Morgunblaðið - 22.09.2000, Side 10
10 FÖSTUDAGUR 22. SEPTEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Fjármálaráðherra segir borgarstjóra sneiða hjá aðal-
atriðum í bréfí sínu um fjarskiptamál
Vísar gagnrýni
borgarstjóra á bug
GEIR H. Haarde fjármálaráðherra
vísar gagnrýni Ingibjargar Sólrúnar
Gísladóttur borgarstjóra á svarbréf
hans við fyrirspum hennar um
fjarskiptamál á bug. Hann segir að
borgarstjóri hafi í fjölmiðlum í gær
aðeins getið um niðurlag bréfsins, en
látið hjá líða að geta um þá almennu
reglu sem svarið byggist á.
Borgarstjóri óskaði eftir upplýs-
ingum frá fjármálaráðuneytinu um
viðskipti og samninga ríkisins við
fjarskiptafyrirtæki um gagnaflutn-
inga.
I svarbréfi fjármálaráðherra er því
hafnað að borgarstjóri eigi rétt á um-
beðnum upplýsingum.
í bréfi ráðherra segir: „A-f niður-
lagi bréfsins sem og skýiingum borg-
arstjóra við það í fjölmiðlum (sbr. um-
mæli í fréttum Ríkisútvarpsins og
Stöðvar 2 7. sept. sl.) má ráða, að
borgarstjóri hafi gmn um að ríkisað-
ilar hafi ekki fylgt reglum um útboð á
fjarskiptasviðinu. Almenna reglan í
viðskiptum ríkisaðila á sviði fjar-
skiptaþjónustu er að þau séu á gmnd-
velli útboðs. Hins vegar er vert að
taka fram að þjónusta á sviði fjar-
skipta er ekki öll útboðsskyld eins og
fram kemur í 1. gr. tilskipunar nr. 92/
50/EBE um samræmingu reglna um
útboð og gerð opinberra samninga
um kaup á þjónustu. Má þar sérstak-
lega nefna undanþágur er varða kaup
á talsíma- og fjarritaþjónustu, þráð-
lausa talsíma og boðkerfis- og gervi-
hnattaþjónustu. í þessu sambandi vill
ráðuneytið vekja athygli yðar á 13. gr.
laga nr. 52/1987 um opinber innkaup,
er kveður á um réttarúrræði til handa
bjóðendum eða samkeppnisaðflum
telji þeir á sér brotið í tengslum við
framkvæmd útboðs eða gerð samn-
ings um innkaup hins opinbera. Ekki
verður séð að Reykjavíkurborg hafi
hagsmuna að gæta varðandi einstök
slík mál eða þær tilteknu upplýsingar
sem um er beðið í bréfi yðar.“
Svarað fyrir viku
Geir sagði að þetta erindi borgar-
stjórans í Reykjavík hefði verið með-
höndlað með sama hætti og önnur
sem berast ráðuneytinu. „Því var
svarað fyrir viku, án þess að það væri
tflkynnt eitthvað sérstaklega um það
opinberilega. Borgarstjóri ákveður í
gær [í fyrradag] að birta hluta af
svarinu, en sleppir þeim hluta svars-
ins sem skiptir ekki síður máfi, sem er
um hver almenna reglan sé í þessu
máli. Þar kemur fram að ef menn
telja á sér brotið hafi þeir ákveðin
réttarúrræði og að menn hafi þau án
atbeina Reykjavíkurborgar.
Þetta er kjami málsins en af ein-
hverjum ástæðum sér borgarstjóri
ekki ástæðu til að segja frá þessu þeg-
ar hún birtir hluta bréfsins."
Geir sagði að aðild fjármálaráðu-
neytisins að máli LínuNets væri til
komin vegna þess að málið hefði verið
kært. „Samsæriskenningar borgar-
stjóra falla gjörsalega um sjálfar sig
og benda til þess að hún hafi ekki skil-
ið hvemig aðild ráðuneytisins að
þessu máli er. Við höfðum ekkert
frumkvæði í því að blanda okkur inn í
þetta mál, heldur er málið kært og við
verðum að taka afstöðu til þess. Það
er settur til þess sérstakur fjármála-
ráðherra, sem kemst að niðurstöðu
sem borgin sættir sig ekki við og hef-
ur gagnsókn, eins og það var orðað í
blaði um daginn, til þess að drepa
þessu máli á dreif. Þetta er algjörlega
fráleitur málatilbúnaður," sagði Geir.
Ingibjörg Sólrún sagði í Morgun-
blaðinu í gær að nauðsynlegt væri
fyrir Samkeppnisstofnun að hafa þær
upplýsingar í höndunum sem hún bað
um. Geir sagði að ef Samkeppnis-
stofnun sendi fjármálaráðuneytinu
bréf yrði tekin afstaða til þess þegar
það bærist. Sama ætti við ef einhverj-
ir þingmenn legðu fram fyrirspum á
Alþingi. Þeim yrði að sjálfsögðu svar-
að.
AP
Víkingaskipið Islendingur þegar það kom til Boston á dögunum.
