Morgunblaðið - 22.09.2000, Qupperneq 24
24 FÖSTUDAGUR 22. SEPTEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Flugskeyti skotið á
höfuðstöðvar MI6
Reuters
Sérfræðingar bresku lögreglunnar rannsaka garð nálægt byggingu MI6 í von um að finna vxsbendingar um
hvaðan flugskeytinu var skotið og hvers konar vopn var notað.
London. Reuters, AP, AFP.
LITLU flugskeyti var skotið á höf-
uðstöðvar bresku leyniþjónustunnar
MI6 í fyrrakvöld en litlar skemmdir
urðu á byggingunni. Viðamikil rann-
sókn var hafin á árásinni en lögreglu-
yfirvöld sögðu að ekki væri vitað
hverjir hefðu verið að verki. Lög-
reglan lokaði götum, brúm og lestar-
stöðvum í grennd við bygginguna
vegna rannsóknarinnar og olli það
miklum umferðartruflunum í mið-
borginni á mesta annatíma í gær-
morgun og þúsundir manna komust
ekki leiðar sinnar þar sem aflýsa
þurfti mörgum lestarferðum.
Alan Fry, sem stjórnar rannsókn-
um bresku lögreglunnar á hermdar-
verkum, sagði að litlu flugskeyti
hefði verið skotið á áttundu hæð höf-
uðstöðva MI6 en lítið tjón hefði orðið
á byggingunni. Enginn mun hafa
særst í árásinni en Fry lýsti henni
sem „ófyrirleitinni árás sem hefði
auðveldlega getað valdið manntjóni“.
Fry sagði að ekki væri vitað hverj-
ir hefðu skotið flugskeytinu en úti-
lokaði ekki að skæruliðar úr röðum
lýðveldissinna á Norður-írlandi
hefðu verið að verki. „Ég verð aug-
ljóslega að hafa í huga getu írskra
andófshópa en á þessu stigi get ég
ekki útilokað aðra hópa sem kunna
að vilja gera árásir á leyniþjónust-
una.“
Ekki var varað við árásinni og eng-
in hreyfing hefur lýst henni á hendur
sér. Lögregluyfirvöld í London vör-
uðu borgarbúa við hættu á hermdar-
verkum fyrr á árinu vegna andófs
klofningshópa úr írska lýðveldis-
hernum (IRA) sem leggjast gegn
friðarsamningnum á Norður-írlandi.
Fry kvaðst ekki telja að sprengju-
vörpu hefði verið beitt í árásinni og
sagði að slíkt vopn hefði valdið meira
tjóni. Hann kvaðst ekki geta staðfest
að tvær sprengingar hefðu orðið eins
og nokkur vitni höfðu sagt.
Ein af rammgerustu
byggingum Bretlands
Höfuðstöðvar MI6 eru á meðal
rammgerustu bygginga Bretlands
og hannaðar sérstaklega til að þola
sprengingar. Stór hluti byggingar-
innar er undir götuhæð til að tryggja
að mikilvægasta starfsemi leyniþjón-
ustunnar raskist ekki vegna árása.
Fjölmargar eftirlitsmyndavélar eru í
kringum bygginguna til að fylgjast
með mannaferðum.
Rúður byggingarinnar eiga að
vera sprengju- og skotheldar en
brotnuðu þó í að minnsta kosti einum
glugga í sprengingunni sem var mjög
öflug að sögn vitna. Málmgrind
bognaði og tvær veggplötur
skemmdust en engar skemmdir urðu
innan veggja.
Lögreglan lokaði götum í grennd
við bygginguna, milli Vauxhall-brúar
og Lambeth-brúar yfir Thames,
meðan leitað var að vísbendingum
um hvaðan flugskeytinu var skotið
og hveijir hefðu verið að verki. Lest-
arferðum frá Waterloo-stöðinni, m.a.
Eurostar-ferðum til Parísar og
Brussel, var einnig aflýst.
Böndin berast að
írskum skæruliðum
Breskir öryggismálasérfræðingar
töldu líklegt að skæruliðar, sem beij-
ast^gegn friðarsamningnum á Norð-
ur-Irlandi, hefðu skotið flugskeytinu.
írski lýðveldisherinn (IRA) gerði
margar árásir í London áður en hann
lýsti yfir vopnahléi í baráttunni gegn
breskum yfirráðum á Norður-írlandi
árið 1997. Liðsmenn IRA gerðu
t.a.m. sprengjuvörpuárás á bústað
breska forsætisráðherrans á Down-
ing-stræti þegar John Major, þáver-
andi forsætisráðherra, var þar á
fundi með æðstu ráðherrum sínum.
Sprengjunni var þá skotið úr sendibíl
og hún lenti nálægt bústaðnum en
enginn særðist.
Talið er að skæruliðahreyfingin
Hinn sanni írski lýðveldisher, sem
klauf sig út úr IRA árið 1997, hafi
komið fyrir nokkrum sprengjum í
London á árinu. Lögreglan sprengdi
eina þeirra sem fannst við lestarteina
í vesturhluta borgarinnar í júlí og lítil
sprengja sprakk undir Hammer-
smith-brúnni í júní.
