Morgunblaðið - 17.08.2000, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 17.08.2000, Blaðsíða 18
18 FIMMTUDAGUR 17. ÁGÚST 2000 LANDIÐ MORGUNBLAÐIÐ Morgunblaðið/Davið Pétursson Á sýningunni voru dráttarvélar til sýnis sem voru meira en hálfrar aldar gamlar. Morgunbiaðið/Davíð Pétursson Það voru margar glæsikerrur á sýningunni á Hvanneyri. Fornbílasýning á Hvanneyri Grund -1 tilefni þess, að 60 ár eru liðin frá því að fyrsti vísir að Búvélasafni á Hvanneyri varð til, var landsmót Fornbflaklúbbs íslands haldið á Hvanneyri laug- ardaginn 12. ágúst, samhliða af- mælishátíð Búvélasafnsins. Um 30 eðalvagnar, 40 ára og eldri, komu á staðinn og voru til sýnisþeim u.þ.b. 600 gestum sem heiðruðu afmælisbarnið með nærveru sinni. Gaman var að sjá þessa lest gamalla bfla aka um staðinn á Hvanneyri á eftir þremur dráttarvélum, sem voru meira en hálfrar aldar gamlar. Hátíðagestur Búvélasafnins var Sæmundur Sigmundsson, sérleyfishafi, sem var þarna mættur með þrjá eðalvagna sína: Reo rútu (M-68), árgerð 1947, Ford fólksbfl (M-5), ár- gerð 1927 og Chevrolet fólksbfl (R-876), árgerð 1957. Dagurinn var fljótur að líða við að skoða hið vaxandi Búvéla- safn, með viðkomu í Ullarselinu. Þetta er þriðja árið í röð sem Búvélasafnið efnir til forn- tækjadags aðra helgi ágústmán- aðar. Vonandi verður svo einnig á næstum árum. Umsjónarmað- ur safnins, og sá sem upp- lýsingar veitir um það, er Bjarni Guðmundsson á Hvanneyri. Aðalfundur Landssam- bands skógareigenda Grund, Skorradal - í framhaldi af námskeiði íyrir skóOgarbændur sem haldið var á Hvanneyri 11. ágúst var aðalfundur Landsambands skógar- eigenda haldinn laugai’daginn 12. ágúst. Eftirfarandi samþykktir voru afgreiddar frá fundinum: „.Aðalfundur LSE, haldinn á Hvanneyri laugardaginn 12. ágúst 2000 skorar á Alþingi að tryggja fjár- veitingar til lúkningar landsúttektai- á skógræktarskilyrðum á landsvísu. Hafin er skógrækt samkvæmt lögum um landshlutabundin skógræktar- verkefni í öllum landshlutum. Til að verkefnin geti farið eðlilega af stað er nauðsynlegt að ljúka þessum rann- sóknum sem allra fyrst. Aðalfundur LSE, haldinn á Hvann- eyri laugardaginn 12. ágúst 2000 skorar á Alþingi að auka fjárveitingar til Rannsóknarstöðvar Skógræktar ríkisins á Mógilsá. Hafin er stórfelld skógrækt í öllum landsfjórðungum og hefur skógrækt aldrei verið stunduð í eins miklum mæli á íslandi. Öflugar rannsóknir í skógrækt eru forsenda markvissra vinnubragða og árangurs í greininni. Nauðsynlegt er þvi að auka fjárveit- ingar verulega til fagstofnunarinnar til að fjármagn, sem veitt er til fram- kvæmda, nýtist á sem hagkvæmastan hátt. Aðalfundur LSE, haldinn á Hvann- eyri 12. ágúst 2000, leggur áherslu á þá framtíðarsýn, að útplöntun til nytjaskógræktar muni sldia eigend- um skógarins arði. Því er mikilvægi öflugs rannsókna- og leiðbeiningar- starfs í skógræktinni áréttað. Fund- urinn bendir sérstaklega á nauðsyn þess, að bændur fái góðar plöntur til gi'óðursetningar, en