Morgunblaðið - 22.09.2000, Page 76
MORGVNBLADW,mNGLUNNU,mREYKJAVÍK,StMIS69im,SÍMBRÉFB69im,PÓSTHÓLF3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 6691192, NETFANG: WTSTJ@MB LJS, AKVREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
FÖSTUDAGUR 22. SEPTEMBER 2000
VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK.
fcí
rawMtojllÉ&’
Morgunblaðið/Sverrir
fslenski skálinn á EXPO í Hannover
Erlend stórfyrir-
tæki vilja kaupa
-Orn Arn-
arson
bestur
Evrópu-
búa
ORN Arnarson, sundmaður úr
Hafnarfírði, varð í fjórða sæti í
jttfltiO metra baksundi á Ólympíu-
leikunum í Sydney í gær, synti á
1.59,00, 1/100 hægar en hann
gerði í undanúrslitum í fyrradag.
Þetta er besti árangur sem ís-
NOKKUR erlend stórfyrirtæki hafa
sýnt mikinn áhuga á að kaupa ís-
lenska skálann á EXPO-heims-
sýningunni í Hannover í Þýskalandi
samkvæmt áreiðanlegum heimild-
um Fréttavefjar Morgunblaðsins.
Sýningunni í Hannover lýkur 31.
október og þá þarf að fjarlægja
skálann sem stendur á svæði sem
ætlað er sem bílastæði. Skálinn hef-
ur vakið mikla athygli gesta á
heimssýningunni og hafa nú 3,2
milljónir manna heimsótt hann frá
opnun sýningarinnar 1. júní í sumar.
íslenski skálinn er risakubbur úr
stálgrind, 23x23 metrar að flatar-
máli og 19 metrar á hæð. Skálinn er
klæddur bláum plastdúk og glærum
þar yfir og rennur vatn af þaki hans.
Skálinn er byggður þannig að auð-
velt er að taka hann niður og færa
hann úr stað.
Madeleine Albright
Albright
kemur
MADELEINE Albright, utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna, kemur í
opinbera heimsókn til íslands 30.
september nk. í boði Halldórs As-
grímssonar utanríkisráðherra.
í tilkynningu frá utanríkisráðu-
neyti segir að þau muni ræða fram-
kvæmd varnarsamnings Islands og
Bandaríkjanna og hvernig minnst
verði 50 ára afmælis hans á næsta
ári. Rætt verður um Evrópusam-
starf í öryggis- og varnarmálum, al-
þjóðlega friðargæslu auk viðskipta
landanna, þar á meðal möguleika á
auknum samskiptum við Alaska.
Finnbogi A. Baldvinsson kaupir fískvinnslu Hussmann & Hahn 1 Cuxhaven
Tveggja ára verkefni að end-
urskipuleggja fyrirtækið
lenskur sundmaður hefur náð á
Ólympíuleikum og er Örn nú
fljótastur baksundsmanna í
Evrópu því sá Evrópubúi sem
kom næstur var Emanuele Merisi
frá Ítalíu sem var 1/100 á eftir
Erni.
Á myndinni er Örn í góðum
hópi, lengst til vinstri er Merisi
frá Itah'u, þá sést f bak Aarons
Peirsols frá Bandaríkjunum sem
varð annar í sundinu, þá er Örn
og lengst til hægri er sigur-
Sgarinn, Lenny Krayzelburg frá
andaríkjunum. Á annarri braut
sést Razvan Florea frá Rúmeniu
fylgjast með þeim en hann varð í
6. sæti.
