Morgunblaðið - 17.08.2000, Side 32
32 FIMMTUDAGUR 17. ÁGÚST 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FERÐALÖG
LISTIR
Tveir veitingastaðir og eitt kaffíhús í Ölfushreppi
Heimur ævintýra
Við rætur Ingólfsfjalls
leynast tveir veitinga-
staðir og eitt kaffíhús
sem vert er að skoða.
Hrönn Indriðadóttir
heimsótti ævintýraheim
þar sem nútíð og
fortíð mætast.
MITT á milli Hveragerðis og Sel-
foss, við rætur Ingólfsfjalls, má
finna tvo veitingastaði og eitt kaffi-
hús sem eru í eigu hjónanna Bjöms
Kristjánssonar og Svövu Gunnars-
dóttur en þau hættu búskap á sín-
um tíma og ákváðu þess í stað að
fara út í veitingarekstur. Kaffihús
þeirra hjóna var opnað í sumar og
geta þau nú tekið á móti allt að 400
manns.
„Eg byggði húsnæðið sem veit-
ingahúsið Básinn er í ásamt föður
mínum en upphaflega átti það að
verða hlaða og fjós,“ segir Björn.
„Kýr hafa aldrei komið þangað inn
en ég var með kindur þar um hríð.
Eftir að ég hætti að hugsa um bú-
skap var ég vörubílstjóri um tíma
og nýtti þá húsnæðið sem geymslu
og bílskúr en það var síðan fyrir 15
árum að við hjónin ákváðum að gera
það upp og opna veitingahús."
Básinn rúmar allt að 200 manns
og eru salirnir tveir, fjósið og hlað-
an, ásamt koníaksstofu á efri hæð.
„Við tökum á móti stórum sem smá-
um hópum og hægt er að loka salina
af ef þess er óskað. Við erum með
fjölbreyttan matseðil og vínveiting-
ar, allt eftir því sem viðskiptavin-
irnir vilja en þess má geta að nauð-
synlegt er að panta áður en komið
er. Hér er tilvalið að halda árshátíð-
ir, brúðkaup, fermingarveislur,
jólahlaðborð og þorrablót.“
íslenskir nútíma
landnámsmenn
Pann 28. nóvember árið 1998
opnuðu Björn og Svava Ingólfs-
skála en sú bygging er við hlið veit-
ingahússins Básinn.
„Nú rúmlega 1100 árum eftir að
fyrsti landnámsmaður Islands, Ing-
ólfur Arnarson, reisti skála sinn hér
við rætur Ingólfsfjalls höfum við
reist nýjan skála, Ingólfsskála. Við
byggingu hans var reynt að fara
sem mest eftir byggingastíl sem
talinn er hafa einkennt víkingaskála
Ingólfs en þess má geta að Erlend-
ur Magnússon skar út allan viðinn.“
Þegar blaðamaður kemur inn í
skálann er eins og hann fari tíu ald-
ir aftur í tímann í annan heim, heim
víkinga. í salnum er hægt að halda
allt að 250 manna veislur í anda
Ljósmynd/Ingþór Júlfusson
Ingólfsskáli, Básinn og Básinn - kaffihús eru samtengd
og mynda þannig eina heild.
í Ingólfsskála er hægt að halda allt að 250 manna veislur í anda
þeirra víkinga sem námu landið.
Mynd af Ingólfi og Hallgerði er
skorin út í hurð aðalinngangs.
þeirra víkinga sem námu landið og
greinilegt er að vandað hefur verið
til allra verka. Hrafnarnir Huginn
og Muninn vaka yfir gestum, mynd
af Ingólfi og Hallgerði hefur verið
skorin út í hurð aðalinngangsins,
ljósakrónur eru úr hornum og þjón-
arnir í víkingaklæðum til að skapa
réttu stemmninguna. „Það sem
breyst hefur hér inni frá því á vík-
ingatímanum er að loginn í eldstæð-
inu gengur nú fyrir rafmagni og
komin eru hnífapör.
Það má segja að við hjónin séum
íslenskir nútíma landnámsmenn því
þegar við fluttum hingað var hér
ekkert nema mýri, rétt eins og þeg-
ar Ingólfur var hér áður fyrr.“
Nýtt kaffilnís
í sveitinni
I sumar ákváðu hjónin svo að
auka fjölbreytnina enn frekar og
breyttu sólskálanum, sem er tengd-
ur við veitingahúsið Básinn, í kaffi-
hús sem fengið hefur heitið Básinn
- kaffihús og tekur um 40 manns í
sæti. „Kaffihúsið er opið frá klukk-
an 15 og fram eftir kvöldi frá
fimmtudegi til sunnudags, hingað
getur fólk því komið í kyrrðina og
fengið sér kaffi og kökur í fallegu
umhverfi.“
Nánari upplýsingar og pantan-
ir eru í síma 483-4160 og 483-
4666.
Nýja grunnbókin fyrir sögu 103 í framhaldsskólum er skreytt litmynd-
um og kortum á hverri blaðsiðu.
Söguvefur
opnaður
Á Söguvef NB á Strik.is er að fínna
margvíslegt ítarefni við nýjar kennslu-
bækur í sögu fyrir framhaldsskóla. Björn
Bjarnason menntamálaráðherra opnaði
vefínn í gær að viðstöddum kennurum í
sagnfræði og starfsmönnum Nýja
7
Bókafélagsins og Islandsnets.
SÖGUVEFUR NB á Strik.is, sem
notaður verður við sögukennslu í
framhaldsskólum, var í gær opnaður
formlega af Birni Bjarnasyni
menntamálaráðherra. Athöfnin fór
fram í bókasafni Flensborgarskóla í
Hafnarfirði en þar fer um þessar
mundir fram námskeið sögukenn-
ara. Jafnframt afhenti Jakob F. Ás-
geirsson útgáfustjóri Nýja bókafé-
lagsins menntamálaráðherra nýjar
kennslubækur í sögu-103, íslands-
og mannkynssögu NB I og Smárit
NB um sagnfræði. Bækumar eru
unnar í samræmi við nýja aðalnám-
skrá þar sem m.a. er mælst til þess
að Islands- og mannkynssögu sé
fléttað saman.
Samvinna vefjar og bókar
Þetta mun vera í fyrsta sinn sem
námsefni fyrir framhaldsskólana er
unnið með svo skipulegum hætti
samhliða í bók og á vef. Ætlunin er
að vefurinn og bækumar vinni sam-
an við sögunámið og myndi eina
heild í sögukennslu á framhalds-
skólastigi.
Nýja Bókafélagið, sem gefur út of-
angreindar bækur, stendur að Sögu-
vefnum í samvinnu við Islandsnet.
Söguvefurinn - www.soguvefur.-
strik.is - er í fyrstu einkum miðaður
við sögukennslu á framhaldsskóla-
stigi en verður með tímanum al-
mennur upplýsingavefur um Is-
lands- og mannkynssögu. Ritstjóri
vefjarins er Jón Ingvar Kjaran sagn-
fræðingur og mun hann sjá um að
uppfæra vefinn ásamt starfsmönn-
um Islandsnets.
I tilefni af opnun vefjarins óskaði
menntamálaráðherra aðstandendum
hans og höfundum bókanna til ham-
ingju. Hann sagði vefinn falla vel að
markmiðum ráðuneytisins að stuðla
Ein mynda Edwards Fuglo í bók Williams Heinesen Vængjað myrkur.