Morgunblaðið - 17.08.2000, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 17.08.2000, Blaðsíða 35
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ fw -r r'K1 FIMMTUDAGUR 17. ÁGÚST 2000 35 Feðgin á hádegis- tónleikum FEÐGININ Margrét Ámadóttir og Ami Arinbjamarson leika á selló og orgel á hádegistónleikum í Hall- gn'mskirkju í dag, fimmtudag, kl. 12. Á efnisskrá þeirra em Sónata nr. 5 í e-moll fyrir selló og orgel eftir An- tonio Vivaldi og eftir J.S. Bach leikur Árni annars vegar Prelúdíu og fugu í A-dúr BWV 536 og Tokkötu í F-dúr BWV540. Margrét Árnadóttir er fædd árið 1981. Ung að aldri hóf hún nám í sellóleik við Nýja tónlistarskólann, fyrst hjá Pétri Þorvaldssyni og síðar hjá Lovísu Fjeldsted. Árið 1994 hóf vor. Eftir tvær vikur heldur Margrét til Bandaríkjanna þar sem hún mun stunda framhaldsnám við Juilliai-d tónlistarskólann í New York. Ami Arinbjamarson lauk burtfar- arprófi í fiðluleik frá Tónlistarskólan- um í Reykjavík árið 1956 og burtfar- arprófi í orgelleik árið 1960. Árni stundaði framhaldsnám í fiðluleik og orgelleik í Lundúnum 1957-1958. Hann starfaði sem fiðluleikari í Sinfóníuhljómsveit Islands frá 1960 til 1996. Hann er nú kennari í fiðluleik við Nýja tónlistarskólann og orgel- leikari við Grensáskirkju í Reykjavík. Morgunblaðið/Ásdís Feðginin Margrét Árnadóttir og Árni Arinbjarnarson. Leitin að vísbendingu á Seyði LEIKRITIÐ Leitin að vísbend- ingu um vitsmunalíf í alheimin- um eftir Jane Wagner í flutningi Eddu Björgvinsdóttur verður á dagskrá listahátíðarinnar Á Seyði, Seyðisfirði dagana 18. og 19. ágúst n.k. í félagsheimilinu Herðubreið kl. 20.30. Leitin að vísbendingu um vitsmunalíf í al- heiminum fjallar um örlagasög- ur fólks sem lifir á umrótatímum og þarí' að gera örvæntingar- fulla leit að andlegri lífsfyllingu. hún nám við Tónlistarskólann í Reykjavík hjá Gunnari Kvaran og lauk þaðan einleikaraprófi síðastliðið Grínast í geimnum KVIKMYNDIR Háskólabfó STJÖRNULEIT - GALAXY QUEST^WtV Leikstjóri Dean Parisot. Hand- ritshöfundur David Howard. Tón- skáld David Newman. Kvik- myndatökustjóri Jerzy Zielinski. Aðalleikendur Tim Állen, Sig- ourney Weaver, Alan Rickman, Tony Shaloub. Sýningartími 102 mín. Framleiðandi DreamWorks SKG. Árgerð 1999. HOLLYWOOD á það til að gera hressilegt grín að eigin afurðum, enda reynst dijúg tekjulind. Airplane, Nak- ed Gun, og tugir annarra, nú er það Stjömuleit, sem gerir góðlátlegt grín að Star Trek-þáttunum og myndun- um. Hugmyndin er bráðsniðug. StjörnuleityGalaxy Quest er sjón- varpsþáttur sem dó drottni sínum á nokkmm ámm en eignaðist ódrepandi aðdáendahóp. Áratug síðar hafa leik- aramir sem fóra með aðalhlutveridn, Jason Nesmith/Commander Taggart (Tim Allen), Gwen DeMarco/Lieuten- ant Madison (Sigoumey Weaver), og Sir Alexander Dane/Dr. Lazaras (Al- an Rickman) aðallifibrauðið af því að flækjast á milli mismimandi veigamik- illa uppákoma sem panta Stjömuleit- arhópinn til skemmtunar. Á meðan, á fjarlægri plánetu, hafa íbúarnir náð þessum sendingum og líta á þættina sem sagnfræðilegar heimildir um þá sjálfa og áhöfn Stjörnuleitar sem guði sína og þegar óvinveittir nágrannar gera árás sjá geimverurnar það ráð vænlegast að hafa upp á bjargvættunum, sem starfa samvæmt mottóinu; „Aldrei að gefast upp“, og ræna þeim á einni hallærissamkundunni. Það sem við tekur er besta skemmtun þar sem leikararnir verða að glíma við hlutverk lífs síns. Leika guði, kunna ráð við öllum vanda, en þau er helst að finna í hálfgleymdum texta gömlu þáttanna. Handritið er ótrúlega bragðmikið á köflum og persónurnar ólíkar og skýrt mótaðar. Hvað skemmtilegastur er Sir Alex- ander Dane (Alan Rickman), snobb- aður og sjálfumglaður en staurblank- ur fyrram Shakespeareleikari sem fer með grínútgáfuna af Spock. Alan Rickman túlkar hann af kunm-i fag- mennsku. Litlu síðri er Tim Allen sem Nesmith/Commander Taggart (Kapteinn Kirk), og Weaver fram- bærileg sem DeMarco. Kann vel við sig í útgeimi. Stjörnuleit fer einstaklega vel af stað og er lengst af fínasta afþreying þó hún missi aðeins dampinn undir lokin - þegar efnið verður klisju- kenndara. Kemur notalega á óvart og tekst með ágætum að hafa ofan af fyrir áhorfendum. Myndin er mjög vel gerð tæknilega og leikstjórn hins lítt reynda Deans Parisot er þétt og hugmyndarík. Hann á öragglega framtíðina fyrir sér. Sæbjörn Valdimarsson Creda i ^ T602CW - x,':— ___ m 1 f I Þettipurrkari Verð nú kr. 36.900. Þu sparar AA 18.000 Verð aður kr 64.900.- Verðððurkr. 54.900. Verð nu kr. í * 11 Þu sparar 18.000 Barkalaus þéttiþurrkari Tekur 6 kg. 2 hitastillingar, veltir í báðar áttir. Barkalaus þéttiþurrkari m/rakaskynjara Tekur 6 kg. 2 hitastilhngar, veltir í báðar áttir. EXPERT er stærsta heimilis-og raftækjaverslunarkeðja í heiminum - ekki aðeins á Norðurlöndum. RflFMKMUERZ^LUN ISLflMDS If - AN NO 1 929 - Skútuvogur 1 • Sími 568 8660 • Fax 568 0776 a islandi í fuUutn tjaiUÚ rrkurum T601CW
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.