Víkingaskipið fslendingur
Um 5.000 gestir
komu í Providence
VÍKINGASKIPIÐ íslendingur lagði
úr höfn í Providence á Rhode Is-
land í fyrradag eftir nokkurra daga
dvöl í bænum. Skipið fékk fylgd sjö-
ræningjaskipsins Sloop, sem skaut
úr fallbyssum sínum í kveðjuskyni.
Næsti viðkomustaður er Mystic
Seaport í Connecticut, einn loka-
áfanga áður en ferðinni er ætlað að
taka endi í New York 5. október
næstkomandi.
I dagbók á vefsíðu leiðangursins í
gær skrifar Ellen Ingvadóttir, einn
áhafnarmeðlima, að dvölin í Prov-
idence hafi verið sérlega ánægju-
leg. Skipstjórinn hafi notið aðstoð-
ar bæjarstjóra Providence að sigla
Islendingi til hafnar og um borð
hafi einnig verið Jón Baldvin
Hannibalsson sendiherra. Á hafnar-
bakkanum slógu bæjaryfirvöld, í
samstarfí við Flugleiðir, upp sýn-
ingartjöldum. Þar segir EUen að ís-
lensk matarhefð hafí verið kynnt,
ferðamöguleikar til Islands og síð-
ast en ekki síst íslenski hesturinn.
Að sögn Ellenar var kynningin fjöl-
sótt og einnig komu fjölmargir um
borð í Islending. Telur hún að um 5
þúsund manns hafi skoðað skipið þá
fjóra daga sem það lá við bryggju í
Providence.
Ákveðið að ganga til samninga við
Sparisjðð Bolungarvíkur
Stj ðrnarformaður
segir ekki áhuga á
að bjðða verkið út
Heldrimannahúsið á Sólheimum verður formlega tekið í notkun í dag.
Heldrimannahúsið
Bláskógar tekið í
notkun að Sólheimum
KRISTINN H. Gunnarsson, alþingis-
maður og formaður stjómar Byggða-
stofnunar, segir að ákveðið hafi verið
að ganga til samninga við Sparisjóð
Bolungarvíkur um að hann taki yfir
fjármálaumsýslu Byggðastofnunar
og málið sé í þeim farvegi. Hann segir
Byggðastofnun ekki hafa áhuga á að
bjóða umsýsluna út. Fjármálaráðu-
neytið hyggst kanna hvort slíkt stríðir
gegn reglugerð um innkaup ríkisins.
Aðspurður um hve miklar upphæð-
ir sé hér að ræða, sagðist Kristinn
ekki rílja upplýsa það á þessu stigi.
„Það er ekki heppilegt vegna þeirra
viðræðna sem eru í gangi, en þetta
eru lágar fjárhæðir," sagði hann og
bætti við að sér væri til efs að það
borgaði sig að láta útbúa útboðsgögn
vegna þessa.
Kristinn, sem er þingmaður Vest-
fjarða og Bolvíkingur, sagði að stjóm
Byggðastofnunar þekkti lög og reglur
sem giltu í þessu sambandi „Þau em
auðvitað ekki einhlít. Það þarf að
skoða hvað fellur undir þau og hvað
ekki. Framkvæmdin á þessum lögum
hefur verið með þeim hætti að mér
sýnist ekki vera mikið farið eftir
FYRSTI samningafundur við-
ræðunefndar Blaðamannafélags
íslands og Samtaka atvinnulífsins
vegna nýs aðalkjarasamnings
verður haldinn í dag. Samkvæmt
viðræðuáætlun eiga viðræður að
hefjast um sérmál, en launaliður á
að koma til umræðu eigi síðar en
þeim.“ Kristinn benti á að fram-
kvæmd laga hlyti að marka túlkun
manna á þeim. Opinberar stofnanir
og fyrirtæki standi almennt ekki mik-
ið fyrir útboðum á kaupum vöru eða
þjónustu og tók hann dæmi af Lána-
sýslu rfldsins, sem hafi gert samning
um auglýsingaþjónustu við aug-
lýsingastofu upp á mjög háar fjár-
hæðir, eftir því sem sér skfljist. Hon-
um sé hins vegar ekki kunnugt um að
í því tilvfld hafi verið farið út í útboð
eða að fjármálaráðuneytið gert kröfu
tfl þess.
Stjómarformaður Byggðastofnun-
ar segir að standist sú túlkun á lögun-
um að umrædd fjármálaumsýsla sé
útboðsskyld, hljóti það einnig að eiga
við um fjölmargt annað í starfsemi
stofnunarinnar. Sjálfur kveðst hann
hins vegar ekki vera þeirrar skoðunar
að svo sé.
„Það mætti hins vegar spyija hvort
búseta mín í Bolungarvík komi þessu
máh nokkuð við. Gæti þá stjómandi í
Reykjavík ekki samið við fyrirtæki í
borginni, eða Akureyringur samið við
aðila þar í bæ?“ sagði Kristinn H.
Gunnarsson.
10. október næstkomandi. Núgild-
andi kjarasamningur milli Sam-
taka atvinnulífsins og blaðamanna
eru lausir í lok október.
