Morgunblaðið - 17.08.2000, Qupperneq 8
8 FIMMTUDAGUR 17. ÁGÚST 2000
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Raforka úr efnarafölum
Ein eining
efnarafals
EFNARAFALL
Róteindaskiptahimna (PEM)
á milli skautanna
Flæðisplata Skaut
Flæðisplata
Vatns-
gufa út
Loft inn
I 6
! i
; i
JLm
í MORGUNBLAÐINU síðastliðinn
fostudag var grein um smárafala,
sem eru nýjung á raforkumarkaðn-
um. Það var nefnt að hvað mestar
tækniframfarir hafi átt sér stað á
sviði efnarafala. Leiðandi tegund
efnarafala í dag er svonefndur PEM-
rafall, sem nýtir vetni sem eldsneyti.
PEM-efnarafallinn er í grundvall-
aratriðum samsettur úr tveimur
skautum, forskauti og bakskauti.
Önnur hlið skautanna er klædd
þunnu platínum-lagi, sem virkar sem
hvati til að brjóta vetnið niður í
frjálsar róteindir og rafeindir. Á milli
skautanna er rafvaki eða himna, sem
kallast Proton Exchange Membrane
(PEM) eða róteindaskipta-himna,
þar eð róteindir vetnisins fara í
gegnum hana frá forskautinu yfir í
bakskautið. Utan á hvoru skauti fyr-
ir sig er síðan flæðisplata, sem vetni
og lofti er veitt um.
Efnaferlinu, sem á sér stað, (sjá
mynd) má í einfóldu máli lýsa þann-
ig, að vetni er veitt að forskauti raf-
alsins um rásir í flæðisplötu. Þar
veldur platínumhvatinn því, að vetn-
ið leysist upp í ftjálsar rafeindir og
róteindir. Hinum megin við róteinda-
skipta-himnuna streymir loft að bak-
skautinu um rásir í flæðisplötu og
súrefni í loftinu dregur til sín vetnis-
róteindimar í gegnum himnuna.
Rafeindimar mynda hins vegar raf-
straum með því að þeim er stýrt í ut-
análiggjandi rafrás og tengjast þær
síðan róteindunum og súrefninu við
bakskautið svo úr verður vatnsgufa,
sem er eina úrgangsefni þessarar
tegundar orkuframleiðslu.
Hver einstök eining efnarafalsins
framleiðir 0,6 volt af rafmagni. Ein-
ingunum er síðan raðað saman í
stafla og fer fjöldi eininganna eftir
því hversu mikla orku á að framleiða.
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
Þakið á fjárhúsinu málað
AÐ MÖRGU þarf að hugaþegar i
landsmenn í sveit og bæ. A bænui
- veðurblíðan leikur við
t og öæ. A bænum Grafarbakka í
Hrunamannahreppi voru feðgarnir Eiríkur Kristófers-
son og Kristinn Eiríksson uppteknir á dögunum við að
mála þakið á fjárhúsinu fagurblátt, til sóma fyrir kind-
umar sem teknar verða á hús eftir göngur í haust.
URKLÆÐNING
Kynntu þér ELGO múrklæðningu
'r™X?97?* áður en þú ákveður annað
ELGO múrklæðningin er létt og sterk, sem fegrar, uer og einangrar
Á verði við allra hæfi
itar á nýtt og eldra hús
Varist eftirlýkingar
Leitið tilboða!
■■
■I steinprýði
Stangarhyl 7 — Pósthólf 10058 — 130 Reykjavík
Simi 567 2777 — Fax 567 2718
Ráðhús Ölfuss, Þorlákshöfn
ELGO MÚRKLÆÐIMIIMGIIU hefur verið undir eftirlíti
RB síðastliðin 9 ár og hefur farið í gegnum
ýmsar prófanir, svo sem IMORDEST IMT Build
GG, og staðist þær allar. ELGO
MURKLÆÐIMINGIIM var tekin út af
Birni Marteinssyni, verkfræðingi
hjá RB, ÁN ATHUGASEMDA.
Flest ELGO efnin hafa
verið prófuð hjá RB
Okukennsla og aukin réttindi
Enginn einn
þáttur er
lausnarorðið
Guðbrandur Bogason
MIKIL umræða hef-
ur verið að undan-
fömu um umferð-
armál og slys þeim tengd,
ekki síst á vegum úti. I því
sambandi hefur verið rætt
um ökukennslu og öryggi
farþega í stórum biíreiðum.
Guðbrandur Bogason er
formaður ökukennarafé-
lags Islands.
„Við skulum byrja á að
ræða um kennslu til al-
mennra réttinda. Hvað þá
grein ökukennslu snertir
þá tóku gildi veralegar
breytingar í febrúar sl. í þá
vem að gefin var út ný
námskrá til almennra öku-
réttinda. Helstu breytingar
era þær að greina betur að
námsþættina og vægi
þeirra. Meginmarkmið
námsins er að neminn tileinki sér
það viðhorf og þá þekkingu og
fæmi sem nauðsynleg er til að
hann aki með sem mestu öryggi,
með fullri fyrirhyggju og íramsýni,
með fullu tilliti til öryggis og heilsu
annarra og umhverfisins, í sam-
ræmi við íyrirmæli umferðarlaga,
reglugerða og annarra íyrirmæla
sem sett eru um akstur og umferð.
