Morgunblaðið - 22.09.2000, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
FÖSTUDAGUR 22. SEPTEMBER 2000 23
Kínversk stjórnvöld skera upp herör gegn spillingu
Réttað í stóru smyglmáli
Xiamen. AFP.
RÉTTARHÖLD í einu umfangs-
mesta spillingarmáli sem upp hefur
komið í Kína í rúmlega 50 ára stjóm-
artíð Kommúnistaflokksins standa
yfir þessa dagana. Hundruð kín-
verskra embættismanna eru talin
koma við sögu í stóra smyglmálinu,
eins og það hefur verið nefnt, og
verðmæti smyglvarningsins sögð
nema um 800 milljörðum króna.
Stóra smyglmálið snýst um um-
fangsmikla smyglstarfsemi Yan-
Hua-fyrirtækisins, sem haft hefur
höfuðstöðvar sínar í Hong Kong.
Smyglstarfsemi YanHua hefur hins
vegar farið um höfn borgarinnar
Xiamen, í Fujian-héraðinu í suður-
hluta Kína sl. áratug. Verðmæti
vamingsins sem um ræðir er talið
nema miHjörðum dollara. Meðal
annars var um að ræða smygl á
þúsundum tonna af olíu, vinnuvélum,
sígarettum og gúmmíi og eru
hundruð kínverskra embættis-
manna talin hafa þegið mútur sem í
heild eru metnar á milljónir dollara.
Að sögn fjölmiðla í Hong Kong
tengjast á milli 200 og 600 ríkis-
starfsmenn málinu, m.a. fjölskyldur
nokkurra æðstu ráðamanna Kína, en
mikil leynd hefur hvílt yfir málatil-
búnaðinum sem þykir gefa til kynna
hve viðkvæmt málið sé íyrir stjórn-
ina. Öllum erlendum og flestum inn-
lendum fjöhniðlum er til að mynda
bannaður aðgangur að dómshúsum í
borgunum fimm þar sem réttað er í
málinu. „Ég hef heyrt að ef réttað
væri yfir einum sakbomingi á dag þá
myndu þeir samt ekki ná að ljúka
réttarhöldunum á einu ári,“ sagði
Chen Changjian, einn íbúa Xiamen.
Réttarhöldin í stóra smyglmálinu
eru talin munu reynast kínversku
ríkisstjóminni prófsteinn í herör
þeirri sem stjórnin, ásamt Jiang
Zemin, forseta landsins, hefur skor-
ið upp gegn spillingu. En um 23.000
ákærur um spillingu verið rannsak-
aðar frá því í janúar og nýlega var
Cheng Kejie, einn af varaforsetum
þingsins, tekinn af lífi, eftir að hafa
verið fundinn sekur um spillingu á
stjórnartíð sinni sem héraðsstjóri í
Guangxi. Cheng er hæst setti em-
bættismaður sem tekinn hefur verið
af lífi fyrir spillingu og hrósaði eitt
dagblaða Kína stjóminni í gær í leið-
ara sínum fyrir hörð viðbrögð.
Rannsóknin nái ekki
í efstu lög
„Búist er við að fleiri falli í stóra
smyglmálinu,“ sagði í leiðara blaðs-
ins sem kvað líklegt að margir yrðu
teknir af lífi vegna málsins. Enn hef-
ur hins vegar hvorki verið greint frá
ákæruatriðum né fjölda sakborninga
og hefur það vakið vissar efasemdir
um að rannsóknin nái upp í efstu lög
stjórnarinnar. Segja gagnrýnendur
kínverskra stjómvalda Jiang hafa
þegar komið í veg fyrir slíkt, en sög-
ur era á kreiki um að fyrrum yfir-
maður kínversku ríkislögreglunnar
og yfirmaður útlendingaeftirlitsins
séu meðal sakbominga.
Rannsókn stóra smyglmálsins var
umfangsmikil og stóð yfir í rúmt ár,
en athygli manna beinist nú, að sögn
fréttastofu BBC, að því hversu langt
ríkisstjórn Kína sé tilbúin að ganga í
herferð sinni gegn spillingu.
„Þetta var slæmt fyrir þjóðina en
mjög gott fyrir efnahag Xiamen,“
sagði framkvæmdastjóri skipafyrir-
tækis nokkurs í Xiamen sem neitaði
að láta nafns síns getið.
Bretland
Ihalds-
menn ná
forskoti
London. The Daily Telegraph.
BRESKI íhaldsflokkurinn hefur
náð fimm prósentustiga forskoti á
Verkamannaflokkinn, ef marka má
Gallup-könnun sem The Daily Tele-
graph birti í gær.
Samkvæmt könnuninni er Ihalds-
flokkurinn með 40% fylgi, Verka-
mannaflokkurinn 35% og Frjáls-
lyndir demókratar 16%.
íhaldsflokkurinn var með fjóram
prósentustigum meira fylgi en
Verkamannaflokkurinn í tveimur
öðram könnunum sem birtar vora
um helgina eftir vikulangar mót-
mælaaðgerðir gegn háu eldsneytis-
verði.
Þegar Gallup-könnunin var gerð
áttu Tony Blair forsætisráðherra og
Gordon Brown fjármálaráðherra
einnig undir högg að sækja vegna
ásakana um að þeir hefðu sagt fjöl-
miðlum ósatt um milljón punda
framlag Bernie Ecclestone, sem
stjórnar Formúlu 1-kappakstrinum,
til Verkamannaflokksins fyrir þrem-
ur árum.
I Gallup-könnun, sem gerð var í
vikunni sem leið, fyrir mótmælin, var
fylgi Verkamannaflokksins 45%,
Ihaldsflokksins 32% og Frjálslyndra
demókrata 16%.
----------------
Gíslataka í
S-Rússlandi
Moskvu. AP, AFP.
FJÓRIR grímuklæddir menn héldu
í gær sex gíslum í rússneska sumar-
leyfisbænum Sochi við Svartahaf.
Kröfðust þeir rúmlega 2,5 milljarða
ísl. kr. í lausnargjald og einnig, að
öllum Tsjetsjenum í rússneskum
fangelsum yrði sleppt.
Yfirmaður lögreglunnar í Sochi
átti í gær í viðræðum við mannræn-
ingjana en þeir höfðu komið sér fyrir
á efri hæð í hóteli eða húsi, sem enn
er í byggingu. Ekki var ljóst hvort
mannræningjamir era Tsjetsjenar
og raunar var haft eftir aðstoðar-
manni fulltrúa forsetaembættisins í
Suður-Rússlandi, að þeir væra í eng-
um tengslum við Tsjetsjníu. Fullyrti
hann einnig, að vitað væri hverjir
mannræningjarnir era. Hefði einum
þeirra verið sleppt af geðveikrahæli
nýlega og annar til væri eiturlyfja-
neytandi.
Tala gíslanna er nokkuð á reiki og
vora nefndar tölur allt frá fimm og
upp í 30. Sagði Inter/ax-fréttastofan,
að tveimur gíslum hefði tekist að
sleppa, karli og konu, og hefði konan
verið særð skotsári er hún flýði.
Hafa sérsveitarmenn lögreglunnar
neðri hæð hússins á sínu valdi en
ákveðið var að bíða með aðgerðir þar
til ljóst yrði hvort viðræður við
mannræningjana bæra einhvern ár-
angur.
■»s; -v; -
HAGKAUP
Meira úrval - betri kaup