Morgunblaðið - 22.09.2000, Síða 28
28 FÖSTUDAGUK 22. SEPTEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Hönnun og list
MYIVDLIST
Epa 1, H ver íi sgö lu 2 0
BLÖNDUÐ TÆKNI
Daníel Mag'nússon, Gabríela Frið-
riksdóttir, Gjörningaklúbburinn,
Hallgrímur Helgason, Haraldur
Jónsson, Hrafnkell Sigurðsson,
Hulda Hákon og Húbert Nói.
Til 24. september.
Opið á verslunartíma.
TUTTUGU og fimm ár eru liðin
frá því Eyjólfur Pálsson stofnaði fyr-
irtækið Epal í höfuðið á sjálfum sér
og hratt af stað baráttu fyrir því að
íslendingar tækju til í eigin ranni og
færu að hugleiða hönnun í alvöru.
Þótt ef til vill sé þessi barátta rétt að
hefjast og enn eigi eftir að vinna
marga sigra á vígvelli smekkvísi og
fegrunar tókst Eyjólfi að sanna fyrir
íslendingum gildi góðrar og frum-
legrar hönnunar. Hann fékk þá meir
að segja til að kaupa vandaða hönn-
un, húsgögn jafnt sem húsbúnað.
Vissulega má segja að það sem
hafi orðið frumlegri hönnun að fóta-
kefli á fyrstu tugum aldarinnar hafi
verið hve framleiðslan vai- langt frá
því að vera samkeppnishæf. Það sem
hönnuðir Bauhaus-skólans höfðu
hugsað sér sem mögulega almenn-
ingseign varð alltof dýrt í fram-
leiðslu.
Á liðnum áratugum hefur tekist að
ryðja burt þessum tálma, eða lækka
að minnsta kosti framleiðsluverð
listrænnar hönnunar svo að nú er
hún á færi miklu stærri hóps manna
en á fyrri hluta aldarinnar. Þá er
hönnun sú tegund listar sem hlýtur
að hitta flesta Islendinga í hjarta-
stað. Þjóð sem er í jafnalvarlegri leit
Morgunblaðið/Halldór B. Runólfsson
Hjónarúm Haralds Jónssonar
með teiknuðum líkamsstelling-
um og ljósaröð umhverfis.
að eigin ímynd og við íslendingar
hlýtur að falla auðveldlega fyrir list
sem er jafnlýsandi fyrir eigandann.
Hönnun skilja nefnilega allir sem á
annað borð leyfa sér að horfa í kring-
um sig.
Þá eru í hönnun ávallt fólgnar
ákveðnar væntingar um fjöldafram-
leiðslu ef frumgerðin hittir í mark.
Þannig er um miklu meiri fjármuni
að ræða í hvers konar hönnun en í
svokallaðri frjálsri - réttara væri að
segja óhagnýtri - list. Þannig má
ætla að velgengni Eyjólfs megi auk
áræðis hans og dugnaðar rekja til
uppgangs alls kyns hönnunar á Vest-
urlöndum undanfama tvo til þrjá
áratugi.
Til að halda upp á afmælið efndi
Morgunblaðið/Halldór B. Runólfsson
Mynd Hallgríms Helgasonar af myndasöguhetjunni Grim við borðstofu-
borðið framan við myndina. I baksýn sést í málverk Gabrfelu Frið-
riksdóttur af svörtum fuglsunga.
Eyjólfur til samstarfs milli Epal og
nokkurra listamanna í því augnamiði
að bregða ljósi á tengsl hönnunar og
myndlistar. Þetta er auðvitað ekki
beinlínis nein nýjung í sjálfu sér því
lengi hafa listamenn stundað mark-
vissa smitun milli myndlistar og
hönnunar. Má nefna að meðal þekkt-
ustu myndlistarmanna Evrópu er að
finna ágæt efni í húsgagnahönnuði.
Má þar nefna Austurríkismanninn
Franz West, Svisslendinginn John
Armleder og Þjóðverjann Tobias
Rehberger, en sá síðastnefndi tjáir
sig nánast sem hönnuður.
Það verður ekki sagt um íslensku
listamennina á afmælissýningu Epal
að þeir vinni eins og hönnuðir, heldur
taka þeh' mið af hönnun. Þótt einn
þeirra, Daníel Magnússon, vinni sem
húsgagnasmiður gerir hann skýran
greinarmun á þeim hluta starfa síns
og listinni. Reyndar nýtti hann sér
smíðagáfu sína í fyrri verkum en síð-
an hann tók ljósmyndina í þjónustu
sína hefur hann skilið rækilega milli
hönnunar sinnar og myndlistar.
Ljósmyndir hans af hefðbundnum
húsgögnum eru engu að síður slá-
andi fagrar og til þess fallnar að
skerpa undir umræðunni um hús-
gagnagerð, fyrr og nú, í tengslum við
markmið og leiðir.
