRAND HÓTEL KL. 8. ,,The Extremes ofthe Extr- emes“. LokadagurAI- þjóðlegrar ráöstefnu á veg- um Vatnamælinga Orkustofnunar þar sem hamfaraflóö, eittmesta eyðingarafl náttúrunnar er í brennidepli. Ráóstefnan fer fram á ensku. www.os.is/vatnam/ extremes2000. BÆJARBÍÓ, UÓSAKLIF KL. 20:30 Butohdans Fremsti Butohdansari heims, Tad- ashi Endo, fremurgjörninginn ásamt Robin Von Hoegen, fjöllistamanni og hljóðfæraleikara. Dansinn veröur afturstiginn ÍBæjarbfói, Hafnarfiröi 21. júlí. í dag er einnig hægt aö fylgj- ast með japanska listamanninum Keizo Ushio viðgerö skúlptúrs síns í Ljósaklifi frá kl. 14-18. www.lightcliff-art.is. www.reykjavik2000.is, wap.olis.is. Tadashi Endo stígur dans. Norrænir höfundar þungamiðjan NORRÆNIR rithöfundar verða þungamiðjan á Bókastefnunni í Gautaborg dagana 14. til 17. sept- ember. Þema stefnunnar er einnig Lestrarhreyfingin, sem ætlar sér stóran hlut í framtíðinni. Sjónum er sérstaklega beint að lestri barna- og unglinga, m.a. með hand- bók með upplýsingum um slíkar bækur á norrænum málum. Þessu norræna þróunarverkefni, Lestrar- hreyfingunni, er ætlað að hvetja til lestrar. íslenskir höfundar áberandi Islenskir rithöfundar verða áberandi á stefnunni. Dagskrá verður með Thor Vilhjálmssyni þar sem einkum verður fjallað um skáldsögu hans, Morgunþulu í stráum. Jóhann Hjálmarsson og finnska skáldið Martin Enckell ræða sam- an en sá síðarnefndi hefur valið og þýtt úrval með ljóðum Jóhanns á sænsku. Fjórir íslenskir rithöfundar, Einar Már Guðmundsson, Hall- grímur Helgason, Kristín Ómars- dóttir og Steinunn Sigurðardóttir, ræða saman um þróun íslenskra bókmennta og hvað þau sjálf eru að fást við. Steinunn ræðir einnig við írska rithöfundinn Nuala O’Faolain. Einar Kárason spjallar við norska rithöfundinn Roy Jacobsen um nýja bók hans sem sækir efni til orustunnar um Stalíngrad. Kristín Birgisdóttir bókavörður er þátttakandi í umræðu um Lestr- arhreyfinguna, samvinnu bóka- safna á Norðurlöndum. Kristinn Jóhannesson lektor tekur til um- ræðu bækur fyrir yngstu lesendur, einkum íslenska. Gísli Sigurðsson íslenskufræðingur og Órnólfur Thorsson miðaldafræðingur sjá um dagskra um landafundi víkinga í Norður-Ameríku, einkum með Leif Eiríksson í huga. Fjölmargir erlendir rithöfundar og fræðimenn koma fram á Bóka- stefnunni í Gautaborg, en vegur stefnunnar hefur farið vaxandi á undanförnum árum. Meðal fulltrúa í stjórn stefnunn- ar, Bok & Bibliotek er Anna Einarsdóttir verslunarstjóri. KitchenAid Mjúk og góð í mnrgunsárid ... og fram á kvöld - beint úr bakaríinu okkar! Olíufélagið hf NESTI Gagnvegi, Stórahjalla og Artúnshöfða Draumavél heimilanna! Vegleg brúðargjöf! ísaumuð svunta með nöfnum og brúðkaupsdegi fylgir! 5 gerðir - margir litir 60 ára frábær reynsla. Einar Farestvert&Cohf Borgartúni 20 - s(mi 562 2901 og 562 2900 Notaðar búvélar á kostakjörum Mikil verðlækkun Mikið úrval j § i | Ingvar f 1; = ■ = Helgason hf. '■ _ = Sævarhöföa 2 - Sími 525 8000 - Beinn sími 525 8070 Fax: 587 9577- www.ih.is - Véladeild -E-mail: veladeild@ih.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.