Morgunblaðið - 19.07.2000, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
MIÐVIKUDAGUR 19. JÚLÍ 2000 25
Urval norrænna
barnabóka
BÆKUR
H a n d b ó k
„LÁSGLADJE I NORDEN“
- „Barn- och ungdomsböcker pá
átta sprák.“ Red. Thomas
Rönström. Nordiska Iitteratur-
och bibliotekskommittén.
NORDBOK, 2000 - 160 s.
NORRÆNA ráðherranefndin og
NORDBOK hafa gefið út handbók
sem geymir úrval norrænna barna-
bóka á öllum átta tungumálunum
sem töluð eru á Norðurlöndunum.
Fyrir utan þau fimm tungumál
sem venjulega er talað um í nor-
rænni samvinnu eru þarna líka
barna- og unglingabækur á fær-
eysku, grænlensku og á samísku.
Skráin er afrakstur þróunarverk-
efnis sem kallaðist „Ett lásande
Norden“ og var meginmarkmið
þess að beina kastljósinu að lestri
barna og unglinga og þeim mikla
fjársjóði sem finnst í barnabókum
þessara þjóða. Tilgangurinn með
þessari handbók er að hafa til taks
upplýsingar um efni sem getur
virkað lestrarhvetjandi og veitt
kennurum og foreldrum handhæga
skrá um hvað er til af bókum fyrir
börn á ýmsum aldri.
Formáli bókarinnar er á öllum
átta málunum og eru þær Sigríður
Matthíasdóttir á Selfossi og Krist-
ín Birgisdóttir í Mosfellsbæ ábyrg-
ar fyrir íslenska hlutanum. Síðan
koma skrár þar sem taldar eru upg
bækur á hverju máli fyrir sig. I
skránni er bókunum skipt upp eftir
aldri lesanda, 6-9 ára, 10-12 ára og
13-15 ára. Innan hvers aldurshóps
er bókunum raðað þannig að fyrst
koma bækur á frummáli, þá koma
bækur sem þýddar hafa verið af
öðrum norrænum tungum og loks
er úrval erlendra bóka sem komið
hafa út á viðkomandi máli. Fljótt
álitið virðist mér að bækurnar í
skránni séu allar nýlegar og aðeins
örfáar eldri en 10 ára, en þó eru
þær valdar út frá því sjónarmiði að
þær séu skemmtilegar og hvetj-
andi og að allir geti haft gaman af
að kynna sér þær. Með hverri bók
fylgir stutt umsögn á frummálinu,
en íslensku bækurnar fá líka um-
sögn á sænsku, og finnsku bókun-
um er skipt í tvennt þar sem ann-
ars vegar eru bækur skrifaðar á
finnsku og hins vegar á sænsku.
Pað sem vakti athygli mína sér-
staklega hvað varðar þýðingarnar
er hversu lítið er af norrænum
bókum sem þýddar hafa verið á ís-
lensku fyrir aldurshópinn 13-15
ára þar sem norrænar bókmenntir
eru verulega auðugar. Það sem
skráð er og þýtt af öðrum tungum
á íslensku er líka heldur fátæklegt.
Ritið sjálft er fallegt og mikið
myndskreytt og myndir úr barna-
bókunum sjálfum hafa verið notað-
ar til að skreyta ritið. Ritið er vel
aðgengilegt og með höfundalykli
þar sem sjá má hverja bók og þau
mál sem hún hefur verið þýdd á.
Þótt aðaltilgangurinn með út-
gáfu þessarar handbókar sé að
hvetja til lestrar held ég að ekki
síður gætu bókaútgefendur nýtt
sér þetta verk og fengið hér yfirlit
yfir hvað er eftirsóknarverðra
bóka á markaði á hinum Norður-
löndunum.
Sigrún Klara Hannesdóttir
Ökindur
á atómöld
BÆKUR
S j 6 n v a r p s m y n d
LEYNDARDÓMAR
ÍSLENSKRA SKRÍMSLA
Leiksljóri: Kári G. Schram. Hand-
ritshöfundur: Kári G. Schram og
Þorvaldur Friðriksson. Tónskáld:
Jóhann Jóhannsson. Kvikmynda-
taka: Ægir Guðmundsson, Kári G.
Schram, Guðmundur Bjartmars-
son. Klipping: Þuríður Einarsdótt-
ir. Framleiðandi Andrá/RÚV.
Árgerð 2000.
ÞVÍ miður er fólk sjaldnast með
myndavélar á lofti, því síður kvik-
myndatökuvélar, þegar yfirnátt-
úrlegir hlutir birtast þeim. Eða,
öllu frekar, sem betur fer. Tilveran
væri ólíkt gi'ámuskulegri ef engin
væri dulúðin. Annars kemur fram í
„Leyndardómum íslenskra
skrímsla", nýju heimildarmyndinni
hans Kára G. Schram, að áhöld eru
um hvort nykrar, fjörulallar, ormar
og önnur alkunn vatnaskrímsli úr
íslenskum sagnaheimi eru yfirskil-
vitleg eða ekki. Örnólfur Thorlacius
bendir á að með tilkomu nýrri og
fullkomnari tækni eigi sjálfsagt eft-
ir að finnast tegundir sem þá verða
ekki lengur „yfirnáttúrleg fyrir-
brigði“, heldur þekktur hluti af um-
hverfinu.
