Morgunblaðið - 22.09.2000, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 22.09.2000, Qupperneq 8
8 FÖSTUDAGUR 22. SEPTEMBER 2000 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Stjórnarforraaður Byggðastofnunar útvegar heimabanka sfnum verkefni: Ætli þér þætti nú ekki þessi banki stór ef þú værir að skríða út úr moldarkofanum, eins og við framsóknarmenn, Pétur minn. Borgarfulltrúar heimsækja Santiago de Compostela SANTIAGO de Compostela, ein af menningarborgunum níu í Evrópu, helgaði Reykjavík sunnudaginn 10. september sl. með eftirminnilegum hætti. Af því tilefni þáðu borgar- stjóri, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, og borgarfulítrúarnir Sigrún Magn- úsdóttir og Vilhjálmur Þ. Vilhjálms- son heimboð borgarstjóra Santiago de Compostela, Xosé A. Sánchez Bugallo. Kórinn Raddir Evrópu stendur hér fyrir aftan borgarstjór- ana tvo og fleira fólk en hann hélt tónleika fyiár fullu húsi í tónlistar- og ráðstefnuhöll Santiago de Compostela þennan dag. Á einu af torgum borgarinnar skemmtu Egill Ólafsson og Tríó Bjöms Thorodd- sen gestum og gangandi með flutn- Borgarfulltrúar ásamt Röddum Evrópu í Santiago de Compostela. ingi á verkinu „Ferðir Höllu“ við um 1.000 manns. íbúar Santiago eru góðar undirtektir. Viðstaddir voru álíka margir og íbúar Reykjavíkur. Mikið ber á milli um verð fyrir krossbandaaðgerðir Læknafélagið o g TR sammála um verðlagningu SAMKVÆMT útreikningum sem unnir voru fyrir samninganefnd Tryggingastofnunar ríkisins og Læknafélags Reykjavíkur á kostn- aði við krossbandaaðgerðir kostar hver aðgerð á bilinu 157-182 þúsund krónur. Karl Steinar Guðnason, for- stjóri Tryggingastofnunar, segir að bæklungarlæknarnir þrír sem gert hafa þessar aðgerðir telji hins vegar að eðlilegt verð fyrir hverja aðgerð eigi að vera um 300 þúsund. Það sé útilokað að Tryggingastofnun geti fallist á slíkar kröfur enda gangi þær þvert á alla samninga sem stofnunin hafígertvið lækna. Eftir að bæklunarlæknarnir Ágúst Karlsson, Brynjólfur Jónsson og Stefán Carlsson sögðu upp störf- um á Sjúkrahúsi Reykjavíkur fól heilbrigðisráðuneytið samninga- nefnd Tryggingastofnunar ríkisins og Læknafélags Reykjavíkur að verðleggja krossbandaaðgerðir á hnjám. Utreikningamir vom lagðir fram og staðfestir bæði af fulltrúum Tryggingastofnunar og Læknafé- lagsins 19. júní í sumar. Niðurstaða nefndarinnar var að heildargjald miðað við að læknir starfi annað milli aðgerða sé 156.187 krónur. Inn i þessari tölu er kostnað- ur við einnota efni og tæki og laun tveggja skurðlækna og svæfinga- læknis. Liðurinn einnota efni og tæki er metinn á 73.923 kr. Samkvæmt út- reikningunum tekur hver aðgerð eina klukkustund og fimmtán mínút- ur en með undirbúningi og frágangi á skurðstofu tekur aðgerð samtals þrjá og hálfan klukkutíma. Einnig var reiknað meðaltalsgjald miðað við tvær aðgerðir á dag og að allir læknar séu á fullri greiðslu fyrir og á milli aðgerða. Niðurstaðan er að meðalkostnaður sé 181.902 krónur. Kristján Guðjónsson, deildarstjóri hjá Tryggingastofnun, sagði mikil- vægt að hafa í