Morgunblaðið - 19.07.2000, Qupperneq 53

Morgunblaðið - 19.07.2000, Qupperneq 53
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. JÚLÍ 2000 53 ■sWiUAv.I a^.ajJxa ■simjíávj f S1 _________ _ . . .. EINAIÍÓ1Ð MEÐ KRI NGLULili # KHSI FYRIR 990 PUIIKTA FERÐU i BÍÚ Kringlunni 4-6, sittn 5UB 0800 Sýnd kl. 3.45, 5.50, 8 og 10.10. b. í. 12. Vit nr. 102 ■nxGn’AL Sýnd kl. 3.45. Vit nr. 14 § Kaupið miða í gegnum VITið. Nánari upplýsingar á vit.is ■SWrUAxti j8*Maiixa .'CW:u10v,.j AiMai FYRIR 990 PUNKTA FERÐU í BÍÓ BÍCECEG R£ONHOCriNN I tpaip., a MMmÉ ^ Jnk Þessi frábæra hasarmynd Bruckheimers fór beint í toppsætió um síóustu helgi í Bandarikjunum. Stærsta opnun fyrir Nic Cage. Fyrsta alvöru þrusumynd sumarsins. Fyrsta frumsýning í Evrópu KVIKMYfJIHk IS Óft HAUSVf RK IS Sýnd kl. 5.50,8 og 10.10. a i. 12. Vit nc 102 m\mm ■«u»8t Sýnd kl. 10.20. Mlffi Sýnd kl. 6,8 og 10. sitar wu. Sýnd kl. 6. Isl. tal Julia __ v Roberts Erin1 BrocKovich Sýnd kl.8. ívfý Kaupið miða í gegnum VITið. Nánari upplýsingar á vit.is X-men á netinu: www.skifan.is/x-men Bænarorð læknis George Best til breskra barþjóna_____________________|| Leikkonan Thandic Newton gagnrýnírfordoma i Hollywood Meinið honum um mjöðinn ÞAÐ VAKTI mikla athygli í Bretlandi um helgina þeg- ar læknir knattspyrnugoðsagnarinnar og drykkjurúts- ins alræmda George Best biðlaði til allra breskra bar- þjóna að þeir neituðu að selja honum áfengi. Læknirinn umhyggjusami greip til þessa neyðarúrræðis í kjölfar þess að Best var hirtur upp úr stræti Lundúnaborgar meðvitundarlaus vegna ofneyslu áfengra drykkja. Nú hefur læknirinn varað skjólstæðing sinn við því að ef hann hætti ekki þegar í stað að smakka það muni hann hljóta verra af - jafnvel horfast í augu við manninn með ljáinn því heilsan sé þegar farin að bresta. Ekki fylgir sögunni farið sé að reyna á barþjónana bresku - hvort þeir hafi orðið við bón læknisins - en Best kveðst vera kominn á rétta sporið enn á ný. Hann hvarf af landi brott í kjölfar nýjasta fallsins og hélt í stutt frí í því skyni að safna kröftum og endumýja lík- ama og sál. Einhverjum þykir þó griðastaðurinn sem Best valdi fremur gmggugur því hann dvelur nú á Costa del Sol, nánar til tekið í Puerto Banus en sá stað- Breska blaðið The Sun birti í fyrradag þessa bón til breskra barþjóna. ur er hvað frægastur fyrir það hversu marga bari er þar að finna eða að minnsta kosti fímm hundruð tals- ins. Breska slúðurblaðið The Sun veltir því mikið fyrir sér hvað Best sé eiginlega að hugsa að fara þangað í því andlega ástandi sem hann virðist vera og telur hann æði brattan að ætla sér að standast slika freist- ingu. Robbie gefur sig allan FYRIR þá aðdáendur ókurteisa poppprinsins Robbie Williams sem vildu helst eiga einhvern hluta af goðinu er alls ekkert ólíklegt að pilturinn sé reiðubúinn að gefa sig allan. Það er að minnsta kosti það sem pilturinn gerir í nýjasta myndbandi sínu „Rock Dj“. Þar stendur hann í miðju hjólaskauta- svæðis og reynir að fanga athygli hers táningsfyrirsætna með dansi og látalátum án árangurs. Þetta reynist honum erfiður biti að kyngja þannig að pilturinn bregður til sinna ráða og byrjar að klæða sig úr fötunum. Robbie stendur loks nakinn en fyrirsætuherinn er enn ósnortinn. En enginn verður