Morgunblaðið - 22.09.2000, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
FÖSTUDAGUR 22. SEPTEMBER 2000 21
Pósturinn í búðir og bensínstöðvar
Óald. Morgunblaðið.
NORSKI pósturinn hefur gert
samning við NorgesGruppen og
Shell um að póstþjónusta færist til
yfir 750 verslana og bensínstöðva
þessara fyrirtækja á næstu tveimur
árum. Markmiðið er að auka þjón-
ustu við viðskiptavini með auðveld-
ari aðgangi að þjónustunni, auk þess
að minnka útgjöld Póstsins, að því er
fram kemur í fréttatilkynningu frá
norska póstinum.
Fyrr á þessu ári var ákveðið að
póst- og bankaþjónusta á vegum
Norska póstsins yrði færð inn í
verslanir, bensínstöðvai' og fleiri
þjónustustofnanir og er samningur-
inn í samræmi við það. Á næsta ári
verður póstþjónusta flutt í 450 versl-
anir og 50 bensínstöðvar. Árið 2002
verður þeim fjölgað í samtals 750.
Nú standa yfir viðræður við fleiri
fyrirtæki um að taka að sér póst-
þjónustu og markmiðið er að póst-
þjónusta verði alls í yfir 1.100 versl-
unum.
NorgesGruppen er stærsta mat-
vöruverslanakeðjan í Noregi og rek-
ru samtals 2.860 misstórar verslan-
ir. Hlutdeild á matvörumarkaði er
um 34%. Shell rekur 700 bensín-
stöðvar í Noregi, með um 25%
markaðshlutdeild.
Fjárfesting Póstsins til að koma
nýja kerfinu á fót nemur um 200
milljónum norskra króna. í því felst
að Pósturinn mun annast fræðslu
starfsfólks, koma á þjónustu- og
gæðaeftirliti og annast innréttingar
og tölvukerfi.
Á næstu tveimur árum verða
póstútibú alls 1.500 talsins, um 400
hefðbundin og 1.100 innan verslana.
Samningurinn felur ekki í sér að fyr-
irtækin taki að sér dreifingu á póst-
inum, en svo gæti orðið síðar.
„Við völdum NorgesGruppen og
Shell fyrst og fremst vegna þess að
þessi fyrirtæki reka flestar verslanir
um allt landið. Við erum mjög ánægð
með að samningurinn er í höfn og
hann leggur grunninn að fram-
tíðarsöluneti Póstsins," segir Kaare
Frydenberg, forstjóri Norska pósts-
ins m.a. í fréttatilkynningunni.
Talsmaður NorgesGruppen er
ánægður með samninginn og segist
hafa merkt óskir viðskiptavina um
að geta sparað tíma með því að ann-
ast póst- og bankaviðskipti í verslun-
unum. Talsmaður Shell tekur í sama
streng og leggur áherslu á að langur
afgreiðslutími Shell verslana gefi
viðskiptavinunum áður óþekkta
möguleika.
mbl.is
Green Tea
Til grenningar
Fæst í apótekum
LYCOS Eur-
ope hefur
keypt Spray
Networks
Ósló. Morgunblaðið.
LYCOS Europe hefur keypt
sænska fyrirtækið Spray Networks
fyrir sem samsvarar um 48 millj-
örðum íslenskra króna. Bæði fyrir-
tækin reka vefsvæði eða vefgáttir í
Evrópu, og sú skoðun er t.d. sett
fram á vefnum breakingviews.com
að sameinað fyrirtæki geti ógnað
keppinautum eins og Yahoo! og
fleirum verulega.
Lycos Europe rekur vefsvæði í
mörgum Evrópulöndum og er í
eigu bandaríska fyrirtækisins
Lycos og þýska fyrirtækisins Bert-
elsmann. Bandaríska móðurfélagið
er nú að sameinast Terra Net-
works, vefsvæði í eigu Telefónica
og verður þá til fyrirtækið Lycos
Terra.
Spray Netvorks er sams konar
fyrii-tæki og Lycos Em-ope, að
stærstum hluta í eigu fyrirtækisins
Spray Ventures. Spray rekur vef-
svæði á Norðurlöndunum og á m.a.
norska netmiðilinn Nettavisen.
Christoph Mohn, stofnandi Lycos
Europe, verður í forsvari fyrir nýja
fyrirtækið en Johan Ihrfeldt frá
Spray verður varaforstjóri.
Lycos Terra mun eiga 31,1% í
sameiginlegu félagi, Lycos Spray.
Þýski fjölmiðlarisinn Bertelsmann
19,3%, Spray Ventures 18,4%,
Christoph Mohn, 11,7%, Investor
4,7% og smærri hluthafar 14,9%.
Fyrirtækið mun halda báðum
vörumerkjunum, Lycos og Spray
en hið síðarnefnda mun fremur
beinast að yngri netnotendum, að
því er fram kemur í sænska blaðinu
Dagens industri.
SUSHI
á föstudögum
Tilbúnir bakkar
með blönduðum fisk
og hrísgrjónarúllum
Éh
náttúrulegal
eilsuhúsið
Skólavörðustlg, Kringlunni & Smáratorgi
Upplagt í eldhúsið
bráðsniðugt í barnaherbergið
hljómar vel í hjónaherbergi
stórgott í stofuna
Myndbandstæki VCM 330
• 2 hausa-nicam-LP/SP
Flötum29Sími481 3333 Lágmúla 8 • Sími 530 2800
www.ormsson.is