Morgunblaðið - 22.09.2000, Qupperneq 59
MORGUNBLAÐIÐ
HESTAR
Hestarnir nutu þess að geta svalað þorstanum í ám og lækjum.
Jackie og Þóra í stórkostlegu landslagi við Toblach-vatn í
36 stiga hita í lok ferðarinnar.
svo betra var að vera sem fyrst á
ferðinni. Síðar kom í ljós að þetta var
einn heitasti dagur sumarsins.
En ferðinni var heitið innarlega
inn í Pustertal að Toblach-vatni og
samnefndu þorpi. Allt gekk mjög vel
en þegar við vorum komin að vatninu
var kominn 36 stiga hiti. Þá var gott
að stoppa og leyfa hrossunum að
drekka vel og bíta. Þarna enduðum
við hestaferðina og hestarnir voru
fluttir til baka á bíl, en um klukku-
tíma akstur var að Widenhofer."
„Þetta var góður endir á góðri ferð
og óhætt er að segja að við vorum
mjög ánægð með þessa ferð í alla
staði. Það sem kom okkur skemmti-
legast á óvart var hversu hestarnir
voru góðir. Við áttum alveg eins von
á að þeir væru það ekki, en í ljós kom
að þetta voru vel tamdir og góðir
töltarar sem allir höfðu ánægju af að
ríða. Þetta skiptir auðvitað töluverðu
máli fyrir vant hestafólk. í raun og
veru þótti okkur hestarnir hafa að-
lagast umhverfinu þarna furðuvel.
Ég held að þessir hestar séu allir
fæddir á íslandi. Þrátt fyrir hitann
gat maður ekki séð að þeir blésu
mikið. Þeir svitnuðu töluvert, en
varla mikið meira en gengur og ger-
ist með hesta á ferðalögum hér á
landi. Þetta er mjög skemmtilegt
svæði með fínum stígum, sem reynd-
ar eru einnig ætlaðir göngu- og hjól-
reiðafólki. Og ekki var fólk að amast
við því þótt það mætti hestum, held-
ur virtist bara hafa gaman af því.
Víða voru áningarstaðir með borðum
og bekkjum og rennandi vatni og
fjallaskálar þar sem boðið var upp á
veitingar. Þessi aðstaða nýtist svo
skíðafólki á veturna.
Meðan við áðum gátu hestarnir
gripið niður og fengið sér að bíta.
Alltaf var nóg fyrir þá að drekka sem
hlýtur að hafa svalað þeim vel í hit-
unum, bæði úr rennum sem komið
var fyrir á áningarstöðunum og
einnig í tænim fjallalækjum og vötn-
um. Ekki var annað að sjá en hestun-
um liði mjög vel, enda skilst mér að
ekki sé um neitt sumarexem að ræða
á þessu svæði. í lok hvers reiðtúrs
voru þeir svo skolaðir úr köldu vatni
og burstaðir vel.“
Jóhannes segir það hafi reynst
mjög vel að blanda saman hestaJferð
og skemmtiferð. Þessh’ daglegu
reiðtúrar hefðu verið mjög mátulega
langir og alltaf tími til að gera eitt-
hvað annað á daginn.
Hópurinn hafi verið mátulega stór
miðað við hestafjöldann og tiltækt
gistirými á hótelinu, en samtals voru
þau 12 og 10 sem fóru yfirleitt á
hestbak.
)fAllt skipulag, gisting, matur,
reiðtúrar og ferðir var samkvæmt
óskum okkar. Umhverfið var alveg
sérstaklega fallegt og maturinn var
mjög góður. Mikið var um grænmet-
isrétti og boðið var upp á kjöt af villt-
um dýrum svæðisins. Það er gaman
að njóta samverunnar yfir góðri mál-
tíð á kvöldin eftir skemmtilegan dag
og í lok ferðar voru allir ánægðir,
ekki síður en eftir góða hestaferð á
íslandi," sagði Jóhannes að lokum.
Kvennaveldi á sameinaðri
skrifstofu hestamanna
ALLT stefnir í að konur ráði ríkjum
á sameinaðri skrifstofu hestamanna
sem til stendur að setja á laggirnar í
tilraunaskyni. Eins og fram hefur
komið eru í gangi þreifingar um
sameiningu Landsambands hesta-
mannafélaga, Félags hrossabænda
og Félags tamningmanna.
Fyrsta skrefið í þessa átt er sam-
eiginlegt skrifstofuhald þessara
þriggja aðila í tilraunaskyni fram að
áramótum. Sagði Sigrún Ogmunds-
dóttir, sem unnið hefur á þriðja ár á
skrifstofu LH, að ætlunin væri að
prófa þetta til skamms tíma og sjá
hvernig þetta kæmi út. Sigrún verð-
ur titluð skrifstofustjóri en hennþtil
halds og traust verður Sólveig As-
geirsdóttir sem hefur unnið á skrif-
stofu LH um nokkurra mánaða
skeið. Þriðja konan bætist fljótlega í
hópinn sem er Hulda Gústafsdóttir
en hún var, eins og fram kom í
hestaþætti á föstudag, ráðin til að
leiða átaksverkefni hrossaræktar.
Verður átaksverkefnið með aðstöðu
á hinni sameiginlegu skrifstofu og
því með réttu hægt að segja að þar
muni ríkja kvennaveldi næstu mán-
uði. Að vísu verður formaður LH,
Jón Albert Sigurbjörnsson, áfram
starfandi á skrifstofunni en ráðning
framkvæmdastjóra LH hefur verið
sett á hilluna að sinni þar til niður-
staða fæst í það sameiningarferli
sem nú er komið í gang. Skrifstofan
verður í Iþróttamiðstöðinni í Laug-
ardal í húsnæði því sem skrifstofa
LH hefur verið til húsa.
Sigrún upplýsti að LH sé um
þessar mundir þriðja stærsta
sérsamband innan ÍSÍ, skráðir fé-
lagar eru 8.355 en voru fyrir ári
7.261. Hefur því fjölgað um ríflega
þúsund manns í samtökunum og
þykir sumum það ekki mikil tíðindi
því fjöldi innan samtakanna tekur
alltaf kipp ugp á við þegar landsmót
eru haldin. Astæðan er sú að fjöldi
hrossa, sem félög mega senda til
keppni á landsmótum, ræðst af fé-
lagafjölda hvers félags og virðist því
sem fram fari hraustleg smölun í fé-
lögin þau ár sem landsmót eru hald-
in.
Aðalverkefni skrifstofunnar um
þessar mundir er undirbúningur
fyrir ársþing LH sem haldið verður
í Mosfellsbæ. Sagði Sigrún að þing-
fulltrúar yrðu 134 og verður þingið
hið fjölmennasta sem haldið hefur
verið af samtökunum. Engar tillög-
ur hafa enn borist skrifstofunni en
skilafrestur tillagna er til 1. október
en kjörbréf frá félögunum þarf að
skila í síðasta lagi 25. september nk.
FÖSTUDAGUR 22. SEPTEMBER 2000 59
Hönnuðurinn
Petep Dpsvik
Sérstakur
sess
Hönnuðurinn
Peter
i
Opsvik ;
■
skipar
sérstakan
sess í
húsgagnahönnun.
Hugkvæmni
>
í þágu /
þæginda \
%
og
heilbrigðis
einkennir
hönnun
hans.
¥
Skeifunni 6
Sími: 568 7733
i'