Morgunblaðið - 19.07.2000, Side 39

Morgunblaðið - 19.07.2000, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. JÚLÍ 2000 39 MINNINGAR HULDA PÁLSDÓTTIR + Hulda Pálsdóttir fæddist í Vest- mannaeyjum 5. júlí 1934. Hún lést á Landspítalanum í Fossvogp 9. júlí síð- astliðinn og fór útfbr hennar fram frá Bústaðakirkju 14. júlí. Elsku Hulda. Marg- ar góðar minningar rifjast upp í huga mér, núna þegar ég fer að hugsa til baka, allt frá því að kynni okkar hóf- ust sumarið 1987 er þú og Gulli þinn fluttuð í Engjaselið. Við urðum strax góðir vinir og hélst sú vinátta eftir að ég fluttist úr Engjaselinu. Það kom mjög á óvart að frétta að Hulda væri dáin, ég vissi reyndar að hún hafði verið eitthvað lasin. Hún vildi sem minnst úr því gera, en aldrei vantaði hana í vinnu og ég veit að hún átti mjög erfitt með að segja nei þegar hún var beðin að vinna aukavinnu. Hulda talaði mikið um fjölskyldu sína og bar mikla umhyggju fvTÍr öllu sínu fólki, og sérstakt samband var á milli þeirra systkinanna. Það var gott að eiga Huldu fyrir vin, og þau hjónin Hulda og Gulli sýndu syni mínum Þorsteini Lár alveg sérstaka hlýju. Hulda varð fyrir miklum missi ár- ið 1992 er hún missti Gulla, en á sama sólarhring fæddi ég annan son minn. Hulda gladdist með mér og sagði mér að hún hefði getað sagt Gulla frá fæðingu sonar míns. Margs er að minnast og ég á eftir að sakna þess að geta ekki hitt þig og við spjallað saman eins og við gerð- um svo oft. Ég og fjölskylda mín þökkum Huldu fyrir samfylgdina gegnum ár- in og sérstök kveðja er frá Þorsteini Lár, sem staddur er í Svíþjóð. Sendum fjölskyldu Huldu samúð- arkveðju. Bryndís Þorsteinsdóttir og fjölskylda. Mig setti hljóða - mjög hljóða, þegar systir mín í Vestmannaeyjum hringdi til mín sunnudaginn 9. júlí sl. og sagði mér að hún Hulda Pálsdótt- ir, vinkona mín, væri dáin. Maður skilur ekki alltaf þetta líf. Og þar sem ég sat og hugsaði til baka var nú margt sem kom upp í hugann. Við Hulda áttum saman mörg ævintýrin ef svo má að orði komast, ævintýri bæði hérlendis og erlendis, sem ekki verða rifjuð upp hér og nú. ^“ffiBi SÖLSTEJNAR vlð Nýbýlaveg, Kópavogi Sími 564 4566 Blómabúðin öa^ðskom v/ PossvogsUirkjugarð Síml, 554 0500 Við Hulda erum báð- ar innfæddir Vest- mannaeyingar og erum stoltar af því. Það var hún Hulda og það er ég, og við þekktumst frá bamsaldri. Hulda var áttunda í röðinni af stórum systkinahópi. Hún var dóttir hjónanna Þór- stínu og Páls í Þing- holti í Vestmannaeyj- um. Við Hulda vorum ekki bara vinkonur heldur tengdar líka á þrjá vegu. Elsta dóttir mín og bróð- ursonur Huldu voru gift og eiga sam- an einn son, sonur minn og systur- dóttir Huldu eiga saman einn son og svo síðast en ekki síst þó er einka- sonur Huldu kvæntur frænku minni. Hulda var bæði afasystir og ömmu- systir tveggja ömmudrengja minna og tengdamóðir frænku minnar. Minningarnar hrannast upp núna, Hulda mín, en það er svo langt síðan við hittumst síðast og það var í Vest- mannaeyjum og við skoðuðum mikið af myndum og rifjuðum upp ýmis- legt og var hlegið mikið og talað langt fram á nótt. Eg man ennþá fermingardaginn hennar Stínu systur þinnar, við Stína erum fermingarsystur nema ég var fermd daginn á undan henni, svo ég kom í Þingholt í fermingarveisluna hennar og mikið man ég vel, ekki bara þennan þennan dag heldur ótal aðrar stundir í Þingholti. Þar var ætíð svo gaman og hláturinn hafður í fyrirrúmi, öll voruð þið svo glöð og hress, allur þessi barnahópur var svo samtaka um allt, og ég bara man ekki eftir að upplifa annað en glað- værð og ánægju í Þingholti. Og þetta góða skap og hressleikinn var og er ykkar veganesti út í lífið. Það var alltaf svo gott að skreppa yfír til þín í gamla daga, það hressti mig ætíð. Hulda mín, einhvern veg- inn töpuðum við hvor af annarri, sennilega þegar ég fluttist austur til Seyðisfjarðar. Leiðir okkar lágu ekki saman eftir það, sem neinu nemur. En síðast þegar ég hitti þig varstu sama glaðværa vinkonan og það geislaði frá þér hlýjan og vináttuþel- ið sem áður. Hér á Seyðisfirði kynnt- ist ég bróður þínum, hans konu og börnunum þeirra og hjá þeim er sama fína skapið og glaðværðin og var hjá þér og var á æskuheimili ykkar í Þingholti. Og alltaf þegar ég hitti