Morgunblaðið - 17.08.2000, Page 68
á8 FIMMTUDAGUR 17. ÁGÚST 2000
MORGUNBLAÐIÐ
KIRKJUSTARF
ÍDAG
Safnadarstarf
Síðsumarkvöld
í kirkjunni
ÞAÐ er mjög þægileg stund í Taize-
messunni kL 21 á fimmtudögum í
Háteigskirkju. Kyrrð og friður,
kertaljós og reykelsi, Taize-lögin
leiða hugann að kjarna lífsins. Togst-
reitan hið innra með okkur linast er
endurtekin laglínan breytist í bæn,
ákall og þakkargjörð. Mjög aðgengi-
leg og endurnærandi stund frammi
fyrir augliti guðs. Maður finnur sig
með frá byrjun. Allir velkomnir.
Fyrirlestur
um kristilega
íhugun
LAUGARDAGINN 19. ágúst nk.
mun séra Thomas Keating, ábóti í
St. Bemadette-klaustrinu í
Snowmass, Colorado, halda tvo fyr-
irlestra í safnaðarheimili St. Jósefs-
> kirkju um kristilega íhugun. Fyrir-
lestrar hans um daginn í Skálholti
vöktu mikla athygli og umfjöllun.
Fyrirlestrarnir eru fluttir á ensku
og er efni þeirra: Kl. 10 The
Cotemplative Dimension of the
Gospel. Kl. 14 The Method of Cent-
ering Prayer.
Allir velkomnir.
Messa á 40 ára
vígsluafmæli
LAUGARDAGINN 19. ágúst nk.
verður messað í kirkjunni í Skálmar-
nesmúla í tilefni af 40 ára afmæli
kirkjunnai- og hefst messan kl. 14.
Prófastur mun sjá um athöfnina en
hann er jafnframt sóknarprestur í
Skálmarnesmúlakirkju. Að mess-
unni lokinni er boðið upp á kirkju-
kaffi að bænum Firði í sömu sveit.
Sóknarprestur.
Hallgrímskirkja. Hádegistónleikar
kl. 12-12.30. Margrét Árnadóttir,
selló og Ámi Arinbjarnarson, orgel.
Háteigskirkja. Jesúsbæn kl. 20.
Taize-messa kl. 21. Fyrirbæn með
handaryfirlagningu og smurning.
Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús fyrir
ung böm og foreldra þeirra kl. 10-12
í Vonarhöfn, Strandbergi. Opið hús
fyrir 8-9 ára börn í Vonarhöfn,
Strandbergi, kl. 17-18.30.
Vídalínskirkja. Bænastund kl. 22.
Hjálpræðisherinn. Lofgjörðarsam-
koma í kvöld kl. 20.30 í umsjón Ingi-
bjargar Jónsdóttur. Hugvekja: Páll
Friðriksson frá Kristniboðsfélaginu.
Allir velkomnir.
artíse
Hamraborg 1
Glæsilegar úlpur,
frakkar,
síðar strets buxur
og dragtir.
Stærðir 38 - 50
Lámarks verð
Hágæði
Cartíse og Lýv Cartfse
heildverslun Garðarsbraut 15
Hamraborg 1 Húsavík
sími 554 6996 sími 464 2450
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Lögreglan
sýnilegri
í SAMBANDI við þessi
hrikalegu umferðarslys og
dánartíðni sem hefur verið
undanfaiið er ég með lausn
á þessu vandamáli. í>að er
að lögreglan hér á höfuð-
borgarsvæðinu sé sýnilegri,
bæði á vegum sem liggja út
úr borginni og eins inni í
borginni, því þar er ekki
minna um slys. Ég vil að það
séu settir peningar til lög-
reglunnar svo hún geti sinnt
starfi sínu og hækka hraða-
sektir því þær vir ðast of lág-
ar til að menn hægi á sér.
