Morgunblaðið - 17.08.2000, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
FIMMTUDAGUR 17. ÁGÚST 2000 2S
Ymsar skýringar taldar vera á verðhækkun á olíumörkuðum
Ovissa um fram-
leiðsluaukningu
Kapphlaup
um far-
símarásir
ENN meiri harka færðist í gær
í kapphlaupið um rekstrarleyfi
í hinu væntanlega UMTS-far-
símakerfi í Þýzkalandi. Boðin í
farsímarásirnar tólf fóru í gær,
á 13. degi uppboðsins, yfir 90
milljarða marka samtals, and-
virði yfir 3.300 milljarða króna.
Harðastur er slagurinn milli T-
Mobil og Mannesmann, sem
eru stærstu fyrii-tækin sem fyr-
ir eru á þýzka farsímamarkað-
num, en þau eru bæði staðráðin
í að fá þrjár tíðnirásir til um-
ráða, hvort fyrir sig. Fjögur
önnur fyrirtæki eru enn með,
en þau sækjast eftir tveimui-
tíðnirásum hvert. Eitt fyrir-
tæki, sem hóf þátttöku í upp-
boðinu - Swisscom-dótturfyrir-
tækið Debitel - dró sig í hlé
fyrir síðustu helgi og þykir nú
orðið hklegt að 3G-samsteypan,
sem fram að þessu hefur ekki
keppt á þýzka farsímamark-
aðnum, verði næst til að detta
úr leik.
Fé gegn
nýnazisma
ÞÝZKA ríkisstjórnin hét því í
gær, að veita meira opinbert fé
til aðgerða gegn starfsemi
hægriöfgahópa í landinu. Sagði
talsmaður stjórnarinnar í Berl-
ín að ákveðið hefði verið að
setja 35 milljónir marka, and-
virði um 1.300 milljóna króna, á
ári í hnitmiðuð menntunarverk-
efni, afbrotavarnir og í sjóð fyr-
ir fórnarlömb ofbeldis sem
rekja má til fordóma gegn út-
lendingum. Á féð líka sérstak-
lega að gagnast til að uppræta
heimasíður nýnazista á Netinu.
Ofbeldi í
Kasmír
ÁTTA manns létu lífið og átján
særðust í skotbardögum og
handsprengjuárás í héruðunum
Jammu og Kasmír á Indlandi í
gær og fyrradag, að sögn lög-
reglu. I fyrradag var sjálfstæð-
isdagurinn haldinn hátíðlegur á
Indlandi og notuðu nokkrir
hópar aðskilnaðarsinnaðra
múslíma í Kasmír tækifærið til
að lýsa því þá yfir að skæru-
hernaðaraðgerða væri að
vænta af þeirra hálfu.
Röngjarð-
sprengjukort
ÍSRAELAR létu erindrekum
Sameinuðu þjóðanna í té röng
kort sem áttu að sýna hvar
jarðsprengjur væri að finna á
svæði því í Suður-Líbanon, sem
ísraelar héldu herteknu í 22 ár.
Þetta fullyrti friðargæzluliði
SÞ í Líbanon í gær. „Kortin
sem ísraelar útveguðu eru ekki
rétt og við reiðum okkur á okk-
ar eigin reynslu í jarðsprengju-
leit til að vinna okkar verk,“
hefur ÆPeftir Ouli Kovriniok,
ofursta í sérsveit Úkraínuhers,
sem SÞ fékk til að vinna þetta
áhættusama verk. Fulltrúar SÞ
áætla, að um 130.000 jarð-
sprengjur séu í jörðu á því 900
ferkílómetra svæði í Suður-
Líbanon, sem Israelar héldu
herteknu frá 1978 fram í maí sl.
Að sögn Rauða krossins í Líb-
anon hafa sex óbreyttir borgar-
ar farizt og 50 slasazt af völdum
jarðsprengna á svæðinu frá því
Israelsher hafði sig á brott það-
an.
VERÐ á fatinu af Brent-olíu breytt-
ist lítið á markaði í London síðdegis í
gær, var þá um 32,40 dollarar fatið.
Á þriðjudag hækkaði verðið enn er
fréttir bánist af því að olíubirgðir í
Bandaríkjunum færu minnkandi og
væru þær minnstu sem mælst hefðu
í 24 ár. En í gær voru birtar kannan-
ir opinberra aðila vestra á ástandi
birgða og kom í ljós að birgðirnar
hafa aukist hratt á einni viku og eru
nú sagðar vera um 286,4 milljónir
fata. Þetta virtist samt ekki duga til
að slá á hækkunina. Þess má geta að
síðastliðinn vetur voru birgðir af
húshitunarolíu minni í Bandaríkjun-
um en verið hafði í 10 ár.
Annað sem veldur hækkunuum
núna að sögn A FP-fréttastofunnar
er óvissa um framleiðsluna í Saudi-
Arabíu. Stjórnvöld hafa lýst því yfir
að þau muni auka framleiðsluna ef
olíuverðið haldist áfram hátt en ol-
íumarkaðirnir vilja sjá hverjar efnd-
ir verða. Verðið lækkaði á alþjóða-
mörkuðum er Saudi-Arabar, sem
eru stærstu olíuútflytjendur heims,
sögðust myndu auka framleiðsluna
um 500 þúsund föt á dag ef verðlag
lækkaði ekki. Að sögn talsmanna
orkumálayfirvalda í Bandaríkjunum
hefur framleiðsla Saudi-Araba hins
vegar aðeins aukist um 150.000 föt á
dag og þar sem olíueftirspurn í heim-
inum minnkar venjulega á haustin er
sennilegt að ríki Samtaka olíuút-
flutningsríkja, OPEC, muni mörg
verða á móti því að auka framleiðsl-
una núna.
Sumir sérfræðingar spá því að
verðið á olíufatinu í London geti far-
ið í 35 dollara og 40 dollara á markaði
í New York í árslok ef birgðirnar
vestanhafs verði áfram litlar. Jafn-
framt er tekið fram að ákveði OPEC
á fundi sínum í september í Vín að
auka framleiðsluna verulega breyt-
ist aðstæður og verðlækkun sé lík-
leg. Slík ákvörðun er þó talin mjög
ósennileg og benda menn á að verst
muni hækkanirnar koma niður á
þróunarríkjum sem flytja inn olíu.
Ummæli Hugo Chavez, forseta
Venesúela, á þriðjudag eru sögð eiga
sinn þátt í hækkuninni en hann sagð-
ist ekki telja að framleiðsluríkin
ættu að láta verðið lækka frá því sem
nú er. Venesúela er með stærstu ol-
íuútflytjendum og er Chavez nú á
ferðalagi um aðildarríki OPEC.
N O A T U N
Veisla lypir lítiö!
Vildarpunktar Fluglciða
Þ0 færft ferftapunkta þegar þú
... . _ .... .
NÓATÚN117 • R0FABÆ 39 • HÓLAGARÐI • HAMRAB0RG 14 KÓP. • HVERAF0LD • FURUGRUND 3, KÓP.
• ÞVERH0LTI 6, M0S. • JL-HÚSI VESTUR í BÆ • KLEIFARSEL118 • AUSTURVERI • KEFLAVÍK.