Morgunblaðið - 17.08.2000, Side 61
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 17. ÁGÚST 2000 61
UMRÆÐAN
Hneinar línur
i byttingarkenndri hönnun
Vola blöndunartæki hafa veriö margveröiaunuö fyrir sérstakan stíl
og fágun, en hönnuðurinn er hinn þekkti danski arkitekt Arne Jacobsen.
Tækin eru fáanleg í litum, krómuð og í burstuðu krómi.
Vola - dönsk hönnun
TCÍIGI
Smiðjuvegi 11 • 200 Kópavogur
Sími: 5641088 • Fax-. 5641089 • tengi.is
Um koffíndrykki
og guðstrú
I FRETTUM
Stöðvar tvö þann
tíunda ágúst síðastlið-
in, var til umfjöllunar
bann Hollustuverndar
á koffíndrykkjum og
bent, með hæðnistóni,
á þær þversagnir, að
miklu meira koffín-
magn væri í ýmsum
kaffidrykkjum, sem
flestir íslendingar
drekka á hverjum
degi, en í þeim koff-
índrykkjum sem seld-
ir eru í áfengisversl-
unum. Gefið var í
skyn í fréttinni að um
óþarfa smámuna- og
afskiptasemi af hálfu Hollustu-
verndar væri um að ræða. Hér
þurfum við að staldra við og hrista
af okkur vitleysuna.
í okkar streitufulla samfélagi
eru hin ýmsu lyf eins og nikotin,
koffín, áfengi, þunglyndislyf og
jafnvel ólögleg fíkniefni orðin
„nauðsynlegri" fyrir manninn en
venjuleg fæða. Með þessu er verið
að framleiða fíkla, tauga-, kvíða- og
þunglyndissjúklinga, með því úr-
kynjaða líferni sem er. nú í síaukn-
um mæli verið að gera að „samfé-
lagsnormi“, og er slíkt líferni farið
að skilgreina hinn „venjulega
mann“ í okkar frjálshyggjusamfé-
lagi. Þessi „venjulegi maður“ í dag,
lifir óhollu líferni, og telur það vera
sín sjálfsögðu mannréttindi að fara
illa með sína sál og líkama. Ein-
staklingsfrelsið er í síauknum mæli
að taka við forræðishyggjunni, og
því miður sífellt að fjarlægjast þá
ábyrgð sem frelsinu fylgir. Núna
telst það til sjálfsagðra mannrétt-
inda að eyðileggja líf sitt og ann-
arra með því að koma á óhollum og
eyðileggjandi gildum sem leyfa
notkun á hinum ýmsu lyfjum sem
læknavisindin hafa fyrir löngu úr-
skurðað sem óæskileg og stundum
hættuleg. Jafnvel er það nú í um-
ræðunni að leyfa notkun á fíkniefn-
um til þess að brjóta höft forræðis
og leyfa hinum staurblinda frjáls-
hyggjumanni að eyðileggja líf sitt
og annarra með fordæmi sínu.
Með öllu frelsi fylgir ábyrgð og
sýnist mér að einstaklingsfrelsið sé
langt á undan þroska okkar Islend-
inga til að höndla það frelsi og axla
þá ábyrgð sem því fylgir.
Það sem vekur athygli mína er í
þessu sambandi m.a. markaðssetn-
ing koffíndrykkja sem eru á mark-
aðinum núna. Það kemur alltaf við
mig þegar ég fer í kvikmyndahús,
að auglýsingar á Coca Cola, sem
sýndar eru m.a. í kvikmyndahús-
um, eru nær eingöngu stílaðar á
ung börn, þar sem teiknimyndafíg-
úrur og jólasveinar drekka Coca
Cola eins og Drottins dýrð frá
himni ofan. Einhversstaðar heyrði
ég að ein Coca Cola flaska fyrir
börn væri eins og 10 til 15 kaffi-
bollar fyrir fullorðna. Það er ein-
kennilegt þegar foreldrar eru að
berjast við ofvirkni og námsörðug-
leika barna, og þunglyndi og sjálfs-
morðshugleiðingar unglinga, þá
eru þeir, jafnhliða samfélaginu, að
framleiða fíkla og taugasjúklinga
Gunnar Kristinn
Þórðarson
með því að næra börn-
in á þvílíkum skað-
ræðisdrykkjum, sem
þeir eru í kroppum
ungra barna. Coca
Cola er drykkur barn-
anna og er nú ekki
sjaldgæf sjón að sjá
börn vera að drekka
sterka koffíndrykki
eins og Magic og Orku
þegar þau koma rölt-
andi úr sjoppunum.