MI6 stundar njósnir erlendis og
heyrir undir utanríkisráðuneytið.
Talið er að stofnunin hafi íylgst með
norðurírsku skæruliðahreyfingunum
í nánu samstarfi við leyniþjónustuna
MI5 sem starfar innanlands og heyr-
ir undir innanríkisráðuneytið.
Öryggismál leyniþjónust-
unnar gagnrýnd
Breska leyniþjónustan sætti gagn-
rýni fyrr á árinu vegna mistaka
starfsmanna hennar sem voru talin
geta stefnt njósnurum hennar í
hættu. Hermt var t.a.m. að einn af
njósnurum MI6 hefði gleymt far-
tölvu, sem geymdi upplýsingar um
þjálfun erlendra njósnara, í leigubíl
og lögreglan hafi fundið hana tveim-
ur vikum síðar. Viku áður var far-
tölvu stolið af starfsmanni MI5 í lest-
arstöð í London.
Sú staðreynd að hermdarverka-
mönnum skyldi hafa tekist að skjóta
flugskeyti í miðborg London og það á
hjarta bresku leyniþjónustunnar
hlýtur einnig að vekja spumingar um
hvort öryggi hennar sé ábótavant.
Höfuðstöðvar MI6 era við suður-
bakka Thames, um það bil kflómetra
frá þinghúsinu og Downing Street.
Byggingin var notuð í nýjustu kvik-
myndinni um James Bond, „The
World is Not Enough", þar sem hluti
hennar var sýndur springa í loft upp í
sprengjuárás hermdarverkamanna.
Byggingin er mjög þekkt og var
tekin í notkun árið 1994 en áður var
leyniþjónustan með bækistöðvar í
nokkram byggingum. Sagnfræðing-
urinn Donald Cameron Watt, fyrr-
verandi njósnari, sagði að það hefðu
verið mikil mistök að færa alla starf-
semi stofnunarinnar í eina byggingu
sem allir þekktu. „Margir, þeirra á
meðal ég, töldu þetta heimskulegt.
Ég hélt að leyniþjónusta ætti að vera
leynileg."
Sótt að uppreisnar-
mönnum á Jolo-eyju
Gísl biður
herinn
að hætta
árásum
Manila. Reuters, AFP.
BANDARÍSKUR gísl, sem enn er
í haldi múlimskra uppreisnar-
manna og mannræningja á Jolo-
eyju í Filippseyjum, bað í gær
stjórnarherinn að láta af árásum.
Tveimur frönskum sjónvarps-
fréttamönnum tókst að sleppa úr
haldi mannræningjanna aðfaranótt
miðvikudagsins. Þóttu þau tíðindi
mikill sigur fyrir Joseph Estrada,
forseta Filippseyja, en hann skip-
aði stjórnarhernum að leggja til
atlögu við skæruliðana þótt þeir
væru með um 19 gísla, erlenda og
innlenda.
Bandaríski gíslinn, Jeffrey
Schilling að nafni, sagði á snældu,
sem leikin var í útvarpi, að öryggis
síns vegna ætti herinn að hætta
árásum á skæruliðana en talsmað-
ur Estrada forseta sagði, að her-
inn vissi hvar Schilling væri niður-
kominn og myndi bjarga honum.
Frakkarnir tveir, sem sluppu úr
haldi skæruliða, komu fram á
fréttamannafundi í Manila, höfuð-
borg Filippseyja, ásamt Estrada
forseta í fyrradag. Sögðu þeir, að
öngþveitið, sem varð meðal skæru-
liða er stjórnarherinn hóf sóknina,
hefði auðveldað þeim flóttann.
Kvaðst Estrada viss um, að hinum
gíslunum yrði brátt bjargað, þar á
meðal Bandaríkjamanninum.
Annar frönsku fréttamannanna
sagði, að skæruliðarnir hefðu ætl-
að að sleppa þeim næstkomandi
laugardag. Þá sagði hann, að Abu
Sayyaf-skæruliðarnir, sem segjast
berjast fyrir sjálfstæði múslima í
Filippseyjum, væru í raun bara
eins og hver annar óaldarflokkur,
sem hefði fjárvonina að leiðarljósi.
Estrada
sigrihrósandi
Gíslamálið hefur staðið í nærri
fimm mánuði og verið mjög niður-
lægjandi fyrir Estrada forseta.
Urðu ýmsir til að gagnrýna þá
ákvörðun hans að láta til skarar
skríða gegn skæruliðunum og þar
á meðal Jacques Chirac, forseti
Frakklands. Taldi hann, að lífi
gíslanna yrði stefnt í hættu með
því.
Estrada hrósar nú sigri, a.m.k. í
svipinn, en margir telja, að það
geti breyst komi í ljós, að sókn
hersins hafi mætt meira á óbreytt-
um borgurum en skæraliðunum.