Og það þarf að gera þetta
strax og efla löggæsluna
sem fyrst því það er fullt af
fólki sem á um sárt að binda
vegna þess.
Hafliði Helgason.
Há álagning
ÞEGAR ég kem á skyndi-
bitastað hér á landi kaupi ég
mér Carlsberg Elefant 33
ml magn á 404 kr. dósina.
Sömu dós kaupi ég í ÁTVR
á 202 kr. Samkvæmt upp-
lýsingum frá ÁTVR kaupa
þeir þessa dós á 140 krónur.
Er það þá rétt að skyndi-
bitastaður leggi á þetta 260
krónur sem þama munar í
hreina álagningu fyrir sig?
Er þetta þeirra leið tíl að
styrkja íslenska ferðaþjón-
ustu?
Ferðamaður.
Lausn á
sveppasýkingu
VEGNA umræðunnar um
sveppasýkingar á fótum
langar mig að láta fólk vita
að það getur læknað þann
kvilla án rándýrra meðala.
Það gerði ég fyrir u.þ.b. ári
síðan og sæki sundlaugam-
ar eftir sem áður. Ekki hef
ég sýkst aftur. Aðferðin er
að leysa upp gróft salt í
heitu vatni, ca. 1 teskeið í
hálfan bolla af vatni. Ef
neglur eru sýktar, láta þá
blönduna renna undir nögl-
ina kvölds og morgna,
nokkra dropa. Halda með-
ferðinni áfram þar til heil-
brigð nögl hefur vaxið fram.
Sama gildir um sár sem
hafa myndast milli tánna,
væta blönduna í bómull og
setja milli tánna. Skipta um
kvölds og morgna. Sömu að-
ferð á að nota um sár sem
hafa myndast á hælum og
iljum. Leggja kompressu
vætta blöndunni við sárið.
Festa með plástri sem fæst í
apótekum. Ganga þarf í
hreinum sokkum. Gott er
einnig að sótthreinsa skó.
Vona ég bara að fólki noti
þetta örugga ráð, ekki síst
vegna þess að fréttir heyr-
ast að sum þeirra lyfja sem
gefin eru við þessum kvilla
geti skaðað lifrina í fólki.
Gangi ykkur vel. Gaman
væri að fá að vita um árang-
ur.
Guðrún Magnúsdöttir,
553-1084.
Sífellt verið að
breyta öllu
HVAR fást ýsurúllur og allt
hitt sem fólk keyptd í matinn
fyrir viku eða mánuði síðan?
Fæst það í London, Liver-
pool og Hull eða Kaup-
mannahöfn og Ósló? Jú, ég
er reyndar alveg viss um að
þar er hægt að fá sömu vör-
una í áravís. Þar þekkist
ekki þessi hvimleiði háttur
að vera sífellt að breyta öllu.
Þar er hefð fyrir því að fólk
geti treyst því að fá alltaf
sömu góðu vörurnar en ekki
eitthvað sem það alls ekki
langar til að fá.
Nógu eru búðirnar stórar
um sig, flennur kalla ég
þær. En farðu nú inn og
keyptu í matinn. Þú ætlar
að fá uxahala, næpur, græn-
kál, piparrót, grænar baun-
ir, ekki þessar méluðu
stóru, í kvartdósum. Svo vilt
þú fá makkarónur, þessar
löngu ítölsku, svo vilt þú fá
uxatungu og smátt skorið
hangikjöt og súpukjöt og
velja sjálf bitana. Þetta gild-
ir líka um fiskigúllas og ann-
að. Við viljum fá það sama á
næstu vikum og mánuðum.
Svo langar mig í hindber og
stikilsber og hundrað aðra
hluti sem fást alltaf, ekki
bara í dag, heldur líka á
morgun, næstu vikur og
næstu árin. Eins og hjá
menningarþjóðum, stórum
og smáum.
Svo kveð ég með blikk,
blikk, blikk, eins og nú er í
tísku. Aumingja rollan að
kunna ekki að blikka. Mikið
væri hún sæt ef hún kynni
það. Svo skælbrosi ég a la
Júlía Róberts.
