Morgunblaðið - 22.09.2000, Síða 67
MORGUNBLAÐIÐ
_______________________________FÖSTUDAGUR 22, SEPTEMBER 2000 67
FÓLK í FRÉTTUM
André Bachman í góðra vina hópi. Morgunblaðið/Þorkeli Þorkelsson
Konungur kokkteiltónanna
Það er ekki öll plötusala skráð á Tónlistann.
Platan Maður lifandi hefur nú selst í um
10 þúsund eintökum án þess að hafa nokkru
sinni svo mikið sem náð inn á topp 10.
_ ••
Birgir Orn Steinarsson hitti André
Bachmann, einn margra flytjenda á
plötunni og umsjónarmann, og óskaði
honum til haming;iu með árangurinn.
FYRIR skömmu bárust André
Bachmann tónlistarmanni þau gleði-
tíðindi að öll tíu þúsund eintökin sem
framleidd voru af plötunni Maður lif-
andi væru nú seld. A þeirri plötu
leiddu margir af þekktustu tónlistar-
mönnum landsins saman hesta sína til
styrktar vangefnum og þroskaheft-
utn. Styrktarfélagið Ás sá um útgáfu
plötunnar á síðasta ári vegna fjörutíu
ára afmælis félagsins. Síðan þá hafa
meðlimir þess lagt allan metnað sinn í
að selja plötuna í símasölu með íyrr-
nefndum árangri. Þar sem móttök-
umar hafa verið framar öllum vonum
sá styrktarfélagið ástæðu til þess að
panta annað upplag af gripnum sem
nú er á leiðinni til landsins.
André var einn af umsjónarmönn-
um útgáfunnar á sínum tíma en áplöt-
unni syngur hann einnig lagið „Eg er
kominn heim“ sem Óðinn Valdimars-
son gerði landsfrægt á sjöunda ára-
tugnum.
Vinamargur í
tónlistarbransanum
„Mér hefur alltaf fundist vangefnir
og þroskaheftir hafa verið utangáttar
í þessu þjóðfélagi og þeir eru það
enn,“ segir hinn landsþekkti
skemmtikraftur André Bachmann
þegar blaðamaður leit inn tU hans í
heimsókn á dögunum. „Þetta fólk fær
hvorki vinnu né skólavist og það þykir
mér skelfilegt. Mér þykir svo vænt
um þetta fólk.“
Þegar blaðamaður bað svo Andi-é
um að nefna nokkra þá flytjendur
sem gáfu vinnu sína við gerð plötunn-
ar er ekki laust við að þar hafl hann
komið André í vandræði. Þakklætið í
þeirra garð er slíkt að það reynist
honum þraut að nefna „nokki-a“ þeg-
ar hann vUl nefna alla. „Ég á svo
marga vini í tónlistarbransanum,"
segir hann og byrjar að þylja upp
nöfnin. Þau nöfn sem blaðamaður
náði að punkta hjá sér voru: Raggi
Bjama, KK, Rúnar Júh'usson, Diddú,
Ómar Ragnarsson, Páll Óskar og
Móa. „Svo þótti mér vænt um að fá
þennan mann héma, Maestro eins og
við strákamir köllum hann stundum,"
segir André og bendh’ á mynd á plötu-
umslaginu af Björgvini Halldórssyni.
André tekur upp hanskann fyrir
þroskahefta og vangefna við hvert
tækifæri og framlag hans tU útgáfu
geisladisksins því ekkert einsdæmi.
Auk þess sem hann hefur aðstoðað
styrktarfélagið Ás hefur hann lagt
hönd á plóg fyrir Kópavogshæli og
Kiwanis-klúbbinn.
„Ég er ekki fæddur eins og allir
aðrir. Ég var holgóma með skarð í vör
og fór í fleirl, fleiri aðgerðir sem bam
og unglingur. Þegar ég var um 10 ára
gamall vai’ mótlætið oft svo mikið að
ég þurfti að leita skjóls heima hjá vin-
um mínum Ingimari og Eiríki Einars-
sonum. Eiríkur var þroskaheftur og
spastískur. Það var gaman að leika
við hann. Hann hló aUtaf svo mikið.“
Baráttan við brjósklosið
Fyrir fjóram áram lenti André í
bflslysi.
„Ég beið á rauðu ljósi við FH-húsið.
Þá kom jeppi á fleygiferð og gleymdi
að beygja og lenti því beint á mér,“
segir André og skellir upp úr.
Það er þó einhver sárabót að hann
getur hlegið að óláni sínu í dag því
höggið orsakaði brjósklos í baki hans
sem hrjáir hann enn.