Þing Bandaríkjanna samþykkir frumvarp um að taka upp eðlileg viðskiptatengsl við Kína
Kínverjar fag*na ákvörð-
un öldungadeildarinnar
KÍNVERSK stjórnvöld hafa fagn-
að samþykkt öldungadeildar
Bandaríkjaþings á frumvarpi um
að taka upp eðlileg viðskiptatengsl
við Kína. I yfirlýsingu kínverskra
stjórnvalda segir að ákvörðun
þingsins „þjóni hagsmunum bæði
Kínverja og Bandaríkjamanna" og
að hún auki möguleikana á auknu
samstarfi ríkjanna í framtíðinni.
Frumvarpið, sem samþykkt var
á þriðjudagskvöld með 83 atkvæð-
um gegn 15, kveður á um að inn-
flutningsvörur frá Kína muni til
frambúðar bera sömu tolla og vör-
ur frá flestum öðrum löndum, en
hingað til hefur Bandaríkjaþing
greitt atkvæði árlega um hvort
Kínverjar skuli njóta svokallaðra
bestukjarasamninga. Frumvarpið
var lagt fram í kjölfar þess að
stjórnvöld í Bandaríkjunum og
Kína náðu samningum um við-
skiptakjör síðastliðið haust. Samn-
ingurinn varðar veginn fyrir inn-
göngu Kínverja í Heimsviðskipta-
stofnunina (WTO), en aðildarríki
stofnunarinnar verða hvert fyrir
sig að semja um viðskiptakjör við
þau ríki sem æskja inngöngu, áður
en aðild er veitt. Tollar á innflutn-
ingsvörur eru nú tiltölulega háir í
Kína, en með inngöngunni í WTO
munu þeir lækka verulega og fyr-
irtæki víðs vegar um heim fá mun
víðtækari aðgang að hinum gríðar-
stóra markaði í landinu.
Nýtt tímabil bættra
samskipta í uppsiglingu?
Samskipti Kína og Bandaríkj-
anna hafa verið stirð síðan flug-
skeyti hæfði kínverska sendiráðið í
Belgrad í loftárásum Atlantshafs-
bandalagsins á Júgóslavíu í fyrra-
vor, en talsmaður kínverska utan-
ríkisráðuneytisins, Sun Yuxi, sagði
að stjórnvöld í Kína teldu að sam-
þykkt frumvarpsins gæti markað
upphaf nýs tímabils í samskiptum
ríkjanna. „Ákvörðun Bandaríkja-
stjórnar um að taka upp eðlileg
viðskiptatengsl við Kína skapar
grundvöll fyrir stöðuga og lang-
varandi samvinnu Bandaríkjanna
og Kína á sviði efnahagsmála og
viðskipta," sagði Sun.
Bill Clinton Bandaríkjaforseti
lýsti yfir ánægju með samþykkt
frumvarpsins og sagði það grund-
völl að bættum samskiptum við
Kína. „Ég tel að í ljós muni koma
að Bandaríkin geti haft miklu
meiri áhrif í Kína með því að rétta
fram sáttahönd, en með krepptum
hnefa,“ sagði forsetinn, en á þessu
síðasta ári sínu í embætti hefur
hann lagt mikla áherslu á að þing-
ið samþykkti frumvarpið. Banda-
rísk fyrirtæki, sem eiga viðskipti
við Kína eða reka starfsemi í
landinu, fögnuðu einnig samþykkt
frumvarpsins. „Þetta er mikil-
vægasti áfanginn í samskiptum
Kínverja og Bandaríkjamanna á
síðustu tíu árum,“ sagði Christian
Murck, bankastjóri útibús Chase
Manhattan-bankans í Peking og
formaður stefnumótunarnefndar
bandaríska verslunarráðsins.
Mannréttinda-
samtök ósátt
Ekki eru þó allir á eitt sáttir um
ágæti frumvarpsins og ýmis
mannréttindasamtök eru meðal
þeirra sem gagnrýnt hafa sam-
þykkt þess.
Við hina árlegu umræðu í þing-
inu um viðskiptin við Kína hefur
jafnan verið litið til ástands mann-
réttindamála í landinu, en eftir
samþykkt frumvarpsins á Banda-
ríkjastjórn bágt með að beita við-
skiptum sem vopni í baráttunni
gegn mannréttindabrotum.
I frumvarpinu er reyndar
ákvæði um að sett verði á fót
nefnd, sem skuli kanna ástand
mannréttindamála í Kína og gefa
þinginu skýrslu á ári hverju, en
mannréttindasamtök telja ekki
nóg að gert og fullyrða að nefndin
muni hafa lítil áhrif.
Þá hafa verkalýðsfélög og ein-
angrunarsinnar barist gegn frum-
varpinu, en þeir óttast að banda-
rísk fyrirtæki muni nú í stórum
stíl flytja starfsemi sína til Kína,
þar sem vinnuafl er ódýrara, og
hafa þannig atvinnuna af banda-
rískum verkamönnum. Bandarísk
stjórnvöld hafa vísað þessum full-
yrðingum á bug, og segja að
ávinningurinn af frjálsari viðskipt-
um við Kína sé stórum meiri en sá
hugsanlegi kostnaður, sem af þeim
kunni að hljótast.