Að endingu, kær kveðja
til krossgátumannsins, þær
eru alveg frábærar, kross-
gáturnar, og mitt mesta
yndi.
Sigríður Johnsen.
Tapað/fundið
Armbandsúr í óskilum
Kvenmanns armbandsúr
fannst fyrir utan Broadway
sl. laugardagskvöld. Upp-
lýsingar í síma 695-8544.
Fatapoki fannst
á Snæfellsnesi
FATAPOKI fannst um
miðjan júli með rúmfótum
og bol sem er merktur
Reykjavíkurmaraþon. Upp-
lýsingar í síma 869-7474.
Giftingarhringur
í óskilum
GIFTINGARHRINGUR
fannst í Kringlunni um sl.
helgi. Upplýsingar í síma
588-8307.
Dýrahald
Einstein ertýndur
KISINN Einstein fór á
flæking frá heimili sínu í
Skipasundi aðfaranótt 3. júh'
sl. Hann er gulbröndóttur,
9-12 mánaða, geltur fress
með hvíta bringu og loppur.
Hann er ólarlaus en með
merkið K-0017 húðflúrað í
eyrað. Þeir sem geta gefið
upplýsingar um afdrif hans
eru Seðnir að hringja í Önnu
eða Hauk í síma 568-7673.
Fress týndur
á Kjalamesi
Gulbröndóttur 5 ára geltur
fress sem á heima í Grund-
arhverfi á Kjalarnesi hefur
ekki komið heim til sín síðan
sunnudaginn 13. ágúst.
Hann er með gulbrúna og
svarta ól með grænu merki-
spjaldi. Nági'annar eru
beðnir að svipast um eftir
honum og þeir sem hafa
orðið varir við hann hafi
samand í síma 566-6912.
Fundarlaun.
Kanína
í óskilum
KANÍNA fannst í garði í
Bæjargili í Garðabæ í síð-
ustu viku. Kanínan er dökk-
brún. Upplýsingar í síma
565-8186.
Páfagaukur týndist
í Hafnarfirði
LJÓSBLÁR og hvítur páfa-
gaukur týndist í Brekku-
hvammi í Hafnarfirði sl.
þriðjudag.
Þeir sem hafa orðið fugls-
ins varir hafi samband í
síma 565-1313 og 862-3313.
Víkverji skrifar...
ISUMAR hefur Víkverji talsvert
verið á ferðinni um uppsveitir
Árnessýslu og hefur áþreifanlega
orðið var við hve þróuð ferðaþjón-
usta er að verða víða á því svæði,
einkum í Biskupstungum.
Víkverja hefur löngum gramist
það að geta óvíða keypt sér máls-
verð á hóflegu verði á ferðum sín-
um um landið nema brasaða ham-
borgara og annan þungmeltan og
alltof dýran grillmat.
Smám saman hefur þetta Hófr-
emdarástand í greiðasölu við þjóð-
vegi landsins verið að þokast til
betri vegar. Fyrir því fékk Víkverji
enn eina sönnunina í sumar þegar
hann kom í nýja veitingasölu sem
heitir Klettur og er til húsa í nota-
legu bjálkahúsi í Reykholti í Bisk-
upstungum. Þar fékk Víkverji létt-
an og þokkalegan málsverð fyrir
þrjá fyrir um 1.500 krónur og var
ánægður með matseldina, þjónust-
una, verðlagið og hlýlegt og eilítið
framandlegt umhverfið.