Sögur af kynjaverum í sjó og
vötnum eru algengar í öllum lands-
hlutum og eðlilegur þáttur í
reynsluheimi eldra fólks fram yfir
miðja öldina. Sagnirnar lifa enn
góðu lífi og sífellt bætist við, og
margir trúa og vilja trúa á tilvist
slíkra fyrirbrigða. Einn þeirra er
Þorvaldur Friðriksson. Hann hefur
safnað saman slíkum sögum um
landið, og þeir Kári leiða okkur á
fund sögumanna, einkum við Arnar-
fjörð, Breiðafjörð, Lagarfljót og
Kleifarvatn. Margar mergjaðar lýs-
ingar innanum af upplifun manna á
óútskýranlegum atburðum. Einna
svæsnust var lýsingin á eyðilegg-
ingu sæsímakapalsins í Lagarfljóti
sem viðmælandi Kára varð vitni að
fyrir fáeinum árum. Engin þjóðtrú á
ferðinni eða hvikular sögur heldur
áþreifanlegar staðreyndir. Kári
ræðir jafnan við sjónarvotta og slík
viðtöl gefa myndinni gildi, taka við
af sagnariturum fyrri tíma og sýna
að á atómöld eiga vísindin eftir mik-
ið ónumið land, rétt við bæjardyrn-
ar.
Til skamms tíma hefur nútíma-
maðurinn litið á tilvist óþekktra lag-
ardýi'a sem hindurvitni eða hrein-
ræktaðan uppspuna. Frásögur
manna einsog Sigurðar Blöndal,
fyrrum skógræktarstjóra á Hall-
ormsstað, og markviss heimilda-
söfnun á borð við myndina hans
Kára breyta öragglega afstöðu
margra, því flest erum við því marki
brennd að þurfa að snerta hlutina til
að sannfærast. Kári er því að vinna
merkt starf og nauðsynlegt og gerir
það á viðunandi hátt þótt það komi
fullvel í ljós að ekki hefur verið mul-
ið undir hann við kvikmyndagerð-
ina. Við eigum mýmargar sögur til
viðbótar og er vonandi að Kári fái
rýmra fjármagn í áframhaldandi
vinnu í þessum geira. Til stendur að
Hal Hartley, sá ágæti kvikmynda-
gerðarmaður, geri næstu mynd sína
hér á landi og þar komi skrímsli við
sögu. Slíkt ætti að ýta enn frekar
undir almennan áhuga á þessu hálf-
gleymda, heillandi tilbrigði við
hljómkviðu náttúrunnar.
Sæbjörn Valdimarsson
Hluthafafundur
9
Landsbanka Islands hf.
r
Hluthafafundur Landsbanka Islands hf. veröur haldinn á Grand Hótel
Reykjavík, Sigtúni 38, miövikudaginn 26. júlí 2000 og hefst kl. 14:00.
Dagskrá: 1. Tillaga bankaráðs um hækkun hlutafjár um kr. 345.703.621,- með útgáfu nýrra hluta.
Tillagan gerir ráð fyrir að hluthafar í Landsbanka íslands hf. falli frá forgangsrétti
sínum, samkvæmt 1. mgr. 34. gr. laga nr. 2/1995, um hlutafélög, til að skrá sig fyrir
hinum nýju hlutum en veiti Philadelphia International Equities inc. forgangsrétt til
að skrá sig fyrir hinum nýju hlutum. Einnig er lagt til að áskrifanda sé veitt heimild
til aö greiða fyrir hina nýju hluti með hlutum í The Heritable And General Investment
Bank Ltd. Tillagan felur í sér breytingu á 4. gr. samþykkta bankans.
2. Önnur mál.
Dagskrá, endanlegar tillögur, greinargerð bankaráðs, sérfræðiskýrsla, eftirrit reikninga síðasta
reikningsárs, skýrsla bankaráðs um þau atriöi sem verulegu máli skipta um fjárhagslega stöðu
bankans og breytingum hafa tekið eftir aö reikningar voru gerðir ásamt umsögn endurskoðenda um
fýrrgreinda skýrslu stjórnar munu liggja frammi á skrifstofu bankans, aö Laugavegi 77, Reykjavík,
hluthöfum til sýnis sjö dögum fyrir hluthafafund.
Aögöngumiðar að fundinum verða afhentir hluthöfum og umboðsmönnum hluthafa á skrifstofu
Landsbankans að Laugavegi 77, Reykjavík dagana 24. og 25. júlí. Atkvæöaseðlar og önnur fundargögn
verða afhent við upphaf fundarins.
Bankaráð Landsbanka íslands hf.
l§róttir á Netinu