Gabríela Friðriksdóttir sýnir mál-
verk af svörtum fuglsunga sem virð-
ist vera að tæta sundur ánamaðk.
Tengsl málverksins við hægindastól-
inn fyrir framan eru auðsæ þótt
hvort stykkið fyrir sig gæti hæglega
staðið með einhverju öðru. Á næstu
grösum er hjónarúm Haralds Jóns-
sonar með lampaskógi umhverfis.
Ofan á ábreiðumar hefur hann
markað fyrir líkömum hjónanna með
sama hætti og lögreglan markar fyr-
ir líkama látinna eftir slys eða morð.
Þannig kemur Haraldur þessari
auðu hjónasæng til skila sem vett-
vangi þar sem finna má upphaf lífs
og endalok.
Við hornið er teiknimyndaleg
mynd Hallgríms Helgasonar af borð-
stofuborði með fjölfölduðum Grim,
sjálfsmyndarfigúru hans sem flestir
þekkja nú orðið á rostungstönnunum
og spýtugosanefinu. Framan við
verkið er svö auðvitað matarborðið
góða, að vísu autt, en óneitanlega
hlaðið andanum úr verki Hallgríms.
Skáhallt á móti er málverk Húberts
Nóa, ofurraunsæ mynd af Viper-skil-
rúmi Fritz Hansen, en vegna þess að
mótífið er reglulegt verður raunsætt
málverk af því abstrakt.
Skáhallt þaðan hefur Gjörninga-
klúbburinn komið fyrir fallega hönn-
uðum bangsa líkum einföldu logo
uppi í lofti salarins. Umhverfis eru
Ijósapokar verslunarinnar og mynda
um tuskudýrið verndandi umgjörð.
Þar hjá hefur Hulda Hákon valið þá
leið að stilla saman sófa í þrem ein-
ingum og þrískiptri lágmynd af eld-
tungum og texta. Samræmið er full-
komið enda ríma litirnir vel saman.
Verk Huldu verður fyrir vikið sann-
kölluð stofulist, myndlist í flútt við
húsgögnin. Við hlið hennar er ljós-
mynd Hrafnkels Sigurðssonar af
tveim samsettum skemlum með
raunverulegan skemil fyrir framan.
Hluturinn og mynd hans takast á um
athyglina.
Á ská gegnt Hrafnkatli er egglaga
stóll hangandi við hlið stórrar ljós-
myndar af þeim félögum Einari Erni
Benediktssjmi og Stephan Stephen-
sen - Steph - þar sem þeir brosa alls-
naktir eins og ofvaxnir putti úr ít-
ölsku endurreisnarmálverki. Það
lítur út fyrir að nektin eigi að vísa til
mýktar eggstólsins hangandi, og
þeirrar staðreyndar að mannsungar
fæðast naktir.
Þótt sýningin sé ef til vill í stysta
lagi er hún athyglisverð tilraun til að
sætta þá hunda og ketti sem hönnuð-
ir og óhagnýtir listamenn hafa verið
hér á landi. Rýmið er frábært líkt og
list sýnendanna og húsgögn afmælis-
barnsins hálfþrítuga.
Halldór Björn Runólfsson
Edda Björg Eyjólfsdóttir í hlutverki sínu.
Stjörnurnar
aftur í Iðnó
LEIKFELAG Islands sýndi leik-
ritið Stjörnur á morgunhimni í
Samkomuhúsinu á Akureyri á dög-
unum en sýningin var samstarfs-
verkefni þessara tveggja leikhúsa.
Nokkrar sýningar hafa verið
ákveðnar í Iðnó í kjölfar leikferð-
arinnar og verða þær fyrstu föstu-
daginn 22. sep. kl 20:00 og föstu-
daginn 29. sep. kl 20:00.
Sögusvið verksins er Ólympíu-
leikarnir í Moskvu árið 1980.
Vændiskonur og annar lýður
Moskvuborgar hefur lent í hreins-
un borgarinnar í tilefni af leikun-
um til þess að þau skemmi ekki þá
ímynd lands og þjóðar sem gest-
irnir taka með sér heim. A einm
nóttu kynnumst við vonum, ástum
og þrám sjö sjálfstæðra einstakl-
inga sem standa andspænis sam-
eiginlegum örlögum en bregðast
við á ólíkan hátt. Höfundur: Al-
exander Galin. íslensk þýðing:
Árni Bergmann. Leikstjórn: Magn-
ús .Geir Þórðarson. Leikarar: Edda
Björg Eyjólfsdóttir, Gunnar Hans-
son, Bryndís Petra Bragadóttir,
Margrét Ákadóttir, Nanna Kristín
Magnúsdóttir, Stefán Jónsson.
Leikmynd og búningar: Snorri
Freyr Hilmarsson. Lýsing: Þórður
Orri Pétursson. Tónlist: Skárren
ekkert.