Hafi samningar ekki tekist fyrir
20. október er hvorum aðila um sig
heimilt að vísa málinu til ríkis-
sáttasemjara.
í DAG, fóstudaginn 22. septem-
ber, mun Páll Pétursson, félags-
málaráðherra, taka formlega í
notkun nýtt hcimili að Sólheim-
um. Líkt og önnur íbúðarhús í
byggðahverfinu hefur húsið feng-
ið nafngift úr verkum nóbelsverð-
launaskáldsins Halldórs Laxness
og er nefnt Bláskógar.
í Bláskógum búa 6 manns ■
fjórum cinstaklingsíbúðum og
einni paríbúð. Þá er í húsinu
starfsstöð og góð aðstaða fyrir
starfsfólk.
Bláskógar er „heldrimannahús"
og sérhannað fyrir þarfir ein-
staklinga sem þurfa sértæka
þjónustu vegna öldrunar og búa
við skerta hreyfi- og starfsgetu af
heilsufarsástæðum. í húsinu er
aðstaða fyrir íbúa, sem ekki geta
stundað fulla vinnu, til afþreying-
ar og léttra sérverkefna. Húsið er
búið fullkomnu sjúkrabaði, dag-
stofu, arinstofu, borðstofu og eld-
húsi, þvottaherbergi, línherbergi
og búri. Með tiikomu þessa húss
gefst íbúum tækifæri að búa leng-
ur en ella í byggðahverfinu og
markmiðið er að bjóða íbúunum
ánægjulegt ævikvöld.
Geir H. Haarde, fjármálaráð-
herra tók fyrstu skóflustungu að
Bláskógum þann 15. desember
1998. Páll Pétursson tekur húsið
formlega í notkun í dag kl. 16 og
sr. Ulfar Guðmundsson, prófastur
Árnesinga, flytur húsblessun. Að
lokinni athöfn er gestum boðið að
kynna sér húsið og skoða sögu-
sýningu Sólheima, „Frá barna-
heimili til byggðahverfis“.
Húsið er 334,8 m2 að flatar-
máli og hannað af Árna Frið-
rikssyni arkitekt hjá Arkitektum
Skógarhlíð ehf, en Bláskógar er
sautjánda húsið að Sólheimum
sem Árni teiknar. Aðalverktaki er
G-verk ehf á Selfossi. Verkfræði-
stofa Suðurlands annaðist hönnun
burðarþols og lagna og Almenna
verkfræðistofan hannaði sökkla
og gólfplötu, hönnun rafkerfis og
Iýsingar annaðist Þór Stefánsson
hjá Rafteikn ehf á Selfossi.
Húsið er byggt af Styrktarsjóði
Sólheima og fjármagnað með láni
frá íbúðarlánasjóði og framlagi
úr Framkvæmdasjóði fatlaðra.
Byggingakostnaður er um 50
milljónir króna.
Atburður þessi er lokaþáttur-
inn í viðamikilli dagskrá í tilefni
af 70 ára afmæli Sólheima.
Jafn-
þrýstibún-
aður ekki
skilyrði
EKKI er sett sem skilyrði í út-
boðslýsingu vegna sjúkra- og áætl-
anaflugs, sem Ríkiskaup býður út,
að flugvélar skuli útbúnar með
jafnþrýstibúnaði. Samkvæmt út-
boðslýsingu verður við mat á til-
boðum stuðst við fjóra þætti og
þeim gefin einkunn á bilinu 0-5.
Vægi hvers þáttar verður síðan
margfaldað með einkunn viðkom-
andi þáttar og út kemur heildar-
einkunn. Þeir þættir sem stuðst
verður við eru í fyrsta lagi upphæð
bóta og gjalda sem krafist er og
farmiðaverð og er vægi þessa þátt-
ar 45%.
Annar þátturinn er fólginn í
gæðum þjónustunnar, þar með tal-
ið skipulag, öryggisþættir, flugvél-
ar, þar með talinn aðgangur að
flugvél með jafnþrýstibúnaði og
öðrum búnaði, ferðatíðni í áætlun-
arflugi og svo framvegis, og er
vægi þessa þáttar 30%. Þriðji þátt-
urinn er fólginn í fjárhagslegri og
tæknilegri getu bjóðanda og er
vægi hans 15%. Fjórði þátturinn
er síðan fólginn í reynslu bjóðanda
af sambærilegum verkefnum og er
vægi hans 10%.
------------
Jeppiog
fólksbíll í
árekstri
HARÐUR árekstur varð milli jeppa
og lítils fólksbíls á mótum Reykja-
nesbrautar og Nýbýlavegar í gær-
morgun. Einn var fluttur á slysa-
deild með áverka á andliti og baki.
Að sögn lögreglunnar í Kópavogi var
þarna ólíku saman að jafna þar sem
um var að ræða Toyota Landcruiser-
jeppa og lítinn Subaru Justy-fólks-
bfl.
Samtök atvinnulífsins
Fyrsti fundur með
blaðamönnum