Þama er verið að draga fram hinn
huglæga þátt miklu betur en verið
hefur.“
- Ertu farínn að sjá þetta skila
sérí akstrí ungs fólks sem þú kenn-
ir?
„Eg get ekki fullyrt það, en ég
hef trú á að þessar áherslubreyt-
ingar muni skila sér þegar til lengri
tíma er litið.“
- Finnur þú mun á fæmi fólks
eftír aldri þess þegar það hefur
akstursnám'!
„Munurinn er að töluverðu leyti
einstaklingsbundinn en samt finn
ég fýrir því að 18 ára unglingur er í
fleiri tilvikum betur undir það
búinn að takast á við þetta verkefni
en 17 ára unglingur. Vemlegan
mun finn ég svo ef ég kenni fólki
sem komið er um tvítugt. Það er þá
rólegra og nálgast verkefnið af
rneiri ábyrgðartilfinningu.“
- Hvaða aldur telur þú réttan tii
að fólk fái almenri ökuréttíndi?
„Öll Evrópa, að undanskildu
Bretlandi sem enn ekur á vinstri
kantinum, er með 18 ára ökuleyfis-
aldur.“
- Er ökukermslan með þessum
nýju breytingum orðin fullnægj-
andi?
„Það má alltaf bæta. T.d. skortir
á að hægt sé að kenna ákveðna
þætti aksturstækni hér á landi,
sem lúta að því að ökumaðurinn
geti sýnt rétt viðbrögð á neyðar-
stundu. Þetta er þegar viðnám
milli hjólbarða og vegaryfirborðs
brestur, hvort sem það er vegna ís-
ingar, bleytuhálku eða á lausamöl.
Væri slík aðstaða fyrir hendi þyrfti
að sjálfsögðu að setja reglur um að
þetta væri skylduþáttur í öku-
kennslu. Þetta er það brýnasta
núna og snertir tækn-
ina.“
- Hvað með nám til
aukinna ökuréttinda
(meirapróf)?
„Árið 1993 urðu
breytingar á því námi.
Þá var gefin út ný nám-
skrá og náminu skipt
upp í greinar. Síðan þá
er tekið sérstaklega
leigubflapróf, vömbflapróf, hóp-
bifreiðapróf og árið 1997 komu sér-
stakar reglur um eftirvagna, svo-
kallaða „treilera" sem eiga í raun
við alla vagna sem dregnir em af
öðm ökutæki."
► Guðbrandur Bogason fæddist í
Reykjavík 6. júní 1943. Hann
lauk prófi í vélvirkjun frá Iðn-
skólanum í Reylgavík 1963 og
ökukennaraprófi 1969. Hann
starfaði um árabil sem slökkvi-
liðs- og sjúkraflutningamaður og
tók nám sem því fylgdi. Jafnhliða
sinnti hann ökukennarastarfi um
langt skeið, en hann hefur verið
ökukennari frá 1970 og er nú
formaður Okukennarafélags ís-
lands. Hann er kvæntur Svandísi
Valsdóttur verslunarmanni og
eiga þau þijá syni.
- Er öryggis nægilega vel gætt í
meðferð þessara stærrí ökutækja
ogkennslu á þau?
„Því miður hafa undanfarið orðið
óeðlilega mörg slys og óhöpp þar
sem stór ökutæki eiga hlut að máli.
Stjómendur þeirra eru í flestum
tflvikum með aukin ökuréttindi og
allnokkra akstursreynslu. Það er
því áhyggjuefni að svona skuli hafa
farið. Það kallar á umhugsun um að
hvað stómm hluta orsakavaldurinn
er nám, þekking og fæmi öku-
mannsins eða aðrir hlutir.“
-Er athugað hvað mikilli
reynslu þeir búa yfír sem aka t.d.
hópbifreiðum á erfíðum leiðuml
„Eg veit það ekki, en hver vinnu-
veitandi þarf að ganga úr skugga
um fæmi sinna starfsmanna. Menn
geta haft réttindi til hópbifreiða-
aksturs sem þeir hafa ekki notað
og vilja svo löngu seinna fara að
nýta í starfi. Þá er það hlutverk út-
gerðaraðila bílsins að ganga úr
skugga um að maðurinn sé fær tii
þess starfs sem hann er ráðinn til.“
- Flugmenn ganga undir reglu-
legar læknisskoðanir og færrúsat-
huganir, er eitthvað slíkt íyrir
hendi fyrir ökumenn hópbifreiða
t.d.?
„Eg veit ekki til að það sé með
skipulögðum hætti gerð athugun á
heilsu þessara manna eða gerðar
til þeirra símenntunarkröfur. Má í
því sambandi horfa til aðila sem
em að annast farþegaflutninga svo
sem með flugvélum og
skipum. Ef við tölum
um þetta almennt þá er
kjami málsins kannski
viðhorfið til ökutælg-
anna og ökumannanna.
Era gerðar nægilegar
kröfur um heildarskoð-
un þessa, ekki bara í
menntun heldur ástandi
almennt og eftirliti?
Verst er að ýmissa orsaka vegna
skortir menn stundum dómgreind
og fæmi vegna t.d. sjúkdóma og
lyfjaneyslu fyrir utan ölvun. Enginn
einn þáttur er þó lausnarorð, það
þarf að skoða alla þætti málsins."
Stundum
skortir menn
dómgreind
vegna sjúk-
dóma og lyfja-
neyslu fyrir
utan ölvun