óbar- inn biskup og Robbie lætur ekki þar við sitja heldur byrjar að klæða sig Úr skinninu og tekur svo að kasta innyflum sínum til stelpuskarans og nú er engu líkara en að kiknandi hnjáliðir hersins slái í samhljóma takti. Stelpurnar hafa mikla lyst á því sem Robbie hefur upp á að bjóða og strjúka jafnvel innyflunum hans við varir sínar og kinnar. Oftar en ekki er kvikmyndatökuvélinni beint að fyrirsætunni Elizabeth Jagger, fjórtán ára dóttur „vara“-söngvar- ans Mick Jagger og fyrirsætunar Jerry Hall, sem sleikir út um við at- hæfið. Það kom því fáum á óvart að myndbandið var bannað til dags- sýningar á sjónvarpsstöðvum BBC. Fyrir þá sem hafa velt undarlegri hegðun piltsins í Laugardalshöll- inni fyrir sér þá gæti ástæðan fyrir látalátunum verið sviðskrekkur. í nýlegu viðtali við piltinn var hann nefnilega spurður hvernig tilfinning það væri að stíga upp á svið. „Stundum er það eins og að ganga inn í óttann,“ svaraði Robbie. „Þetta er eins og fara í fyrsta fall- hlífarstökkið með leiðbeinanda sem er kálhaus. Ég er leiðbeinandinn og neminn og veit engan veginn hvort fallhlífin opnist eða ekki.“ Væntanleg breiðskífa Robbie Williams mun bera nafnið „Sing When Your Winning“, en hún kem- ur í búðir 28. ágúst næstkomandi. Burt með ljóskurnar HIN GULLFALLEGA Thandie Newton, sem Tom Cruise dregur á tálar í tryllinum Mission Impossible-II þessa dagana, hefur skorað á kvikmyndaleikstjóra Hollywood að gefa fólki af ólíkum þjóðaruppruna tækifæri innan kvikmyndannna. Thandie, sem er sjálf dóttir af- rískrar prinsessu og bresks föður, segir að glysborgin verði að víkka sjóndeildarhringinn í leikaravali til að útrýma kynþáttafordómum sem hún hefur sjálf eins og svo margir aðrir þurft að finna fyrir. „Þeir sem velja í hlutverk verða að taka áhættu og þá munu þeir komast að því að áhættan er ekki einu sinni fyrir hendi. En það er enn einhver smánarblettur fyrir hendi og hann tengist algjörlega neysluaukningarstefnu og pening- um og hvort fjöldinn vill sjá ein- hvern sem er ekki Ijóshærður." Thandie ólst upp í Lukasa í Sambíu þar til hún varð 11 ára og þá flutti fjölskyldan til Englands. Þar segpr Thandie að húðlitur hennar hafi vakið athygli en aldrei úlfúð og það var ekki fyrr en á tökustað kvikmyndarinnar Flirting sem hún fann í fyrsta sinn fyrir fordómum. Þar lék hún eina þeldökka nemandann í stúlkna- skóia og var lögð í einelti fyrir vikið. Thandie segir það skamm- arlegt að segja frá að einu hlut- verkin sem svörtum ieikkonum í Hollywood eru boðin eru hlutverk ambátta hvíta mannsins og það verði nú einhæft til lengdar. í MI- II leikur Thandie aðalkvenhlut- verkið en það var ekki fyrr en eft- ir að æskuvinkona hennar og eig- inkona Cruise, Nicole Kidman, hafði beitt þrýstingi á aðstandend- ur myndarinnar að hlutverkið var hennar en ekki einhverrar banda- rísku akurdrottningarinnar. Halle Berry, stjarnan úr hetju- myndinni X-menn, hefur tekið é fkf m. * ▼ Tom Cruise og Thandie Newton mæta til frumsýningar á M:l-2. undir þessi ummæli og segir ríkj- andi kynþáttafordóma í borginni ^ vera fyrir neðan allar heliur og breytinga sé vissulega þörf. - o ELLINGSEN Grandagaröi2 | Reykjavík | sími 580 8500 --------------1----------1

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.