huga að samkomulag væri milli Tryggingastofnunar og Læknafélagsins um að þetta væri eðlileg verðlagning fyrir kross- bandaaðgerðir. Hann sagði að sjúkl- ingar sem bíða eftir krossbandaað- gerð hefu fengið þau svör hjá læknunum að aðgerðin kostaði 300 þúsund krónur. I viðræðum Trygg- ingastofnunar og bæklunarlækn- anna hefðu tölur í þessa veru verið settar fram af læknunum. „Þessar kröfur ganga þvert á alla aðra samninga og allar aðrar gjald- skrár Tryggingastofnunar við lækna,“ sagði Kiistján. Á fundi samninganefndar TR og Læknafélagsins lét fulltrúi Lækna- félagsins bóka að óeðlilegt væri að heilbrigðisstofnun haldi fjárveiting- um fyrir verk sem ekki séu þar leng- ur unnin. Eðlilegt sé að nýta fram- farir í læknisfræði sjúklingum og tryggingakerfi til góða. Verðlagning samkvæmt gildandi samningum LR og TR þurfi ekki alltaf að eiga við. Þau verkfæri sem samráðsnefndin hafi yfir að ráða nái þannig ekki að leysa mál þegar um flóknar og sér- hæfðar aðgerðir sé að ræða. Ráðstefna um umhverfisfræðslu Að nema af náttúrunni Tryggvi Jakobsson ELDBORG, Svarts- engi, hefst í dag klukkan níu ráðstefna um umhverfisfræðslu und- ir yfirskriftinni: Að nema af náttúrunni. Siv Frið- leifsdóttir umhverfisráð- herra flytur upphafsávarp. Flutt verða fimm meginer- indi og nokkur styttri inn- skot. Ráðstefnunni lýkur klukkan 16.30. Það er um- hverfisfræðsluráð sem stendur fyrir ráðstefnunni. Tryggvi Jakobsson á sæti í ráðinu fyrir hönd Náms- gagnastofnunar. Hann var spurður um markmið þess- arar ráðstefnu? „Þessi ráðstefna er framhald af ráðstefnu sem við héldum í fyrra og markmiðið er fyrst og fremst að fjalla um umhverfis- fræðslu og hver staða þeirra mála er almennt hér. Það er einmitt eitt af meginverkefnum umhverfis- fræðsluráðs að stuðla að umhverf- isfræðslu. Ráðstefnan í fyrra var haldin á Hótel Örk og þar var fjallað um fræðsluna út frá sjónar- hóli sjálfbærrar þróunar. Hún þótti takast vel og við ætlum að halda áfram og taka nú fyrir hina lifandi fræðslu. Undirskrift ráð- stefnunnar er: Vettvangsfræðsla, náttúrusöfn og náttúruskólar.“ - Hvaða efni verða tekin fyrir'! „Sigrún Ingimarsdóttir kennari ætlar að kynna skrá sem hún hef- ur tekið saman yfir náttúrusöfn á landinu öllu og velta fyrir sér hvort þar sé um vannýtta auðlind að ræða. Sigrún Helgadóttir, kennari og líffræðingur, ætlar að fjalla um útinám og væntanlega að greina frá reynslu þeirra í Sel- ásskóla, þar sem hún starfar. Ruth Grant frá Scttish Natural Heritage mun segja frá annars vegar skipulagi umhverfisfræðslu og hins vegar náttúruskólum í Skotlandi. Sigurður Ólafsson, lektor frá kennaradeild Háskól- ans á Akureyri, mun segja frá námi við háskólann sem þeir kalla grenndarnám, undir yfirskrift- inni: Líf í Eyjafirði. Ari Trausti Guðmundsson ætlar að ljúka ráð- stefnunni með hugleiðingum um nauðsyn þess að þekkja umhverf- ið.