Morgunblaðið - 17.08.2000, Síða 72

Morgunblaðið - 17.08.2000, Síða 72
MORGUNBLAÐIÐ 72 FIMMTUDAGUR 17. ÁGÚST 2000 FÓLK í FRÉTTUM ' Glataðar myndir og Islandsreisa Goethes GULA húsið á horni Lindargötu og Frakkarstígs hefur verið í stöðugri notkun alveg síðan nokkrir ungir myndlistarmenn tóku það trausta- taki í byrjun febrúar og síðan þá hafa tugir bæði þekktra og uiþekktra myndlistarmanna sýnt þar verk sín. Einnig hefur verið boðið þar upp á óteljandi tónleika, kvikmyndasýningar, danssýningar og alls kyns aðrai- uppákomur. Núna á laugardaginn kl. 20 verða opnaðar í húsinu tvær sýningar, önnur í samvinnu við Góða hirðinn, nytjamarkað Sorpu og nokkur líkn- arfélög, en hann er staðsettur í Hátúni 12 og hin sýningin er sam- vinnuverkefni Gula hússins og hinnar nýju Goethe-stofnunar á ís- landi sem þau Wolfgang Muller og Ásta Ólafsdóttir eru í forsvari fyrir. Glataðar myndir „Við og starfsmenn Góða hirðis- ins vorum að spjalla saman og þá kom þessi hugmynd upp um að það væri nauðsynlegt að gefa þeim myndum sem koma frá Sorpu inn á nytjamarkaðinn annað tækifæri. Upp úr þessu spratt hugmyndin um að halda sýningu á öllum mynd- um sem til eru í búðinni,11 segir Það er mikil fjölbreytni í myndunum sem koma frá Góða hirðinum, en hér eru skipuleggjendur sýningarinnar með brot af þeim verkum sem verða á sýningunni. Morgunblaðið/Jim Smart Hópurinn sem stendur að sýningunni um ferðir Goethe á íslandi. Darri Lorenzen, einn af skipuleggj- endum Gula hússins. Á sýningunni verða rúmlega 50 myndir sem allar fá núna tækifæri til að verða stofu- stáss á nýjan leik en verkin á sýn- ingunni eru af ýmsum toga. „Þetta eru alls kyns verk, bæði málverk, vatnslitamyndir og eins alls konar Átt þú lóð? Hefurðu kannað þennan mögulelka? Hagstœður og hraður bygglngarmátl. Vantar þig einbýlis-, par- eða raðhús eða glœsilegt sveitasetur með öllu? Við hönnum húslð með þér og gefum þér fast verð á húsið á því byggingarstigi sem þú óskar eftir. Dœml: 200 fm einbýlishús m/bílskúr, fulibúiö að utan, fokhelt að innan, en með einangruðum útveggjum. Við reisum húsiö á grunni lóðareigandans. Verð : 7.700 þús. Bygglngaverktakar: Dœmi: 130 fm raðhús m/bílskúr, fullbúið að utan, fokhelt að innan, en með einangruðrum útveggjum. Við reisum húsið á grunni og lóð verktakans. Verð : 4.400 þús pr hús (1 af 4) 'hÖnnunhúseiningar Dalvegi 16-b, 200 Kópavogi, sími 564 6161 Útsölulok íFlash Stuttir leðurlíkisjakkar áíur 3.990 kr. nú 2.490 Hnésíðir leðurlíkisjakkar áður 7.990 nú 4.990 Nýjar peysur, buxur og flíspeysur. Útsöluvörur á miklum afslætti. Laugavegi 54 — sími 552 5201 útsaumaðar myndir. Þarna verða líka einhverjar eftirprentanir, þess- ar sem til voru á öllum íslenskum heimilum," segir Ásta Þórisdóttir verslunarstjóri Góða hirðisins. „Markaðnum berast alls kyns ótrú- legir hlutir og oft eru myndirnar sem við fáum eftir alþýðulista- menn, yfirleitt algjörlega óþekkt fólk sem sennilega hefur aldrei haldið sýningu. Því er kominn tími til að taka af skarið og sýna um- heiminum þessi verk. Innanum gætu jafnvel verið einhver sem fólk þekkir. Annars eru flest verkin ómerkt þannig að maður veit aldrei hvað leynist inni á milli - kannski eru þarna verk eftir einhver fræg nöfn?“ Öll efsta hæðin í Gula hús- inu verður lögð undir myndirnar og verða þau þar til sölu á ótrúlegu verði og eru allir velkomnir núna á laugardaginn en það verður opið fram eftir á menningarnótt. íslandsferð Goethes í ágúst 1998, eftir að íslenska Goethe-stofnuninni var lokað þrátt fyrir mikil mótmæli, stofnuðu Wolfgang Muller og Ásta Ólafs- dóttir hina fyrstu alþjóðlegu og al- gjörlega óháðu Goethe-stofnun í heiminum í Nýlistasafninu í Reykjavík. Hin nýja stofnun hefur engan fastan samastað á Islandi en flakkar á milli staða og mun hún fá hluta af Gula húsinu til umráða næstu 3 vikumar. „Þegar Wolf- gang var staddur hér á landi í vor barst það til tals að nýja Goethe- stofnunin myndi vera með sýningu hér í húsinu seinna í sumar. Fljót- lega var ákveðið að halda bréfasýn- ingu þar sem Þjóðverjar sem vildu sýna á íslandi gætu sent verk til sýningar hér í húsinu,“ segh- Mel- korka Huldudóttir ein af þeim sem standa að sýningunni