Morgunblaðið - 22.09.2000, Síða 25

Morgunblaðið - 22.09.2000, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ ERLENT FÖSTUDAGUR 22. SEPTEMBER 2000 25 kjósenda en Lazio HILLARY Rodham Clinton, for- setafrú Bandaríkjanna og frambjóð- andi demókrata til embættis öld- ungadeildarþingmanns New York- ríkis, nýtur nú mun meira fylgis en Rick A. Lazio, frambjóðandi repúblikana, skv. nýlegri skoðana- könnun dagblaðsins New York Tim- es og CBS sjónvarpsstöðvarinnar. Stuðningur kvenna og sjón- varpskappræður þeirra Clinton og Lazio í síðustu viku virðast eiga mikinn þátt í vinsældum forseta- frúarinnar. Lazio, sem áður naut meira fylgis en Clinton meðal þeirra kvenna sem búa í úthverfum borgarinnar, virðist hafa tapað nokkru af þeim stuðningi en 54% þeirra kveðast nú frekar munu kjósa Clinton. Fylgi Clintons meðal kjósenda er þá 48% á móti 39% fylgi Lazios og skilja því níu prósentustig frambjóðendurna að í stað fímm prósentustiga í júní sl. Að mati margra New York-búa kom Lazio illa fyrir í kappræðum frambjóðendanna í Buffalo í síðustu viku og sögðu þeir hann hafa virst harkalegur og óreyndur. Lýsti tæp- ur helmingur þeirra sem séð höfðu kappræðurnar Clinton sigurvegara þeirra og tilgreindu margar þeirra kvenna sem þátt tóku í skoðana- könnuninni árásargirni Lazios í garð Clintons meðal ástæðna fyrir vali sínu. Kappræðurnar, sem voru fyrsta tækifæri margra kjósenda til að virða Lazio fyrir sér, móta viss þáttaskil í kosningabaráttu Lazios en hann var tiltölulega óþekktur Iran fyrir framboð sitt. Frambjóðend- anna bíða tvennar sjónvarpskapp- ræður til viðbótar og viðurkenna ráðgjafar Clintons að frekari fylgis- breytingar kunni að eiga eftir að verða. Aðrir þeir sem þátt tóku í könn- uninni voru ýmist fylgjandi fram- bjóðendum smærri flokka eða höfðu ekki gert upp hug sinn. Þegar þrýst var á óákveðna jókst fylgi Clintons hins vegar enn frekar og naut hún stuðnings 51% kjósenda á móti 41% fylgi Lazios. Reuters Hillary Rodham Clinton og Rick Lazio sjást hér taka þátt í sjénvarps- kappræðum í síðustu viku. á Silverstone? LZJ Baráttan um öldungadeildarþingsæti New York-ríkis Clinton vinsælli meðal Dómar styttir yfir gyðingum Teheran, Shiraz. AP, AFP. ÍRANSKUR áfrýjunardómstóll stytti í gær dóma yfir 10 írönskum gyðingum sem dæmdir höfðu verið fyrir njósnir fyrir ísraelsk stjórn- völd. Urskurðaði dómstóllinn gyð- ingana saklausa af tveimur þeirra þriggja ákæruatriða sem þeir höfðu áður verið fundnir sekir um og voru fangelsisdómar þeirra styttir úr 4- 13 árum í 2-9 ár, að því er Hossein Ali Amiri, yfirmaður dómsvaldsins í Fars-héraðinu í suðurhluta Iran, greindi frá. „Þessir dómar eru eins vægir og hægt er og við höfum notfært okkur góðvild og örlæti Islams til hins ýtr- asta,“ sagði Amiri í viðtali við AP- fréttastofuna. En dómstóllinn felldi niður ákærur um að mennirnir hefðu tilheyrt ólöglegum njósnahring og að þeir hefðu unnið að því að fá nýja meðlimi í sínar raðir. „Samkvæmt lögum hefði mátt kveða upp dauða- dóm við þessum ákæruatriðum." Að sögn Amiri er úrskurður áfrýjunar- dómstólsins endanlegur og ekki unnt að áfrýja honum, en sá tími sem fangarnir hafa þegar dvalið bak við lás og slá dregst frá dómnum. „Dómstóllinn viðurkenndi þau rök okkar að allar kærurnar gegn gyð- ingunum tíu væru eitt ákæruatriði, en við teljum samt ennþá að þeir séu saklausir," sagði Esmail Naseri, einn verjenda sakborninganna. „Við erum samt ekki sáttir við að ákæran um samstarf við ísraelsstjórn standi þar sem íransstjórn viðurkennir ekki ísrael sem ríki og 508. grein refsilaganna, sem dómararnir dæmdu eftir, er því ekki viðeigandi," sagði Naseri. Þótt úrskurðurinn teljist endan- legur hafa verjendur engu að síður mánuð til að mótmæla dómnum hjá embætti ríkissaksóknara. COMPAa Grand Prix 3 tölvuleikirnir eru til sölu á flestum Shellstöðvum meöan á keppninni stendur. Kynniseintak meö Grand Prix 3 tölvuleiknum fylgir meö í hvert skipti sem þú kaupir Shell Formula eldsneyti. Þú keppir á tölvunni þinni og skráir árangurinn á www.shell.is Verálaun 1. Ferð fyrir tvo, gisting og boðsmiðar á Formúlu 1 í Silverstone á Englandi í maí 2001. 2. Compaq Presario ferðatölva frá BT tölvum. 3.-7. Tölvustýri frá BT tölvum. 8.-48. Ferraribolir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.