■ Einbeittur vilji/B2
FINNBOGI A. Baldvinsson, fram-
kvæmdastjóri DFFU, dótturfélags
Samherja hf. í Þýskalandi, hefur
undirritað í eigin nafni samning um
kaup á meirihluta hlutafjár í þýska
fiskvmnslufyrirtækinu Hussmann &
Hahn í Cuxhaven í Þýskalandi, með
fyrirvara. Hussmann & Hahn er eitt
af stærri fyrirtækjum á sínu sviði í
Þýskalandi en fyrirtækið framleiðir
frystar og ferskar afurðir á neytenda-
og fyrirtækjamarkað. Velta fyrirtæk-
isins á liðnu ári nam um 7 milljörðum
íslenskra króna og hjá því starfa rúm-
lega 500 manns að jafnaði.
Morgunblaðið leitaði viðbragða við
þessu hjá forstjóra Hussmann &
Hahn, Thomasi Hahn, sem sagði að
yfirlýsingar væri að vænta í næstu
viku.
Hefur átt í rekstrarörðugleikum
Hussmann & Hahn á um 90 ára
sögu að baki. Fyrirtækið hefur átt við
verulega rekstrarörðugleika að stríða
undanfama mánuði. Undir forystu
stjómar Neðra-Saxlands og bæjar-
yfirvalda í Cuxhaven náðist í gær
samkomulag við lánadrottna sem
tryggja mun áframhaldandi rekstur.
Morgunblaðið náði tali af Finnboga
í gær og spurði hver framvindan yrði
nú. „Við emm með frest fram í næstu
viku og gangi allt eftir er miðað við að
ég yfirtaki fyrirtækið í lok mánaðar-
ins en fyrirvaramir varða stærstu
lánadrottna fyrirtækisins. Ég er með
ákveðna fjárfesta á bak við mig og
það kemur í Ijóst á næstu þremur vik-
um hveijir það em og þá hvort Sam-
heiji er einn þeirra. Kaupverð er
trúnaðarmál en þetta er að miklu
leyti yfirtaka skulda.
Mér lízt mjög vel á að fara að taka
þátt í fiskvinnslu í Cuxhaven. Hér er
töluvert framboð á fiski. Það er að-
gangur að fiski frá íslandi, Noregi,
Færeyjum og Danmörku og þýzk
skip landa einnig afla sínum í Cux-
haven. Fyrirtækið tók á móti um það
bil 10.000 tonnum af ferskum fiski í
fyrra. Fyrirtækið er einnig í reyk-
ingu, síldarvinnslu og fullunnum af-
urðum,“ segir Finnbogi.
Reksturinn hefur gengið illa en
hann telur líkur á að sér muni ganga
betur: „Ég held að við höfum mikla
möguleika á að endurskipuleggja
þennan rekstur. Markmiðið er að eft-
ir tvö ár verði Hussmann & Hahn öfl-
ugt og sterkt fyrirtæki í fiskvinnslu
og markaðssetningu sjávarafurða."
Hann kveður líklegt að samvinna
verði milli fyrirtækisins og Samheija.
„Samheiji er þekktur fyrir góða
framleiðslu og auðvitað horfi ég til
þess að geta keypt afurðir af skipum
og framleiðslufyrirtækjum Sam-
heija,“ segir Finnbogi.
------*-*-*----
Sóttu
portúgalskan
sjómann
ÞYRLA Landhelgisgæslunnar, TF-
Líf, fór í sjúkraflug seint í gærkvöld
og sótti veikan portúgalskan sjó-
mann um borð í togarann Bad-
minton, sem skráður er í Beliz, um
230 mílur suður af Reykjavík.
Maðurinn kvartaði undan miklum
verkjum í kvið og var þyrlan því send
af stað. Áætlað var að flugið tæki um
fjóra og hálfan tíma og átti þyrlan að
lenda í Reykjavík laust fyrir klukkan
tvö í nótt.
Öryggismiðstöðvar ísiands
’Nú býdst korthöfum VISA heimagæsla á sérstöku tHboOsveröi.
Einungis er greitt fyrir 10 mánuOi á ári.
Bjóðum einnig þráðlausan búnaO.
o
|TBPjͫI
FRIÐINDAKLUBBURINN
ismidstöö
Síml533 2400