grunnur þess er kunnátta og aðstaða plöntuframleið- enda. í þessu sambandi beinir fund- urinn því til stjórnar LSE að kannaðir verði kostir þess og möguleikar að geyma plöntur, sem fara eiga til gróð- ursetningar hjá bændum í kæli yfir veturinn. Fyrir slíka geymslu verði plönturn- ar teknar úr bökkunum og flokkaðar sem boðlegar til gróðursetningar. Aðalfundur LSE, haldinn að Hvanneyri 12. ágúst 2000, felur stjórn LSE að kanna stöðu leiguliða á skóg- ræktaijörðum. Ljóst er, að með skóg- ræktarvinnu sinni eru leiguliðar að skapa landeigendum framtíðarverð- mæti, sem eðlilegt er að þeir fái metið við ábúðarlok. Sé svo ekki, þarf að koma þeim málum á eðlilegan og sanngjarnan giunn. Aðalfundur LSE, haldinn á Hvann- eyri 12. ágúst 2000, vekur athygli á þeim möguleikum, sem kunna að fel- ast í ýmsum efnum og efnasambönd- um lifandi trjáviðar fyrir lífefnaiðnað. Nauðsynlegt er að hefja grunnrann- sóknarstarf á þessu sviði með aðferð- um líftækninnar. Ef tekst að finna efni eða efnasambönd úr iifandi tijám, sem nýst geta í iðnaði, er um að ræða möguleika skógarbænda til arðs af skógræktinni fyrr eða samhliða viðarframleiðslu. Fundurinn felur stjóm LSE að kanna þetta mál nánar og vinna að framgangi þess. Aðalfundur LSE, haldinn á Hvann- eyri 12. ágúst 2000, beinir því til stjórna landshlutabundinna skóg- ræktarverkefna að þær kanni hag- kvæmni þess, að reistar verði í hverj- um landshluta öflugar plöntuframleiðslustöðvar, sem tekist geti á við þá auknu þörf á skógar- plöntum sem fyrirsjáanleg er.“ Að loknum fundarstörf'um á iaug- ardaginn var fulltrúum boðið í kynn- isferð upp að Jafnaskarði og gengið þar um skógarreiti undir leiðsögn nýskipaðs skógarvarðar, Birgis Haukssonar. Frá Jafnaskai'ði var haldið að Hreðavatni þar sem gestum var boðið í mat og drykk af Níelsi Ama Lund fyrir hönd landbúnaðarráð- heira. Frá Hreðavatni var haldið að Hvanneyri, þar sem veislumatur var á borð borinn. Veislustjóri var Flosi Ól- afsson. Söngflokkurinn Sólarmegin söng. Gamanmál fluttu Snorri Hjálm- arsson og Bjami Guðmundsson. Á sunnudagsmorgun var farið inn í Skorradai og gengið þar um skógar- lundi undir leiðsögn Ágúst Ámasonar og Huldu Guðmundsdóttur. Nýkjörin stjóm Landssambands skógareigenda er þannig skipuð: Edda Björnsdóttir, formaður, Mið- húsum, fyrir Austurland, Sigurður Jónsson, Ásgerði, Hmnamanna- hreppi, fyrir Suðuriand, Árni Njáls- son, Jódísarstöðum, S.-Þingeyjai’- sýslu, fyrir Norðurland, Ástvaldui’ Magnússon, Tröð, Önundarfirði, fyrir Vestfirði, Hulda Guðmundsdóttii', Fitjum, Skorradal, fyiir Vesturiand, Fái skógarbændur fulltrúa á Búnað- arþing, þá verður Sigurður Jónsson, Ásgerði, fulltníi þeiira, samkvæmt ákvörðun aðalfundar. I fundarlok bauð Þorsteinn Péturs- son, formaður Héraðsskóga, til næsta aðalfundar á Austurlandi í ágúst 2001. Ráðstefna Vinnuumhverfi framtíðarinnar Nýjar kenningar koma reglulega fram um hvernig vinnustaðir eigi að lita út og hvernig vinnuumhverfi eigi að skapa