á vegum Gula hússins. „Wolfgang skrifaði svo greinar í 4 þýsk blöð þar sem hann sagði frá nýju Goethe-stofnuninni og Gula húsinu og bauð fólki að senda verk til sýninga í húsinu. Sýningin heitir á þýsku „Goethes Islandisehe Reise“ eða íslandsferð Goethes en ekki er vitað til þess að Goethe hafi nokkurn tímann komið hingað til Islands. Okkur hafa bor- ist bréf síðustu vikurnar og þetta eru orðin í kringum 20 verk allt frá póstkortum frá Goethe á íslandi, til jakka Goethes frá íslandsferðinni í bland við ljósmyndir af þýskri nátt- úru og úr Kolaportinu hér í Reykjavík." „Sýningin er samvinnuverkefni Gula hússins og hinnar nýju Goethe-stofnunar og hefur sam- starfíð gengið ótrúlega vel og sýnir hversu auðvelt er að skipuleggja fjölþjóðlegar sýningar án mikilla fjármuna og skipulagningar,“ segir Melkorka að lokum. Opnanhnar eru kl. 20 á laugar- daginn, að kvöldi menningarnætur og verður opið fram eftir nóttu þangað til menningin fjarar út. Morgunblaðið/RAX Hópurinn sem sýnir saman undir yfírskriftinni Grasrót 2000. Hangs á Nýlistasafninu UM SIÐUST helgi var opnuð í Ný- listasaftiinu, Vatnsstíg 3b, sýningin Grasrét 2000 en þar sýna 8 ungir myndlistarmenn verk sín. Einn salur á safhinu hefur verið helgaður sameigin- legu verki allra sýnenda og hefur sá staður verið kallaður Hangsið. Hann er hugsaður sem afdrep - staður þar sem hægt er að gera hið venjulega ekki er gert á myndlistarsýningum, þ.e. að slaka á og láta sér líða vel. Hangsið er opið á opnunartúna Nýlistasafnsins sem er þriðjudaga til sunnudaga frá 14:00-18:00 en á fimmtudögum og laugardögum er það opið lengur eða til 23:00 og er þá boðið uppá íjölbreytta dagskrá. f kvöld verða tónleikar þar sem Hilmar Bjamarson eða Himmi sæti mun leika af fíngrum fram íyrir áhorfendur. Einnig verður boðið uppá fleiri óvænt atriði og allir eru vel- kommnir í safnið til 23:00 í kvöld. Tvær opnanir í Galleríi Hlemmi LAUGARDAGINN19. ágúst kl: 16 00 verða opnaðar tvær sýningar í gall- eri@hlemmur.is, Þverholti 5, önnur í hefðbundna sýningarsalnum en hin á vegg í skrifstofurými. I salnum sýnir Þorbjörg Þorvalds- dóttir en hún útskrifaðist úr Mynd- lista- og handíðaskóla íslands árið 1993 og stimdaði framhaldsnám í Ecole Nationale d’Arts de Cergy-Pontoise í Frakklandi á árunum 1993-1996. Frá árinu 1995 hefitr hún tekið þátt í sam- sýningum á Islandi og í Frakklandi. Þetta er fjórða einkasýning hennar. Á vegg í skrifstofurými sýnir Guðný Rósa Ingimarsdóttir. Verk hennar eru samansett af endurteknum snerting- um. Annars vegar er snertingin sýni- leg á myndbandi en hins vegar viðloð- andi á tveimur teygjuverkum eftir meðhöndlun. Guðný Rósa útskrifaðist frá Mynd- lista- og handíðaskóla íslands árið 1994 en stundaði síðan framhaldsnám í fjög- ur ár í Belgíu. Hún er búsett og starfar í Brussel. Allir eru velkomnir á sýningamar og verður opið fram eftir nóttu á menn- ingamótt og munu eigendur taka á móti gestum og gangandi. Ný sýning í gallerís Nema hvaðl Pólskur kvik- mynda- g’erðar- maður MICHAL Polácek mun hafa gallerí „Nema Hvað!“ á Skólavörðustig 22c til afnota frá og með deginum í dag til 20. ágúst og halaa sýningu sem er hluti af sumardagskrá gallerísins Fiskabúrið. Michal hefur lært kvik- myndagerð í Pólska ríkisskólanum í Lódz sem er einn virtasti skóli sinn- ar tegundar í Evrópu og hefur gert nokkrar stuttmyndir. Nú vinnur hann að heimildarmynd um samfé- lag pólskra innflytjenda á Islandi fyrir Ríkissjónvarpið. Markmið Fiskabúrsins er að ná fram gagnvirkri sýningarstarfsemi og því er ungum listamönnum boðið galleríið til afnota í eina viku í senn til æfinga eða vinnslu verka sinna. Hugmyndin er sú að í stað þess að sýna lokaútkomu verka eins og venj- an er í galleríum þá er tilgangurinn að sýna vinnuna sjálfa eða sköpun- ina. Michal mun samkvæmt leikregl- um gallerísins vinna verk sitt á staðnum þannig að þeir sem eiga leið hjá geta fylgst með sköpun verksins. Afrakstur vinnuferilsins verður sýndur í galleríinu á Menningarnótt næstkomandi laugardag með til- heyrandi gleði og uppákomu tengdri sýningunni. Tvær sýningar hefjast í Gula húsinu á Menningarnótt

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.