Morgunblaðið - 22.09.2000, Qupperneq 18
18 FÖSTUDAGUR 22. SEPTEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
Morgunblaðið/Atli
Tryggvi Finnsson frá Atvinnu-
þróunarfélagi Þingeyinga og
Sigurður Smári Oskarsson
verkstjóri hjá Fiskverkun SBG
athuguðu rakastigið í korn-
inu sem verið var að þurrka við
jarðhita.
Korn
þurrkað við
jarðhita
Laxamýri - Tilraunir með þurrkun
korns við jarðhita hafa verið gerðar
undanfarið á vegum Atvinnuþróun-
arfélags Þingeyinga og kombænda í
sýslunni.
Síðustu ár hefur kornrækt aukist
mikið á svæðinu og áhugi er mikill
fyrir því að auka framleiðsluna frá
því sem nú er.
Flestir bændur hafa fram að
þessu súrsað kornið í sekki, en í
haust var fenginn þurrkari sem
brennir olíu og getur hann þurrkað
allt að 20 tonn á dag. Alls hafa verið
þurrkuð yfir 160 tonn af komi.
Þar sem olían er dýr, hafa menn
farið að huga að fleiri þurrkunarað-
ferðum og varð það úr að gera til-
raun með kornþurrkun í Eiskverkun
GPG í Reykjahverfi sem nýtir jarð-
hita í starfsemi sinni. Þangað var
farið með 7 tonn og þau þurrkuð við
mismunandi hitastig.
Þurrkun sem þessi má ekki taka of
langan tíma til þess að ekki verði
skemmdir í kominu og er talið að
hitastigið þurfi að vera töluvert hátt
og J>rýstingur mikill.
I framhaldi af þessum tilraunum
munu kornbændur og forsvarsmenn
Atvinnuþróunarfélagsins ræða um
hvort það sé raunhæfur möguleiki að
hefja þurrkun koms í miklu magni á
komandi ári, en lokaniðurstöður
liggja enn ekki fyrir.
Blönduósi - Hjónin Alda Theó-
dórsdóttir og Björn Eiríksson,
Urðarbraut 11 á Blönduósi, fengu
fyrir skömmu viðurkenningu
fegranarnefndar Blönduósbæjar
fyrir snyrtilegan, vel hirtan og
gróskumikinn garð. Jafnframt
fékk bæjarstjórn Blönduóss við-
urkenningu fyrir vel heppnaða
viðgerð á Hillebrandtshúsi.
Garður þeirra Öldu og Björns
er eins og kemur fram í umsögn
fegranarnefndar gróskumikill og
kennir þar margra grasa. Meðal
margra fallegra trjáa í garðinum
má sjá beinvaxið og fallegt sitka-
greni, sem fyrir tíu áram var jóla-
tré í stofu þeirra hjóna. Tré þetta
fengu þau á Hofi í Vatnsdal og
höfðu í potti innandyra fyrsta vet-
urinn og var því síðan plantað út
vorið eftir. Uppskera jarðar- og
rifsberja var mikil hjá þeim hjón-
um í sumar, bæði mönnum og
fuglum til ómældrar ánægju.
Hillebrandtshús, sem er eitt
elsta hús landsins, setur orðið
mjög sterkan svip á gamla bæjar-
hlutann eftir vel heppnaða viðgerð
og í sumar var húsið nýtt til sýn-
ingarhalds. Það er álit fegrunar-
nefndar að þetta framtak Blöndu-
ósbæjar sé góður grunnur að
frekari uppbyggingu og endur-
nýjun húsa í gamla bæjarhlutan-
um fyrir innan á.
~i .
Morgunblaðið/Líney
Forsvarsmenn kvenfélaganna við afhendingu tæiganna ásamt Sigurði Halldórssyni yfirlækni og Jdni Aðal-
steinssyni heilsugæslulækni. Nýja augnsmásjáin er fremst.
Rækta
kartöflur
/ • • X
i eigið
mötuneyti
Þórshöfn -1 Svalbarðsskóla í Þistilfirði er mikil at-
hafnasemi og alltaf eitthvað að gerast þótt skólinn
sé fámennur. Þar er einsetinn skóli með sautján
nemendum frá öðram og upp í sjöunda bekk en
þetta árið er ekkert barn í sveitinni í 1. bekk.
I fyrra gerðu nemendur tilraun með að vera
sjálfir með mötuneytið í skólanum og það kom svo
vel út að ákveðið var í samráði við börnin að það
fyrirkomulag héldi áfram í vetur en hjá þeim var
eindreginn viiji til þess.
Nemendum er skipt í fjóra hópa og hver hópur
sér um mötuneytið einn dag í viku en fimmta viku-
daginn koma þau með nesti að heiman. Kennaram-
ir sjá um matarinnkaup og skipulagningu.
Þessi vinna nemenda kemur í stað formlegra
heimilisfræðitíma en einnig baka þau stundum og
þá er bakkelsið nesti þeirra í íþróttatímum.