einhverja af frændum þínum sjómönnunum, sem koma hingað á Seyðisfjörð, finnst mér ég eiga dálít- ið í þeim. Að lokum vil ég biðja góðan Guð að blessa son þinn og hans fjöl- skyldu, stjúpson þinn og hans fjöl- skyldu og alla vandamenn og vini. Og Guð varðveiti þig og leiði, Hulda mín, og með ljóði við eitt af okkar uppá- haldsþjóðhátíðarlögum kveð ég þig með söknuði og trega. Ég veit þú kemur í kvöld til mín þó kveðjan væri stutt í gær, égtrúiektíáorðinþín ef annað segja stjömur tvær. Og þá mun allt verða eins og var sko áður en þú veist, þú veist, og þetta eina sem útaf bar okkar á milli í friði leyst. Og seinna þegar tunglið hefur tölt um langanveg þá tölum við um drauminn sem við elskumþúogég. Þín vinkona, Guðrún Andersen, Seyðisfirði. t Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, HILMAR HALLVARÐSSON vélfræðingur, Aratúni 3, Garðabæ, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstu- daginn 21. júll kl. 13.30. Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Landssamband hjartasjúklinga. Hafdís G. Ólafsdóttir, Sigrún Hilmarsdóttir, Benidikt Viggó Högnason, Heiga Hilmarsdóttir, Máni Ásgeirsson, Birgitta Hilmarsdóttir og barnabörn. t Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, ÁRNI HERBERG KETILL SKÚLASON, Engimýri 6, Akureyri, lést laugardaginn 15. júlí. Útför hans fer fram frá Akureyrarkirkju mánu- daginn 24. júlí kl. 13.30. Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á dvalarheimilið Hlíð eða líknarfélög. Laufey Þorsteinsdóttir, Þorsteinn Veigar Árnason, Eva Ásmundsdóttir, Skúli Rúnar Árnason, Arna Jakobína Björnsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Sérfræðingar í blómaskreytingum við öll tækifæri Skólavörðustíg 12, á horni Bergstaðastrætis, sími 551 9090. Við fráfall og útför KRISTfNAR STEFÁNSDÓTTUR, Dalbæ, Dalvík, þökkum við af alhug þeim fjölmörgu, sem sýndu minningu hennar virðingu og fjölskyldu hennar samúð og hlýhug. Guð blessi ykkur öll. Arnar Sigtýsson, Málfríður Torfadóttir, Sævar Sigtýsson, Sigríður G. Torfadóttir og fjölskyldur, t Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og bróðir og mágur, ÞRÖSTUR PÉTURSSON, Furugerði 15, Reykjavfk, verður jarösunginn frá Fossvogskirkju föstu- daginn 21. júlí kl. 15.00. Drífa Björg Marinósdóttir, Guðrún Margrét Þrastardóttir, Halldór Pétur Þrastarson, Margrét Pálsdóttir, Anna Kaja Þrastardóttir, Edwin Karl Benediktsson, ívar Örn Þrastarson, Unnur María Þorbergsdóttir, Þröstur Már Þrastarson, Ægir Pétursson, Brynhildur Pétursdóttir, og afastelpurnar Eva Björk, Andrea Diljá, Sunneva, Sara, Heiða Rut, Halldóra Líf og Karítas Björg. + Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, ÁSTA MARGRÉT AGNARSDÓTTIR frá Heiði, Víðgrund 16, Sauðárkróki, verður jarðsungin frá Sauðárkrókskirkju laugardaginn 22. júlí kl. 11.00. Marsibil Hólm Agnarsdóttir, Agnar Búi Agnarsson, Jóhannes Agnarsson, Benedikt Agnarsson, Magnús Agnarsson, Ásta Margrét Agnarsdóttir, Ingibjörg Agnarsdóttir Anna Snæbjört Agnarsdóttir, Páll Þórir Pálsson, Sigurður Heiðar Agnarsson, Sigurbjörg Sigurðardóttir, Jón Eiríksson og ömmubörn. Kristfn Reginbaldursdóttir, Hrafnhildur Pedersen, Marfa Angantýsdóttir, Guðlaug Einarsdóttir, Gunnar Magnússon, Hjartkær systir mín, BERGLJÓT JÓNA GUÐNÝ SVEINSDÓTTIR, Dalbraut 18, Reykjavík, sem lést á Landakotsspítala þriðjudaginn 11. júlí sl., verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í Reykjavík fimmtudaginn 20. júlí kl. 13.30. Fyrir hönd aðstandenda, Jónína Margrét Sveinsdóttir. + Móðir okkar og tengdamóðir, SIGRÍÐUR BRYNJÓLFSDÓTTIR, Skúlagötu 64, Reykjavík, verður jarðsungin frá Háteigskirkju föstu- daginn 21. júlí kl. 13.30. Þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á líknarstofnanir. Hörður Harðarson, Guðný Guðnadóttir, Brynja Áslaug Sigurðardóttir, Árni Friðriksson. + Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý- hug við andlát og útför móður okkar, tengda- móður, ömmu og langömmu, GUÐRÚNAR TÓMASDÓTTUR, Efstaleiti 12, Reykjavík. Halldóra Þorvaldsdóttir, Magni Guðmundsson, Guðrún Þorvaldsdóttir, Magnús Siguroddsson, Þorsteinn Þorvaldsson, Þorbjörg Valdimarsdóttir, Tómas Þorvaldsson, Helga Norland, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.