starfsfólki þannig að því líði vel í vinnunni og nái að nýta hæfileika sína til fullnustu. Undanfarið hafa þessi mál verið i umræðunni og því viljum við hjá Odda halda ráðstefnu um vinnuumhverfi framtiðarinnar. Dagskrá Gullteigur B Kl. 13.10 Ráðstefnan sett. Kl. 13.20 Eyþór Eðvarðsson, Gallup. Kl. 14.00 Michael Mayer, Neusiedler. Kl. 14.50 Wilhelm Wohlschlager, Multiform. Kl. 15.20 Kaffihlé. Kl. 15.45 Bjarne Mindested, Avery Dennison. Kl. 16.30 Jon Sandifer, Feng Shui. Kl. 17.00 Dagskrá slitið - léttar veitingar. Gullteigur B anddyri Ki. 13.00 - 17.00 Vörusýning. Fjarverslun Odda kynnt á risaskjá. Iðjuþjálfar með ráðgjöf um vinnustellingar. Grand Hótel Reykjavík 18. ágúst 2000 kl. 13.00 Skránlng i síma 515 5100 eða með netpósti á sala@oddi.is fyrir kl. 16.00 miðvikudaginn 16. ágúst. Enginn aðgangseyrir. Morgunblaðið/Hafþór Björn Halldórsson kemur í mark eftir 10 kflómetrana. Hlaupið í kring- um vatnið Húsavík - Botnsvatnshlaup 2000 í umsjá Heilsuræktarinnar Skokka var haldið nýlega og tóku 85 keppendur þátt í hlaupinu sem fór fram í um 20 stiga hita og hægum suðaustan vindi. 60 manns tóku þátt 1999 er hlaupið var í fyrsta sinn. Hiaupnir voru 5 og 10 km, en einn hringur kringum vatnið er 5 km, keppt var í nokkrum aldursflokkum og urðu sigurvegarar sem hér segir, son á tímanum 43.55 mín. 40-49 ára konur, Ingibjörg Jóns- dóttir á tímanum 1.00.24 mín. 40-49 ára karlar, Bjöm Halldórs- son á tímanum 43.15 mín. 50 ára og eldri karlar, Helgi Hall- grímsson á tímanum 53.40 mín. Þá var og keppt í fjölskyldukeppni og sigruðu Kristín Lára Ásmunds- dóttir, Jón Ingi og Amar Guðmunds- synir. Elsti þátttakandinn var Aðal- heiður Viðar sem tók þátt í 5 km hlaupinu en hún er að verða 71 árs. Tryggingafélagið VÍS var styrktar- aðHi mótsins auk þess sem ýmis fyrir- tæki á Húsavík gáfu aukaverðlaun. Botnsvatn er ofan við Húsavík og er moldarvegur að hluta meðfram vatn- inu en annars troðningur og sagði Ingólfur Freysson hjá Skokka ehf. að þetta væri sannkallað víðavangshlaup og að hann vonaðist til að þetta gæti orðið árviss viðburður í framtíðinni. Þess má geta að Björgunarsveitin Garðar var með bát á vatninu til ör- yggis og kom það að góðum notum. 1 5 kílómetrar 15 ára og yngri stúlkm', Júlía Mar- grét Rúnarsdóttir á tímanum 29.30 mín. 15 ára og yngri drengir, Jón Viðar Guðmundsson á tímanum 26.09 mín. 16-39 ára konur, Gunnhild Hofstad á tímanum 26.04 mín. 16-39 ára karlar, Sigurgeir Stef- ánsson á tímanum 22.25 mín. 40-49 ára konur, Kristbjörg Steingrímsdóttir á tímanum 35.11 mín. 40-49 ára karlar, Guðmundur Georgsson á tímanum 25.19 mín, 50 ára og eldri konur, Brynhildur Hallgrímsdóttir á tímanum 51.19 mín. 50 ára og eldri karlar, Guðmundur Eiríksson á tímanum 25.34 mín. 10 kílómetrar 15 ára og yngri drengir, Hallgrím- ur Jónasson á tímanum 49.45 mín. 16-39 ára konur, Hólmfríður Sig- urðardóttir á tímanum 55.31 mín. 16-39 ára karlar, Jóhann Ævars-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.