Það er umhugsunar-
vert að líta til þessa,
þegar hugað er að or-
sök síaukinna reyk-
inga og eiturlyfja- og
áfengisneyslu barna
og unglinga. Koffín er ávanabind-
andi og örvandi efni sem er dælt
ofan í börn skömmu eftir þau eru
komin úr móðurkviði og eru þau al-
in upp í spennufíkn og streitu þar
Fíkn
Hvað segir almenningur
um fréttaflutning, spyr
Gunnar Kristinn Þórð-
arson, sem styður og ýt-
ir undir óhollt líferni?
eftir og svo verða allir hissa þegar
þessi sömu börn verða eiturlyfja-
sjúklingar seinna, eða þjást af of-
virkni, taugasjúkdómum eða þung-
lyndi.
Ég veit að þetta virðist langsótt í
fyrstu, en það er eingöngu út af því
að koffíndrykkir eins og Coca Cola
eru orðnir jafn heilagir fyrir ís-
lendingum, og heilagar beljur eru
fyi-ir hindúum. Við áttum okkur
ekki á óhollustunni af því við erum
sjálf alin upp í þessari fíkn; öll sem
eitt, sbr. fréttaflutning Stöðvar tvö
10. ágúst sl., þar sem var fjallað á
hæðnisfullan hátt um bann Holl-
ustuverndar á koffíndrykkjum.
Hvað segja sálfræðingar og
læknar um koffínneyslu barna, og
áhrif slíkrar neyslu til langs tíma?
Hvað segja foreldrar um mark-
aðssetningu slíkra drykkja þar
sem ung börn eru markhópurinn?
Hvað segir almenningur um
fréttafluttning sem styður og ýtir
undir óhollt líferni?
Það er smáu atriðin sem skipta
máli í þessu lífi, en það eru aðeins
stóru atriðin sem almenningur sér
og vill sjá. Það að huga að heilsu-
samlegu líferni er ekki aðeins að
lyfta lóðum og neyta ekki eitulyfja.
Heilsusamlegt líferni er fólgið í því
að veita smáu atriðunum í lífinu at-
hygli, og brjóta af sér fjötra
óhollra ávana eins og slæmt matar-
æði, reykingar, neysla koffín-
drykkja og áfengis.
Á streitufullum tímum nútímans
þurfum við að leita annaiTa með-
ala, til að leita að friðinum, en í of-
angreindum ólöglegu og „löglegu
eiturlyfjum", því hugganir og örv-
anir nikótíns, koffíns og áfengis,
færa okkur aðeins nær örvænting-
unni og fjær sálarfriðnum, því eins
og allir vita í raun og veru, eru
slíkir óhollir ávanar eins og olía á
eld vanlíðunar. Flestir vita um
skaðsemi þessara efna, en fáir taka
mark á því, þess vegna, af tvennu
illu, finnst þeim betra að líða illa
og ganga vel, en að líða vel en
ganga illa. Vísindamenn geta ekki
lengur komið til móts við nútíma-
mannin, því þekkingin ein og sér,
er eins og bátur á þurru landi í ör-
væntingarfullri leit nútímamanns-
ins að friðinum. Það er kominn tími
til að líta upp fyrir bók akademíun-
ar og leita að friðinum í öðru en
hverfulum efnum, eða innantómri
þekkingu. I friðarathvörfum trúar-
bragðanna má finna slíka leiðar-
steina í átt að vellíðan og ham-
ingju, og ólíkt meðulum heimsins,
veita trúarbrögð lausnir sem efla
innri frið jafnt sem ytri velmegun.
Það er kominn tími til vakningar
almennings um trú á Guð, ekki að-
eins í kristinni trú, heldur ætti
hver að leita af friðinum þar sem
hverjum og einum finnst hann að-
gengilegastur. Nútímamaðurinn
ætti að vera kröfuharður og metn-
aðarfullur að öðlast þennan frið,
því metnaður í trú er eina tegund
metnaðar sem getur gefið af sér
bæði innri frið og ytri velmegun,
og í þeim innri friði er hann frjáls
frá örvunum og huggunum skað-
semdarlyfja sem fínna má í kaffi-,
kóla- og orkudrykkjum jafnt sem
áfengi, reykingum og eiturlyfjum.
Nær væri foreldrum að bjóða
börnum sínum upp á „ambrósíu"
guðstrúar og skapá þannig, með
aukinni trúarvitund samfélagsins,
grundvöll fyrir aukið einstaklings-
frelsi. Og nær væri fjölmiðlum að
taka þátt í markaðssetningu á gild-
um trúarbragðanna til að bæta
samfélagsleg gildi og lífsviðhorf, í
staðinn fyrir að standa í vegi fyrir
heilbrigðri þróun samfélagsins.
Höfundur er guöfræðinemi.
Gerðu góð kaup!
.... ■«*.:»
YEARLING
Vinsælasta fellihýsið á (sland
FELLIHYSI
TJALDVAGNAR
Nýir, notaðir
og sýningavagnar
Vinningsnúmer í happdrætti
ÆffliM klúbbsins
á fjölskylduhátíð í Galtaiækjarskógi:
125
SEGLAföEFfÐIN ÆQfR
EYJARSLÓÐ 7 I07REYKJAVIK Slml 51 12203