Önnur vel heppnuð nýjung í
ferðaþjónustu í Biskupstungum er
Geysisstofa en Már Sigurðsson
og Sigríður Vilhjálmsdóttir hótel-
haldarar á Geysi hafa sett upp veg-
legan margmiðlunarsýningarsal um
hvaðeina sem lýtur að hverasvæð-
inu á Geysi, svo og jarðskjálftum
og eldvirkni hér á landi. Víkverji
átti ákaflega ánægjulegan dag við
Geysi, bæði vegna þess að nú í
kjölfar jarðskjálftanna er hvera-
svæðið miklu virkara en áður og
eins var heimsóknin í Geysisstofu
sérstaklega skemmtileg og þaðan
fór Víkverji margs vísari. Rúsínan í
pylsuendanum var heimsókn í
minjasafnið á efstu hæð Geysis-
stofu þar sem getur að líta forn
amboð og ýmsa muni úr daglegu
lífi liðins tíma. Geysisstofa var opn-
uð í byrjun sumars og vonandi
verða ítarlegri upplýsingar tiltækar
um safngripina í minjasafninu næst
þegar Víkverji leggur leið sína í
Geysisstofu.
Áuk þeirra staða sem fyrr var
getið er jafnan ánægjulegt að koma
í dýragarðinn sem Helgi Svein-
björnsson og fjölskylda reka af
miklum myndarskap í Slakka í
Laugarási, í nágrenni við Skálholt,
sem er sjálfsagður viðkomustaður á
ferð um þessar slóðir.
Það stingur hins vegar í stúf við
þá miklu uppbyggingu sem ein-
staklingar hafa staðið fyrir í ferða-
þjónustu í Biskupstungum að enn
er ekki komið bundið slitlag á um
10 km langan kafla á Biskups-
tungnabraut, sem er líklega einn
fjölfarnasti þjóðvegur landsins, sér-
staklega yfir sumartímann. Þar er
vitaskuld við ríkissjóð en ekki
heimamenn að sakast.
xxx
AÐ VÆRI gaman að vita hve
mörg fellihýsi og tjaldvagnar
eru nú í eigu landsmanna. Á ferð
sinni um þjóðvegina mætti Víkverji
hundruðum bíla með slík þarfaþing
í eftirdragi og raunar vill Víkverji
staðhæfa að orðið tjaldstæði sé að
verða úrelt í málinu, orðið tjald-
vagnastæði eða fellihýsabyggð gæfi
mun raunsannari mynd af íveru-
stöðum meirihluta þeirra sem
þangað koma.
Sum fellihýsanna eru tæknivædd
í meira lagi, uppsetning þeirra raf-
drifin og í þeim allra flottustu eru
sturtuklefar og hvaðeina. Eftir því
sem þægindin aukast lengjast og
breikka fellihýsin og þau hækka
líka svo að þegar þau eru dregin af
fólksbfl eða litlum jeppa gnæfir
fellihýsið yfir dráttartækið þannig
að ökumaðurinn sér áreiðanlega
ekkert til umferðarinnar sem á eft-
ir fer. Á þjóðvegaakstri erlendis
hefur Víkverji tekið eftir því að þar
er regla að bílar sem draga fellihýsi
eða hjólhýsi séu búnir sérstökum
speglum sem tryggja að ökumaður-
inn geti fylgst með umferðinni fyrir
aftan sig. Hérlendis hefur Víkverji
aðeins séð einn bíl með slíkan speg-
il en tugi eða hundruð bíla sem
vantar spegil en draga fellihýsi sem
eru svo löng, breið og há að öku-
maðurinn hefur enga möguleika á
að fylgjast með bílum sem á eftir
koma. Það er afar óheppilegt, að
mati Víkverja, því bílar með eftir-
vagna mega aðeins aka á 80 km/
klst hraða og því nauðsyn öku-
mönnum þeirra að vera viðbúnir
því að fram úr sé ekið. Nú þekkir
Víkverji ekki skýringuna á spegla-
leysi þessa hluta bílaflota lands-
manna og veit því ekki hvort um er
að kenna regluskorti eða hinu að
reglum er ekki fylgt. Hins vegar er
Víkverji sannfærður um að umferð-
aröryggi á þjóðvegum landsins yk-
ist ef átak yrði gert í þessu efni.