„Þetta hefur kostað bæði tár og
svita. Ég er búinn að fara í sjö aðgerð-
ir og þar af hafa sex þeirra verið út af
læknamistökum. Þetta tekur allt sinn
toll.“
André segist þó eiga góða að og eft-
ir langa og erfiða þrautagöngu sjái
hann loksins fram á betri tíma.
„Ég er virkilega glaður að finna það
að ég geti labbað meira en 100 metra
núna án þess að fá sting í bakið. Ég er
bara að styrkja mig núna tíl þess að
vera klár í slaginn fyrir jólin.“
André er þegar byrjaður að leggja
drög að verkefnum vetrarms og á
dagskránni er meðal annars undir-
búningsvinna fyrir geisladiskaútgáfu
tU styrktar bamaspítala Hringsins.
Hann er líka langt kominn með það að
undirbúa jólaspilamennskuna en
hann ætlar ásamt Huldu Gestsdóttur,
Birgi J. Birgissyni, Jóhannesi Bach-
mann bróður sínum og Sigurrósu
Jónsdóttur mágkonu sinni að koma
gestum Stapans í jólaskapið. Að sjálf-
sögðu gleymir hann ekki vinum sínum
í Styrktarfélaginu Ási og hefur þegar
bókað sig á jólaskemmtun þeirra.
„Ég fæ bros frá vinum mínum að
launum. Ég tala þeirra máli, þetta er
gott fólk. Það metur allt svo mikið
sem þú gerir.“
André hefur verið kallaður ýmsum
nöfnum í gegnum tíðina en af þeim
sem blaðamaður hefur heyrt er hann
hi-ifnastur af: „Konungur kokkteil-
tónanna".
„Það var Jakob Frímann Magnús-
son sem kom þessu nafni á mig. Svo
hef ég líka fengið annað nafn á mig;
„Gleðigjafinn". Mér þykir mjög nota-
legt að geta fengið svona nöín á mig í
stað þess að vera kallaður Nonni
glæpon eða Pétur haúslausi," segir
André og ætlar greinilega að halda
sig áfram í góða liðinu.
MYNDBOND
Sálarflækjurs
Kana
Mumford læknir
(Mumford)________
Gamanmynd
★★
Leikstjórn og handrit: Lawrence
Kasdan. Aðalhlutverk: Loren Dean,
Hope Davis, Jason Lee og Mary
McDonnell. (111 mín.) Bandaríkin,
1999. Sam-myndbönd. Öllum leyfð.
BANDARÍSKI leikstjórinn
Lawrence Kasdan er þekktur fyrir
myndir á borð við The Big Chill og
The Accidentai Tourist, sem fjalla á
grátbroslegan hátt um mannleg sam-
skipti og hversdag- 1
inn. Nýjasta mynd
Kasdans, Mum-
ford, er mjög í 1
þessum anda en lít-
ið hefur farið fyrir
henni bæði hér f
heima og í Banda- ..
ríkjunum. Þótt
Mumford sé ekki á r
við hans bestu
myndir á hún samt athygli skilið, þar
sem henni má skipa skör hærra en r.
hinni almennu afþreyingargaman-<’t
mynd markaðarins. Þar segir frá
ungum sálfræðingi sem heitir sama
nafni og bærinn sem hann starfar í,
þ.e. Mumford. Mumford (Loren
Dean) virðist hafa einstaka hæfileika
til þess að greiða úr sálarflækjum
sjúklinga sinna og brátt verður hann '
umtalaður í bænum. Þannig koma <
ýmsar kostulegar persónur við sögu
en eftirminnilegust þeirra er líkleg-
ast tölvuséníið og biÚjónamæringur-
inn Skip Skipperton (Jason Lee) sem j.
á hálfan bæinn en enga vini. Það eru*j ,
einna helst persónusköpun og samtöl
sem era áhugaverð, því þegar kemur
að úrlausn flækjanna verður myndin
dálítið fyrirsjáanleg. Söguefnið er
heldur engin nýlunda, en það gefur
myndinni þó gildi að Kaszdan tekur
þar á samtímamálefnum, t.d. varð-
andi sálfræðikúltúrinn í Bandaríkj-
unum og hina nýju kynslóð milljóna-
mæringa úr tölvubransanum. Þegar
öllu er á botninn er hvolft er Mum- [
ford þó fyrst og fremst skemmtileg <
afþreying.
Heiða Jóhannsdóttir
Nœturqadnn
simi 587 6080
I kvöld leika fyrir dansi
Hilmar Sverrisson og Anna Vilhjálms
C
Frítt inn til 23.30