“ - Hvað er umhverfisfræðslu- ráð? „Það var stofnað árið 1998 af umhverfisráðuneytinu og er skip- að fulltrúum frá umhverfisráðu- neyti og menntamálaráðuneyti, Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Námsgagnastofnun, umhverfis- verndarsamtökum, ASÍ, Samtök- um atvinnulífsins og Neytenda- samtökunum. Markmið þessa ráðs er að vekja vitund almenn- ings um umhverfi sitt og gildi þess. Sem og nauðsyn þess að um- gangast umhverfi sitt með virð- ingu og með tilliti til sjálfbærrar þróunar. Þessu viljum við ná með auknu samstarfi um umhverfis- fræðslu og samráði á borð við þessa ráð- stefnu og tilmælum um úrbætur og ábend- ingum um umhverfis- fræðslu.“ -Hefur umhverfís- fræðsluráð umfangs- mikla starfsemi? „Við opnuðum í fyrra umhverf- isvefinn: umvefur.is, og þar er búið að koma upp viðamiklu tenglasafni á sviði umhverfismála, sem er efnisflokkað og mjög að- gengilegt. Ég hugsa að það séu komnar yfir 200 tengingar á vef- inn. Síðan erum við nýbúin að setja þarna inn orðasafn sem unn- ► Tryggvi Jakobsson fæddist 19. 4.1950 á Akureyri. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólan- um á Akureyri 1971 og prófi í landafræði frá Háskóla Islands 1975. Hann stundaði kennslu í mörg ár en hefur starfað hjá Námsgagnastofnun siðan 1985. Hann er kvæntur Svanhildi Jó- hannesdóttur, framkvæmda- stjóra Skýrslutæknifélags Is- lands. Þau eiga tvo stráka. ið var í samstarfi Námsgagna- stofnunar, Náttúruverndar ríkis- ins og Hollustuvemdar. Þetta er orðasafn á sviði umhverfismála og vonandi á það eftir að aukast og eflast. Ymsar hugmyndir eru á döfinni, svo sem t.d. upplýsingar um náttúrusöfnin sem fyrr var minnst á og svo era jafnvel hug- myndir uppi um að gera sérstakan barnavef, sem myndi vera við hæfí barna og henta grunnskólakenn- urum líka við kennslu. Allt er þetta í þróun.“ - Þú nefndir styttri innskot á ráðstefnunni, hvað er þar á ferð? „Kynnt verður starfsemi nátt- úruskóla og náttúrusafna, má þar nefna Gróttusetur, sem er ný- stofnað fræðslusetur í Gróttu, Náttúrustofuna í Neskaupstað, Alviðru, sem er umhverfis- fræðslusetur Landverndar, Hvalamiðstöðina á Húsavík og til stendur að kynna skólabúðirnar á Reykjum í Hrútafirði. Síðst en ekki síst ber að nefna Gjána, sem er sýning sem Hitaveita Suður- nesja hefur komið fyrir i sprungu eða gjá undir ráðstefnuhúsinu, þar sem fjallað er um eldvirkni, jarðhita og fleira því tengt á ís- landi.“ - Hverjir sækja svona ráð- stefnu? „Það eru allir þeir sem láta sig málefni umhverfisfræðslu ein- hverju varða. Við getum nefnt kennara, starfsmenn sveitarfé- laga og fræðslumiðstöðva ýmis- konar, svo og áhugafólk um um- hverfismál." - Er áhugi á umhverfísfræðslu vaxandi? „Já, það er óhætt að svara því játandi, það kom okkur óvart í fyrra að það komu 110 manns á ráðstefnuna á Hótel Örk, síðast þeg- ar ég vissi voru yfir hundrað manns búnir að skrá sig á þessa ráðstefnu nú. Við höfum líka fengið jákvæð við- brögð við umhverfisvefnum og því sem verið er að gera þar. Við er- um afskaplega ánægð með hvað hann virðist nýtast vel, ekki síst fyrir skólafólk og þá sem eru á höttunum eftir upplýsingum um þessi mál. Markmiðið að vekja vitund almennings um umhverfi sitt og gildi þess
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.