Tónleikaröð kennara Tónlist-
arskólans í Kópavogi í Salnum
Margrét Stefánsdóttir og Dewitt Tipton.
FYRSTU tónleikar í tónleikaröð
kennara Tónlistarskólans í Kópa-
vogi verða haldnir í Salnum á laug-
ardaginn, 23. september, kl. 17. Þar
koma fram Margrét Stefánsdóttir
flautuleikari og Dewitt Tipton
pfanóleikari.
„Efnisskráin er blönduð og spann-
ar vítt tímabil í tónlistarsögunni,"
segir Margrét. „Elsta verkið er són-
ata eftir Mozart en það yngsta nefn-
ist Kokopeli Op.43 og er samið af
bandaríska tónskáldinu Katherine
Hoover. Kokopeli op. 43 er eina ein-
leiksverkið á efnisskránni en það er
skrifað fyrir flautu. Við munum
flytja Sónötu Op. 23 eftir Lowell
Liebermann og Duo eftir Aaron
Copland sem var eitt áhrifamesta
tónskáld Bandaríkjanna á 20. öid.
Duo fyrir flautu og píanó var sam-
ið árið 1970 í minningu prófessor
William Kincaid sem var einn
fremsti flautuleikari Bandan'kjanna
á tuttugustu öld.
Fyrsti kaflinn hefst á rólegu
flautusólói en áður en langt um líður
eykst hraðinn og tónlistin fer á
meira flug. Annar kaflinn er einfald-
ur í formi, dapur og angurvær.
Hann er sterk andstæða við loka-
kaflann sem er líflegur, bjartur og
dálítið glefsinn.
Á efnisskránni er einnig Sónata
Op. 23 eftir Lowell Liebermann sem
er tæplega fertugur en hefur náð
glæsilegum árangri. Verk Copland
og Liebermann eigaþað sameigin-
legt, að vera mjög krefjandi fyrir
bæði hljóðfærin og gætir þar jafn-
ræðis. Þessu er öfugt farið við Suite
de Trois Morceaux Op.116 eftir
Benjamin Godard þar sem píanóið
styður við flautuna. f sónötu Mozarts
er hvorugt hljóðfærið yfirgnæfandi.
Það er hægt að taka flautuna buitu
og eftir stendur falleg píanósónata.
Þegar mér bauðst að halda tón-
leika í Salnum var ég staðráðin í að
fá Dewitt með mér til samstarfs því
við störfuðum saman um skeið í
Bandaríkjunum er við vorum þar í
doktorsnámi. Það er þýðingai-mikið
að vinna með píanísta sem maður
treystir og veit að þekkir verkin
vel.“
„Við Margrét höfum átt gott sam-
starf og það er ánægjulegt að hafa
tækifæri til að koma hingað til lands
og spila með henni," segir Dewitt
Tipton. „Venjulega fæst ég við að
spila undir fyrir söngvara en vegna
starfs mfns sem undirleikari við há-
skólann í IUinois þá kynntist ég vel
heillandi tónbókmenntum flautunn-
ar. Verk samin fyrir flautu og píanó
eru oft mjög krefjandi fyrir píanist-
ann. í þeim er oft að finna kafla sem
eru jafti krefjandi og átakmiklir og í
einleiksverkum sem samin eru fyrir
píanó.“
„Þessi tónleikaröð er góð viðbót
við starf skólans," segir Margrét.
„Tónleikarnir era mikil hvatning
fyrir okkur bæði sem kennara og
tónlistarmenn. Nemendum gefst
kostur á að hlýða á tónleika og það
er nauðsynlegur hluti tónlistar-
menntunar en jafnframt hafa þeir
tækifæri til að hlusta á kennara sína
í hlutverki tónlistarmannsins.“
Píanóveisla í íslensku óperunni
ISLANDSDEILD Evrópusam-
bands píanókennara, EPTA,
stendur íýrir píanóveislu í Is-
lensku óperunni annan laugar-
dag, 30. september, kl. 16.
Þar munu koma fram níu af
okkar þekktustu píanóleikurum,
þau Anna Guðný Guðmundsdótt-
ir, Gísli Magnússon, Halldór
Haraldsson, Helga Bryndís
Magnúsdóttir, Miklós Dalmay,
Peter Máté, Richard Simm,
Steinunn Birna Ragnarsdóttir og
Jónas Ingimundarson, sem einn-
ig er kynnir á tónleikunum.
Efnisskráin verður ekki kynnt
fyrirfram heldur verður kynning-
in öll í höndum Jónasar. Tónleik-
arnir eru liður í dagskrá Reykja-
víkur - menningarborgar Evrópu
árið 2000. Forsala aðgöngumiða
er í Japis, Laugavegi 13 og versl-
uninni 12 tónum, Grettisgötu 64.
Miðaverð er 1.500 kr.