Börnin þurfa einnig að ganga frá og þrífa í eld-
húsi og borðsal að máltíð lokinni og er það ekki síð-
ur góður skóli fyrir þau, auk þess sem það kemur
þeim til góða þegar þau fara að heiman í fram-
haldsskóla og þurfa að sjá um sig sjálf að mestu
leyti, þá flest 16 ára gömul.
Síðastliðið vor settu nemendumir niður kartöfl-
ur, þó nokkra eftir að skólanum lauk, en þau höfðu
áður greitt atkvæði um það hvort þau skyldu eyða
einum degi af sumarfríi sínu til að setja niður
kartöflur. Aðra vikuna í september var hugað að
uppskeranni og afraksturinn varð um 100 kíló af
kartöflum, sem verða að sjálfsögðu borðaðar í
skólamötuneytinu í vetur af bestu lyst.
Skólaferðalag nemendanna í Svalbarðsskóla
hófst um miðjan mánuð og var farið suður á land í
fimm daga. Söguslóðir Njálu vora ofarlega á listan-
um en lestur Njálu er ákveðinn í vetur í skólanum.
Mikil og vel skipulögð dagskrá er fyrir höndum hjá
ferðalöngunum víðs vegar um Suðurland og ættu
þau að koma reynslunni ríkari heim.
Skólastjóri í Svalbarðsskóla er Sigursveinn Ósk-
ar Grétarsson og samkennarar hans era Fanney
Asgeirsdóttir og Arni Davíð Haraldsson.
Oskar hefur leitast við að gefa nemendum inn-
sýn í tómstundastörf sem síðar gætu vakið áhuga
Morgunblaðið/Líney
þeirra þegar þau eru farin að heiman í framhalds-
skóla eða í vinnu. í Svalbarðsskóla hefur hann
komið upp visi að Ijósmyndaklúbbi og þar fá börnin
að framkalla filmur sínar í svart/hvítu og læra und-
irstöðuatriði í Ijósmyndun og framköllun. Björgun-
arsveitarstarfið hefur hann einnig kynnt fyiir
nemendunum en í skólaferðalagi í fyira heimsótti
skólinn Björgunarsveitina Súlur á Akureyri og
fengu nemendur þar að spreyta sig í salnum og
skoða tæki og búnað.
I þessum litla skóla er mannlegi þátturinn í há-
vegum hafður og hver einstaklingur hefur tæki-
færi til að þroska með sér sín sérkenni en læra
jafnframt að taka tillit til annarra nemenda og
þeirra þarfa, því samkennsla verður alltaf nokkur í
fámennum skólum.
Kvenfélögin gefa
augnsmásjá
Þórshöfn - Heilsugæslustöðvarnar
þijár í Norður-Þingeyjarsýslu, á
Þórshöfn, Raufarhöfn og Kópa-
skeri fengu fyrir skömmu veglega
gjöf frá kvenfélögunum í sýslunni.
Það var Rodenstock augnsmásjá,
augnþrýstimælir og þrjú skoðunar-
borð og var verðmæti tækjanna
tæp ein milljón króna.
Það voru sex kvenfélög í N-
Þingeyjarsýslu sem stóðu að fjár-
söfnun fyrir þessum búnaði á síð-
asta ári; kvenfélagið á Þórshöfn,
Þistilfirði, Raufarhöfn, Kópaskeri,
Öxarfírði og í Kelduhverfi en það
tók um eitt ár að safna upphæðinni.
Þessi augnskoðunarbúnaður er
flytjanlegur á milli heilsugæslu-
stöðva og var haft samráð við augn-
lækna um hvers konar tæki best
væri að kaupa en sams konar tæki
eru á augndeild Landspítalans.
Sigurður Ilalldórsson, yfir-
læknir, veitti gjöfinni viðtöku og
færði kvenfélögunum alúðarþakkir
fyrir góða gjöf. Hann sagði þessi
tæki vera nauðsynleg á heiisu-
gæslustöðvamar og forsenda þess
að augnlæknar kæmu á þessa staði
úti á landi
því tækjalausir gætu þeir ekki
veitt fulla þjónustu. Augnsmásjáin
nýtist einnig heilsugæsiulæknunum
í þeirra daglega starfí en hún nýtist
vel t.d. þegar þarf að fjarlægja að-
skotahluti úr augum en slíkum
verkum þurfa læknarnir oft að
sinna.
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
Bæjarstjórn Blönduóss fékk viðurkenningu fyrir vel heppnaða við-
gerð á Hillebrandtshúsi.
U mh verfis ver ðlaun
veitt á Blönduósi
BókaSu í síma 570 3030 og 4781250
ffíl II.230 kf. meft flufvallarsköttum
FLUGFÉLAG ÍSLANDS
Fax 570 3001 • websales@airiceland.is •www.flugfelag.is