Morgunblaðið - 17.08.2000, Blaðsíða 74
7 4 FIMMTUDAGUR 17. ÁGtJST 2000
MORGUNBLAÐIÐ
^ á uppleið ^ á niðurleið
■festendur I stað \ nýttálista
■
Vikan 10.08- 16.08
1 Take a Look Around
Limp Bizkit
t2
*3
Lucky
Britney Spears
Real Slim Shady
Eminem
Try Again
Aaliyah
I Disappear
Metallica
Rock DJ
Robbie Williams
Falling Away From Me
Korn
8 Oops.J did it again
Britney Spears
*
Ar
Ar
Ar
9 The one
Backstreet boys
10 Ennþá
Skítamórall
11 Big in Japan
Guano Apes
12 Make me bad
Korn
13 Shackles
Mary Mary
14 Carmen Queasy
Maxim
—^ 15 Dánarfregnir og jarðarfarir
Sigur Rós
16 Rock Superstar
Cypres Hill
17 Ex Girlfriend
No Doubt
18 Crushed
Limp Bizkit
19 Lets Get Loud
Jennifer Lopez
20 Þærtvær
Land & Synir
Listinn er óformleg vinsældakönnun og byggist á vali gesta mbl.is.
© mbl.is
skjArsinn
FÓLK í FRÉTTUM
Hið árlega Mottuhlaup fór fram á Seltjarnarnesi
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Keppendur voru brattir er þeir lögðu upp í Mottuhlaupið. Hallgrímur Sævarsson sprettur tir spori.
Skilyrði að hlaupa ber að ofan
HIÐ ÁRLEGA Mottuhlaup var
haldið á Seltjarnarnesi síðasta laug-
ardag. Petta er áttunda Mottu-
hlaupið en það greinir sig frá öðrum
hlaupum sem efnt er til hér á landi
vegna hinna sérstöku og ströngu
reglna sem um það gilda. Grund-
vallarreglan er sú að keppendum
ber að hlaupa berir að ofan. „Vissu-
lega dregur það töluvert úr áhuga
kvenpeningsins á því að vera með,“
segir Hallgrímur Sveinn Sævars-
son, skipuleggjandi hlaupsins í ár.
„Það er þó kannski sumpartinn til-
gangurinn því upphaflega var
Mottuhlaupið hugsað sem svar við
Kvennahlaupinu þar sem karl-
mönnum er meinuð þátttaka."
Hlaupið er heldur kannski ekki svo
íþróttamannlegt í hefðbundnum
skilningi því leikreglur kveða m.a. á
um að keppendum sé skylt að inn-
byrða visst magn af áfengum öld-
rykk á leiðinni, eina þrjá lítra í
skömmtum þó, sem um leið gerir
hlaupið skjóttum erfiðara en mörg
önnur. „Það er stranglega bannað
að æfa sig fyrir hlaupið. Vegalengd-
in sem hlaupin er nemur einum 2.25
kílómetrum og því er hlaupið eins
og gefur að skilja þrælerfitt,“ segir
Hallgrímur. „Þetta er athöfn sem
einungis má iðka einu sinni á ári og
þátttaka er þar að auki fjarri því að
vera frjáls öllum heldur er mönnum
boðin þátttaka."
I ár voru einir 12 manns þess
heiðurs aðnjótandi að fá að taka
þátt í Mottuhlaupinu og var hlaupið
frá Áhaldahúsi Seltjarnarness sem
leið lá niður að Norðurströnd og út
hana upp að Vesturströnd. Öllum
að óvörum hljóp Hafsteinn Guð-
mundsson fyrstur yfir endalínuna
eftir hnífjafnt og tvísýnt hlaup og
hlaut farandskjöldinn veglega auk
verðlaunapenings en sjö aðrir fengu
slíkan um hálsinn fyrir hin ýmsu af-
rek eins og besti nýliðinn, mestu
vonbrigðin (féll í skaut annars
stofnanda hlaupsins, SveinsGuð-
marssonar útvarpsmanns, fyrir að
skrópa að þessu sinni), kvenlegasti
keppandinn o.íl. Þátttakendur í ár
voru allir tengdir fyrirtækinu H.P.
Optipe og dótturfyrirtækjum þess,
hljómsveitinni Nesvinum, V.C.E. og
Mottuhlaupinu. Að þessi sinni var
Mottuhlaupið háð í tveimur löndum
því einn Islendingur innan vébanda
H.P. Optime er staddur í Pennsylv-
aníu í Bandaríkjunum og hljóp þar
ásamt sex öðrum.Að hlaupi loknu
var síðan slegið upp veglegri veislu
þar sem Nesvinir léku og sungu við
góðar undirtektir uppgefínna en sí-
kátra keppenda. Nánari upplýsing-
ar um Mottuhlaupið má finna á
netsíðunni www.mottan.com.
Blaðauki í Morgunblaðinu laugardaginn 26. ágúst
í blaðaukanum eru kynntir þeir fjölmörgu námsmöguleikar sem eru í boði
fyrir þá sem vilja stunda einhvers konar nám eða sækja námskeið í vetur.
Pantið fyrir kl. 12
föstudaginn 18. ágúst!
Allar nánari upplýsingar veita sölu- og þjónustufulltrúar
á auglýsingadeild í síma 569 1111.
AUGLÝSINGADEILD
Simi: 5t>'> llti • Brélasimi: 5WI 1110 • Netíang: augtömbl.is